Þjóðviljinn - 28.08.1987, Side 12
AKUREYRI
Fallegasti bær á landinu
Akureyringar hreyknir af bænum sínum. Afmælið gerir það að
verkum að menn mála húsin sín og takatil í görðum sínum. Lítið um
stress meðal fólksins og mikil friðsæld ríkjandi. Rígurinn á milli
Akureyringaog Húsvíkinga miklu minni en áðurvarog er helstað
finna í fótboltanum
Það þykir vel við hæfi á jafn
merkum tímamótum sem 125 ára
afmæli er í sögu Akureyrarkaup-
staðar að staldra örlítið við og
kanna hvað bæjarbúum finnist til
afmælisins koma og hvaða kost-
um bærinn búi einna helst yfir.
Hvað það er sem laðar fólk að
bænum og einnig hvað þeim
finnst einna best við að búa i hon-
um.
Blaðamaður Þjóðviljans var á
dögunum á Akureyri og tók þá
vegfarendur tali og lagði fyrir þá
nokkrar spurningar þar að lút-
andi.
f gilinu við Kaupvangsstræti
hittum við þrjár ungar stúlkur,
þær Guðnýju, Valgerði og Öldu
sem eru 14 og 15 ára gamlar. Ein
þeirra gekk um á stultum, að vísu
ekki mjög háum, en naut þó
stuðnings hinna tveggja ef henni
skyldi fatast göngulagið. Á
klæðnaði þeirra mátti merkja að
þær hefðu komist í kynni við
málningu í öllum regnbogans
litum. Þær voru fúsar að svara
nokkrum spurningum forvitins
blaðamanns að sunnan og þær
voru fyrst spurðar af hverju þær
væru að æfa að ganga á stultum.
„Við erum meðlimir í leik-
klúbbnum Sögu og verðum með
fullt af atriðum á afmælishátíð-
inni á laugardaginn. Meðal þess
sem við verðum með eru tvö
leikrit: Jói og baunagrasið og
Mjallhvít og dvergana sjö. Alls
eru 20 unglingar í klúbbnum, en
vegna afmælisins verðum við
með fjölda aðstoðarkrakka og
allra þeirra sem vilja leggja
eitthvað af mörkum til að að-
stoða okkur við að gera atriðin
sem við verðum með sem best úr
garði.“
Hlakkið þið til hátíðahaldanna
á helginni?
„Já, svo sannarlega. Afmælið
er kærkomin tilbreyting í bæjar-
lífið og við höfum hugsað okkur
að nota það óspart til að skemmta
okkur sem og öðrum.“
Er gott að búa á Akureyri?
„Það er fínt að búa hér. Hérna
þekkjum við alla og mórallinn í
bænum er mjög skemmtilegur."
Er einhver rígur á milli Akur-
eyringa og krakka í nálægum
bæjum?
„Það er rígur á milli Akur-
eyringa og Húsvíkinga. Húsvík-
ingarnir eru alltaf með einhverja
töffarastæla og þykjast vera
eitthvað meiri menn fyrir vikið,
en það finnst okkur ekki,“ sögðu
þær Guðný, Valgerður og Alda
og þar með var viðtalinu lokið,
enda þurftu þær að halda áfram
að æfa sig á stultunum fyrir al-
vöruna sem byrjar á laugardag-
inn 29. ágúst.
Friðþjófur Sigurðsson, versl-
unarmaður hafði tekið sér það
bessaleyfi að hvfla sig smástund
frá verslunarvinnunni þegar hann
varð á vegi okkar. Hann var fyrst
spurður að því hvernig afmælið
legðist í hann.
„Mér finnst heldur mikið til-
stand í kringum það. Að öðru
leyti finnst mér það vera kær-
kominn menningarauki í bæjar-
h'fíð og ágætt að fá svona uppá-
komur, eins og lofað er sam-
kvæmt auglýstri dagskrá. Verst
þykir mér þó að ekki skuli vera
bökuð afmælisterta eins og gert
var í Reykjavík í fyrra.“
Hvernig er að búa á Akureyri?
„Ég þekki ekki annað og finnst
þarafleiðandi gott að búa hér. En
ekki vildi ég búa í Reykjavík, það
er á hreinu.“
Hvað finnst þér best við Akur-
eyri?
„Þetta er mjög fallegur bær,
mikið af gróðri, en mér fínnst
fólkið hérna frekar ljótt í framan.
Unga fólkið bjargar því sem
bjargað verður með því að klæða
sig vel. Þá gæti bærinn orðið enn
fallegri ef ljótustu húsin á Eyrinni
væru rifin og þau sem eru þess
virði væru endurbætt og fríkkað
upp á þau.“
Er eitthvað sérstakt sem ein-
kennir íbúa hér?
„Já. Fólk hérna í bænum er
hrætt við að fara með öðru fólki í
iyftu.“
Er rígur á milli Akureyringa og
íbúa í nágrannabæjunum?
„Það er þá ekki nema einhver
góðlátlegur rígur, sem kemur til
af hinu góða, finnst mér, og á
ekki við neitt sérstakt bæjarfélag
hér í grenndinni. Persónulega
finnst mér gott að einhver rígur sé
á milli íbúa næstu kaupstaða, því
annars yrðu samskipti þeirra sín í
milli mun fátæklegri," sagði Frið-
þjófur, sem var farinn að líta á
klukku sína í gríð og erg enda
kannski kominn með samvisku-
bit yfir því hvað hann var búinn
að vera lengi í pásu.
Berit Ljung var að hengja upp
þvott á snúrur þegar við trufluð-
um hana og spurðum hvernig það
væri að búa á Akureyri.
„Ég er aðeins búin að vera hér í
bænum í rúmt ár. Áður bjó ég
ásamt fjölskyldu minni í Köldu-
kinn fyrsta árið mitt hér á landi.
Ég kem frá Smálöndum í Svíþjóð
og vinn hér sem saumakona hjá
fyrirtækinu Heklu, en þess á milli
er ég húsmóðir. Mér finnst mjög
gott að búa hér á Akureyri. Það
er auðvelt að komast í samband
við fólkið hérna og eignast vini.“
Hvað finnst þér best við bæ-
inn?
„Hann er mjög fallegur bær og
mjög rólegur sem er gott fyrir
börnin sem geta leikið sér úti.
Helsti munurinn við að búa hér
og í Svíþjóð er að náttúran hér er
allt öðruvísi. Sumrin eru kaldari
hér en ég átti að venjast heima í
Svíþjóð og á veturna er mun
hvassara hér og gengur meira á,
sérstaklega þegar hann snjóar og
mikill vindur fylgir með.“
En er ekki munur að vinna hér
á Akureyri og í Svíþjóð?
„Fólk vinnur mun meira hér en
ég á að venjast. En mér finnst
gott að vinna hérna og vinnufé-
lagarnir hafa reynst mér vel. í
Svíþjóð vill enginn vinna meira
en átta tíma dagvinnu og það er
helsti munurinn á að vinna hér og
þar.“
Hvað finnst þér um afmælið
sem er í vændum?
„Ég hlakka til að taka þátt í því
og vona að veðrið verði gott svo
að þetta lukkist allt mjög vel,“
sagði Berit Ljung og hélt hin ró-
legasta áfram að hengja upp
þvottinn.
Haukur Tryggvason, veitinga-
stjóri á Hótel KEA var á leiðinni
á sinn vinnustað þegar við náðum
tali af honum. Hann var fyrst
spurður að því hvernig honum
þætti að búa á Akureyri.
„Mér finnst mjög gott að búa
hér. Bærinn er hæfilega stór og
friðsæll."
Er eitthvað sem einkennir bæ-
inn öðru fremur?
„Það væri þá helst góð veðrátta
að öllu jöfnu.“
Hvað fínnst þér um afmælið?
„Eftir því sem ég best veit er
- ekki svo miklu til þess kostað,
sem er út af fyrir sig jákvætt. Það
sem ég veit um dagskrána finnst
mér hún vera alveg hæfileg, en
hvernig hún kemur til með að
heppnast fer auðvitað mikið eftir
því hvernig viðrar hér á helg-
inni.“
Þú ert veitingastjóri á Hótel
KEA. Hvernig hefur sumarið
verið?
„Það sem af er hefur það verið
gott. Ferðamannastraumurinn
hefur verið stöðugur og jafn í allt
sumar. Hvað mína vinnu snertir
þá verður maður ekki mikið var
við útlendinga í skemmtanalíf-
inu, en því meir var við íslending-
ana sem taka það miklu alvar-
legra og láta sig ekki vanta þar.“
Er einhver rígur á milli Akur-
eyringa og annarra nágranna-
bæja?
„Nei, ekki finnst mér það. Ef
einhver rígur er þá er hann á milli
Reykjavíkur og landsbyggðar-
innar,“ sagði Haukur Tryggva-
son veitingastjóri.
Björn Guðmundsson, verka-
maður í Sláturhúsi KEA stóð í
tröppunum á Snorrahúsi við
Strandgötuna niðri á Eyri, þar
sem hann hefur til sölu notuð
húsgögn. En Snorrahús á að rífa á
næstunni, en skiptar skoðanir eru
meðal bæjarbúa um það. Sumir
vilja varðveita það og gera það
upp, en aðrir vilja umfram allt
láta rífa það, enda er það komið
að fótum fram vegna vanhirðu
síðustu áratugi. Björn var fyrst
spurður að því hvernig sé að búa
á Akureyri og vinna hjá KEA.
„Ég er búinn að vinna í Slátur-
húsinu í fimmtán ár og líkar bara
vel. Kaupfélagsmenn eru sæmi-
OKEYPIS
Ókeypis upplýsingar um vöru og þjónustu.
Það eina sem þú þarft að gera er að lyfta
símtólinu, velja númer Gulu línunnar 62 33 88
og spyrja. Hjá starfsfólki Gulu línunnar færð
þú vinalega þjónustu og greið svör við spum-
ingum þínum. Einfalt og stórsniðugt - ekki satt!
„ÉG ER AKVEÐIN I ÞVl AÐ NOTA
TlMANN VEL I VETUR OG SÆKJA NÁM-
SKEIÐ. TIL AÐ AUÐVELDA MÉR VAUÐ H8INGDI
ÉG I GULU LlNUNA OG ÞAR FÉKK
ÉG ÞÆR UPPLÝSINGAR SEM ÉG ÞURFTI, OG
NÚ ER MlNUM TÓMSTUNDUM RÁÐSTAFAÐ.
- ÞEIR VITA BÓKSTAFLEGA ALLT MENNIRNIR"
Að heiman og úr vinnu þekkjum við vandamál
sem tímafrekt virðist að leysa, en Gula línan
greiðir úr á augnabliki. Við þurfum að hafa upp
á sjónvarpsviðgerðamanni, vélritara eða
þýðanda. Ná í iðnaðarmenn, fá upplýsingar
um hvar er selt parket, hvar er hægt að kaupa
vara- eða aukahluti í bílinn eða
leigja smóking. Úr slíkum
vandamálum Ieysir starfsfólk
Gulu línunnar. Athugaðu það,
þú hringir og færð upplýs -
ingarnar strax - og það
ókeypis.
■EG HEF FAU STARFSFÖLKI A AÐ SKIPA OG
HEF PVl HRINGT I GULU LlNUNA PEGAR
VFIR FLÝTUR A SKRIFSTOFUNNI. PEIR
HAFA A SKRA LAUSAFÖLK (.FREE LANCE'I
TIL ALLRA SKRIFSTOFUSTARFA PETTA
HEFUR LEYST MINN VANOA OG SPARAÐ
MÉR STÓRFÉ. - POTTPÉTT PJÓNUSTA' -
62 33 88
12 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN