Þjóðviljinn - 28.08.1987, Síða 4
LEIÐARI
Að loknu sumarleyfi
Skoðanakönnuðir eru aftur komnir á stjá eftir
að hafa verið í verðskulduðu sumarleyfi síðan á
kosninganótt.
Helgarpósturinn hefur nú birt skoðanakönn-
un sem gefur til kynna að ríkisstjórnin hafi aukið
fylgi sitt að undanförnu um 9% með því að
leggja söluskatt á matvæli og með því að
standa gapandi yfir Útvegsbankamálinu.
Helgarpósturinn segir réttilega: „Þessi niður-
staða kemur sjálfsagt mörgum á óvart. Frá því
síðasta könnun var gerð hefur ríkisstjórnin lent í
nokkrum vondum málum. Fyrstu aðgerðir
hennar reyndust ýmist gallaðar eða máttvana.
Hvalamálið komst í hnút. Ríkisstjórninni virðist
um megn að leysa Útvegsbankamálið. En hvað
um það þá eykur hún fylgi sitt. Fylgi hennar er
rétt undir sameinuðu fylgi þeirra flokka sem að
henni standa, svo ætla má að fylgismenn þeirra
séu nokkuð sáttir.. Reyndar er fylgisaukningin
ekki ýkjamikil, eða 9,2%.”
En það er fleira athyglisvert við þessa skoð-
anakönnun en þessi vinsældaaukning ríkis-
stjórnarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn fær 28,2%
fylgi sem verður að 41 % fylgi þegar aðeins eru
taldir með þeir sem afstöðu tóku í skoðana-
könnuninni.
Þessar undirtektir hljóta að gleðja þá sem
ötulast hafa unnið að því að sópa vandamálum
Sjálfstæðisflokksins undir teppið, og hafa látið
eins og ekkert hafi í skorist þótt flokkurinn hafi
klofnað og beðið stærsta kosningaósigur sinn
frá upphafi.
Á þessari stundu er erfitt að gera sér grein
fyrir því hvort þessi útkoma bendi til þess að fólk
ætlist til þess að stjórnmálaflokkar sópi vanda-
málum sínum undir teppi eða hvort þetta er
iðrunarmerki frá þeim sem yfirgáfu flokkinn sinn
fyrir kosningar og sitja nú utanstjórnar og án
áhrifa og tauta: Flas er ekki til fagnaðar.
Útkoma Alþýðubandalagsins bendir til þess
að vandamálaumræða fyrir opnum tjöldum
verki ekki traustvekjandi á kjósendur. Skoðana-
könnunin segir að fylgi flokksins hafi minnkað
um 4,8% síðan í kosningunum og um tæp þrjú
prósent séu aðeins þeir taldir sem afstöðu tóku.
Þessi niðurstaða gæti því verið Alþýðu-
bandalaginu hvatning til að gera sér Ijósa nauð-
syn þess að leysa margauglýst og ýkt vanda-
mál flokksins og það fyrr en síðar. Varmalands-
skýrslur, miðstjórnarfundir, Varmalandsnefnd
og boðaður landsfundur í haust hefur ekki nægt
til að sannfæra fólk um að Alþýðubandalagið sé
á rólegri en öruggri siglingu út úr því erfiðleika-
tímabili sem staðið hefur alltof lengi.
Alþýðuflokkurinn hefur samkvæmt skoðana-
könnuninni tapað 6,8% fylgi frá kosningum, en
3% ef aðeins eru taldir þeir sem afstöðu tóku.
Það þýðir að kratar eru komnir niður í sama fylgi
og þeir höfðu á eymdartímunum áður en Jón
Baldvin og Ámundi birtust til að leiða þá út úr
eyðimörkinni.
Alþýðuflokksmenn þurfa ekki að undrast
þetta, því að kratar hafa áður tekið að sér að
gerast blórabögglar fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
ríkisstjórn með svipuðum afleiðingum.
Aðrir flokkar virðast standa í stað í þessari
skoðanakönnun, nema hvað það vekur sér-
staka athygli að Þjóðarflokkurinn virðist ennþá
vera með góðu lífsmarki.
í þessari skoðanakönnun Helgarpóstsins var
einnig eftir því leitað, hvernig fólk vildi láta taka á
Útvegsbankamálinu. Skoðanir voru skiptar um
það mál, eða eins og HP segir:
„En skilaboðin frá þeim sem tóku þátt í
könnuninni til Jóns Sigurðssonar eru ekki ýkja
skýr. Honum ber að selja Útvegsbankann en
enginn einn kaupandi nýtur verulegs fylgis.
Hann má síðan ekki reyna að nota Búnaðar-
bankann sem skiptimynt í þessum kaupum. Jón
virðist því dæmdur til að taka óvinsæla ákvörð-
un.” -Þráinn
KLIPPT OG SKORIÐ
Herra náttúrunnar
Sú framfaratrú sem flestir að-
hyllast byggir á því að maðurinn
sé herra náttúrunnar. Geti gert
það sem honum sýnist við skóga,
vötn, sjó, mold. Eigi að gera það
til að láta sér líða vel.
Lengi varð fátt til að trufla
menn í þessari trú, sem þeir
studdu með tilvitnunum í bækur
helgar ef svo bar undir. Náttúran
virtist óendanlega rík. Gangtu í
sjóðinn og sæktu þér hnefa. Og
svo framvegis.
En okkar öld hefur verið tími
„sársaukafulls endurmats" á
þessum viðhorfum. Fyrst urðu
menn skelfdir yfir uppblæstri og
eyðingu skóga. Svo yfir slysum
eins og þeim að kanínur flæddu
yfir Ástralíu og jurtaeitur spillti
mold og vatni. Svo hættu ár og
vötn að þola úrganginn frá efna-
iðnaðinum og stór hafsvæði líka.
Hrollvekja
Síðan er mikill hluti
mannfólksins eins og klofinn í
herðar niður. Menn vilja engu
fóma af eigin þægindum, þótt
þau kosti áframhaldandi náttúr-
uspjöll. En um leið læðist að
mönnum grimmur uggur um
myrka framtíð og ógeðslega. Nú
síðast óttast menn eins og pestina
sjálf vísindin sem geta og hafa létt
af mönnum mörgu erfiði.
Hrollvekjumar, bæði þær frum-
stæðu sem skelfa okkur barnung
með köngulóm á stærð við naut
og þær útsmognu sem sýna okkur
vísindamenn sem missa tökin á
sínum tilraunum með lífríkið,
elta okkur inn á draumalönd og
út úr þeim aftur.
Og nú er komið að erfðaverk-
fræðinni sem gerir sig líklega til
róttækari íhlutunar í lífríkið en
áður hefur þekkst. Vísindum sem
geta einangrað vissa eiginleika
h'fvera og magnað þá upp í firna-
stærðir eða styrkleika. Það er tal-
að um fótalausar og hauslausar
beljur sem mjólkin flæðir úr, um
tröllvaxna silkiorma, um ósigr-
andi körfuboltamenn með hand-
leggi niður fyrir hné.
Grein úr Economist sem
Morgunblaðið þýddi á dögunum
um þetta efni byrjar á þessa leið:
„25ta ágúst árið 2087 gerðust
váleg tíðindi sem áttu eftir að
draga dilk á eftir sér um allan
heim. Síðdegis þann dag féll tré á
girðingu umhverfis erfðatækni-
stofnun í eigu sérsinna miljarða-
mærings í Brasilíu. Sex sérkenni-
legar skepnur sluppu út um gatið
á girðingunni og inn í nálægan
skóg. Þær voru vaxnar eins og
snákar, höfðu efnaskipti burkna
og heilabú á við menn. Á tæplega
þrjátíu árum tókst þessum
skepnum að útrýma sköpurum
sínum.“
Óttinn við stórslys
Greinin geymir svo ýmislegar
vangaveltur um það, hvort nýir
möguleikar vísindanna geti í
rauninni leitt til þvílíkra stór-
slysa. Það er talið ólíklegt - en
samt mögulegt. Að vísu eru
menn á verði fyrir háskanum,
víða um lönd eru sett lög sem eiga
að setja skorður við því að vís-
indamenn fari að leika guð al-
máttugan. En það hangir samt
margt varasamt á erfðaverkfræð-
ingaspýtunni.
Erfðaverkfræðin mun að lík-
indum enn dýpka þann mun sem
er staðfestur milli ríkra þjóða og
fátækra - með því að enn meiri
munur en áður verður á búskap-
arháttum þeirra og afköstum í
framleiðslu matvæla. Minnt er á
hættur sem tengjast vaxandi
grimmd manna í tiíraunum með
dýraríkið. En mest óttast menn
blátt áfram mistök: rétt eins og
menn telja ólíklegt að stjórn-
málamenn sem eru með öllum
mjalla hefji kjarnorkustríð en
óttast að það hefjist fyrir mis-
skilning eða jafnvel bilanir í tölv-
ubúnaði, eins óttast menn að
erfðaverkfræðin Iendi í slysum.
Þegar hafa verið búin til ýmis
plöntuafbrigði og sýklar sem geta
valdið miklum óskunda ef þau
sleppa út í umhverfið. Hin sígilda
hrollvekja um vísindamanninn
geðbilaða sem hleypir skrýmslum
eða sýklum á mannfólkið er
kannski ekki mjög líklegur
möguleiki. En menn vita að stór-
veldin hafa m.a. gert miklar til-
raunir með sýklahernað og annað
þesslegt - og hver veit hvað end-
anlega verður um þær djöfullegu
niðurstöður sem í þeim rann-
sóknum fást?
Spádómar
Á þeim tímum þegar menn játa
bókinni ást með vörunum en gefa
hjarta sitt sápuóperum sjón-
varpsins er ekki úr vegi að minn-
ast á það, að rithöfundar sjá allan
slíkan háska fyrir - löngu áður en
fræðimenn. Það var um 1930 að
Huxley var að skrifa sína Fögru
nýju veröld, þar sem vísindin
stjórnuðu með erfðaverkfræði:
fjöldaframleiddar voru í glösum
ákveðnar manngerðir sem
dæmdar voru fyrirfram til vissrar
stöðu og verkefna í þjóðfélaginu
með erfðastýringu og svo
innrætingu vissra viðbragða.
Nokkrum árum fyrr hafði sovéski
rithöfundurinn Búlgakov, sem
mörgum er kunnur fyrir skáld-
söguna Meistarinn og Margrét,
skrifað aðra vísindahrollvekju
„Örlagaeggin". En þar hafa
menn í framfaragræðgi sinni og
óðagoti ákveðið að beita örvandi
geislum sem vísindamaður hefur
fundið á egg og húsdýrafóstur,
sem verða við þetta miklu stærri
og vaxa miklu hraðar en nokkurn
mann gat áður dreymt um. En
ekki tekst betur til en svo, að það
eru egg ýmislegra sjaldgæfra
skriðkvikinda og slöngutegunda,
sem áttu að fara í dýragarðinn í
Moskvu, sem verða fyrir geislun-
inni lífgefandi. Út úr þessum
eggjum skríða svo hraðvaxandi
skrýmsli sem eyða tilaunabúinu
og svo öllu sem á vegi þeirra verð-
ur. Stefnir þetta hyski til Moskvu
- en það verður borgarbúum til
bjargar, að ófreskjurnar eru á
ferð þegar komið er fram á haust
og drepast í fyrstu næturfrostun-
um.
Þetta hljómar allt eins og spá-
sögn um erfðatæknislys. Og
minnir á það eina ferðina enn að
verk hinna bestu höfunda geyma
ekki aðeins fortíð okkar og nútíð
heldur teygja þau sig með furðu-
legum hætti inn í þá framtíð sem
við komumst ekki hjá að taka til-
lit til. ÁB
þJOÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritatjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur
Skarphéðinsson.
Fréttastjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjörnsson, IngunnÁsdísardóttir,
Kristín Ólafsdóttir, KristóferSvavarsson, Logi Beramann Eiðsson
(íþróttir), Magnús H.Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGíslason,
Ragnar Karlsson, Sigurður Á. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson, Vil-
borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrlta- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljósmyndarar: EinarÓlason, Sigurður MarHalldórsson.
Útlitateiknarar: Sævar Guðbjömsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrlfstofustjórl: Jóhannes Harðarson.
Skrifotofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Unnur Agústsdóttir, Olga Clausen, Guðmunda Krist-
insdóttir.
Símvarsla: Hanna Ólafsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Bflstjórl: Jóna Sigurdórsdóttir.
Utbrelöslu-og afgrelðslustjóri: Hörður Oddfríðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, OlafurBjömsson.
Utkeyrslo, afgreiðsla, ritotjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sfmi 681333.
Auglýsingar: Sföumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setnlng: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 55 kr.
Helgarblóö: 60 kr.
Áskrlftarverð ó mónuði: 550 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 28. ágúst 1987