Þjóðviljinn - 12.09.1986, Side 4
_______________LEHDARI___________
Rambóstíllinn í Reykjavík
Rambóstíllinn er um þessar mundir aö verða
allsráöandi í stjórnun Sjálfstæðisflokksins á
Reykjavíkurborg.
Fram að þessu hefur flokkurinn að vísu ekki
slitið sér sérstaklega út á því að ástunda lýð-
ræðislega starfshætti. En afskipti Sjálfstæðis-
flokksins af fræðsluráði undanfarið og sérílagi
stofnun sérstaks skólamálaráðs, sem beinlínis
er stefnt til höfuðs hinu lögbundna fræðsluráði,
brjóta þó blað. Með verkum sínum þar er Sjálf-
stæðisflokkurinn beinlínis markvisst að vinna
að því að útiloka kennara frá afskiptum af skóla-
málum Reykjavíkurborgar, - þvert ofan í fyrir-
mæli fræðslulaganna.
í leiðinni sér Sjálfstæðisflokkurinntil þessað
fræðslustjóri er gerður nánast áhrifalaus. í hans
stað er reynt að gera forstöðumann skólaskrif-
stofu Reykjavíkur að æðsta embættismanni í
skólaumdæmi sem í eru 13 þúsund börn, - þrátt
fyrir að sá hafi aldrei nálægt kennslu komið.
Astæðan fyrir meðferð Sjálfstæðisflokksins á
fræðslustjóranum er einföld: hann hefur það til
saka unnið að vera ekki nógu auðsveipur.
Lögin um grunnskóla kveða afdráttarlaust á
um, að fastir kennarar í Reykjavík eigi að kjósa
þrjá fulltrúa úr sínum hópi til að sitja í fræðslu-
ráði. Þessir fulltrúar hafa þar málfrelsi og tillögu-
rétt á fundum og með þessu lýðræðislega fyrir-
komulagi er löggjafinn auðvitað að sjá til þess
að kennarar hafi eðlileg áhrif á stjórn og stefnu-
mótun skólamála í borginni.
í sömu lögum er hlutverk fræðslustjóra einnig
markað mjög skýrum dráttum. Hann á að vera
framkvæmdastjóri fræðsluráðs og hafa yfirum-
sjón með því að öllum fyrirmælum sem lúta að
kennslu og skólahaldi sé framfylgt.
Sjálfstæðisflokkurinn þolir hins vegar ekki
gagnrýni. Hann þolirekki heldurembættismenn
sem tala þegar samviskan býður, en þegja ekki
þegar flokkurinn skipar. Það hafa verið nokkur
átök um fræðslumál í Reykjavík, og í þeim hefur
gætt vaxandi gagnrýni á frammistöðu Sjálf-
stæðisflokksins. Eftir kosningarnar í vor fór
Sjálfstæðisflokkurinn því í Rambófötin og bolaði
kennarafulltrúunum og fræðslustjóranum frá
nánast öllum áhrifum. Þetta gerði flokkurinn
með því að stofna sérstakt skólamálaráð, sem
tekur yfir alla starfsemi fræðsluráðs, en úthýsir
bæði fulltrúum kennara og fræðslustjóra, -
þvert ofan í lögin.
Fræðsluráðið er að vísu ekki lagt niður, enda
væri það of augljóst lögbrot. En fundir eru hins
vegar haldnir afar sjaldan og flest mál afgreidd
á sama hátt: vísað til skólamálaráðs!
Sjálfstæðisflokkurinn fór ekki í miklar felur
með raunverulegan tilgang sinn, - í samþykkt
fyrir skólamálaráð er nefnilega svo fyrirmælt að
þar sitji sömu fulltrúar og ífræðsluráði. Það gæti
því trauðla verið augljósara, að tilgangurinn
með stofnun skólamálaráðs er sá einn að koma
í veg fyrir að fræðslustjóri og fulltrúar kennara í
Reykjavík geti gegnt lögboðnum skyldum sín-
um og neytt síns lögboðna réttar.
Rambóstíllinn hefur þegar haft afdrifaríkar af-
leiðingar fyrir allt skólahald í Reykjavík. Þar ríkir
vaxandi óvissa um hver heldur í rauninni um
stjórnartaumana, losarabragur fer vaxandi
einsog sést til dæmis á því að skólaskrifstofan
hefur vanrækt að auglýsa kennarastöður í sum-
ar. Afleiðingin er öllum kunn: kennaraskortur er
nú alvarlegri í Reykjavík en nokkru sinni fyrr.
Það er svo ekki til að bæta úr vondri stöðu, að
Sverrir Hermannsson hefur enn ekki haft kjark
til að úrskurða, hver formlegur réttur fræðslu-
stjóra er gagnvart skólamálaráðinu. Það verður
hann hins vegar að gera fljótlega, - annar getur
ekki úr þessu hoggið á hnútinn.
Þessi vinnubrögð eru því miður ekki eins-
dæmi í stjórnun Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík. En þau eru dæmigerð fyrir hinn nýja
Rambóstíl meirihlutans, sem hikar ekki við að
beita ofríki til að þagga niður í réttmætri
gagnrýni.
Vinnubrögð Sjálfstæðisflokksins í málinu
hafa valdið mikilli óvissu og skipulagsleysi í
skólamálum borgarinnar, - og flokkurinn hefur
ekki skirrst við að ganga á skjön við lög um
grunnskóla til að koma sínu fram.
KUPPT OG SKORIÐ
Prekleysi kostaði
Útvegsbankann
350 miljónir
„íslenska skipafélagið samdi
um kaup á íslandsrekstri Haf-
skips fyrir 600 miljónir króna,
sem áttu að renna til Útvegs-
banka íslands. Þessar eignir voru
síðan, eftir að gjaldþrotsleiðin
hafði verið valin, seldar á smán-
arkjörum fyrir innan við 300 milj-
ónir króna. Sú ákvörðun kostaði
Útvegsbankann litlar 350 miljón-
ir króna og stafaði af þrekleysi og
hræðslu þeirra sem ákvörðunina
tóku vegna þeirrar „hysteríu" og
fjölmiðlafárs sent blossaði upp í
kringum málefni þessa félags og
stendur ennþá.“
Sveinn R.
Eyjólfsson
Það er Sveinn R. Eyjólfsson,
sem kemst svona að orði, í viðtali
við Frjálsa verslun, en hann er
stjórnarformaður Frjálsrar fjöl-
miðlunar hf., fyrrverandi
stjórnarmaður í Hafskipi hf., for-
maður Hilmis hf., stjórnarmaður
íísfilm hf., og fleiri fyrirtækjum
og þar með áhrifamaður í
fjölmiðla- og viðskiptalífinu.
Viðtöl við þennan áhrifamann
eru fátíð og því merkilegt að fá að
kynnast því, hvers konar persóna
Sveinn R. Eyjólfsson lítur út fyrir
að vera.
Florence Nightingale viðskiptalítsins hjúkrar Arnarflugi.
Florence
Nightingale
viðskiptalífsins?
Sveinn segir: „Ég hef áhuga á
hvers konar fjölmiðlun og þess
vegna keyptum við til dæmis
Hilmi hf. og tókum við útgáfu
Vikunnar og Úrvals. Ég hef líka
áhuga á atvinnurekstri og stjórn-
un fyrirtækja og þess vegna hef ég
nokkrum sinnum lagt fé og vinnu
í að koma einhverri starfsemi af
stað. Síðan hef ég dregið mig út
úr því þegar vel gengur og ein-
hver hefur viljað taka við. Þannig
hef ég líka haft áhuga á sam-
göngumálunum, útgerð farskipa
og flugrekstri og þess vegna lagt
fé í starfsemi Hafskips og Arnar-1
flugs“.
Þessi „bisniss interuptus" sem
Sveinn kveðst stunda með því að
draga sig út úr fyrirtækjum þegar
vel gengur er fáheyrð hugsjóna-
starfsemi á þessum gróðahyggju-
tímum.
Einnig er fróðlegt að heyra
skoðanir Sveins á því, hvaða fjár-
festingar séu öruggastar nú um
stundir: „Mér finnst einfaldlega
áhugaverðara að standa í at-
vinnurekstri, þótt áhættusamt sé,
en að fletta skuldabréfum eða,
klippa arðmiða, þótt slíkar fjár-
festingar séu miklu öruggari“.
Það hefur löngum verið á vit-
orði margra að atvinnurekstur
borgar sig engan veginn, og helst
væri fyrir útsjónarsama menn að
næla í fáeinar krónur með braski,
en það er sjaldgæft að fá þetta
staðfest af svo dugmiklum bisn-
issmanni sem Sveini, enda virðast
fáir kollegar hans vera jafn-
hjartahreinir og fórnfúsir.
„Fjórmenninga-
klíkan“
Þá sem með völdin fara á DV
kallar Sveinn „fjórmenningaklík-
una“, en í henni eru auk Sveins
þeir ritstjórar DV Jónas Krist-
jánsson og Ellert Schram og svo
Hörður Einarsson.
Fjórmenningaklíkan situr sam-
an á fundum daglega og taka
fundirnir yfirleitt um klukkutíma
og er þama fjallað um rekstur
sem veltir 25 til 30 miljónum
króna á mánuði. Og þetta gengur
vel, eða eins og Sveinn segir sjálf-
ur: „Þetta er mjög þægilegt, ör-
uggt og afslappað".
Það er vissulega ánægjulegt að.
frétta að þetta skuli vera svona
þægilegt, öruggt og afslappað.
En spumingin er hvort rekstur-
inn gangi brösulega úr því að
„Florence Nightingale viðskipta-
lífsins“ er ekki löngu farin burt að
líkna fallítt fyrirtækjum úti í bæ,
því að sé það nokkur vottur um
fjárhagslega heilbrigði fyrirtækja
að Sveinn R. hafi dregið sig út úr
þeim þá á DV eftir að fá
heilbrigðisstimpilinn frá Sveini.
Næsti
sjúklingur
Nú síðast hefur hjúkrunareðli
Sveins beinst að Arnarflugi hf.
Ekki gerir hann ráð fyrir að það
taki langan tíma að hressa sjúk-
linginn við og telur ekki eftir tíma
eða peninga sem hann lætur af
hendi rakna í því skyni:
„Eins og kunnugt er var félagi
minn Hörður Einarsson kosinn
formaður stjórnar Arnarflugs hf.
á nýafstöðnum aðalfundi félags-
ins. Það er rétt að við tókum þátt í
því ásamt nokkmm góðum
mönnum að freista þess að bjarga
Amarflugi frá gjaldþroti. Ástœð-
an er fyrst og fremst óbilandi trú
okkar á að samkeppni þurfi að
ríkja í samgöngunum til ogfrá ís-
landi bœði í lofti og á legi. Sumir
formœlendur samkeppni láta sér
nægja að lofsyngja hana í tœki-
færisræðum, en vilja alls ekki
kosta neinu til sjálfir. Við teljum
þeim tíma og peningum vel varið
sem við látum af hendi rakna í
þessu skyni. Endurreisn Arnar-
flugs er ekkert langtímaverkefni
fyrir okkur, við gerðum áœtlanir
um reksturþess næstu þrjú árin og
við þann tíma var miðað og verð-
ur áfram haldið íþeirri uppstokk-
un á rekstrinum sem nýkjörin
stjórn er þegar byrjuð á“. (Let-
urbr. Þjóðviljans).
Drottinn blessi fórnfúsa menn
og hjartahreina.
-Þráinn
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjoðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Utgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphóðins-
son.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín Olafs-
dóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, Sigur-
dórSigurdórsson, SigurðurÁ. FriðþjófsSon, Vilborg Davíðsdóttir, Víðir
Sigurðsson (íþróttir), Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrita- og prófarkaiesarar: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlttsteiknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Augiýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hörður Oddfríðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, simi 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 50 kr.
Helgarblöð: 55 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 500 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNj Föstudagur 12. september 1986