Þjóðviljinn - 08.05.1986, Page 23
skipulagið
á kostnao íbúa
skipulags- og byggingarskilmála í
tillöguna, en það samrýmist ekki
skipulagsreglugerð. Því sé skipu-
lagið ekki tilbúið til staðfesting-
ar. Nú liggur tillagan í félags-
málaráðuneytinu og ekki vitað
frekar um afdrif hennar.
Þannig hefur tillaga Sjálfstæð-
isflokksins verið gagnrýnd harð-
lega af félagasamtökum, íbúa-
samtökum, hagsmunaaðilum,
minnihlutanum í borgarstjórn,
skipulagsstjóra ríkisins og full-
trúa félagsmálaráðherra í skipu-
lagsstjórn.
Ógreidd
gatnagerðargjöld
En það verður ekki einungis
sagt um þetta skipulag að það sé
hið versta slys. Það er einnig í
uppsiglingu pólitískt hneyksli
vegna gatnagerðargjalda lóðar-
eigenda. Þeir eru einmitt margir
hverjir meðal fjármálastoða
Sjálfstæðisflokksins og til að
komast hjá því að þurfa að láta
þessa menn greiða gatnagerðar-
gjöld sem nema tugmiljónum,
hefur flokkurinn ítrekað frestað
því að taka upp gjaldskrá fyrir
slík gjöld af eignarlóðum á svæð-
inu.
Jafnvel er búist við að gatna-
gerðargjöld verði ekki tekin upp
fyrr en tryggt sé að gæðingarnir
sleppi algerlega við að greiða
þau!
—gg
Borgarstiórinn
Orð
en ekki
athafnir
Davíð Oddsson í mars:
Húsnæðisfulltrúinn
færður í annað starf.
Borgarstjórinn í apríl:
Ekkert liggur á. Komið
fram í maí: Ekkert gerist
Davíð Oddsson borgarstjóri
lýsti því yfir í fjölmiðlum í mars
að húsnæðisfulltrúi hjá fé-
lagsmálastofnun borgarinnar
yrði færður úr því starfi, þar sem
hann hefði notfært sér aðstöðu
sína hjá stofnuninni sér og fyrir-
tæki sínu tii framdráttar. Fyrir-
tækið Ieigði borginni íbúðir, sem
borgin síðan framleigði skjól-
stæðingum sínum og sá húsnæðis-
fulltrúinn alfarið um þessi við-
skipti.
Þjóðviljinn upplýsti þetta í
mars, og fljótlega eftir það kom
þessi yfirlýsing Davíðs. Ekkert
hefur hins vegar gerst í málinu.
Davíð var krafinn svara um
þetta mál á borgarstjórnarfundi
fyrir skömmu og sagðist þá ekki
sjá neitt sem hvetti til að færa
manninn til í starfi.
Áður hafa verið bornar fram
fyrirspurnir um málið í fél-
agsmálaráði, en engin
fullnægjandi svör fengist. Húsn-
æðisfulltrúinn situr því enn.
Borgarfulltrúar minnihlutans
hafa gagnrýnt borgarstjórann
fyrir þessi vinnubrögð og sagt þau
röng bæði vegna húsnæðisfulltrú-
ans og þeirra sem þurfa að leita til
hans. -gg
Það stendur allt og fellur með heimilisbuddunni. Hún er undirstaðan.
Ef eitthvað er í henni, - þá er gaman. Sé hún tóm þá er ekki eins gaman. Þess vegna
verður að gæta buddunnar, - gæta sparnaðar í hvívetna. Til dæmis í
þar er eflaust
Kauptu inn þar sem
SIiki er eKKi SDarnaour. r-iarou pao nuarast. ao neimiiisDuaaarEöoiir'OKki nvao sem er.
/MIKLIG4RÐUR
MIKIÐ FYRIR LtTIÐ
Hagstœó tilboö í tilefni afmœlisins.
Komdu, skoðaðu, sparaðu.