Þjóðviljinn - 08.05.1986, Síða 24
Kvennaathvarfið
Okkur sárvantar fé
Eldhúsið er sannarlega hjarta heimilisins. Það er í senn vettvangur matseldar, og alls sem því fylgir,
og mótsstaður fjölskyldunnar. IKEA hefur gert drauminn um óskaeldhúsið að veruleika. IKEA býður margar
gerðir eldhúsinnréttinga á óviðjafnanlegu verði.
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 108 Reykjavík. Sími 686650.
U fyrir Guð
Góður og gegn Sjálfstæðis-
maður fór með gamla frænku sína
á kjörstað. Áður en hún fór inn í
kjörklefann minnti hann frænk-
una á að kjósa nú rétt. „Mundu,
að það er D fyrir Drottinn“ árétt-
aði hann. Þegar hún kom svo út
eftir drykklanga stund og hann
ók henni heim, spurði hann
frænkuna hvort hún hefði ekki
áreiðanlega munað að kjósa rétt.
„Víst gerði ég það, heillin,"
svaraði frænkan, „var það ekki G
fyrir guð?“
Sjálfstæðisflokkurinn þráast við að
greiða út styrk til Kvennaathvarfsins.
Fóru fram á eina miljón, en eiga að fá
625 þúsund. Ólöf Briem í Kvennaat-
hvarfi: 15-20 konur og börn í athvarfmu
daglega. Okkur liggur á að fá peninga
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins hafa enn ekki fengist til
að greiða Samtökum um kvenna-
athvarf 625 þúsund króna styrk
sem samþykktur var við af-
greiðsiu fjárhagsáætlunar borg-
arinnar fyrir þetta ár. Á fundi
borgarráðs I vikunni var tillögu
Sigurjóns Pétu'ssonar um að
styrkurinn yrði greiddur enn
frestað og verður hún ekki af-
greidd fyrr en í næstu viku.
Samtök um kvennaathvarf
fóru fram á tæplega eina miljón
króna í styrk frá borginni til
reksturs kvennaathvarfsins.
Minnihluti borgarstjórnar var
reiðubúinn að fallast á þessa
beiðni við afgreiðslu fjárhagsá-
ætlunar, en meirihlutinn skar
styrkinn niður í 625 þúsund. Og
það var ekki látið þar við sitja,
heldur var styrkurinn samþykict-
ur þannig, að sérstaka sam-
þykkt borgarráðs þarf til að fá
hann greiddan.
Engar skýringar
Guðrún Ágústsdóttir borgar-
fulltrúi sagði í samtali við Pjóð-
viljann nýlega að slíkur af-
greiðslumáti væri mjög óvenju-
legur, og lýsti best þeirri fyrirlitn-
ingu sem borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins hefðu á þessari
starfsemi. Það kom einnig fram í
máli Guðrúnar að borgarstjóri
hefði aldrei gefið neinar full
nægjandi skýringar á því hvers
vegna styrkurinn er ekki greiddur
undanbragðalaust.
„Meirihluti borgarstjórnar
hefur sýnt þessari starfsemi furð-
ulegt áhugaleysi. En ég vona að
borgaryfirvöld sjái að sér í þessu
máli. Það hefur komið fyrir
áður,“ sagði Guðrún.
Brýnt fyrir athvarfið
Samtök um kvennathvarf fóru
þess á leit við borgaryfirvöld fyrir
nokkrum vikum að styrkurinn
verði greiddur, en borgaryfirvöld
hafa ekki haft fyrir því að svara
þeirri beiðni.
„Við gerum okkur auðvitað
vonir um að borgaryfirvöld taki
við sér og greiði þennan styrk
innan tíðar,“ sagði Ólöf Briem í
samtali við Þjóðviljann í síðustu
viku, en hún á sæti í fjármálahópi
samtakanna. Ólöf sagði það
mjög brýnt fyrir kvennaathvarfið
að fá þennan styrk, „og okkur
liggur á,“ segir hún enda er fjár-
hagsstaða athvarfsins slæm.
Skjólstæðingum þess hefur fjölg-
að gífurlega á undanförnum mán-
uðum og síðan um áramót hafa
verið 15-20 börn og konur þar á
dag, að sögn Ólafar.
Sem fyrr segir hefur tillögu Sig-
urjóns Péturssonar í borgarráði
verið frestað tvívegis og verður
ekki afgreidd fyrr en í næstu viku.
Þá verða liðnir fjórir mánuðir frá
því borgarstjórn samþykkti að
veita þennan styrk.
—gg
Ólöf Briem: Þaðermjög brýntfyrir
starfsemina að þessi styrkur fáist.
ELDHUSIÐ ER HJARIA HEIMILISINS