Þjóðviljinn - 27.09.1987, Síða 11
Hart og heiðarlegt
Stöð 2 hleypti nýverið frétta-
magasíninu 19.19 afstokkun-
um og var mikil hátíð í bæ eins
og gefur að skilja. Það eru þau
Valgeröur Matthíasdóttir,
Páll Magnússon og Helgl
Pétursson sem stjórna partý-
inu, en eins og menn muna
lýsti Ingvi Hrafn Jónsson,
fréttastjóri sjónvarpsins, mikl-
um og þungum áhyggjum sín-
um yfir þessari auknu sam-
keppni. Það er raunar það
helsta sem Ingvi Hrafn hefur
haft til málanna að leggja síð-
asta árið og munu ýmsir orðn-
ir býsna áhyggjufullir yfir
áhyggjum fréttastjórans.
En það var ekki bara nötur-
legur hrollur sem fór um
starfsmenn RÚV þegar 19.19
rúllaði af stað. Þannig sendi
Egill Eðvarðsson, settur
dagskrárstjóri sjónvarpsins
og staðgengill Hrafns Gunn-
laugssonar, skeyti til Stöðvar
2 og óskaði hjartanlega til
hamingju með metnaðarfulla
dagskrá. Undir skeytinu stóð:
Egill Eðvarðsson, áhugamað-
ur um harða heiðarlega sam-
keppni ...■
Leikskáld
mmmmmmmmmmmmamKmmmammammaamamamammÆSKmaam
gera strandhögg
Bráðum kemur hingað merk-
ur bandarískur kvikmundur og
ætlar að kenna hér handrits-
gerð í þremur hópum, tveimur
ætluðum byrjendum í faginu
og einum fyrir lengra komna,
samtals um 40 manns, sem er
aðeins tæpur helmingur um-
sækjenda. í fyrstu deild er
landslið okkar í kvikmyndum,
Guðný Halldórsdóttir
(Duna), Friðrik Þór, Kristín
Jóhannesdóttir, Þorsteinn
Hilmar Oddsson og Þráinn
okkar Bertelsson, Eiríkur
Thorsteinsson og Ari Krist-
insson. Með þeim á skóla-
bekk situr líka rithöfundurinn
Andrés Indriðason og hinn
fjölhæfi leikhúsmaður Sveinn
Einarsson, og síðast en ekki
síst virðist nýtt strandhögg í
uppsiglingu hjá leikskáldinu
sem sló í gegn í fyrravetur.
Ragnar Arnalds er nefnilega
að fara að læra að búa til kvik-
myndahandrit. Kannski hrær-
ingarnar í Allaballa verði
sýndar á hvíta tjaldinu á
næstunni?*
_______„Fagur
hörpuhljómur”
En Sigurður Þórðarson hef-
ur ekki sagt sitt síðasta orð
sem betur fer. í lok greinar
sinnar opnar hann skáldaæð-
ina, og öllum má Ijóst vera að
ekki einasta snjall pólitíkus er
meðal vor heldur einnig orð-
slyngur trúboði: „því núna
erum við í óða önn að stilla
okkar strengi og frá lands-
fundinum mun heyrast um allt
land fagur hörpuhljómur hins
milda afls í íslenskum
stjórnmálum.” Og þjóðin von-
ar að það verði ekki likaböng
sem hljómar hæst í tónaflóði
Borgaraflokksins ...■
Af lukkunnar
pamfíl
Samkvæmt könnun sem
bandarískt blað gerði eitt sinn
meðal lesenda sinna á því
hvað þeim leiddist mest í
blöðum, skar ein tegund frétta
sig algerlega úr. Og það voru
hvorki fréttir af vígbúnaði,
manndrápum eða hung-
ursneyð; ekki af Útvegs-
bankamálum, ofdrykkju eða
hvalveiðum. Nei, það sem fór
langmest í taugarnar á les-
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
J
endum voru frásagnir af
venjulegu fólki - meðaljónum
- sem sló í gegn: Varð í einni
svipan vellríkt út á tombólu-
miða, tröllaukinn arf eða
happdrætti.
I þeirri von að Þjóðviljales-
endur geti betur unnt meðb-
ræðrum sínum heppni í þess-
um heimi, skal þessi saga til-
færð.
Ekki alls fyrir löngu vatt
ungur, blankurmaðursérinn í
sjoppu og keypti sér sígarett-
ur fyrir síðustu peningana
sem hann átti. Til baka fékk
hann tvo eða þrjá tíkalla sem
mynduðu þá aleigu okkar
manns. Hann vildi frekar eiga
ekki neitt en eitthvað sáralítið
og skellti tíköllunum í
Rauðakrosskassa. Kassinn
var gjöfull aldrei þessu vant
og puðraði eitthundrað krón-
um úr sér í fyrstu tilraun. Og
nú stóð okkar maður frammi
fyrir erfiðu vandamáli: Átti
hann að taka áhættuna og
verða kannski öreigi aftur?
Hann ákvað að kaupa sér
frekar happaþrennu - enda er
okkar maður gefinn fyrir fjár-
hættuspil.
Hann fékk tvo miða og tók
til við að skafa af rúðunum:
Ekkert á þeim fyrri. Okkar
maður var nú tekinn að ör-
vænta, enda sá hann fram á
langvarandi hungur.
En seinni miðinn reyndist
geyma vinning upp á heilar
fimmhundruð þúsund krónur
- hálfa milljón. Okkar maður
hafði sem sagt tíuþúsundfald-
að auðævi sín.
Þessi maður liggur nú á
strönd Miðjarðarhafsins og
sleikir sólina... ■
I Múlabœ, Ármúla 34 verður lialdinn
FLOAMARKAÐUR
laugardaginn 26. sepi n.k.
OPlfí FKÁ 14"" - IX""
Fátnadur - kökur - blóm - Udkföng
Aminning til launagreiðenda.
Tikynntu þ<g
ítækatíð
Þann 1. október eiga allir
launagreiðendur að vera búnir að
tilkynna sig á launagreiðendaskrá
vegna staðgreiðslu opinberra gjalda.
Þeir sem ekki hafa fengið sent eyðublað
vegna þeirrar tilkynningar geta nálgast
þaðhjá næsta skattstjóra.
Mikilvægt er að allir launagreiðendur
séu á launagreiðendaskrá við upphaf
staðgreiðslu. Einungis þannig verður
tryggt að allir launagreiðendur fái
nauðsynlegar upplýsingar til að sinna
hlutverki sínu.
Sérstök athygli er vakin á því að þeir
sem vinna við eigin atvinnurekstur án
þess að greiða laun teljast einnig vera
launagreiðendur og skulu tilkynna sig til
launagreiðendaskrár.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI