Þjóðviljinn - 28.08.1987, Side 3
FRETTIR
Opið bókhald
Athyglisverð hugmynd
Þórarinn V. Þórarinsson: Velþess virði að skoða kröfu um opið bókhald nánar
Mér fínnst þetta vera nrjög at-
hyglisverð hugmynd og það
er vel þess virði að skoða hana
nánar. Að því þó tilskildu að
verkalýðshreyfíngin gangi á
undan með góðu fordæmi og veiti
ölium upplýsingar um (járreiður
hreyfíngarinnar, sagði Þórarinn
V. Þórarinsson, framkvæmda-
stjóri Vinnuvcitendasambands-
ins.
- Meðan verkalýðshreyfingin
sviptir ekki hulunni af eigin bók-
haldi og fjárreiðum sinna sjóða er
ekki hægt að taka þetta alvarlega,
heldur sem grín og það fremur
lélegt, sagði Þórarinn.
Þórarinn sagði að Vinnu-
veitendasambandið hefði fyrir
fáum árum leitað eftir því að fá
upplýsingar hjá verkalýðsfélög-
unum um fjárreiður sjúkrasjóð-
anna, en ekki fengið. - Mig
minnir að aðeins 10 félög hafi
tekið jákvætt í þetta erindi okkar,
en hin gefið okkur afsvar. Við
báðum þó ekki um annað en að fá
að sjá rekstrarreikninga sjóð-
anna, - ekki fylgiskjöl.
- Meðan forysta verkalýðsfé-
laganna situr á sjóðum félags-
manna sinna án þess að menn eigi
nokkurn kost á að skoða fjármál
þeirra, er vart hægt að taka ann-
ars athyglisverða tillögu alvar-
lega, sagði Þórarinn. -rk
Fráblaðamannafundinum.Ámyndinnierufrávinstri:SigurðurPálsson, Friðrik Schram, Halldór Lárusson og Gunnar Þorsteinsson.
Trúmál
Eining meðal kristinna
Það ríkir eining meðal krist-
inna manna á þessu landi, og
allur fréttaflutningur um tog-
streitu og smákóngastríð er rang-
ur, sögðu forsprakkar fjögurra
trúfélaga, sem efndu til fundar
með fréttamönnum í gær vegna
þeirrar umfjöllunar sem verið
hefur í fjölmiðlum að undanförnu
um nýjar trúhreyfmgar.
Þeir sem stóðu fyrir fundinum
voru Gunnar Þorsteinsson (Kros-
sinn), Halldór Lárusson (Trú og
líf), Björn Ingi Stefánsson (Ve-
gurinn, kristið samfélag) og Frið-
rik Schram (Ungt fólk með hlut-
verk, sem starfar innan þjóðkir-
kjunnar), og lögðu þeir mikla
áherslu á samstöðu sína. Hvíta-
sunnumenn höfðu einnig boðað
til fundarins, en enginn mætti úr
þeirra hópi. Hins vegar voru
þarna tveir fulltrúar þjóðkir-
kjunnar, Sigurður Pálsson og
JBernharður Guðmundsson, og
tóku þeir skýrt fram að þeir væru
ekki meðal fundarboðenda,
heldur hefði biskup gert þá út af
örkinni til að svara fyrirspurnum.
Fundarboðendur sögðu, að
þessi fjölmiðlaumfjöllun um trú-
hreyfingar væri nýmæli. Sýndar
hefðu verið sjónvarpskvikmyndir
um trúhreyfingar í Bandaríicjun-
um en þær hefðu gefið af þeim
mjög neikvæða mynd: í banda-
rískum trúmálum væri að finna
það besta og það versta, en sjón-
varpsmyndirnar hefðu einungis
sýnt hið síðara, - sorann. í
Bandaríkjunum væri t.d. beitt
ýmsum aðferðum til að afla fjár
og það síðan misnotað. Slíkt væri
íslensku trúarhreyfingunum á
móti skapi og fordæmdu þær það.
Þeir fréttamenn sem héldu því
fram að verið væri að koma hér á
bandarískum aðferðum tækju á
sig þunga ábyrgð með slíkum
fréttaflutningi.
Fundarboðendur sögðu að eini
munurinn á þessum nýju trú-
hreyfingum og þjóðkirkjunni
væri áherslan. Þjóðkirkjan gæti
sinnt þörfinni en þó ekki henni
allri, og kæmu nýju trúhreyfing-
arnar fram með nýjar og frjálsari
tjáningar, nýjar sönghefðir og
slíkt.
Á fundinum kom þó líka mjög
skýrt fram, að munurinn á þjóð-
kirkjunni og þessum nýju trú-
hreyfingum lægi ekki aðeins í
hinu ytra formi heldur væri einnig
ágreiningur um ýmis guðfræði-
atriði. Bernharður Guðmunds-
son benti á að skilningurinn á
skírninni væri ólíkur: þjóðkirkj-
an boðaði barnaskírn en nýju trú-
hreyfingarnar skírn fullorðinna.
En umræðurnar á fundinum
sýndu að annað atriði skipti
kannske enn meira máli: hug-
myndin um sjálfa syndina. For-
sprakkar hinna nýju trúhreyfinga
voru á einu máli um að bæði sam-
kynhneigð eða kynvilla og of-
drykkja væru synd, og gætu menn
ekki stundað þetta og lifað kristi-
legu lífi, - þeir yrðu að velja á
milli. Vegna þess að ofdrykkja
væri synd vildu þessir forsprakk-
ar ekki fallast á að til væru „óvirk-
ir alkóhólistar". Á þessar skil-
greiningar gátu fulltrúar þjóð-
kirkjunnar ekki fallist.
Þegar blaðamaður Þjóðviljans
gekk á braut í gegnum veglegan
samkomusai „Vegarins", þar
sem allt var búið í haginn fyrir
rokkhljómsveit, fylgdi Halldór
Lárusson honum á veg og sagði
að lokum: „Þjóðkirkjan gæti
sinnt allri þörfinni, og þá væri
ekki þörf fyrir okkur, - en hún
gerir það ekki. Ef þjóðkirkjan
tæki þessa hluti upp og boðaði
fagnaðarerindið, þá myndum við
starfa í þjóðkirkjunni.“ e.m.j.
HP-könnun
Hægri upprisa
Inýrri könnun HP og Skáíss fær
Sjálfstæðisflokkurinn um 40%
fylgis, svipað og í könnunum fyrir
kosningar og Borgaraklofning.
Þessi fylgisaukning virðist þó ekki
nema að hluta á kostnað Borgara-
flokksins. A-flokkarnir fara verst
útúr könnuninni rniðað við kjörf-
yigí-
Af úrtaki náðist ekki í tæpan
þriðjung, og um þriðjungur
þeirra sem í náðist neitar að
svara, er ekki viss, kysi ekki eða
skilaði auðu.
í HP-könnuninni fékk Alþýðu-
flokkurinn 12,2% fylgi þeirra
sem afstöðu tóku (—3% frá kosn-
ingum), Framsókn 16,7%
(—2,2), Sjálfstæðisflokkur
41,0% (+13,8), Alþýðubandalag
8,5% (-4,8), Kvennalisti 10,1%
(—), Borgaraflokkur 8,7%
(—2,2), Þjóðarflokkur 2,1%
(+0,8), Flokkur mannsins 0,5%
(—1,1), Bandalag jafnaðar-
manna 0,3% (+0,1).
í könnuninni var spurt um af-
stöðu til stjórnarinnar og styðja
hana 63,8% þeirra sem afstöðu
tóku.
Tveir þriðju vildu selja Útvegs-
bankann í könnuninni, og skipt-
ust sölumenn jafnt á SÍS og
einkahauka sem kaupendur.
Tveir þriðju leggjast í könnun-
inni gegn sölu Búnaðarbankans.
-m
Lífeyrissjóðirnir
Sólóspil
fprmála-
ráðhena
Þeir Hrafn Magnússon, for-
maður SAL, og Pétur
Blöndai, formaður Landssamb-
ands lífeyrissjóðanna, áttu óf-
ormlegan fund með Sigurði Þórð-
arsyni, fulltrúa fjármálaráðu-
neytisins í samningum ríkisins við
Iífevrissjóðina.
Á fundinum nálguðust aðilar
aftur en krafa fjármálaráðuneyt-
isins um breytilega vexti hleypti
málinu í hnút.
Annars undrast menn mjög
þetta sólóspil fjármálaráðherra í
fjarveru Jóhönnu Sigurðardóttur
félagsmálaráðherra. Ekkert sam-
band hefur verið haft við fulltrúa
félagsmálaráðuneytisins í við-
ræðunefnd ríkisins, auk þess sem
fulltrúa Húsnæðisstofnunar er
haldið fyrir utan.
í dag er hinsvegar búist við
formlegum fundi viðræðunefnd-
anna. -Sáf
VMSÍ
Rætt um
klaramál
Formenn aðildarfélaga Verka-
mannasambandsins koma
saman í dag til skrafs og ráða-
gerða um áhersluatriði og kröfur
i komandi samningaviðræðum
við Vinnuveitendasambandið.
- Ég veit nú ekki hvort það
verður á þessum fundi eða í fram-
haldi hans sem menn koma sér
saman um stefnu í komandi
samningaviðræðum, sagði Þórir
Daníelsson, framkvæmdastjóri
Verkamannasambandsins.
- Framkvæmdastjórn sam-
bandsins hefur ekki lagt fram
nein bein drög að stefnu fyrir
þennan fund. Ætlunin er að
menn hittist og beri saman bækur
sínar og ræði stöðuna, sagði Þór-
ir.
Þórir sagði að Verkamanna-
sambandið byggist við að gengið
yrði til viðræðna við Vinnu-
veitendasambandið um gerð nýs
kjarasamnings fljótlega uppúr
næstu mánaðamótum. -rk
Hvalveiðar
Afram veitt
Akveðið var að halda áfram
hvalveiðum í vísindaskyni á
fundi rflrisstjórnarinnar í gær. í
framhaldi af því fjallaði utan-
rflrismáianefnd um málið.
Ákveðið var að draga úr sand-
reyðarveiðum en áformað var að
veiða 40 dýr. Talað er um helm-
ings fækkun dýra. Þá var ákveðið
að engar hrefnuveiðar yrðu
leyfðar í ár frekar en í fyrra.
-Sáf
Föstudagur 28. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Lundinn
Aldrei kraftveiði
Dauflegu veiðitímabili lokið
ið
erum góðlega hálfdrætt-
V ingar miðað við í fyrra en
varla meira. Það var cinkennilega
dauft yfír lundavciðinni í ár, en
samt virtist fulginn taka mjög vel
heima þegar hann kom í byggðina
um sumarmál, sagði Sigurgeir
Jónasson hjá veiðifélaginu Álsey í
Vestmannaeyjum þegar Þjóðviíj-
inn innti hann eftir lunda-
veiðinni, en veiðitímabilinu er nú
nýlokið.
„Lundinn gefur sig minna til í
staðviðrasömu veðri eins og verið
hefur í sumar, og virtist fljúga
minna en ella þegar loftþrýsting-
ur var mikill,“ sagði Sigurgeir.
„Þetta var aldrei kraftveiði.
Gutlandi af og til en jafnan
dauft,“ sagði Sigurgeir. „Nema
þar sem menn stunduðu veiðarn-
ar með sérstakri kostgæfni, þá
mátti urga upp eitthvað.“
Að sögn Sigurgeirs er nú mikið
af pysju í Eyjum, og virðist það
ekkert í samhengi við það hvern-
ig lundinn hefur hegðað sér í
sumar. „Síðustu tvær vikurnar
hefur verið geysilega mikið af
pysju, enda er nóg að gera hjá
krökkunum í bænum,“ sagði Sig-
urgeir.
HS