Þjóðviljinn - 27.09.1987, Síða 5
Klara móðir Garris : Hún fylgir honum
hvert á land sem er.
bókinni. Þar er rætt um hina so-
vésku „skákmafíu", um „skugga-
baldra sem forðast ljós sann-
leikans“. Þar með er átt við þá
Karpov og Campomane sem
Kasparov spyrðir saman í
skrýmslið Karpomanes. Hann
telur að Fide lúti stjórn „gjör-
spilltrar klíku“ og að Sovéska
skáksambandið hafi orðið undir
keisaralegum tilburðum Karpovs
að „sambandi gegn skáklistinni".
Höfðingjum þess sambands líkir
hann helst við nornirnar í leikriti
Shakespeares Macbeth sem
„brugga mönnum eitraðan
drykk“.
Kasparov ætlar ekki aðeins að
verja sinn heimsmeistaratitil í Se-
villa í október. Hann ætlar ekki
að linna sínum látum fyrr en hann
hefur hrakið Campomane og
klíku hans úr forystusveit Fide:
„Eigi mun ég láta deigan síga fyrr
en réttlætið hefur sigrað“.
Bjartsýni hans er meðal annars
byggð á því, að hann sjálfur sé
bam umbrotatíma þeirra sem
Gorbatsjov hafi góðu heilli leitt
yfir Sovétríkin (sjá sérstaka
klausu hér á opnunni - en Karpov
sé aftur á móti afsprengi hinna
drungalegu stöðnunartíma Bréz-
hnevs.
Kasparov er sem fyrr segir
mjög dómharður - rétt eins og í
skákinni sér hann í mannlífinu
aðeins svarta menn og hvíta - þá
sem, eru á móti honum og þá sem
eru með honum. Sérstakur kafli
er helgaður svikaranaum - Jev-
gení Vladimirov, sem árum sam-
an var einn af þjálfurum Kaspar-
ovs. Þegar Kasparovs hafði tapað
þrem skákum í röð í þriðja einvígi
þeirra Karpovs taldi hann sig
finna í Vladimirov „njósnara í
eigin herbúðum" sem hefði kom-
ið leynilegum áformum Kaspar-
ovs til Karpovs.
Ég er bestur
Kasparov er ekki í minnsta
vafa um eigið ágæti. Hann telur
sig fremsta skákmann allra tíma
Undrabarnið (il hægri) teflir við Tal: hef ekki um annað hugsað síðan ég var sjö
ára...
og undanskilur þá ekki Bobby
Fischer, sem hann ber annars
hina mestu virðingu fyrir. Kasp-
arov nefnir m.a. þrjú dæmi sem
eiga að sýna fram á það að hann
sé Fischer fremri (þeir fengu
aldrei tækifæri til að reyna með
sér, því Fischer tefldi síðast árið
1972). Dæmin eru þessi:
Þegar Kasparov var enn barn
að aldri skoðaði hann
jafnteflisskák milli Botvinniks og
Fischers og fann í henni mikil-
vægan leik sem þessir heimsmei-
starar báðir höfðu látið sér sjást
yfir.
Kússneskur útlagi hefur lagt
mjög erfiða skákþraut fyrir
marga stórmeistara og til þessa
hafa aðeins Fischer og Kasparov
getað leyst hana. En Fischer varð
að hafa fyrir sér taflborð og
menn, Kasparov leysti þrautina í
huganum.
Fischer og Kasparov urðu stór-
meistarar á svipuðum aldri, en
Fischer varð ekki heimsmeistari
fyrr en hann var 29 ára, Kasparov
náði hinsvegar titlinum aðeins 22
ára að aldri,
Móðir og sonur
Garri Kasparov er kominn af
metnaðargjörnu menntafólki.
Faðir hans, Kim Winestein, var
gyðingur, og lést tæplega fer-
tugur úr lungnakrabba, þegar
einkasonurinn Garri var aðeins
sjö ára. Móðir hans, Klara, mikill
kvenskörungur, er Armeni. Þau
mæðginin tóku skömmu eftir
dauða föður drengsins þá
ákvörðun að hann skyldi leggja
fyrir sig skák. Tveim árum síðar
komu ættingjar sem heimsóttu
drenginn á spítala eftir
botnlangauppskurð að rúmi hans
auðu: sjúklingurinn var að tefla
fjöltefli gegn tíu læknum.
Þegar Garri var ellefu ára spáði
Mikhaíl Botvinnik, fyrrum
heimsmeistari, því að hann yrði
heimsmeistari í skák einn góðan
veðurdag. Um sama leyti skipti
hann um nafn, lagði niður ættar-
nafn föðurins og tók upp ættar-
nafn móðurinnar, Kasparov (ætti
eiginlega að vera Kasparjan á
armenska vísu). í bók sinni
fullvissar Garri lesendur um að
hann hafi alls ekki viljað með
þessu fela sinn gyðinglegan upp-
runa - og veltir reyndar vöngum
yfir því sérstaklega hvers vegna
svo margir gyðingar eru í hópi
hinna fremstu skákmanna. Hann
segir að hann hafi alist upp í fjöl-
skyldu móður sinnar og það hafi
verið eðlilegt að taka hennar ætt-
arnafn.
Klara Kasparova hætti árið
1981 störfum (hún er verkfræð-
ingur) og hefur síðan helgað sig
algjörlega frama sonar síns. Þau
mæðgin eru mjög samrýmd, og
hefur ekki vantað háðsglósur frá
liðsmönnum Karpovs um að
Garri sé mesta mömmubarn
(„hann talar gegn Campomanes
ef mamma leyfir"). Sínar erfið-
ustu stundir áttu þau 1985 þegar
Karpov var kominn fimm vinn-
inga yfir Kasparov í einvíginu
sögulega - þau óttuðust mjög að
snúa heim til Bakú eins og „barð-
ir hundar“ og Klara var hrædd
um að sonur hennar þyldi ekki
vonbrigðin og lenti á taugahæli.
En vinátta móður og sonar
styrktst enn við þá þolraun alla.
Einagrun
undrabarns
Sem fyrr segir hafði Kasparov
þegar á sjö ára aldri einsett sér að
verða heimsmeistari og hefur
ekki um annað hugsað síðan. Af
sjálfu leiðir að hann hefur frá fáu
að segja sem ekki kemur skák
við, varla að hann hafi nokkurt
einkalíf átt (frekar en undrabörn
í fiðluleik eða fimleikum).
Kasparov þekkti lítið til jafn-
aldra sinna, snemma umgekkst
hann og vingaðist við manneskj-
ur sem voru tölvert eldri en hann.
„Mér finnst að ég hafi að mörgu
leyti verið rændur bernsku
minni“, segir hann á einum stað.'
Á öðrum segir hann: „Það var
hlúð að mér eins og sj aldgæfri hit-
abeltisplöntu í fullkomnu gróður-
húsi.“
Vinkonur hans hafa yfirleitt
verið eldri en hann, og um
tveggja ára skeið var hann „náinn
vinur“ leikkonunnar Marínu Ne-
jolovu, sem ver sextán árum eldri
en hann. Kasparov kann ekki að
dansa og hefur aðeins einu sinni
drukkið sig fullan, þá var hann
sautján ára.
Hann les allmikið, gæðareyf-
ara jafnt sem heimspekinga og
svelgir bækur í sig með hundrað
síðna hraða á klukkustund. Hann
er eins og margir afreksmenn í
keppnisíþróttum hjátrúarfullur
vel - telur að þrettán sé sín happ-
atala, og hefur þann sið að velja
sér einhvem vin eða kunningja
að „verndargrip" sem færi hon-
um gæfu.
ÁB tók saman.
Prentarar
Blaöaprent hf. óskar að ráöa offsetprentara til
starfa sem fyrst.
Vaktavinna.
Blaðaprent hf.
Síðumúla 14. Sími 685233.
Laxveiði - silungsveiði
- hafbeit
Andakílsá, Andakílshreppi er til leigu næsta eöa
næstu veiöitímabil. Um er aö ræða bæöi lax- og
silungsveiði.
Mjög góðir hafbeitarmöguleikar. Tilboöum sé
skilað fyrir 25. október 1987 til Péturs Jónssonar,
Hvanneyri, sími 93-70004 sem einnig veitir nán-
ari upplýsingar. Réttur er áskilinn til að taka
hvaöa tilboði sem er eöa hafna öllum
Húsnæði óskast
2-4 herbergja ibúö eöa einbýlishús óskast til
leigu sem fyrst.
Upplýsingar á skrifstofu Dagsbrúnar í síma
25633, utan/eftir skrifstofutíma í síma 21471.
Loftpressur
fyrir Landspítaia
Óskaö er tilboða í tvær loftpressusamstæður fyrir
Landspítala. í hvorri samstæöu er loftpressa,
eftirkælir, þrýstikútur og loftþurrkari.
Helstu stærðir eru:
Hámarksnotkun kerfisins er 1,5 m 3/mín.
Afköst loftpressu eru 3,2 m 3/mín og skal hún
vera olíufrí.
Vinnuþrýstingur er 8 bar.
Loftkútur er 2500 lítra.
Útboösgögn eru seld á skrifstofu vorri, Borgar-
túni 7, á kr. 1.000.-.
Tilboð verða opnuð á sama staö miövikudaginn
21. okt. kl.11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartúni 7, sirpi 26844
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
byggingadeildar óskar eftir tilboðum í brunaviö-
vörunarkerfi fyrir Borgarleikhúsiö. Útboðsgögn
veröa afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða
opnuð á sama stað þriðjudaginn 20. október n.k.
kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sirni 25800
Dagheimilið Steinahlíð
Við óskum eftir starfsfólki í 75% starf. Upplýsing-
ar í síma 33280.
Ritari óskast
Rannsóknastofnun landbúnaðarins óskar eftir
að ráða ritara til starfa að Keldnahoiti. Þarf að
geta byrjað sem fyrst. Upplýsingar í síma 82230.
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
Sunnudagur 27. september 1987 | ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5