Þjóðviljinn - 17.09.1988, Síða 14

Þjóðviljinn - 17.09.1988, Síða 14
I „Án járnbrauta er alls ekki unnt aö lifa menningarlífi! sagði einn ötulasti talsmaöur þessa samgöngutækis í sinni sjálfsævisögu; Jóhannes heitinn Birkiland, rithöfundur. Þessi partursamgönguþróunarinnar gekk þó hjá garöi hér á landi, og er myndin sú arna af einustu „íslensku" járnbrautinni. Eimvagninn er í Árbæjarsafni. Samgöngur LADA LADA LADA þjónusta Eram með: Smurþjónustu fyrir Lada Ljósastillingar Mótorstillingar 10.000 km skoðun Hemalviðgerðir Pústviðgerðir Endurskoðun fyrir Bifreiðaeftirlitið Allar almennar viðgerðir fyrir Lada Ath. Rmglulegt eftirlH eykur öryggl og endlngu bílslns . Opið: mán-fímmtud. 8-18 föstudege 8-15.30 BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ AUÐBREKKU 4, KÓPAVOGI, SÍMI 46940 Eða hvað þeir nú heita „bílskrjóðarnir“ Bílar eða járnbrautir? Ýmsum þótti glapræði á sinni tíð að við skyldum hoppa yfir járnbrautarstigið og höfðu litla trú á að bílarnir dygðu einir og sér Bíllinn er án alls samjafnaö- ar okkar helsta samgöngu- tæki, og er þessi yfirburða- staða hans enn óskoraðri fyrir þá skuld að við misstum af - eða slepptum - járnbrauta- stiginu í samgönguþróuninni. Þrátt fyrir mikinn áhuga á tímabili - nafnið á tímaritinu Eimreiðinni er þannig engin tilviljun - varð aldrei neitt úr neinu, ef undan er skilinn bút- ur ofan úr Öskjuhlíð og niður að höfn, en að hluta til var tilhoggna grjótið í Reykjavík- urhöfn flutt á járnbrautarspori þaðan. Rithöfundurinn Jóhannes Birkiland sem kunnastur er fyrir sjálfsævisögu sína: Harmsaga æfi minnar, var einn þeirra sem gekk hvað harðast fram í baráttunni fyrir járnbrautagerð á íslandi á sínum tíma og var ekkert að skafa utan af hlutunum frekar en hann var vanur: „Án járnbrauta er alls ekki unnt að lifa menningarlífi!,“ cner HITABLASARI Bensín og gasolíuhitablásarar, 12 og 24 volt, ffyrir báta, bíl Varahlutir og viðgerðarþjónusta. a og vinnuvélar. EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI VIÐGERÐARÞJÓNUSTA SB I. Erlingsson h/f, varahlutir, Ármúla 36 (Selmúlamegin), sími 688843. ■■ Viðgerðarverkstæði TURBÓ s/f. RAFBRÚ SF. Helgi Sigurjónsson Helgalandi 1, Mosfellssveit 91-667073 segir í Harmsögunni, og síðan í beinu framhaldi: „Járnbrautirnar eru lífæðar allra þeirra landa, þar sem hjartaslög hinna sönnu fram- fara bergmála í athöfnum og vel- megun þjóðanna, sem slík lönd byggja. Þetta eru líka hyggindi sem í hag eiga að koma hjá skáldinu: „Lægi t.d. járnbraut frá Reykja- vík til Akureyrar, gæti ég farið með hraðlestinni snemma morg- uns, verið um kyrrt á Akureyri meginhluta dagsins, er myndi nægja til þess að hitta að máli og líklega selja bækur næstum öllum þeim fáu mönnum, er myndu geta séð af aurunum í þessu skyni; lagt svo af stað með hraðl- estinni og verið kominn hingað heim aftur fyrir náttmál." En þess er að vísu skylt að geta að bókin sem hér er vitnað til kom út í stríðslok, og eitthvað hafa nú vegirnir skánað síðan. I járnbrautarhamnum rennur Jóhannesi sem vonlegt er til rifja að hann skuli vera sá eini sem er vakandi í þessu máli; „öll þjóðin steinsefur andvaralausum svefni glötunarinnar, þar eð hún þekkir ekki sinn vitjunartíma, því að hana skortir algerlega skilning á mikilvægi járnbrauta, sem eru þó alveg óumflýjanlega hagsmuna- mál allrar þjóðarinnar." Og niðurstaðan er afdráttar- laus: „Viðurkennt er af skynbær- um mönnum, að ísland sé ekki numið land að heitið geti. Alls staðar á jörðunni hafa járnb- rautir farið á undan landnámi, eða það hefur verið hafið í fullvissu um járnbrauta- sambönd áður langur tími liði. Ekkert landnám hefur getað þrif- izt án járnbrauta! ísland er háð sömu eðlislögum og önnur lönd jarðarinnar! Án járnbrauta verður ísland ónumið land að kalla að eilífu, þrátt fyrir þúsundir „Jeppa,“ eða hvað þeir nú kunna að heita bflskrjóðarnir, sem verða látnir fylla hina háu tölu!“ HS 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.