Þjóðviljinn - 27.09.1987, Side 21
Berti og
vondu kallarnir
Þeir Borgaraflokksmenn
halda fyrsta landsfund sinn nú
um helgina eins og alþjóð
veit. Fréttabréf flokksins kom
út á dögunum og var vitaskuld
helgað þessum merka við-
burði í íslandssögunni.
Greinhöfundar borgarabréfs-
ins lögðu allir áherslu á ein-
drægni, samstöðu og sáttfýsi,
en fátt skelfilegra en illindi af
einhverju tæi. Ein grein skar
sig úr hvað snilldarstílbrögð
varðar; hún var skrifuð af Sig-
urði Þórðarsyni. Hann mærir
leiðtoga sinn svo ákaflega að
ætla mætti að oflofið sé Al-
bert til háðungar. Svo er þó
vitaskuld ekki, enda tekur Sig-
urður af öll tvímæli um það
hvað aðskilur Albert og vondu
kallana. Hann segir m.a.: „Út-
vegsbankamálið sýnir til að
mynda í hnotskurn hvernig
hagsmunagæsla flokka
landsins gengur út yfir al-
mannaheill.”
Satt og rétt hjá Sigga. En
líklega hefur hann gleymt því
að leiðtogi hans var einu sinni
í Sjálfstæðisflokknum; var
einu sinni stjórnarformaður í
Hafskip sáluga og var einu
sinni formaður bankaráðs Út-
vegsbankans ...■
Mosfellingar fögnuðu því
fyrir skemmstu að bærinn
þeirra fékk kaupstaðarrétt-
indi. Eins og menn muna var
mikið um hátíðahöld og
veislur og gjafir og árnaðar-
óskir bárust hvaðanæva að.
En nú hafa rannsóknar-
blaðamenn Mosfells-
póstsins flett ofan af heldur
óviðkunnanlegu máli: „.. eng-
in kveðja barst frá borgaryfir-
völdum í Reykjavík eða nokk-
urri borgarstofnun." Bæjar-
stjórinn - sem reyndar er kall-
aður sveitarstjóri í Mos-
fellspóstinum - staðfesti
þetta, en kunni að sögn MP
engar skýringar á þessu.
Mosfellspósturinn bendir á
að viðskiptin við Reykvíkinga
séu margháttuð; meðal ann-
ars sé meirihluti húsa í höfuð-
borginni hitaður upp með
vatni úr Mosfellssveit. Það
ætti því, að sögn blaðsins,
ekki að vera tiltökumál þótt
nágrannarnir hefðu sent eins
og eitt skeyti til að samgleðj-
ast.
En ef Mosfellingar vilja nú
sýna í verki hversu þeim mis-
líkar: Þá liggur náttúrlega
beinast við að skrúfa fyrir
heita vatniö ...■
Mosfellingar
móðgaðir
Valt er
veraldar gengið
Blaðamennog reyndarflestir
aðrirfjölmiðlamenn lendaoft-
ar en aðrir í vandræðum með
hvað segja skuli á opinberum
vettvangi. Helst eru það
stjórnmálamenn sem verreru
staddir hvað þetta varðar en
einnig má nefna auglýsinga-
hönnuði, skemmtikrafta á árs-
hátíðum og aðra skapandi
listamenn. Vandræðin sem
sameiginleg eru þessum við-
Guðmundur
Þorsteinsson
skrifar
miðunarstéttum eru einkum
fólgin í því að þurfa sífellt að
glíma við að fylla upp ákveðið
tómarúm eftirvæntingareða
kvíða eftir því sem við á hverju
sinni ítímaog rúmi og ífullu
samræmi við lögmál eftir-
spurnar eða kvóta. Með öðr-
um orðum þá verða menn að
afkasta, framleiða, skapa,
ummynda, skrumskæla, fífl-
ast og hugsa djúpar hugsanir
til þess að vinna fyrir kaupinu
sínu.
Hrýtur þá mörg vitleysan.
En í dag mun ég fjalla örlítið
um bókina sem ég var að lesa.
Hún heitir Lincoln og er eftir
bandaríska rithöfundinn Gore
Vidal, sem áður hefur skrifað
margar sögulegar skáldsögur auk
annarra bóka.
Sagan greinir frá forsetatíð
Abrahams Lincolns árin 1861-66,
sem óneitanlega var sögulegur
tími í Bandaríkjunum og mikill í
honum bardaginn. í fjögur ár
murkuðu Kanar líftóruna hver úr
öðrum í blóðugustu átökum sem
þá höfðu þekkst. Eitthvað á aðra
milljón hermanna féllu í fárán-
legum stórorrustum og Suðurrík-
in töpuðu beinlínis vegna mann-
eklu og gáfust ekki upp fyrr en
herinn var nánast þurrkaður út,
þótt löngu væri fyrirsjáanleg út-
koma stríðsins.
Mannlýsingar bókarinnar eru
hinar prýðilegustu. Lincoln er
lýst sem hugsjónamanni sem nær
árangri með slóttugum kænsku-
brögðum hins löglærða
stjórnmálamanns jafnframt fjall-
grimmum vilja ogeinbeitni. Sam-
kvæmt bókinni hefði stríðið get-
að farið á hvorn veginn sem var
hefði atorka þessa stórpólitíkusar
ekki komið til og eru helstu kand-
idatar vegnir og metnir og létt-
vægir fundnir. Lýsing Vidals á
þessum helgasta af öllum helgum
Bandaríkjaforsetum er mjög
sannfærandi og reynir á engan
hátt að smíða úr honum neitt of-
urmenni óháð mannlegum tak-
mörkunum. Abraham greyið á
ekki sjö dagana sæla, því auk
stríðsins eru erfið fjölskyldumál í
gangi. Mary Todd Lincoln er lík-
ast til eftirminnilegasta persóna
bókarinnar. Sturluð af alls kyns
hremmingum reynir hún að
standa með bónda sínum en tekst
heldur ólánlega. Til þess að fjár-
magna taumlausa eyðslusemi
sína selur hún óprúttnum aðilum
jafnvel hernaðarleyndarmál. En
samúð höfundar og þarmeð les-
anda er mikil með konunni, sem
einmitt með veikleikum sínum
gefur sögunni fyllingu og sýnir
hversu litla stjórn menn hafa á
eigin lífi.
Saga Bandaríkjanna er blóði
drifin lfkt og annarra stórvelda
fyrr og síðar. Ólíklegt þykir mér
þó,að friður hefði haldist eitthvað
meiri með næstu kynslóðum þótt
þetta mikla ríki hefði liðast í
sundur um miðja síðustu öld. Til
þess eru öflin sem stjórna lífi
mannanna of sterk. Valda-
græðgin og þröngsýnin, auðurinn
og örbirgðin, meingölluð þjóð-
félagskerfi og „markaðslögmál-
in“ réðu þá sem nú.
Og bestra manna yfirsýn og
ráðkænska dugir ekki hótinu skár
í dag en þegar Njáll á Bergþórs-
hvoli skaraði eld að eigin arfasátu
forðum.
Guðm.
Stjórn verkamanna-
bústaða í Hafnarfirði
Stjórn verkamannabústaöa í Hafnarfirði auglýsir
hér með eftir umsóknum um íbúðir í verkamanna-
bústöðum í Hafnarfirði.
Þeir sem koma til greina þurfa að uppfylla eftirtal-
in skilyrði:
1. Eiga lögheimili í Hafnarfirði, þegar sótt er um.
2. Eiga ekki íbúð, eða samsvarandi eign.
3. Hafa ekki haft hærri meðaltalstekjur árin 1984,
1985 og 1986 en 555.270,- á ári auk 50.600.-
kr. á hvert barn innan 16 ára aldurs.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
stjórnar verkamannabústaða að Móabarði 34,
sem er opin mánudaga, þriðjudaga og miðviku-
daga frá kl. 16.00-18.00.
Sérstök athygli er vakin á því, að endurnýja þarf
eldri umsóknir.
Umsóknarfrestur er til 20. október n.k. og ber að
skila umsóknum á skrifstofuna í síðasta lagi þann
dag, eða í pósthólf 272 Hafnarfirði.
Umsóknir, sem síðar berast verða ekki teknar
gildar.
Innanhússbreyting
Tilboð óskast í breytingar á um 210 m2 húsnæði í
lögreglustöðinni við Hverfisgötu í Reykjavík.
Innifalið er rif og endurbygging.
Verkinu skal skila eigi síðar en 1. febr. 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borg-
artúni 7, Reykjavík, gegn 3.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 13.
október 1987 kl. 11.30.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartúni 7, sími 26844
Sjúkrahúsið
Egilsstöðum
Til starfa bráðvantar hjúkrunarfræðinga í 1-2
stöður frá 1. nóvember eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 97-
11631 frá 8-16 og á kvöldin í síma 97-11374.
Starf í félags-
miðstöðinni Ekkó
Starfsmann vantar í hálfa stöðu í félagsmiðstöð-
ina á Ekkó.
Menntun og reynsla í uppeldismálum æskileg.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Félagsmála-
stofnun Kópavogs, Digranesvegi 12.
Umsóknarfrestur er til 7. október n.k.
Nánari upplýsingar gefur unglingafulltrúi í síma
45700.
Félagsmálastofnun Kópavogs
Dagheimili í
Vogahverfi
Til að vera betur í stakk búin að veita börnum á
Sunnuborg, Sólheimum 19 markvisst uppeldi í
samræmi við þroska þeirra og þarfir viljum við
ráða uppeldismenntað fólk og aðstoðarfólk í
100% og 50% störf.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
36385.