Þjóðviljinn - 28.08.1987, Qupperneq 10
AKUREYRI
þeir hvatar sem hvað helstir hafa
orðið til þess að gera Akureyri að
því sem hún er í dag. í því sam-
bandi ber að nefna að gagn-
fræðaskóli var stofnaður á
Möðruvöllum árið 1880, en sá
skóli var síðan fluttur til Akur-
eyrar 1902 og varð menntaskóli
1930. Kaupfélag Þingeyinga var
stofnað 1882 og 1886 var Kaupfé-
lag Eyfirðinga stofnað. Á seinni
hluta 19. aldar efldust fiskveiðar
Eyfirðinga mjög og í kjölfarið
jókst uppgangur bæjarfélagsins
mikið og enn meir þegar tuttug-
asta öldin hélt innreið sína, sem
er án efa blómlegasta öld íslands-
sögunnar.
Á þessum merku tímamótum í
sögu Akureyrarbæjar sótti blaða-
maður Þjóðviljans bæinn heim og
hitti að máli bæjarstjórann Sigfús
Jónsson, sem kom til starfa á Ak-
ureyri þegar nýr meirihluti var
myndaður í bæjarstjórninni eftir
síðustu sveitarstjórnarkosningar
sem fram fóru í fyrra, en þá var
myndaður nýr meirihluti með
þátttöku Sjálfstæðismanna og
Alþýðuflokksmanna. Þá var visst
blað brotið í sögu bæjarstjórnar
Akureyrar, því þá hvarf Fram-
sóknarflokkurinn, í fyrsta skipti í
áratugi úr meirihluta í bæjar-
stjórn. Núverandi forseti bæjar-
stjórnar Akureyrar er Gunnar
Ragnars, einn af bæjarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins og forstjóri
Slippstöðvarinnar á Akureyri.
Ekki mikill kostnaður
Eftir að hafa óskað bæjarstjór-
anum til hamingju með afmælið
og komið sér fyrir í þægilegum
stól á skrifstofu hans var Sigfús
fyrst spurður að því hvað mikið
bæjarsjóður legði til afmælishald-
anna.
„Þetta er ekki mikið og algjört
smáræði við það sem Reykvík-
ingar lögðu til síns afmælis í fyrra,
sem var þó dálítið stærra afmæli,
því Akureyri er aðeins 125 ára.
En upphæðin sem varið er í af-
mælishaldið í ár er um 5 milljónir
króna“.
Verður eitthvað sérstakt um að
vera hjá bæjarstjórninni í tilefni
afmælisins?
„Það verður hátíðarfundur
bæjarstjórnarinnar á laugardag-
inn, sjálfan afmælisdaginn, þar
sem verður tilkynnt um afmælis-
gjöf bæjarstjórnartilbæjarins, en
það er leyndarmál þangað til
hvað það verður. Ennfremur
verður á þessum hátíðarfundi
samþykkt reglugerð um notkun
skjaldarmerkis bæjarins, en það
hefur verið teiknað upp á nýtt og
gert nútímalegra en það var“.
Einkenni Akureyrar
Hefur Akureyri eitthvert ein-
kenni sem kaupstaður umfram
aðra kaupstaði úti á landi?
„Ég held ekki, að það sé
eitthvað sérstakt sem einkennir
bæinn okkar. Hann hefur að vísu
tekið miklum stakkaskiptum frá
því ég var hér sem krakki og
margt nýtt komið til. Á síðustu
árum hefur fjölgað um fjóra tog-
ara, aðallega frystitogara, sem
hafa skilað inn í bæjarfélagið
miklum verðmætum. Góður hag-
ur sjávarútvegsins er aðalfor-
„Óstjórn íbanka- og
peningamálum þjóðar-
innar er náttúrlega bil-
un, sem hver maður sér
sem eitthvað hugsar
um þessi mál. “
Mynd: Ari.
sendan fyrirþeim mikla uppgangi
sem hér hefur verið á síðustu
árum og í dag er geysileg þensla í
atvinnulífinu hér sem alfarið má
rekja til góðærisins í sjávarútveg-
inum. Þá hafa viðskipti og versl-
un aukist mjög allan fjórðunginn
og Akureyri hefur stóreflst sem
ferðamannabær.
Ef tala má um eitthvað öðru
fremur sem einkennir bæinn þá
er það kannski það að 70-75% af
vinnuafli bæjarbúa vinnur hjá
stórfyrirtækjum og stofnunum.
Þar má nefna KEA og Samband-
ið, en það síðarnefnda rekur hér,
sem kunnugt er, stórar og miklar
verksmiðjur. Þá er Akureyrar-
bær stór atvinnurekandi, einnig
Slippstöðin, K. Jónsson og Co,
niðursuðuverksmiðja og Fjórð-
ungssjúkrahúsið. Það sem
nauðsynlega vantar í bæinn er
meira af smá atvinnurekendum
til að gera atvinnulífið enn fjöl-
breyttara en það er í dag“.
Hefur bærinn verið stórtækur í
því að setja nýtt peningamagn til
uppbyggingar atvinnulífsins í
bænum?
„Nei, ekki er hægt að segja að
svo sé. Forsjá Akureyrarbæjar
við uppbyggingu atvinnuiífs hér
var aðallega eftir seinna stnð, og
þá með þátttöku við stofnun Út-
gerðarfélags Akureyringa og
fyrstu sfldarverksmiðjuna í
Krossanesi, en síðustu 10-15 árin
hefur frekar lítið borið á því.
Enda eru verkefni bæjarins skýrt
afmörkuð í sveitarstjórnarlögum
sem Alþingi hefur samþykkt og
þeir tekjustofnar sem við höfum
fara alfarið til þess að vinna að
framgangi þeirra málaflokka sem
lögin segja til um. Stærstu þætt-
irnir þar eru á sviði félags- og
heilbrigðismála og öðrum mála-
flokkum."
Traust staða
Hvernig stendur bæjarsjóður
fjárhagslega á afmælisárinu?
„Fjárhagslega stendur hann
vel, nema hvað Hitaveitan okkar
er ansi skuldug, eins og alþjóð er
EINSTÖK FJÖÐRUN
ri::Kií'
s BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR
Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur
kunnugt um. En slæm skuldast-
aða hennar er fyrst og fremst því
að kenna að hún hefur farið illa út
úr þeim erlendu lántökum sem
teknar voru á sínum tíma þegar
hún var sett á fót. Ekki það að
hún sé eitthvað illa rekin eða
óvenjudýr miðað við aðrar hita-
veitur sem settar hafa verið á fót á
öðrum stöðum á landinu. Það er
fyrst og fremst vegna þess að
greindu skuldirnar hafa vaxið
vegna gengismála og misgengi
þeirra á umliðnum árum. Síðustu
aðgerðir ríkisvaldsins minnkuðu
ekki skuldahalann að neinu
marki. Þær miðuðu fyrst og
fremst að því að greiða niður hit-
unarkostnað bæjarbúa, sem var
orðinn þó nokkur og jafnvel talað
um að þeir sem notuðu sér þjón-
ustu hennar, gerðu ekki annað
við peningana sína en að greiða
hitunarkostnaðinn“.
Eins og svart og hvítt
Nú kemur þú til starfa hér á
Akureyri eftir að hafa verið
sveitarstóri á Skagaströnd. Voru
það ekki mikil viðbrigði að setjast
í bæjarstjórastólinn hérna?
„Jú, það er óhætt að segja það.
Eins og svart og hvítt, en hlut-
verkið er það sama, þó með þeim
breytingum að hér hef ég fjölda
aðstoðarfólks, sem ég hafði ekki
á Skagaströnd. Þar var maður í
öllu. Skipaði gröfustjórum fyrir
og var með puttana í öllu sem
sveitarfélagið tók sér fyrir hend-
ur. Ég verð nú að sgja það að það
var mér ómetanlegur skóli, því
nú þekki ég alla þessa þætti sem
fram fara í bæjarfélaginu, þó þeir
séu að vísu nokkuð stærri að um-
fangi hér“.
Er einhver munur á fólki hér,
til dæmis Húnvetningum og Skag-
firðingum?
„Já, það finnst mér. Akur-
eyringar sem Eyfírðingar eru allt
öðru vísi en nágrannar þeirra á
Norðurlandi vestra. Þeir eru ekki
eins skemmtilegir og Húnvetn-
ingar og Skagfirðingar. Þeir síð-
astnefndu virðast alltaf hafa tíma
til að taka á móti gestum. En
Eyfírðingar eru mun alvörugefn-
ari og duglegri til allrar vinnu.
Við sjáum best að hér í Eyjafirði
er hvert stórbýlið öðru betra og
bændur verið mjög duglegir við
að rækta jarðir sínar. í þessu sam-
bandi minnist ég að hafa heyrt
það frá Soffaníasi Cecilssyni í
Grundarfrði að besta fólkið sem
hann hafi haft í vinnu hjá sér sé
sveitafólk og þar á eftir Akur-
eyringar og útlendingar. En Ak-
ureyringar eru íhaldsamir í at-
vinnumálum og má fullyrða að-
þeir drepast ekki úr nýjunga-
gimi“.
Ferðamannaþjónustan
núverandi
Ferðamannaþjónusta er sívax-
andi atvinnugrein á Akureyri. Er
til einhver einhlít skýring á þvi?
„Nei, það held ég ekki. Nema
hvað þeir aðilar sem standa í
ferðamannabransanum hafa ver-
ið einkar duglegir að iaða hingað
erlenda sem innlenda ferða-
menn. Við höfum hér mjög góð
hótel sem standast fyllilega sam-
anburð við hótel í Reykjavík og
svo er stutt héðan til stórbrotinn-
ar náttúru við Mývatn svo
eitthvað sé nefnt. Við verðum
líka að gera okkur grein fyrir því
að á Akureyri er hægt að bjóða
ferðamönnum uppá margt til
skemmtunar og afþreyingar. Hér
er mikið úrval af veitingastöðum,
leikhús og annað sem dregur til
sín ferðamenn. Þá er Akureyri
vel í sveit sett hvað það snertir að
komast hingað. Bæði með rútum
og með flugvélum. Þó verður að
segja þá sögu eins og hún er að
þjónusta Flugleiða var slæm í júní
og í byrjun júlí í sumar, en frá
þeim tíma til dagsins í dag hefur
þjónustan verið góð. Þeir eru það
knappir með flugvélakost að þeg-
ar einhver vélin bilar þá fer allt úr
böndunum hjá þeim og allar áætl-
anir raskast, sem getur verið
mjög hvimleitt. Sjálfir höfum við
hér á Akureyri Flugfélag Norður-
lands sem gengur vel og ekki hef
ég heyrt um neinar kvartanir
vegna þjónustu þeirra. Þá sér
Norðurleið um rútuferðir hingað
frá Reykjavík og Sérleyfisbílar
Akureyrar keyra austur um frá
Akureyri. Þeirra þjónusta hefur
mælst vel fyrir enda eru þeir með
nýjar og fínar rútur. Þa ber ekki
síst að nefna að á veturna er hér
ein sú besta skíðaaðstaða sem um
getur á landinu og þrátt fyrir að
Reykvíkingar hafi Bláfjöllin við
bæjardyrnar er ekkert lát á ferða-
lögum þeirra hingað norður til að
bregða sér á skíði, fara f leikhús
og skemmta sér í veitingahúsum
bæjarins. Enda er það svo að það
er meiri von að hitta kunningja
sína hér á götu en að hitta þá í
Reykjavík."
Ekki mikil pólitík
Nú ert þú bæjarstjóri nýs
meirihluta í bæjarstjórn Akur-
eyrar. Er mikið þráttað á bæjar-
stjórnarfundum og er mikill pólit-
ískur hiti í bæjarstjórnarfuiltrú-
um?
„Nei, það er ekki hægt að segja
það. Skilin í bæjarpólitíkinni eru
ekki skörp. Það er voða sjáldgæft
„Það er lítill pólitískur hiti meðal
bœjarstjórnarfulltrúa héráAkureyri. Sjaldgæft
að mál séu samþykkt með því að knýjafram
meirihlutasamþykkt í bœjarstjórninni. Aðeins
um 10—15 % aftekjum bæjarins fer til
framkvæmdafyrir utan þærsem bœrinn er
skuldbundinn að gera samkvæmt
sveitarstjórnarlögum sem Alþingi hefur
samþykkt. “
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 28. ágúst 1987