Þjóðviljinn - 28.08.1987, Page 13
AKUREYRI
Haukur Tryggvason, veitingastjóri á Hótel KEA: Ferðamannastraumurinn í
sumar hefur verið jafn og stöðugur. Mynd: Ari.
Berit Ljung, húsmóðir og sauma-
kona hjá Heklu: íslendingar vinna
miklu meir en ég á að venjast frá Sví-
þjóð þar sem ég er fædd og uppalin.
Mynd: Ari.
Bragi Bragason, vinnur í blikk-
smiðju: Rígurinn á milli Akureyringa
og Húsvíkinga er að mestu horfinn frá
því sem áður var. Mynd: Ari.
Guöný, Valger&ur og Alda,
meðlimir í leikklúbbnum Saga:
Gott að búa á Akureyri og góður
mórallíbænum.
Mynd: Arr
Fri&þjófur Sigur&sson, verslunarmaður: Einkenni Akureyringa er að þeir
þora ekki með öðru fólki í lyftu. Mynd: Ari.
Björn Gu&mundsson, vinnur i
Sláturhúsi KEA: Verkalýðsforust-
an er ekki nægilega grimm í
baráttunni fyrirauknum kaup-
mætti.
Mynd: Ari.
legir sem atvinnurekendur og ég
hef í sjálfu sér yfir engu að kvarta
vegna þeirra. En fyrst þú ert frá
Þjóðviljanum máttu koma þeirri
skoðun minni áleiðis að mér
finnst verkalýðshreyfingin ekki
vera nægilega grimm í því að við-
halda og auka kaupmáttinn. Þeir
eru með allt niðrum sig þessir háu
herrar fyrir sunnan, sem segjast
alltaf vera að berjast fyrir okkur
verkamennina. Það er mín
skoðun."
Er gott að búa hér?
„Það finnst mér. Veðráttan er
mjög góð hér og ekki spillir það
fyrir að Akureyri er einkar fal-
legur bær. Það verður ekki af
honum skafið."
Hefurðu orðið var við einhvern
ríg á milli Akureyrar og annarra
bæjarfélaga?
„Nei, það hef ég ekki orðið var
við og þekki varla þetta fyrirbæri
sem þú kallar svo,“ sagði Bjöm
Guðmundsson að lokum.
Bragi Bragason, vinnur í
blikksmiðju og var að flýta sér
eftir göngugötunni Hafnarstræt-
inu, þegar við náðum að stoppa
hann stundarkorn og spurðum
hann hvernig væri að búa á Akur-
eyri.
„Mér finnst sæmilegt að búa
hér. Hérna er ekki mikið stress á
fólki og yfirleitt er ég ánægður
með veðrið."
Er eitthvað sérstakt sem ein-
kennir bæinn öðru fremur?
„Þetta er mjög fallegur bær.
Mikið af gróðri og trjám. Þetta
tvennt finnst mér einkenna hann
frá öðrum bæjum hér á landi.“
Hvað finnst þér um afmælið
sem er i vændum?
„Það er út af fyrir sig allt í lagi
að halda uppá það, þó það sé ekki
neitt stórt afmæli. Þó má segja að
svona afmælistilstand geri það að
verkum, fremur en margt annað
að húseigendur taka sig til og
mála húsin sín og taka til í görð-
um sínum til að hafa allt fallegt og
fínt þegar laugardagurinn gengur
í garð. Það finnst mér jákvæðasta
við þetta allt saman.“
En er einhver rígur á milli Ak-
ureyringa og nágrannabyggðar-
laganna?
„Það hefur minnkað að mun.
Fyrir 10-15 árum var það svo að
ef Akureyringar og Húsvíkingar
hittust á dansleikjum, þá varð allt
vitlaust. En í dag hefur rígurinn
þróast yfir í fótboltann. Sjálfur er
ég gallharður Þórsari og vona
bara að þeir nái að vinna sér rétt
til að spila í Evrópukeppninni á
næsta ári. Annars held ég að Val-
ur sé næstum búinn að gulltryggja
sér fslandsmeistaratitilinn í fót-
boltanum í sumar og við höldum
báðum okkar liðum áfram í
deildinni," sagði Bragi Bragason
að lokum.
grh
aðra vikuna í röð!!!
leggjast því við fyrsta vinning laugardaginn 29. ágúst.
Spáðu íhann þrefaldan!!!
Síðast varð hann Í5.000.000.00