Þjóðviljinn - 10.08.1986, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 10.08.1986, Qupperneq 5
Handritamálinu er ekki lokið Rœtt við Stefán Karlsson, norrœnufrœðing, um starfsemi Árnastofnunar. Þó gengið hafi verið frá samningum við Dani er óþrjótandi vinna við handritin framundan unarstigi en önnur langt komin í prentsmiðju. „Það er óhugsandi að venjuleg bókaforlög gefi út fræðilegar út- gáfur handritatexta því kostnað- urinn við slíka útgáfu skilar sér ekki á einni jólabókavertíð. Slík- ar útgáfur verða því að vera styrktar af opinberu fé.“ Erlendirfrœðimenn leita til stofnunarinnar Erlendir fræðimenn leita mikið til Árnastofnunar eða systur- stofnunarinnar í Kaupmanna- höfn, Det arna magnæanske in- stitut. Stefán sagði að ástæðan fyrir því að erlendir fræðimenn vilja að þessar stofnanir gefi út fræðirit þeirra sé að fólk á þessum stofnunum er með sérþekkingu á sviði norrænna miðaldabók- mennta og því vant vinnu- brögðum af þessu tagi og þykir því akkur í að slíkt fólk lesi yfir handritin áður en þau eru gefin út. Næstu bækur sem væntanlegar eru frá stofnuninni eru líklega safn fyrirlestra, sem haldnir voru á ráðstefnu í tilefni sjöhundruð- ustu ártíðar Sturlu Þórðarsonar, og vísindaleg útgáfa af Færey- ingasögu, sem Ólafur Halldórs- son hefur séð um, og ljósprentun eiginhandrita Bjarna Thorarens- en á ljóðum hans. Fingrafita holl handritunum Þó búið sé að undirrita sam- komulag um skiptingu handrit- anna eru þau ekki öll komin til landsins enn. „Ætli það láti ekki nærri að um tveir þriðju hlutar af þeim handritum, sem eiga að koma, séu þegar komnir. í samkomulaginu er talað um að afhendingin geti tekið allt að tutt- ugu og fimm árum.“ Handritin eru varðveitt í traustri geymslu í Árnastofnun og er haft á þeim ákveðið raka- og hitastig, sem er þeim hollt. Fræðileg vinna með handritin fer nú orðið mest fram með ljós- myndum, þannig að handritin verða ekki fyrir sliti. Þó er ætíð gripið til þeirra af og til þegar vafaatriði koma upp. „Þó ljósmyndirnar komi að góðu gagni, þá vinna fræðimenn- irnir öðrum þræði með handritin sjálf, enda eru fæst það illa farin að það skaði þau. Það sagði eitt sinn við mig kona, sem hafði unn- ið lengi að handritaviðgerðum, að ekkert væri skinnbókum jafn hollt og fingrafita". Áhugi ó miðöldum hefur aukist Á síðustu árum hefur áhugi á eldri bókmenntum farið vaxandi við Háskólann. „Það má segja að áhuginn á nútímabókmenntum sé ekki eins einráður og hann var um skeið. Víða erlendis hefur áhugi á miðöldum verið mikill um langt skeið. og þegar hver bókin á fætur annarri er skrifuð um íslenskar miðaldabókmenntir í mörgum þjóðlöndum, þá hefur það áhrif hér heima. Vonandi hefur starfsemi Árnastofnunar og kennsla starfsmanna hennar við háskólann líka ýtt undir áhug- ann. Það var t.d. ákaflega ánægjulegt hversu stór hópur ís- lenskra stúdenta sótti alþjóðlega fornsagnaþingið í Danmörku sl. sumar.“ Þó áhugi hafi farið vaxandi þá verður ekki það sama sagt um skilning hins opinbera á að stofn- unin þurfi myndarlegan stuðning til þess að geta þjónað því hlut- verki sem henni er ætlað. „Þetta er alvarlegt sé það skoðað í því ljósi að Árnastofnun er ein af örfáum stofnunum hér á landi, sem er sótt af vísinda- mönnum víðsvegar að úr heimin- um.“ Starfsliði við stofnunina hefur ekki fjölgað í 15 ár. Nú eru fimm fastar fræðimannastöður við stofnunina og auk þess fjórar fræðimannastöður til skemmri tíma. „Það var myndarlega af stað farið þegar séð var að handritin kæmu heim. Þá var byggt yfir stofnunina en eftir því sem árin hafa liðið og starfsemin orðið margþættari hefur gengið erfið- legar að fá fjárveitingar til að endast. Hér væri hægt að sinna miklu fleiri verkefnum ef fé væri fyrir hendi. Það gerist t.d. árlega að verk tefjast í prentun þar sem fé er þrotið og við getum ekki borgað prentunarkostnaðinn. Við búum sjálfsagt ekki við lakari kjör en fjöldi annarra ríkis- stofnanna og það skiptir ekki máli hverjir eru í stjórn. Allir flokkarnir vilja hafa hemil á út- þenslu þessa svokallaða ríkis- bákns. En staða Árnastofnunar er töluvert sérstæð þar sem hér er verið að vinna að menningararfi okkar, menningararfi sem jafn- framt er svo sérstæður að um hann er fjallað við fræðasetur um víða veröld“. íslensk handrit erlendis Rannsóknir á Árnastofnun takmarkast ekki við rannsóknir á handritum sem hér eiga heima, heldur felst stór hluti vinnunnar í samanburði á handritum, sem geta verið dreifð milli margra safna hér heima og erlendis. Á milli Norðurlandanna eru hand- ritalán tíðkuð en á Bretlands- eyjum gildir sú regla að sé handrit einusinni komið á safn þá fer það ekki út af því. Þaðan verður því að fá myndir eða filmur af hand- ritum, og stundum þurfa hand- ritafræðingar að ferðast víða til að stunda rannsóknir sínar. Slík- um ferðum er þó mjög stillt í hóf að sögn Stefáns. íslensk handrit eru víða á söfn- um erlendis m.a. í Danmörku, en þegar þau handrit, sem samið hefur verið um að afhenda okk- ur, eru komin hingað er stór hluti elstu miðaldahandritanna kom- inn í vörslu íslendinga. Svíar varðveita töluverðan fjölda gamalla íslenskra hand- rita. Handrit frá síðari öldum eru að tölunni til langflest á Lands- bókasafni, en mörg eru á söfnum í Bretlandi og víðar í Evrópu auk þess sem slík handrit má finna á söfnum í Bandaríkjunum. Hér er fyrst og fremst um að ræða hand- rit frá 17., 18. og 19. öld. „Stærstu handritasöfnin á Bretlandseyjum eru íslensk söfn sem hafa verið keypt, t.d. safn Finns Magnússonar í Kaup- mannahöfn, sem Bretar keyptu. Þá hafa handrit borist á þessi söfn eftir ýmsum leiðum. Svíar sendu t.d. menn til ísiands á 17. öld til að kaupa handrit hér. Þá keyptu erlendir ferðamenn fyrr á öldum töluvert af handritum sem þeir tóku með sér.“ Handritalgengari en prentuð bók Flest íslensku handritanna eru í eigu safna og því ákaflega sjald- gæft að verðmæt handrit skjóti upp kollinum á uppboðum og í fornbókaverslunum. Þó hefur það gerst, t.d. þegar Skarðsbók postulasagna var boðin upp í London 1965. íslensku bankarnir sameinuðust um að kaupa hana og var hún slegin þeim fyrir 36.000 pund. „Þau handrit, sem hægt er að rekast á á fornsölum eða uppboð- um erlendis, hafa oftast lítið fræðilegt gildi, þó sérhvert hand- rit sé merkilegt út af fyrir sig, sjálfstæður vitnisburður um að texti þess hafi verið þess virði að skrá hann. Þá má iðulega rekast á fróðlega punkta á spássíðum handritanna, um feril handritsins og viðbrögð lesenda við því sem skráð er á handritið. Það má segja að íslensk handrit síðari tíma séu tvennskonar. Annarsvegar er um að ræða ung- ar uppskriftir miðaldatexta og hinsvegar texta, sem orðið hefur til á síðari öldum, og eru þeir oft mikilvægir fyrir sögu síðari tíma bókmennta. Menn hér á Árnastofnun ein- angra sig ekki við miðaldabók- menntirnar heldur rannsökum við alla texta sem eru skráðir á handrit frá þeim tímum er hand- ritin voru algengari miðill en hin prentaða bók. _Sáf Fyrir viku síðan undirrituðu Sverrir Hermannsson, menntamálaráðherra ís- lands, og Bertel Haarder, kennslumálaráðherra Dan- merkur, samkomulag um skiptingu íslensku handrit- anna milli þessara þjóða. Átti undirritunin sér stað á Þing- völlum við hátíðlega athöfn. í frásögn dagblaðsins Tíminn af þessum atburði segir svo í fréttalok: „Því má nú segjaað handritamálið heyri nú sög- unnitil". Þar sem undirritaður gat ekki fallist á að með samkomulagi um að handritin verði flutt til íslands sé handritamálið úr sögunni, á- kvað hann að fara á stúfana og ræða við Stefán Karlsson nor- rænufræðing við Árnastofnun um hvað væri framundan hjá stofn- unni. Varla var tilgangurinn með því að fá handritin aftur heim sá að læsa þau ofan í hirslum og láta þau dúsa þar, tilgangurinn hlýtur að vera sá að stunda rannsóknir á þeim og búa slíkar rannsóknir til útgáfu. „Það má segja að handritamál- ið í þessum þrönga skilningi, á- greiningsefni íslendinga og Dana, heyri nú sögunni til, en sjálf handritin eru til og þeim þarf að sinna um ár og aldir og miðla því efni sem þau hafa að geyma til fólks." Stefán sagði að það væru stöðugt mörg verk í gangi á veg- um Arnastofnunar. Verk þessi væru mislangt komin, sum á byrj- Stefá Karlsson, norrænufræðingur, með handrit Belgdalsbókar Jónsbókar, sem er frá 14. öld. Handrit þetta er eitt af þeim handritum sem íslendingar hafa endurheimt frá Danmörku. Stefán er að athuga skriftina á þessu handriti, en það er líklega sama skriftin og er á fallegasta lögbókarhandriti Norðmanna, en Noregskonungur fékk fyrir nokkru gefið Ijósrit af Codex Hardenbergensis, sem er latneska heiti lögbókarhandritsins. Skrifarinn hefur líklegast verið íslending- ur, og hefur hann þá á tímabili starfað í Noregi. Mynd Ari. Sunnudagur 10. ágúst 1986 bJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.