Þjóðviljinn - 01.05.1987, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 01.05.1987, Blaðsíða 11
Enn er unnt að bæta kjörin og draga um leið úr verðbólgu! Við viljum Glasgow- verð á Islandi Það \iljum við gera með þínum stuðningi. Vöruverð á ÍSLANDI er á stundum borið saman við verð í GLASGOW. Enda þótt aldrei verði nákvæmlega sama verð á öllum vörutegundum hér og þar er unnt að gera verðlag á ÍSLANDI hliðstætt verðlagi í GLASGOW, ef vilji er nægur. Sá vilji þarf að vera fyrir hendi hjá öllum aðilum. Hann þarf að vera hjá okkur, fagmönnunum í innflutn- ingi, hann þarf að vera hjá stjórn- völdum, hann þarf að vera hjá þeim sem veita versluninni þjónustu og hann þarf líka að vera hjá þér. En betur má ef duga skal. Hin nýfengna frjálsa verðmyndun hefur þegar stuðlað mjög að betri innkaupum, hvatt til aukinnar hag- ræðingar í rekstri og hefur komið fram í lægra vöruverði. • Við þörfnumst nýrra tollskrár- laga, sem kveða á um jafna og hóf- lega tolla og taka mið af breyttum neysluvenjum í þjóðfélaginu hverju sinni. Það myndi auka verslun innanlands og lækka vöru- verð. • Veitaþarfinnflytjendumaðgang að lánsfé þar sem það er hag- kvæmast á heimsmarkaðnum hverju sinni, svo draga megi úr fjár- magnskostnaði. Það lækkar líka vöruverð. • Afnema þarf sérsköttun á verslun. Það myndi einnig lækka vöruverð. • Lækka þarf flutningskostnað til landsins og nýta hagræðingu til þess að draga úr mismun milli vöruflokka. Þýðingarmiklar neyslu vörur myndu lækka í verði. • Aðflutningsgjöld verði reiknuð • Skattar á fjarskiptatæki og önnur af innkaupsverði, en ekki einnig af framleiðslutæki verslunar verði flutningskostnaði og tryggingum. afnumdir. Það myndi efla markaðs- Það myndi líka stuðla að lækkun leit og innri hagræðingu, sem kæmi vöruverðs. fram í lægra verði. Ef öll þessi atriði næðu fram að ganga myndi það líklega þýða meiri kjarabætur en aðilar vinnumarkaðarins hafa nokkru sinni samið um í einu lagi. Það myndi draga úr verðbólgu, kaupmáttur aukast og tekjur ríkisins þyrftu ekki að skerðast. Um leið og við sendum þér bestu kveðjur á þessum hátíðisdegi leitum við eftir stuðningi þínum við að hrinda þessu sameiginlega baráttumáli okkar í framkvamid. • Jafna þarf tolla á vörur frá helstu • Og þá kemur að þínu hlutverki! viðskiptalöndum okkar, svo unnt ÞÚ þarft að fylgjast stöðugt með sé að hagnýta bestu kjör á hverj um verðlagi og gæta þess að bera sam- tíma. Ljóst dæmi nú er hin mikla bæriiegar vörur saman, svo versl- lækkun bandaríkjadollars, sem uninfáisanngjamtaðhaldístörfum ekki hagnýtist íslenskum neyt- sínum. endum nema að hluta, vegna hærri tolla á bandarískar vörur en evrópskar. Jafnvel þetta eina atriði gæti lækkað vöruverð liérlendis niður fyrir það sem Glasgow-búar eiga kost á. Félag íslenskra stórkaupmanna Fagfélag um innflutning, útflutning og vörudreifingu. ITT NTA Kynningarþjónustan/SÍA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.