Þjóðviljinn - 17.09.1988, Side 6

Þjóðviljinn - 17.09.1988, Side 6
þJÓÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkaiýðshreyfingar HALLGRÍMUR Stjómin er dauð Ríkisstjóm Þorsteins Páissonar gaf upp öndina í tveimur áföngum í gær. Fyrst á fundi formanna stjórnarflokkanna og síöan í beinni útsendingu á Stöö tvö þar sem þeir Steingrímur Hermannsson og Jón Baldvin Hannibalsson veittust aö forsætisráð- herranum fyrir „rýtingsstungu í bakið“ á fjármálaráð- herranum. Rýtingsstungan var augljós kosninga- bomba Þorsteins um aö leggja af matarskattinn, sem kenndur hefur veriö viö Jón Baldvin en er auövitaö á ábyrgð allra stjórnarflokkanna sameigin- lega einsog utanríkisráðherrann viðurkenndi. Það kom raunar skýrt fram í viðtali Nýs Helgar- blaðs Þjóðviljans í gær við Steingrím Hermannsson að ríkisstjórnin er búin að vera og steindauð. Formaður Framsóknarflokksins segir í viðtalinu við Nýja Helgarblaðið að hann sé „orðinn ákaflega hvekktur á þessu frjálshyggjuliði" sem ráði ferðinni í Sjálfstæðisflokknum, og náist ekki samkomulag núna um helgina eigi forsætisráðherra að segja af sér. Steingrímur fer eins nálægt því í Nýja Helgar- blaðinu að lýsa stjórnina dauða og hægt er fyrir mann sem enn situr í ríkisstjórn, og er farinn að huga opinberlega að öðrum stjórnarkostum. Steingrímur segir að hann telji minnihlutastjórn koma til álita fram að kosningum, -og hann brosir til vinstri í viðtalinu, talar um óskastjórn án þátttöku frjálshyggjuliðsins í Sjálfstæðisflokknum. Steingrímur hefur alltaf talað mikið. En svona segja ekki forystumenn í ríkisstjórn hafi þeir ein- hverja von um að hún haldi áfram. Hráskinnaleikurinn yfir höfuðsvörðum ríkisstjórn- arinnar er búinn að vera harla langdreginn og leiði- gjarn. Hitt er þó verra að þessi íþróttakeppni er háð á kostnað þjóðarinnar, og reikningurinn hefur vaxið dag frá degi jafnframt því sem vopnaskipti stjórnar- flokkanna verða sífellt fjær því að snúast um sjálfa landstjórnina. Tæknilegt framhaldslíf ríkisstjórnarinnar er bæði fáránlegt og hættulegt, og það þeim mun heldur sem aðrir kostir finnast en þeir sem deilt er um milli ráð- herranna með vel meintum rýtingsstungum fram og aftur. Alþýðubandalagið hefur sett fram ítarlegar tillögur um aðgerðir í efnahags- pg atvinnumálum, aðgerðir sem leysa hagstjórnarvandann með öðrum aðferð- um en kjaraskerðingu. Helstu samtök launafólks hafa í ályktunum bent á svipaðar leiðir. Ríkisstjórnin er dauð. Þjóðin á sjálfsagða kröfu á að formlegt dánarvottorð verði undirritað hið snar- asta og fundin ný ríkisstjórn, helst með kosningum sem allra fyrst. Formaður Alþýðuflokksins lét í gær í Ijós efa- semdir um eiginlegan höfundskap þeirra tillagna sem Þorsteinn Pálsson rak á kaf í bakið á honum, og það er meira en sennilegt að Þorsteinn láti stjórnast af misjöfnum ráðgjöfum í vondri stöðu. En takist forsætisráðherranum að ná áttum svo- litla stund hlýtur hann að sjá að það er beinlínis skylda hans að setjast uppí bílinn til Bessastaða. Strax í dag. -m Escusi. Afsakið, en cr þetta vagn- inn til Assisi? Ég spyr og svarið er rétt. Hitinn stígur með mér upp í langa ferðabifreið og ég sest skugga- megin ásamt fjórum öðrum, konum úr ítölskum sveitum og höfum sæti á milli okkar. í>ær blaða í dægurritum á leiðinni, skoða leynimyndir úr fókus af frægu berbrjósta fólki á ströndum Sardínu. Meðferðis mér er hinsvegar aðeins ein salamisamloka, ferskja og flaska af gosvatni auk 79 síðna bókar: „The complete works of Giotto". Æviverk fyrsta listmálara þessa heims. Snögglega snýr rútan á rétta leið og öllum á óvart verður skugginn á hinni sætaröðinní þegar út á hraðveg er komið. Konurnar fjórar færa sig yfir en ég sit einn eftir í sólinni án þess að ég veiti fyrir mér svita sem sprettur fram á ennið og undan er- munum. Siestan líður í brotalínum eftir brautinni og sveitirnar framhjá eru án mannaferðar, gluggahlerarnir á hús- unum eru aftur og hundarnir hafa höfuð á þröskuldum útidyranna. Á ökrunum lúta sólblómin höfði undan við þessar óhagganlegu myndir sem þó lifna í sífellu. Höfuð okkar sýning- argesta snúast líkt og að kvikmynd á tjaldi, hverfa inn í heim listrænnar alúðar og sögunnar um hinn frelsaða Frans og góðverk hans. Frans gefur fátækum og samkynhneigðum upp- gjafahermanni frakkann sinn. Frans stígur í extasíu upp til himna og heilsar Kristi. Frans afhendir reiðum föður sínum föt sín og kemur nakinn fram. Augu mín fylgja myndasögunni og furða sig yfir hverri mynd, þcssum einfalda skýrleika, þessari alúðar- næmi í bland við nævískan klaufaskap sem þó er aðeins til að auka á innri gleði manns yfir 700 ára gömlu tví- víðu verki. Tíminn fellur af úlnlið mínum og týnist í þessari myndrænu upplifun, mínútur verða að litum, svona líka einföldum og stórfeng- legum, sekúndur að heilögum and- litum. Það er engu líkara en að hér sé maðurinn að mála í fyrsta sinn, fyrstu myndir mannkynsins. Það er sigrandi gleði og stolt sem skín hér af hverri klæðisfellingu og úr hverjum augna- og má sanna kenningu hans. Það stöðvar enginn ítali bíl sinn fyrir sýni- legum eða ósýnilegum útlendingi undir augljósu miðnætti. Ég færi mig upp á sjálfa súper-ströduna í fárán- lega bjartsýnni von og stend þar ann- an hálfan tíma þar til ég gef að lokum upp þessa sömu von, en veifa af rælni framan í síðasta bíl, sem raskar óvart plani mínu og stöðvar. Escusi, segi ég um leið og ég stíg um borð. En dýrðin endist ekki, 17 kílómetrum síðar er ég í vegkantinum á ný og horfi á eftir 70 öðrum óförn- um hverfa hver í fótum annarra fyrir fullum ljósum á jafnmiklum hraða á klukkustund. Fyrir brunandi bifreið- um stend ég einmanalegur og escusi- legur, nóttin sverfur kulda að mér yfirhafnarlausum, frakka minn hafði ég áður gefið vesælum þurfaling. Og tunglið skín af fyllingu yfir mér og það er sem ég stígi upp á handgerðu guf- uskýi í átt að himni í einskonar extas- íu. En Kristur birtist hvergi, ekki frekar en viðmótsþýður ökumaður og að tveimur aukatímum loknum þrýt- ur putta-þolinmæði mína, þýtur Heilagur Frans frá Escusi henni síga einnig augnalokin á sam- ferðafólki mínu. Pað dottar, án þess þó að hafa mikið af tíma ferðarinnar, hún tekur sína 2 og sinn hálfa tíma með 10 mínútum á hallandi plani í Perugia. Að þeim loknum verður landslagið fjöllugra og undirlendið láréttara þar til það verður að full- kominni sléttu á milli heiðarlegra fjalla sem haf kollvik upp úr skógi, eru ber um sig ofan, langþráðum ís- lendingi til heiðurs. Alsett smáum kornreitum er láglendið skreytt há- vöxnum sedrusviði og kirkjuturnum sem hækka eftir því sem nær dóm- kirkju þeirra dregur. Frammi fyrir henni staðnæmist rútan. Escusi, en getur þetta þó verið kirkja heilags Frasescos spyr ég, og nei, heilagur lögregluþjónn bendir mér upp í brekkuna þar sem við blasir kastalaborg í klettum, líkt og undir drynji áhrifavekjandi kvikmyndatón- list. Assisi, fagurlega höggvin út úr hlíðinni með fjórum stórkirkjum og óteljandi klausturreglum. f öðrum vagni skilar mér, nú nestislausum, étið hafði ég það fyrir hálfri stundu, ásamt öðru hundraði vélvæddra og myndtekinna þýskra húsmæðra í or- lofi, skilar mér alla leið uppí efri kir- kju séra heilags Frans frá Assisi. Og einmitt þar fer að eilífu fram besta málverkasýning heimsins, þar á veg- gjunum er um aldur myndskreytt ævi dýrðlingsins fræga gerð af öðrum og mér sannari meistara, sjálfum Gi- otto, besta málara okkar manna og þó til annarra tegunda væri leitað. Það er því óskiljanlegt en þó skiljan- legt að í minjagripaverslunum skuli hvergi minnst á listamanninn, heldur aðeins á dýrðlinginn. Hvers eigum við listamenn að gjalda? 49 freskómálverk máluð á ofan- verðri Sturlungaöld af ófríðum manni sem frelsaði málaralistina úr viðjum hinna einföldu helgimynda svo úr varð hið vestræna málverk sem hélt okkur listamönnum uppteknum í rúm 600 ár eða þar til Bandaríkjamaður- inn Robert Rauschenberg batt illu heilli snöggan enda á þá ljúfu hefð. Fólkið fyllir sætaraðirnar á milli myndveggjanna tveggja og knýr áfram þolinmæði sína með taktviss- um slögum blævængjanna, það bíður eftir því að munkurinn við altaris- míkrófóninn hefji þulu sína, tcxtann kima. Og byggingar, hafið þér séð slíkar byggingar fyrr? Turnar. Og landslag. Eða sauðir? Þvílík hunda- heppni og byrjendasnilld! Tækni- brellur endurreisnar og fullkvæmni handbragðs hennar hverfa aftur í hug minn um leið og framan á ennið seytlar sviti í stafi: Giotto! Að fimm tímum loknum er öllu lokað og allt um seinan. Allar lestir á bak og burt, jafnvel peningarnir úr vasa mínum. Ég sit undarlega glaður og daufur í senn í miðjum veitingasal lestarstöðvarkaffiteríunnar og hugsa ráð yfir galtómum maga. Hávaði berst úr risastóru sjónvarpstæki í horni salarins og snýr ítölskum bjór- höfðum í átt sfna: Lokakvöldið í keppninni um ungfrú Úmbríu ’88. Af hógværð rís ég á fætur og yfirgef hégómann undarlega saddur og svangur í senn og læt berast með tveimur nýkynja systrum út á planið fyrir framan stöðina. Escusi segi ég sem fyrr og þær hlæja með mér í ensk- um popp-frösum út aðallega götu og beygja mér inn í aðra hliðargötu. Ég tek eftir því að hópur af dúfum eltir mig að næsta horni þar sem mér tekst að hrista þær af mér, stöðva full- an krakkabíl og treð mér inn í hann með escusi á vör, strákarnir láta stelp- una frammí á meðan. Mér góðrar fortúnu óskandi kveðja þessi heilbrigðu ungmenni mig við rætur ógnvekjandi hraðbrautar sem hvín yfir höfði manns í næturmyrkrinu. Ég tek mér markvissa stöðu við sveigðan afleggjara að henni og hef putta í annarri hönd en hvítan plastpoka í hinni, í honum eru nú að- eins eftir bókin góða með öllum verk- um meistarans auk sólvarnarhúfu sem á stendur Michael Jackson World Tour ’88, Pepsi, sólgleraugna og orðabókar í vasaformi + smálegur Toscanelli-.vindlapakka um hálfétinn síðasta stubb. Að lokinni hálftíma- langri biðstöðu stöðvar loks maður einn að baki mér, en því miður aðeins fótgangandi, fúlskeggjaður og larfa- legur. Hann vottar mér samúð sína og klykkir út með formælingum um landa sína, þeir taka þig aldrei upp í, þetta eru væringjar, á morgun mun þjóð þessi ekki verða lengur til! Ég þakka hreystinguna og hann heldur sinnar óvissu leiðar, en ég stend eftir áfram eftir hraðveginum í tveimur miskunnarlausum Alfa Romeo bifr- eiðum. Ég leita annarra Ijósa og kyrrstæðari í nærsveitinni við veginn og feta mig hægt í átt að stóru gulu skilti sem lésa mér lausnarorðin: Motel, tennis, swimming-pool, sauna. Einmitt það sem ég þarf núna. Tennis. Escusi, kveð ég enn eitt sinnið, dregnum fótum í sótthreinsuðu and- dyri og lobbýi með alþjóðlegum og einkennislausum svip. Aðframkom- inn andvarpa ég framan í spænskan næturvörðinn sem hefur rauða hvítu í hægra auga, þegar hann svarar mér í 50.000 lírum fyrir einfalt rúm fyrir einfaldan mann með 8 staðnar stundir í fótum og maga tóman af listrænni auðmýkt og lítilþægni gagnvart snilld- inni. 50.000 kall fyrir einn skitinn og ómerkan íslending að bæla kodda og velkja lak. Heilagur Frans! Af heil- ögum Fransi hef ég ekki slíku fé að fagna hér í miðju ó-landi ftalíu- skagans og rölti aftur út og á bekk í lystigarð þessa lúxushótels sem aug- Iýsingar prísa sem heim út af fyrir sig. Á járni studdan trébekk má ég höfði halla svo gott sem ber og hafa bókina góðu um Giotto fyrir mitt eina skjól, hana hef ég fyrir kodda og læt tunglið um að verma samankrepptan líkama minn og sál sem þó er volg og helst volg af upplifun dagsins. Mér gengur illa að sofna fyrir ljósaskiltinu sem vofir yfir mér og blikkar í sífellu eins og til áminningar um uppábúið rúm og sífelldar freistingar holdsins á óteljandi sjónvarpsrásum: Motel, Motel, Motel. Að liðinni miðri nóttu vakna ég upp við skáldaðan draum um að vörðurinn standi yfir mér til að rukka um bekkinn. Ég skýst á fætur og aftur inn og næ að kjökra verðið á herberginu niður um heilar 5.000 lír- ur með nokkrum einföldum excusi- kveðjum. Undir hlýja sæng í ómann- legu herbergi sem gist hefur um 5.000 manns hverf ég, hverf ég úr hlutverki pílagrímsins. I sjónvarpinu dansar Ciccolína Escusi. - á herbergi 41 á Motel Apogeo viö þjóbraut E6 nálægt Bettu- oli. 25. ágúst 1988, morguns. - Hallgrímur Þjóðviljinn Síðumúla 6 ■ 108 Reykjavík Sími681333 Kvöldsími 681348 Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, Möröur Árnason, Óttar Proppé. Fróttastjóri : LúövíkGeirsson. Blaöamenn: Guömundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pótursson, Hjörteifur Sveinbjörnsson, Kristófer Svavarsson, Magnfríður Júlíusdóttir, Magnús H. Gíslason, LiljaGunnarsdóttir, ólafurGíslason, Páll Hannesson, SiguröurÁ. Friöþjófsson, SævarGuðbjörnsson, Þor- finnur ómarsson (íþr.). Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir. Ljósmyndarar: Einar Ólason, Jim Smart. Útlitsteiknarar: Kristján Kristjánsson, KristbergurÓ. Pótursson Framkvœmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Skrlf8tofustjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir. Skrlfstofa: Guörún Geirsdóttir, Kristín Pótursdóttir. AuglýsingastjórhOlgaClausen. Auglysingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur Ágústsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir. Síma varsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Þorgeröur Sigurðardóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Utbreið8lu-ogafgreiöslu8tjóri:BjörnlngiRafnsson. Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, HrefnaMagnúsdóttir. Innhelmtumenn: Katrín Báröardóttir, ÓlafurBjörnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, símar. 681333 & 681663. Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 70 kr. Nýtt helgarblað: 100kr. Áskriftarverð á mónuði: 800 kr. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 17. september 1988

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.