Þjóðviljinn - 11.11.1988, Page 7
30 MUONA VEÐSVIK
Bankinn
sjatlaði málið
„Ég ber náttúrulega mína
ábyrgð á þessu sem stjórnarfor-
maður og get eflaust átt von á að
fá ákúrur fyrir að hafa ekki fylgst
betur með, en að öðru leyti er ég
ekkert hræddur. Ég veit að bank-
ar hafa farið í mál við menn ef
þeir hafa ekki viljað taka ábyrgð
á svona hlutum, en bankinn vildi
láta sjatla málið svona, því að
þeir fengu þarna ágætis ábyrgðar-
menn,“ sagði Arnór.
Telja sumir viðmælendur Nýja
Helgarblaðsins að sú staðreynd
að Theodor er fyrrum starfs-
maður Landsbankans og fram-
sóknarmaður og sé þar að auki
mjög vel kynntur að öllu öðru
leyti, hafi átt sinn þátt í hvaða
ákvörðun Landsbankinn tók í
þessu máli. Þykir saga O. N. Ol-
sen reyndar um margt hin sor-
glegasta og að áföll hlutaðeigandi
hafi reynst þeim þung í skauti.
Misminnir
Sverri?
Afskipti Landsbankans af sölu
fyrirtækisins hafa verið mikil,
jafnvel þó svo Sverrir Hermanns-
son, bankastjóri, hafi harðlega
borið á móti því í samtali við Nýja
Helgarblaðið að þau afskipti hafi
verið nokkur. Birgir Jónsson, úti-
bústjóri Landsbankans á ísafirði
sagði að lögfræðingur bankans
hefði hugsað um málið fyrir hönd
bankans og að bankastjórnin
hefði gefið grænt ljós á það hvaða
tilboði hafi verið tekið. Eins
sögðu fulltrúi skiptaréttarins á
ísafirði, Björn Jóhannesson og
bústjóri Skarphéðinn Þórisson að
bankinn hefði haft forræði í mál-
inu.
Tilraun til
endurreisnar
Að sögn Arnórs var gerð til-
raun af hálfu hluthafa til að
endurreisa fyrirtækið og fengin
Forsvarsmenn Bjartmars hf., Ásgeir Erling Gunnarsson fjármálastjóri og Arni Sigurðssonframkvæmdastjóri áfyrstastarfsdegifyrirtækisins.
Bjartmars-menn eru bjartsýnir á framtíðina, en ekki eru rækjuframleiðendur á isafirði ánægðir með þá ákvörðun að selja þeim
þrotabú O. N. ölsen. BB-myndir.
lánsloforð til hluthafa fyrir 9 milj-
ónum hjá Byggðastofnun, en þeir
hafi þá ekki átt nægjanleg veð.
Sagði Arnór að hann hafi sjálfur
tapað miljónum á þessu gjald-
þroti og sér væri mjög umhugað
um að fá þessum persónulegu
ábyrgðum af sér létt. Reyndar
segja heimildir blaðsins að Óttar
Yngvason hafi við það tækifæri
gert tilraun til að kaupa fyrirtæk-
ið en hún hafi runnið út í sandinn,
en að því verður vikið hér að neð-
an.
Gjaldþrotið
O. N. Olsen varð síðan gjald-
þrota 30. ágúst síðastliðinn og tók
skiptaréttur ísafjarðar þrotabúið
til gjaldþrotaskipta. Bústjóri var
ráðinn Skarphéðinn Þórisson
hdl. Skuldir þrotabúsins hafa ver-
ið áætlaðar um 180 miljónir
króna, en eins og fyrr segir hafði
mikið verð fjárfest í fyrirtækinu
og því fylgir verðmikill kvóti. Því
var eftir allnokkru að slægjast og
komu fram þrjú tilboð í búið.
Lægsta tilboðið var frá Óttari
Yngvasyni, sem á hlut í ýmsum
útgerðarfyrirtækjum og nam það
115 miljónum. Guðmundur Tr.
Sigurðsson átti 121 miljón króna
tilboð, en Árni Sigurðsson,
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, fyrrum prentsmiðjueigandi
og fyrrum eigandi Vestfirska
fréttablaðsins átti hæsta tilboð
152 miljónir. Því tilboði var að
lokum tekið, en talsverðrar óá-
nægju gætir með þá ákvörðun
meðal ýmissa sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta.
Mistök
hlutahafa?
Hafa hinir óánægðu gagnrýnt
söluna á ýmsum forsendum og
hafa talað um að „hagstæðasta"
tilboði, þ.e. Guðmundar Sig-
urðssonar hafi ekki verið tekið.
Þá eru fyrrum hluthafar O. N.
Olsen óánægðir með að persónu-
legum ábyrgðum hafi ekki verið
af þeim létt og benda á að tilboð
bæði Guðmundar og Óttars hafi
innifalið slík fyrirheit. Þá benda
þeir á að í yfirlýsingu Lands-
banka íslands frá 30. ágúst hafi
verið lofað niðurfellingu per-
sónulegra ábyrgða hluthafa, gegn
því að „ákveðinn aðili fengi fyrir-
tækið til kaups“, smk. fyrr-
greindu bréfi. Samkvæmt heim-
ildum Nýja Helgarblaðsins mun
sá aðili hafa verið Óttar Yngva-
son, en sömu heimildir greina
jafnframt frá að Óttar hafi boðið
fasteignatryggingar í Reykjavík á
móti þeim persónulegu ábyrgð-
um sem hafi hvílt á hluthöfum. Á
þetta mun Landsbankinn hafa
fallist að reyna. Tilboð Óttars
hafi hins vegar verið háð því að
svar yrði veitt innan tveggja
vikna, en því hafi hluthafar neit-
að. Þeir hafi hins vegar heimtað
gjaldþrot vegna þess að þeir hafi
talið sig getað fengið betri skipti
frá ákveðnum aðilum sem hefðu
áhuga á að kaupa fyrirtækið.
Samkvæmt heimildum N.H.
munu einhverjirfyrrverandi hlut-
hafa Olsen nú hafa bakþanka af
því að hafa ekki tekið tilboði Ótt-
ars.
Ekki á valdi
skiptráðanda
Það hefur farið mjög fyrir
brjóstið á fyrri hluthöfum í O. N.
Olesen að kaupendur þrotabús-
ins, Bjartmar hf hafi ekki fallist á
að aflétta af þeim persónulegum
ábyrgðum. Telja þeiróeðlilegt að
þeir séu í ábyrgðum fyrir vélum
og tækjum sem aðrir aðilar noti
til framleiðslu og skuldum sem
aðrir hafi yfirtekið.
Skarphéðinn Þórisson, bú-
stjóri sagði í samtali við N.H. að
það væri ekki á sviði skiptaréttar
að aflétta persónulegum ábyrgð-
um af fyrri hluthöfum. Það væri
ekki heldur hægt að setja slík at-
riði í kaupsamning því það væri
eingöngu á færi veðkröfuhafa,
þ.e. Landsbanka og Féfangs að
aflétta slíkum kröfum. Kröfur
fyrri hluthafa um að ábyrgðum
þeirra yrði aflétt af kaupendum
þrotabúsins, Bjartmar hf. væru
því á nokkrum misskilningi
byggðar.
Árni Sigurðsson hjá Bjartmar
hf. sagði í samtali við N.H. að
það hefði alltaf staðið til að
aflétta þessum ábyrgðum, en það
tæki tíma. „í engu tilboðanna
sem gerð voru er neitt talað um
að aflétta ábyrgðum, né heldur er
orð um það í kaupsamningi milli
Bjartmars hf. og bústjóra“.
Besta tilboðið?
Ákvörðun skiptaráðanda um
að taka tilboði Árna og félaga
sem síðar stofnuðu hlutafélagið
Bjartmar hf með 30 miljón króna
hlutafé, hefur verið harkalega
gagnrýnd. Hefur verið á það bent
að tilboði og kaupsamningi beri
ekki saman, þar sem gert sé ráð
fyrir lægri útborgun í kaupsamn-
ingi. Samkvæmt kaupsamningi
yfirtekur Bjartmar hf 118 miljón-
ir veðskulda, þar sem Lands-
bankinn á kröfu á 60 miljónir.
Engin útborgun er tilskilin á
þessu ári, eri á næssta ári er gert
ráð fyrir 7 miljóna útborgun í
fjórum hlutum. Þær skal greiða
án vaxta. Eftirstöðvar, 25,8 milj-
ónir króna er greitt með skulda-
bréfi til 10 ára, en veð fyrir skuld-
abréfinu er tekið í húseignum og
tækjum sem fyrrum tilheyrðu
O.N.Olsen hf. Hin lága útborgun
hefur verið gagnrýnd og svo að
veð fyrir skuldabréfinu sé tekið í
eignum sem þegar séu veðsettar í
topp.
Árni Sigurðsson mótmælir því
hins vegar að ekki sé rúm fyrir
frekari veðsetningar og telur að
besta tilboði hafi verið tekið.
Skarphéðinn Þórisson bústjóri
vildi hins vegar ekki tjá sig um
hvort tilboð Guðmundar Sig-
urðssonar hafi verið betra. „Þetta
varð niðurstaðan, en spurðu mig
ekki af hverju hún varð svona.
En hún er fundin með ssamþykki
kröfuhafa, Landsbankans og
annarra. Þeir hafa neitunarvald
um hvort taka skuli ákveðnu til-
boði og það þýðir að þeir ráða
þessu í raun,“ sagði Skarphéð-
inn. Taldi Skarphéðinn tilboð
Bjartmars mjög hagstætt fyrir
þrotabúið, „ef reksturinn gengur
upp“.
Landsbankinn
mótsagna-
kenndur
Það sem ekki hefur síst vakið
upp gangrýni á að tilboði
Bjartmars var tekið og það að
undirlagi Landsbankans m.a., er
sú staðreynd að Landsbankinn
hefur neitað að taka hið nýja fyr-
irtæki í viðskipti. Hefur það verið
lagt þannig út að bankinn hafi selt
þrotabúið mönnum, sem varla
geti haft fjárhagslegt bolmagn til
að reka fyrirtækið, því annars
neituðu þeir varla að taka þá í
viðskipti. Sverrir Hermannsson,
bankastjóri gaf sem ástæðu fyrir
neitun bankans, „að Landsbank-
inn ætlaði ekki að taka fleiri sjáv-
arútvegsfyrirtæki í viðskipti, þar
sem bankinn hefði þegar 70% af
sjávarútvegnum í viðskiptum og
það væri 30% of rnikið". Kveður
hér við nokkuð annan tón, heldur
en þegar ákvörðun um
meðhöndlun veðsvika O.N. Ol-
sen var tekin í bankanum og
þykjast menn hér sjá merki um
greinilega stefnubreytingu af
hálfu bankans.
Forráðmenn Bjartmars telja
sig ekki hafa neina skýringu á af-
stöðu bankans, en telja þó að
ekki sé öll von úti enn. Fyrir
bankastjórn liggi bréf, þar sem
farið sé fram á að fyrirtækið verði
eingöngu tekið í afurðalánavið-
skipti. Sagðist Árni vera vongóð-
ur um lyktir þess máls, enda hefði
fyrirtækið alla burði til að standa
sig vel í framtíðinni. „Ég vildi
óska að við fengjum að sitja við
sama borð og aðrir framleiðend-
ur sjávarafurða í landinu," sagði
Árni Sigurðsson.
Ekki tókst að ná sambandi við
Theodór Nordquist í gær.
phh
Föstudagur 11. nóvember 1988 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 7