Þjóðviljinn - 27.09.1987, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 27.09.1987, Blaðsíða 2
FLOSI \iku skammtur Allir íslendingar eiga sér aðalstarf og hjáverk. Mín hjáverk hafa lengi verið að skrifa greinakorn í Þjóðviljann. í þetta blað hef ég semsagt skrifað á sjö daga fresti síðastliðin sextán ár. Margir hafa orðið til að spyrja mig hvernig í ósköpunum ég hafi farið að þessu og því er auðsvarað: Ég bara veit það ekki. Upphaflega var ég víst það barnalegur að líta svo á að maður ætti að leggja þeim málstað lið sem bæri lítilmagnann fyrir brjósti, svo fór ég að hafa gaman af þessu, líklega af því að ég fann hjá mér dulitla löngun til að viðhalda þeirri litlu sendibréfsfærni sem guð og gott fólk hefði ef til vill lætt inn hjá mér. Svo kom, að ég ánetjaðist þessu vikulega blekbulli, svona einsog alki brennivíni og síðast voru svo vikuskammtarnir orðnir mér jafn mikil lífsnauðsyn einsog líkamsrækt og stólpípa er fegurðardrottningum. Svona hefur þetta gengið í sextán ár og nú er ég semsagt að Ijúka fjórða kjörtímabilinu. Nú hef ég, á þessum merku tímamótum, tekið sólarhæðina í lífi mínu og er ekki frá því að sólin sé komin úr hádegisstað þó enn sé að vísu ratljóst. Það að degi er tekið að halla merki ég einkum á því að ég er ekki bara orðinn íhalds- samur. Ég er að verða rammasta afturhald. Ég sem í æsku var svo róttækur að ég vildi helst hengja alla andstæðinga öreigabyltingar- innar upp á afturfótunum í von um að réttar skoðanir rynnu inní hausinn á þeim um leið og blóðið, er nú óðum að komast á þá skoðun að flest gamalt sé gott og að nýbreytni eigi engan rétt á sér nema sýnt sé að hún sé snöggtum skárri en það sem fyrir var. Stundum finnst mér svolítið ónotaleg tilfinn- ing að vera að breytast svona, en það stafar áreiðanlega bara af því, að ég er svo íhalds- samur að ég verð fárveikur ef ég þarf að skipta um skoðun. Og þar komum við að meginorsökum þess að ég hef skrifað í Þjóðviljann vikulega í sextán ár. Ég er svo íhaldssamur að ég hef í fjögur kjör- tímabil ekki getað hætt að skrifa í byltingarmál- gagnið. af kveðju í sálarlífi mínu hefur verið afar róstursamt uppá síðkastið. Anarkistinn - sem útleggst stjórnleysinginn - í mér hefur einlægt verið að ergja íhaldskurfinn, sem hafði þó lengi fengið að vera í friði. Þetta hefur verið að gerjast nokkuð lengi held ég, en svo dró til tíðinda í Álfheimabakaríinu vestur á Melum um daginn. Án þess að fá rönd við reist, líkt og væri ég ofurseldur hinu illa, brá ég ófrávíkjanlegri venju og keypti sólkjarnabrauð í stað þess að kaupa pálmabrauð, eins og hef þó gert daglega í ein sjö-átta ár. Mér var ekki sjálfrátt. Stjórnleysinginn hafði náð á mértökum. Það hafði orðið bylting í sálar- lífi mínu. Ef einhverjum kynni nú að finnast þetta lítil tíðindi, þá hefur sá hinn sami á réttu að standa, að minnsta kosti í samjöfnuði við stjörnustríðsá- ætlunina og heimsendi. En í mínu lífi veldur þetta atvik tímamótum. Stjórnleysinginn hefur náð undirtökunum. í Alþýðubandalaginu hafa menn þreytt þá íþrótt af miklu kappi uppá síðkastið, að tilkynna að þeir gefi ekki kost á sér. Ótrúlegustu menn gefa ekki kost á sér. Oft gefa menn ekki kost á sér af því að þeir vilja gefa öðrum kost á að gefa kost á sér og svo gefa hinir ekki heldur kost á sér. Og svona koll af kolli. Bara allir sem vettlingi geta valdið í því að gefa ekki kost á sér og líka hinir sem eiga erfitt með að valda vettlingum. Steingrímur Sigfússon viil ekki gefa kost á sér, svo svigrúm skapist fyrir aðra að gefa kost á sér. Guðrún Helga gefur ekki kost á sér, né Svavar. Ólafur-Ragnar telur ekki tímabært að gefa kost á sér, og Sigríður Stefánsdóttir ætlaði fyrst ekki að gefa kost á sér, en þá varð hún fyrir svo miklum þrýstingi að hún ákvað að gefa kost á því að athuga hvort hún ætti að gefa kost á að gefa kost á sér. Og svo framvegis. Og nú er komið að mér. Eftir sextán ár, þegar fjórða kjörtímabilinu er að Ijúka, hef ég semsagt afráðið að gefa ekki lengur kost á mér. Þess vegna verður þetta síðasti „Vikuskammturinn" minn í Þjóðviljanum, blaðinu sem mér þó er nú - þegar öllu er á botninn hvolft - ekki alveg sama um. Eftir öllum sólarmerkjum að dæma eru nú að taka við blaðinu nýir menn sem eru allra góðra gjalda verðir og eiga ekki að þurfa að hanga með gamla dragbíta á bakinu þegar þeir leggja á brattann. Ég segi þessvegna einsog hinir: - Ég vil að öðrum gefist kostur á að gefa kost á sér og þess vegna finnst mér sá kostur vænst- ur að gefa ekki kost á að gefa kost á mér. Svo ég segi bless með umtalsverðum trega. Og að lokum: Ég byrjaði á Þjóðviljanum undir handarjaðri Magnúsar Kjartanssonar en fyrir tilstilli Kjartans vinar míns Olafssonar, sem þá var að taka við ritstjórn blaðsins ásamt Svavari. Síðan hef ég eignast á þessu blaði marga góða vini sem ég mun áreiðanlega sakna og á ég þar ekki síst við Elías Mar, sem með því að lagfæra málvillur og koma vitinu fyrir mig hefur ósjaldan bjargað æru minni. Þegar ég kveð allt þetta góða fólk verð ég óneitanlega svolítið væminn í sálinni. Á Þjóðviljanum hefur nefnilega alltaf verið af- skaplega gott og hjartahreint fólk. Allir sem handgengnir eru þessu blaði hafa einhvern tím- ann verið róttækir, eða halda að þeir hafi verið það - einsog ég. Sumir eru það sjálfsagt enn, og þá frekar þeir sem eru nýbyrjaðir á blaðinu einsog að líkum lætur. Það sem þetta fólk hefur, held ég, lengstaf dreymt um, er að afnema misrétti og bæta heiminn. Um aðferðirnar hefur stundum verið deilt einsog gengur. Stundum hefur það verið sagt um okkur, sem skrifað höfum í Þjóðviljann að við værum nyt- samir sakleysingjar, en þá vaknar bara sú spurning: - Nytsamir hverjum? „Engar áhyggjur, gott fólk. Þetta Ijón er nema það verði fyrir áreitni...“ algerlega meinlaust

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.