Þjóðviljinn - 28.08.1987, Side 19
MYNDLISTIN
UM HELGINA
Hallgrímur Helgason og Hjör-
dís Frímann opna í kvöld sýn-
ingu á olíumálverkum og
teikningum. Hallgrímursýnir
um 30 olíumálverk og allmargar
teikningar sem hann vann á
Hofsósi í sumar. Ber sýning
hans heitið „Hofsós ‘87“. Hall-
grímur hefur undanfarið dvalið í
New York við myndlistarstörf
og er kunnur af Hofsós- og New
York pistlum þeim sem hann
hefur ritað fyrir Sunnudagsblað
Þjóðviljans.
Hjördís Frímann lauknámi
við The Museum School of Fine
Arts í Boston, Massachusettes,
vorið 1986 og er þetta fyrsta
einkasýning hennar. Hún sýnir
oliumyndirá striga og pappír
auk akríl- og kolamynda. Hjör-
dís sýndi áður á IBM-sýningu
ungra myndlistarmanna á Kjar-
valsstöðum.
Við opnun sýningarinnar kl.
20 í kvöld mun Guðni Franzson
klarinettuleikari frumflytja verk
fyrir klarinettu og kassettur.
Sýningin verður opin f rá 16-
20 daglega en 14-20 um helgar
til6.september.
Listasaf n ASÍ og Verka-
mannafélagið Dagsbrún
standa í sameiningu að sam-
sýningu fjögurra frístundalista-
manna úr Dagsbrún og verður
hún opnuð í sýningarsal
safnsins á laugardag kl. 14.
Sýnd eru verk eftir Birgi Nur-
mann Jónsson, Eggert
Magnússon, Jón Haraldsson
og Pétur Hraunfjörð. Sýningin
verður opin virka daga kl. 16-20
en 14-22 um helgar til 13. sept.
Kristján Kristjánsson sýnir20
collage-myndir í gallerí
Hallgerði, Bókhlöðustíg 2,29.
ágúst -13. sept. Sýningin ber
heitið „DreamsThat Money
Can Buy“, og er efni myndanna
sótt í heim draums og veruleika.
Sýningineropinkl. 14-18 sýn-
ingardagana.
Sveinn Björnsson sýnir um
þessar mundir málverk í gallerí
Svart á hvítu við Óðinstorg.
Opið kl. 14-18, síðasta sýning-
arhelgi.
Margrét Elíasdóttir sýnir akr-
ílmálverk í Vestursal Kjarvalss-
taða. Opið kl. 14-22, síðasta
sýningarhelgi.
Sumarsýningu Jóhannesar
Kjarval að Kjarvalsstöðum lýk-
ur um þessa helgi. Opið kl. 14-
22.
Hafnargallerí, Hafnarstræti 4,
sýnir um þessar mundir Ijós-
myndir eftir bandaríska Ijós-
myndarann og bók-
menntafræðinginn Matthew
James Driscoll. Á sýningunni
eru 55 Ijósmyndir, flestar frá ís-
landi. Matthew stundar nú nám
í íslenskum bókmenntum við
Háskóla íslandsog hefurverið
búsettur hér á landi frá 1979.
Sýningin er oþin á verslunar-
tíma til 9. sept.
Jónína Björg Gísladóttir sýnir
málverk í Viðey. Ferðir út i
eyjuna eru á laugardögum og
sunnudögum kl. 13-19ogfrákl.
14 virkadaga. Sýningin stend-
ur til 6. sept.
Birna Kristjánsdóttir sýnir
textílverk í FlM-salnum, Garða-
stræti 6. Opið kl. 14-19, síðasta
sýningarhelgi.
Hallsteinn Sigurðsson sýnir
höggmyndir í gallerí Gamla
Lundi við Eiðsvöll í Eyjafirði.
Opið kl. 15-22, síðasta sýning-
arhelgi.
Norræna húsið sýnir málverk
eftir Frans Widerberg. Opið kl.
14-19, síðasta syningarhelgi.
Listasaf n íslands sýnir úrval
verka í eigu safnsins. Opið
Hjördís Frímann og Hallgrímur Helgason opna sýningu í Nýlistasafninu í kvöld kl. 20.00. Guðni Franzson mun leika á klarinett við opnunina. Myndin ertekin þegar
þau voru að undirbúa sýninguna í gær.
13.30- 16. Sýningunni lýkur á
sunnudag.
Listasafn Einars Jónssonar
sýnirgipsmyndirog málverk
Einars. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 13.30-16. Högg-
myndagarðurinn opinn alla
dagakl11-17.
Ásmundarsafn við Sigtún
sýnir abstraktskúlptúra eftir Ás-
mund Sveinsson. Opið daglega
kl. 10-16.
Ásgrímssafn við Bergstaða-
stræti sýnir úrval verka Ásgríms
Jónssonar kl. 13.30-16. Síð-
asta sýningarhelgi.
Listasafn Háskóla íslands
sýnir úrval verka sinna í Odda,
húsi Hugvísindadeildar Há-
skólans. Opið daglega kl.
13.30- 17.
íslensk skinnhandrit, þar á
meðal handrit að Eddu-
kvæðum, Flateyjarbókog Njálu
eru til synis í Árnagarði þriðju-
daga, fimmtudaga og laugar-
dagakl. 14-16.
Árbæjarsafn er opið alla daga
nemamánudagaíd. 10-18.
Gallerí Sigtún, sem er í Hótel
Holliday Inn, sýnirolíumálverk
og pastelmyndireftirTorfa
Harðarson.
Sjóminjasafn Islands, Vestur-
götu 8 í Hafnarfirði, hefursýn-
ingu um árabátaöldina á ís-
landi. Jafnframt er sýnd
heimildarmyndin „Silfur hafs-
ins“. Opið 14-18 alla daga
nemamánudaga.
Gallerí Grjót við Skólavörðu-
stíg hefur samsýningu á verk-
um meðlimagallerísins. Opið
virkadagakl. 12-18.
Gallerí List, Skipholti 50c sýnir
verk eftir yngri og eldri lista-
menn. Opið á verslunartíma.
Gallerí íslensk list, Vestugötu
17, sýnir verk eftir 14 félaga í
Listmálarafélaginu. Opið mán-
ud.-föstud.kl.9-17.
TÓNLISTIN
Heiti potturinn í Duus húsi við
Fischersund: Árni Scheving
víbrafónleikari, Kristján
Magnússon píanóleikari, Tóm-
as R. Einarsson bassaleikari og
BirgirBaldursson trommuleik-
ari jazza á sunnudag kl. 21.30.
Kristján Jóhannsson óperu-
söngvari heldurtónleika í Hótel
Borgarnesi á laugardagskvöld-
iðkl. 21. Þettaverðasíðustu
tónleikar Kristjáns hér að sinni,
en hann er nú á förum til Ítalíu
og Bandaríkjanna.
Laufey Sigurðardóttir fiðlu-
leikari og Richard Talkowsky
selióleikari halda tónleika í
Áskirkju sunnudaginn 30. ágúst
kl. 17.00.Áefnisskráeru verk
eftirGiordani, Haydn, Kodaly
og Jón Nordal.
Árlegir „Söngdagar (Skál-
holti“ verða haldnir nú um
helgina, en þar munu söng-
glaðir una sér við söng og spil
laugardag og sunnudag í Skál-
holti, en þátttakendur mæta á
staönum í kvöld. Þetta er í ní-
unda sinn sem söngdagar eru
haldnir, og að þessu sinni verða
sönglög eftir Johannes Brahms
í öndvegi á dagskránni aukl
fjölda annarraverka. Þátttak-
endur í f lutningi verða um 50-60
manns, víðs vegar að. Söng-
dögum ‘87 lýkur á sunnudag kl.
i 6.30 með söng í Skálholts-
kirkju, auk þess sem sungið
verður við messu sem hefst kl.
17. Söngstjórn annast Jónas
Ingimundarson.
Söngnámskeið verður haldið í
sal Tónlistarskólans í Reykjavík
að Laugavegi 178frá31. ágúst
til 12. september. Svanhvít Eg-
ilsdóttir, sem kennt hef ur söng
sl. 25 ár við T ónlistarháskólann
. í Vínarborg kemur nú hingað í
þriðja sinn til þess að halda
söngnámskeið. Henni til að-
stoðar verður píanóleikarinn
Wassilis Kotulas, semjafn-
framt heldur námskeið fyrir pí-
anóleikara. Námskeiðiðeropið
fyrir áheyrendur og því lýkur
laugardaginn 12. sept í Menn-
ingarmiðstöðinni að Gerðu-
bergi.
LEIKLISTIN
Leikfélag Húsavíkur sýnir
leikritið Ofurefli („Shadow
Box“) eftir Michael Christopher
í þýðingu Karls Ágústs Úlfs-
sonarog leikstjórn Maríu Sig-
urðardóttur í Iðnó á laugardag
kl. 20.30. Leikfélagið er nú á
förumtil Danmerkurþarsem
það mun sýna leikritið í Glad-
saxe og á Bornholm og endur-
gjaldaþannig heimsókn
dansks áhugamannaleikhóps
sem sýndi hér Stundarf rið eftir
Guðmund Steinsson í fyrra.
Sýningin Ofurefli var sýnd á
Húsavík í vor við góðar undir-
tektir gagnrýnenda og annarra.
Miðasalaerílðnófrákl. 13.30.
„Light Nlghts“ sýnir leikþætti
samda upp úr íslenskum þjóð-
sögum og fornbókmenntum á
ensku fyrirferðamenn íTjamar-
bíói við Tjömina í Reykjavík á
föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 21.
Stærsta hlutverk sýningarinnar
er í höndum Kristínar G. Magn-
ús, sem stýrir Sumarleikhúsinu
ásamt með þeim Halldóri
Snorrasyni og Magnúsi S. Hall-
dórssyni. Þettaer 18. sumarið
sem Sumarleikhúsið „Light
Nights" starfar, og verðurþetta
síðasta sýningarhelgi sumars-
ins.
HITT OG ÞETTA
Viðeyjarferðir Hafsteins
Sveinssonar hefjast um helgar
kl. 13. Kirkjan í Viðey er opin og
veitingarfástíViðeyjarnausti.
Bátsferðin kostar200 kr.
Grasagarðurinn í Laugardal
er opinn almenningi virka daga
frá 8-22 og 10-22 um helgar.
Þar er að finna allar jurtir sem
vaxa villtar á íslandi og fjölda
annarrategunda.
Eidgjá, gist í sæluhúsi f
Laugum. 4) Þórsmörk, gist í
Skagfjörðsskála. Brottför kl. 20
áföstud. Upplýsingarogfar-
miðar á skrifstofunni, Öldugötu
3..
Dagsferðir: sunnudag kl.
8.00: Þórsmörk, verð 1000 kr.
Sunnud. kl. 9.00: Kóranes á
Mýrum, ekið í Straumfjörð.
Verð 1000 kr. Sunnud. kl. 13.:
Eyrarfjall í Kjós (415 m.), verð
600 kr. Brottförfrá Umferðar-
miðstöðinni austanmegin.
Útlvist. Helgarferðir 28.-30.
ágúst: 1) Þórsmörk, gist í Bás-
um. 2) Eldgjá, Langisjór,
Sveinstindur, gist í húsi sunnan
Eldgjár. Brottfarirkl. 20.00.
Dagsferðir á sunnudag: 1) kl.
8.00: Þórsmörk, verð 1000 kr.,
2)kl. 10.30:Línuvegurinn,
SkjaldbreiðurHlöðuvellir. Verð
1000 kr., 3) kl. 13.00: Botnsdal-
ur, berjaferð. Gengið að Glym,
hæstafossi landsins. Verð600
kr.. Brottförfrábensínsölu BSÍ,
fríttf. börn ífylgdfullorðinna.
Torfhleðslunámskeið veröur
haldið í Vatnsmýrinni fyrir neð-
an Norræna húsið á laugardag
og sunnudag kl. 10-18 með
matarhléi kl. 13-14. Kenntverð-
ur að rista klömbru og streng og
hlaða veggi með sama hætti og
tíðkast hef ur á íslandi f rá land-
námstíð. Leiðbeinandi er
Tryggvi Gunnar Hansen. Þátt-
takendum er bent á að hafa
Föstudagur 28. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
Ferðafélag íslands. Helgar-
ferðir 28.-30. ágúst: 1) Óvissu-
ferð, gist í húsum. 2) Nýidalur-
Laugafell, gist í sæluhúsinu í
Nýjadal, 3) Landmannalaugar-
meo sersugvei, regnioiog
stunguspaða. Nánari upplýs-
ingarfsíma 75428.
FJÖLBRAUTASKÓUNN
BREiÐHOUI
Austurbergi5 109Reykjavik ísland simi756 00
Frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
Stundakennara í rafiðngreinum og rafeindavirkja
(tæknifræðing) vantar við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti.
Upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 75600 og
hjá deildarstjóra í síma 666405.
Skólameistari