Þjóðviljinn - 28.08.1987, Síða 5
Barátta þeldökkra námamanna fyrir hækkun launa heldur áfram og nú er útlit fyrir að þeim berist liðsauki.
Suður-Afríka
Tuttugu þúsund reknir
Þrjúþúsund námamenn voru neyddir ofanínámu en neituðu engu að síður að vinna. Alþýðusamband
Suður-Afríku hyggst efna til samúðarverkfalla
Mámaeigendur viðurkenndu í
gær að það hefði komið þeim í
opna skjöldu að félagar Lands-
sambands námamanna skyldu
kolfeila tilboð þeirra um hækkun
liftryggingar og fleiri orlofsdaga.
Þeir svöruðu með því að segja 20
þúsund verkfallsmönnum upp
störfum. Ensk ameríska náma
samsteypan hótaði því ennfremur
að reka 22,500 til viðbótar létu
þeir sér ekki segjast og mættu til
vinnu í dag. AIIs hefur nú 31 þús-
und námamönnum verið sagt upp
störfum.
Seint í fyrrakvöld dró til tíð-
inda við gullnámu vestan Jóhann-
esarborgar. Öryggisverðir lögðu
þá til atlögu við verkfallsmenn,
beittu táragasi og skutu gúmmí-
kúlum og náðu með þeim hætti
að þvinga um 3 þúsund þeirra of-
aní 3,7 kflómetra djúpa námu.
En hafi þeir talið að námamenn-
irnir hæfust þegar í stað handa við
gullgröft þá skjöplaðist þeim
,hrapallega. Þegar niður var kom-
ið settust verkfallsmenn niður og
höfðust ekki að.
í gær hélt Jay Naidoo, aðalrit-
ari Alþýðusambands Suður-
Afríku, blaðamannafund og
sagði 700 þúsund félaga sam-
bandsins ætla að efna til samúð-
arverkfalla. „Verkamenn eru
reiðir vegna þess að þeir bræðra
okkar sem skapa mestu verðmæti
þessa þjóðfélags, námamenn,
þurfa að sæta því hvað eftir annað
að á þá sé skotið, að táragas-
sprengjum sé kastað í þá, að þeim
sé varpað í fangelsi og að þeir séu
sveltir. Ef námaeigendur hafa
enn ekki áttað sig á afli svörtu
verkalýðshreyfingarinnar er mál
til komið að þeir fái að kynnast
því.“
Leiðtogi Landssambands
námamanna, Cyril Ramaphosa,
sagði í gær að sambandið hefði
dregið úr kaupkröfum sínum og
krefðist nú 27 prósent launa-
hækkunar í stað 30 prósent áður.
„Það er staðreynd að verkfallið
er barátta námamanna fyrir
lífvænlegum launum og við ætl-
um að knýja fram hækkun.“
Nú er rúmur hálfur mánuður
frá því verkfall 300 þúsund
blakkra námamanna hófst, viða-
mesta vinnudeila í sögu Suður-
Afríku. Sérfræðingar áætla að
tap námaeigenda nemi jafnvirði
einnar smálestar gulls á dag._ks.
Þýskaland
Filippseyjar
Uppreisn kæfð
í teðingu
Stuðningsmenn Ferdinands Markosar reyndu
að rœna völdum í nótt en allt kom fyrir ekki
Kratar og kommar
gefa út plagg
Um 300 filippeyskir hermenn
og velunnarar Ferdinands
Markosar, fyrrum einræðis-
. herra, réðust í nótt á Malacanang
forsetahöllina og aðalstöðvar
rfldsútvarpsins í höfuðborginni
Manilu og hugðust hrifsa lands-
stjórn í sínar hendur.
Yfirmaður hers landsins, Fidel
Ramos, sagði í útvarpsávarpi að
árásum þessum hefði verið
hrundið og að forsetinn, Corazon
Aquino, væri heill á húfi.
Fréttamenn sögðu hermenn
með rauða borða um ennið hafa
slegið hring um bæði húsin og síð-
an hefði heyrst áköf vélbyssu-
skothnð. Mikið óðagot hefði
gripið menn og hefði verið erfitt
að átta sig á framvindu mála í
myrkrinu.
Uppreisnarmenn reyndu í tvær
klukkustundir að ná forsetahöll-
inni á sitt vald en lögðu síðan á
flótta undan hermönnum hollum
stjórninni.
Ramos sagðist hafa heyrt orð-
róm þess efnis að uppreisnar-
mennirnir væru stuðningsmenn
hans sjálfs og Juans Ponce Enri-
les, fyrrum varnarmálaráðherra,
ekki síður en Markosar. „Flvað
snertir Fidel Ramos er ekki
flugufótur fyrir kviksögunni.
Hann stendur með forsetanum.“
Hann bætti því við að grunur léki
á að árásarmennirnir hefðu kom-
ið frá Luzon héraði sem liggur um
128 kflómetra norðan Manilu.
„Hermenn stjórnarinnar hnek-
ktu árásinni og hafa töglin og
hagldimar,“ sagði hann að lok-
um.
Fyrstu fréttir frá yfirvöldum
um mannfall voru þær að einn
maður hefði beðið bana og 61
slasast en fréttamenn kváðust
hafa séð að minnsta kosti sex lík.
Að sögn talsmanns Aquinos
forseta var henni þegar í stað
greint frá því að árás hefði verið
gerð á forsetahöllina og spurði
hún þá „Eru það þeir aftur?“ en
þetta er í fimmta sinn sem dátar
reyna að steypa henni af stóli frá
því hún settist við stjórvölinn
fyrir 18 mánuðum. Þvínæst hefði
hún sagt: „Finnið þá og sigrið
þá!“
Austurþýskir kommúnistar og
vesturþýskir jafnaðarmenn
hafa fram að þessu lítið haft sam-
an að sælda en í gær kom plagg
nokkurt fyrir almenningssjónir
sem unnið var af nefnd er í sátu
fulltrúar beggja.
í skýrslu þessari er hvatt til op-
inskárrar umræðu um kosti og
galla þjóðfélaga beggja megin
járntjalds í því augnamiði að
auka gagnkvæmt traust og draga
úr líkum á styrjöld.
Otto heitir maður Reinhold en
hann er yfirmaður félagsvísinda-
stofnunar Einingarflokks sósíal-
ista í Austur-Berlín. Hann sagði í
gær að í plagginu væri meðal ann-
ars fjallað um nýjar leiðir til varð-
veislu friðar án þess að gert sé
lítið úr grundvallarágreiningi né
hann harmaður á nokkurn hátt.
„Við munum halda áfram skoð-
anaskiptum...en reynslan mun
síðan leiða í ljós hvor þjóðfél-
agsskipanin er betri.“ Reinhold
bætti því síðan við að það hefði
verið útilokað fyrir tíu árum að
slíkt plagg kæmi út á vegum þess-
ara aðila.
í yfirlýsingunni er vegið óbeint
að ritskoðun í Austur-
Þýskalandi. „Brýna nauðsyn ber
til að umræðan um ágæti og
ávirðingar beggja þjóðfélags-
gerða sé hreinskilin og opinská í
austri jafnt sem vestri.“
Komminn Pieck og kratinn Grotewohl takast í hendur fyrir tilstuðlan Sovét-
manna árið 1946.
Thomas nokkur Meier hafði
orð fyrir vesturþýsku jafnaðar-
mönnunum. Hann ræddi um
ágreining sinn og flokksbræðra
sinna og austurþýsku gestgjaf-
anna og bætti við: „Við erum
ekki að leysa þau ágreiningsefni
heldur gefa út yfiriýsingu um
samvinnu á sviði öryggismála og
bætt samskipti."
Alkunna er að þýskir jafnaðar-
menn og kommúnistar hafa ekki
setið á sárs höfði í rúm sjötíu ár
eða frá upphafi fyrri heimstyrj-
aldar. Margir eru þeirrar skoðun-
ar að hatur og tortryggni þeirra í
milli hafi átt drjúgan þátt í að
ryðja nasistum braut til valda árið
1933.
Árið 1946 voru flokkar beggja
sameinaðir í einn flokk á her-
námssvæði Sovétmanna, Eining-
arflokk sósíalista. Fáum blandast
hugur um að þá hafi jafnaðar-
mennirnir, undir forystu Otto
Grotewohls, borið skarðan hlut
frá borði en kommúnistar, liðs-
menn Wilhelms Piecks, haft
vinninginn. í Vestur-Þýskalandi
sameinuðust flokkarnir ekki og
þar bera jafnaðarmenn ægis-
hjálm yfir kommúnista. -ks.
Föstudagur 28. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5