Þjóðviljinn - 27.09.1987, Page 15
Hannes Pétursson
HVÍTA RÓSIN
Frelsi og líf, ekki fjötra og glæpi
né falsanir, þjónkun, rangsnúin mið.
Ekki brennandi lönd, heldur brennandi hugsun
og bróðemi, frið.
Áköllin smugu frá borgum til borga:
blikandi flugrit úr launungarstað.
En blóðhundar eltu hvert orð sem þau skráðu.
Þeim var att á það.
Dauðasök. Og þau svalg þetta kerfi
úr svikum og grimmd, með sín villuljós.
En þau huggaði von: að íheiminum greri
þeirra hvíta rós.
Úr Rímblöðum 1971
Einar Heimisson
Hvíta rósin
Orðin voiu
þeirra
einu vopn
Einar Heimisson þýðir Hvítu rósina - sögu
Hans og Sophie Scholl sem nasistar tóku af
lífi
„Þau höfðu engin vopn nema
orðin gegn ógnarvaldi nas-
ismans. Þau einsettu sérað
ýta við samvisku fólks - og
gengu út frá því að þjóðin vissi
hvað væri að gerast," sagði
Einar Heimisson um systkinin
Hans og Sophie Scholl, sem á
árunum 1942-43 skrifuðu
dreifibréf gegn nasistastjórn-
inni í Þýskalandi, þarsem þau
fjölluðu meðal annars um of-
sóknirnargegn Gyðingum.
Systkinin mynduðu and-
spyrnuhóp ásamt nokkrum
félögum sínum og kölluðu
hana Hvítu rósina. Þann 18.
febrúar 1943 hafði Gestapó
hendur í hári þeirra og fimm
dögum síðar voru þau tekin af
lífi eftir sýndarréttarhöld.
Hans var 24 ára, Sophie 21
árs.
Systir þeirra Inger, skrifaði
sögu Hvítu rósarinnar sem gefin
var út ásamt dreifibréfunum sex
sem systkinin skrifuðu. Bókin var
fyrst gefin út árið 1956 og hefur
síðan verið aukin og endurbætt. í
Þýskalandi einu hafa um sex-
hundruð þúsund eintök selst.
Einar Heimisson sem er við
nám í háskólanum í Freiburg hef-
ur nú íslenskað Hvítu rósina og
kemur hún út hjá Menningar-
sjóði innan skamms.
„Þau voru við nám í háskólan-
um í Munchen, Hans var í læknis-
fræði og Sophie í líffræði og
heimspeki. Inger systir þeirra lýs-
ir því í bókinni hvernig þau í upp-
hafi hrifist öll af Hitlers-æskunni.
Hrifningin breyttist smám saman
í efasemdir og loksins í algera af-
neitun á nasismanum.
Þau dreifðu bréfum í Munchen
og víðar um sunnanvert Þýska-
land. Af frásögn Inger má ráða
að þau ætluðu að láta handtaka
sig og dæma, enda bjuggust þau
við mótmælaaðgerðum í kjölfar-
ið.
En það varð ekki og þau voru
tekin af lífi með fallöxinni án þess
að nokkur þyrði að andæfa.
Frásögn Inger er afar einföld
og látlaus og ber þess glögg merki
að hún skrifar um systkini sín.
Þegar hún segir frá síðustu dög-
unum í lífi þeirra - frá handtök-
unni til aftökunnar - er frásögnin
afar sterk. Ég hef aldrei lesið
neitt sem skrifað hefur verið um
síðustu stundir dauðafanga sem
er eins mikil nálægð í. Og ég held
að sú frásögn eigi erindi nú, þegar
því er sumsstaðar haldið fram að
það sé eitthvert bjargráð að taka
aftur upp dauðarefsingu".
Sem fyrr segir er Hvíta rósin
væntanleg á næstunni. í bókinni
verða, auk bréfanna og sögu In-
ger Scholl, ljóð eftir Goethe og
Kellert, sem Helgi Hálfdanarson
þýddi. En einkunnarorðin eru
ljóðið Hvíta rósin eftir Hannes
Pétursson sem ort er um þau
systkinin Hans og Sophie Scholl.
-þj.
REYKJKMIKURBORG
Jlau&vi Stötútr
Útideiidin í Reykjavík
Viö í útideild erum aö leita aö karlmanni til að
sinna leitar- og vettvangsstarfi meöal barna og
unglinga í Reykjavík. Um er að ræöa tæplega
70% starf í dag- og kvöldvinnu. Æskilegt er aö
viðkomandi hafi menntun á félags- og/eöa upp-
eldissviöi, t.d. félagsráðgjafar, kennarar, uppeld-
isfræöingar ofl. Nánari upplýsingar um starfið eru
gefnar í síma 20365 og 621611 milli kl. 13.00 og
17.00 virka daga.
Umsóknarfrestur er til 2. október n.k.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæö á
eyðublöum sem þar fást.
Jfl REYKJKMIKURBORG R*|
AcUCMft Stödóci mI '
Staöa forstöðumanns félagsmiöstöövarinnar
Tónabæjar er laus til umsóknar. Menntun á sviöi
æskulýðs- og félagsmála æskileg og jafnframt
reynsla af stjórnunarstörfum. Laun skv. kjara-
samningi borgarstarfsmanna. Upplýsingar veitir
æskulýös- og tómstundafulltrúi, Fríkirkjuvegi 11,
sími 622215.
Umsóknum ber aö skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæö á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást, fyrir kl.
16.00 föstudaginn 9. okt. 1987
REYKJKIÍKURBORG H|
^au&vi Stödur
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar auglýsir
laust starf fulltrúa á skrifstofu heimilishjálpar.
Um er aö ræða 50% starf. Laun skv. kjarasamn-
ingi borgarstarfsmanna. Umsóknarfrestur er til
10. október n.k.
Upplýsingar um starfið veita Jónína M. Péturs-
dóttir og Sóley Kristjánsdóttir í síma 18800.
Umsóknum ber aö skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæö á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
III REYKJKMÍKURBORG IBI
JLau&vi Stödu% MT
Starfsmenn óskast til starfa við jarðlagnir og við-
gerðir.
Laun samkvæmt samningum Dagsbrúnar og
Reykjavíkurborgar.
Unnið er eftir kaupaukakerfi. Uppl. í síma
685477.
Vatnsveita Reykjavíkur
REYKJKMIKURBORG
Jlautevi Stödíci
Ádagh./leiksk. Hraunborg, Hraunbergi 12vantar
fóstru strax á leikskóladeild. Uppl. í síma 27970.
ÁRTÚNSHOLT
Á nýju dagvistarheimili sem opnar innan skamms
vantar fóstrur og annaö uppeldislega menntað
fólk. Um er að ræða störf á 17 barna dagheimilis-
deild og blandaðri leikskóladeild e.h. Er ekki ein-
hver sem hefur áhuga á að vera með frá upphafi
að byggja upp nýtt dagvistarheimili.
Sláið á þráðinn og kynnið ykkur málin. Upplýs-
ingar í síma 673199.
Auglýsið í Þjóðviljanum
Sunnudagur 27. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15