Þjóðviljinn - 11.11.1988, Side 30
Hvað á að gera um helgina?
FÍM-salurinn, Garðastræti 6, Ólöf
Einarsdóttir og Sigríður Kristinsdóttir
sýnatextílverk. Sýningin, sem eropin
daglega kl. 14-19, stendur til 13. nóv-
ember.
Gallerí Borg, Baltasar sýnir 26 nýjar
lithografíur. Sýningin, sem stendurtil
15. nóvember, er opin virka daga kl.
10-18, og kl. 14-18 um helgar.
Gallerí Gangskör, Amtmannsstíg 1,
Hafdís Ólafsdóttir sýnir grafíkmyndir.
Sýningin stendur til 13. nóvember og
er opin kl. 12-18 þriðjudaga til föstu-
daga, og kl. 14-18 um helgar.
Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4 A,
samsýning á verkum listamannanna
sem að galleríinu standa. Opið kl. 12-
18 alla virkadaga.
Gallerí Svart á hvítu, Laufásvegi 17,
Jón Óskar opnar sýningu á málverk-
um unnum á þessu ári á morgun kl.
14. Sýningin stendur til 27. nóvem-
ber, galleríið er opið kl. 14-18, alla
daga nema mánudaga.
Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnar-
firði, Litli salurinn: Sýning á verkum
Halldórs Árna Sveinssonar er opin
dagiega kl. 14-22 og lýkur 26. nóv-
ember. Aðalsalur: Málverk í eigu
stofnunarinnar, hluti af málverkagjöf
hjónanna Sverris Magnússonar og
Ingibjargar Sigurjónsdóttur. Bogasal-
uroganddyri:Ámorgunkl. 10-17,
sýning (tengslum við 60 ára afmæli
Iðnaðarmannafélags Hafnarfjarðar.
Hoiiday Inn, sýning á verkum Snorra
Arinbjarnarstendurtil 13. nóvember
og er opin virka daga kl. 14-22, og kl.
14-19umhelgar.
Hótel Borg, sýning á verkum Daða
Guðbjörnssonar stendur út nóvem-
ber.
Kjarvalsstaðir, Vestursalur, Septem
‘88, sýning Septem-hópsins til minn-
ingar um Valtý Pótursson. Austursal-
ur, málverkasýningar Guðmundar
Ármanns og Kristins G. Jóhanns-
sonar. Sýningarnarstandatil 13.
nóvember, Kjarvalsstaðir eru opnir
daglegakl. 14;22.
Listasafn ASÍ, Kristín Jónsdóttirfrá
Munkaþverá sýnir myndverk úr ull.
Sýningin, sem stendurtil 20. nóvem-
ber, er opin kl. 16-20 virka daga og kl.
14-20um helgar.
Listasaf n Einars Jónssonar er opið
kl. 13:30-16 um helgar. Högg-
myndagarðurinn er opinn daglega kl.
11-17.
Listasafn íslands, sýning á kyrralífs-
myndum Kristínar Jónsdóttur stendur
til 27. nóvember. Sýnishorn eldri
verka í eigu Nýlistasafnsins verða á
efri hæð safnsins til 13. nóvember.
Einnig eru til sýnis íslensk verk í eigu
Listasafnsins. Á sunnudaginn kl. 15
fer fram leiðsögn um sýningarnar.
Leiðsögnin Mynd mánaðarins fer
framáfimmtudögum kl. 13:30, oger
mynd nóvembermánaðar Uppstil-
ling, eftir Kristínu Jónsdóttur. Lista-
safnið er opið alla daga nema mánu-
daga, kl. 11 -17. í dag verður kvik-
myndin Erró engum líkur sýnd í fyrir-
iestrasal safnsins, á morgun syrpa
um aðdragandann að stofnun Ný-
listasafnsins, og á sunnudaginn
verður myndin um Erró endurtekin.
Listasafn Sigurjóns Ólaf ssonar á
Laugarnesi, ýfirlitssýning á 50 verk-
um Sigurjóns, þar á meðal myndir
sem aldrei áður hafa verið sýndar hér
á landi. Safnið og kaffistofan eru opin
laugardagaogsunnudagakl. 14-17,
tekið á móti hópum eftir samkomu-
lagi.
MIR, Vatnsstíg 10, sýning á svart-
listarmyndum og listmunum frá Sov-
étlýðveldinu Kirgizíu í Miðasíu verður
opin laugardag og sunnudag kl. 14-
18. Aðgangur ókeypis.
Mokka, Skólavörðustíg, Ásta Guö-
rún Eyvindardóttir sýnir olíumyndir.
Sýningin stendurtil 13. nóvember.
Norræna húsið, Anddyri: Land-
mótun og byggð í fimmtíu ár, sýning á
50 svart/ hvítum loftmyndum úr safni
Landmælinga íslands verðuropnuð
á morgun. Myndirnar eru teknar á ár-
unum 1937-87. Sýninginstendurtil
20. nóvember. Kjallari: Björgvin
Björgvinsson opnar málverkasýn-
ingu á morgun kl. 14. Sýningin, sem
stendur til 27. nóvember verður opin
virka daga kl. 16-22, og kl. 14-22 um
helgar.
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Gunnar
Örn sýnir málverk og máluð einþry kk
unnin á þessu ári. Sýningin stendur til
16. nóvember og verður opin virka
daga kl. 10-18, kl. 14-18 um helgar.
Nýlistasafnið, sýning á verkum er-
lendra listamanna í tilefni 10 ára af-
mælis safnsins stendur til 13. nóvem-
berogeropin virkadagakl. 16-20 og
kl. 14-20 um helgar. Leiðsögn um
sýninguna verður á sunnudaginn kl.
13.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti 74, sýning á þjóðsagna-
og ævintýramyndum Asgríms stend-
ur til febrúarloka 89. Safnið er opið
sunnudaga, þriðjudaga, fimmtudaga
og laugardagakl. 13:10-16.
Slúnkaríki, Isafirði, sýning á verkum
Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur
stendurtil 13. nóvember.
Sparisjóður Reykjavíkurog ná-
grennis, Álfabakka 14, Breiðholti,
sýning á verkum Jóhannesar Geirs
stendurtil25. nóvember. Opiðkl.
9:15-16 alla virka daga.
Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6, íslensk
ull 1988, sýning Huldu Jósefsdóttur
um stöðu íslenskrar ullar í dag stend-
ur til 20. nóvember og er opin kl. 14-
18 alla daga nema mánudaga.
Undir pilsfaldinum, Hlaðvarpanum,
Vesturgötu 3, Örn Karlsson sýnir
klippimyndir. í tengslum við sýning-
una, sem stendur til 20. nóvember,
verða ýmsar uppákomur á sunnu-
dagskvöldum.
LEIKLIST
Alþýðuleikhúsið, Kjallara Hlaðvarp-
ans, Vesturgötu 3, Koss kóngulóar-
konunnar, annað kvöld kl. 20:30,
sunnudag kl. 16, mánudagskvöld kl.
20:30.
Leikbrúðuland, Fríkirkjuvegi 11,
Mjallhvít, á sunnudaginn kl. 15.
Leikfélag Hafnarfjarðar, Emil í Katt-
holti, í Bæjarbíói á morgun og sunnu-
dag kl. 17.
Leikfélag Kópavogs, Félagsheimiii
Kópavogs, Fróði og allir hinir grisling-
arnir.
Leikfélag Reykjavíkur, Hamlet, í
kvöld kl. 20. Sveitasinfónía,
laugardags- og sunnudagskvöld kl.
20:30.
Leikfélag Selfoss, Leikhúsinu v/Sig-
tún, Mávurinn.
Leiklistarskóli Islands, nemendur
þriðja bekkjar kynna Mávinn í dag kl.
15, laugardags- og sunnudagskvöld
kl.20, mánudagkl. 16,þriðjudagkl.
20, miðvikudag kl. 16 og fimmtudag
kl. 20.
Litla leikfélagið, Garðinum, Himna-
ríki Hitlers (Ótti og eymd í Þriðja rík-
inu), Gyðingakonan, Spæjarinn og
Krítarkrossinn.
Nemendaleikhúsið, Lindarbæ,
Smáborgarabrúðkaupið eftir Brecht
og Sköllótta söngkonan eftir lonesco,
laugardags- og sunnudagskvöld kl.
20.30, síðustu sýningar.
Ungmennafélagið Islendingur,
Borgarfirði, Um hið átakanlega og
dularfulla hvarf..., frumsýning á
morgun.
Þjóðleikhúsið, Stóra sviðiö, Ævin-
týri Hoffmanns, í kvöld og annað
kvöld kl. 20. Litlasviðið, Skjaldbakan
kemst þangað líka, í kvöld,
laugardags- og sunnudagskvöld kl.
20:30.
Gamla bíó, Hvar er hamarinn? á
morgun kl. 14, sunnudag kl. 15.
TÓNLIST
Dómkírkjan, Marteinn H. Friðriks-
son heldur orgeltónleika á morgun kl.
17. Marteinn frumflytur Stálræðu,
fantasíu fyrir orgel eftir Atla Ingólfs-
son, auk þess sem hann leikur verk
eftir Mendelssohn, Brahms, Þorkel
Sigurbjörnsson og Bach.
Bella
í kröfugöngu
ir ættu að koma líka og sjá til þess
að börnin væru ekki með nein
skrflslæti í göngunni og á fundin-
um á eftir.
„Það er allavega eitt sem víst er
og það er það að ég ætla að mæta í
kröfugönguna uppi á Hlemmi
núna á laugardaginn eftir hádeg-
ið,“ sagði Bella úr Töfragluggan-
um er blaðamaður forvitnaðist
um hvað hún ætlaði að gera um
helgina; „við erum mörg sem
finnst umferðin í Reykjavík alveg
orðin stórhættuleg og ætlum að
halda fund um það á Lækjartorgi
þegar gangan frá Hlemmi er
komin niður Laugaveginn,"
sagði hún.
Bella sagðist vonast til að hitta
öll skólasystkinin og kennarana í
göngunni, og líka alla leiðindap-
úkana með unglingaveikina,
nema systur sína sem hún vonaði
að yrði bara heima. Þá sagði hún
að allar mömmurnar og pabbarn-
Gerðuberg, áttatónlistarmenn halda
tónleikaásunnudagskvöld kl. 20:30.
Tvö íslensk verk verða frumflutt:
Ljómur, verk fyrir klarinettu og
strengjakvartett eftir Atla Heimi
Sveinsson og Tengsl, verk fyrir söng-
rödd og strengjakvartett, sem Hjálm-
ar H. Ragnarsson samdi við Ijóð Stef-
áns Harðar Grímssonar. Tónleikun-
um lýkurá Silungakvintetti Schu-
berts. Flytjendur eru Gerður Gunn-
arsdóttir, Sean Bradley, Helga Þórar-
insdóttir, Nora Kornblueh, Jóhannes
Georgsson, Anna Guðný Guð-
mundsdóttir, Jóhanna Þórhallsdóttir
og Sigurður I. Snorrason.
Háteigskirkja, á sunnudaginn kl. 17
flytja Louis Devos frá Belgíu, Dóm-
kórinn í Reykjavík, Skólakór
Kársness og félagar úr Sinfóníu-
hljómsveitinni, kórverkið Saint Nico-
las eftir Britten. Stjórnendur eru Þór-
unn Björnsdóttir og Johan Duijck.
Norræna húsið, bandaríski gítar-
leikarinn William Feasley heldur tón-
leikaásunnudaginn kl. 17. Efnisskrá-
in spannar tónlistarsöguna frá endur-
reisnartímanum til okkar daga, meðal
annars verkið La Selva sem tón-
skáldið Alan Hirsh samdi sérstaklega
fyrir hann, og gítarverk og útsetningar
eftir J.S. Bach, Giuliani, Aguado,
Regondi, Paganini, Gerhard og Ro-
drigo.
HITT OG ÞETTA
MÍR, Vatnsstíg 10, kvikmyndin Ham-
let eftir G. Kozintsévs verður sýnd í
bíósalnum á sunnudaginn kl. 16.
Kvikmyndin er gerð eftir leikriti Shak-
espeares og fara margir af fremstu
leikurum Sovétríkjanna með aðal-
hlutverkin. Tónlist við myndina er eftir
Sjostakovitsj. Enskirtextar, að-
gangur ókeypis og öllum heimill.
Félag eldri borgara, opið hús í
Tónabæ á morgun kl. 13:30, frjálst frá
kl. 14. Danskennsla kl. 17:30-20:30,
eftirþaðdiskótek.
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3 á
sunnudaginn kl. 14, frjálst spil og tafl,
dansað kl. 20-23:30.
Opið hús íTónabæ á mánudaginn kl.
13:30, félagsvist hefst kl. 14.
Meira til söngs, söngkvöld með Jón-
asi Árnasyni á veitingastaðnum Mun-
anum, Vestmannaeyjum í kvöld. Jón-
as syngur meðal annars lög úr ný-
útkominni bók sinni, Meira til söngs,
honum til stuðnings verður sönghóp-
ur úr Eyjum. Að þessu tilefni býður
Muninn uppásérstakan matseðil.
Verkakvennafélagið Framsókn
heldur basar á morgun í húsakynnum
félagsins, Skipholti 50 a. Basarinn
hefst kl. 14, kökurog munir vel þegn-
ir, allur ágóði rennur til jólaglaðnings
eldri félagskvenna.
FJÖLMIÐLAR
ÞRÖSTUR
HARALDSSON
Mogginn skiptir
um spariföt
Ég leit aðeins inn á ráðstefnu
um menntun fjölmiðlafólks sem
Blaðamannafélag íslands hélt um
síðustu helgi. Ég kom þó allt of
seint til þess að ætla mér þá dul að
segja frá henni. Hins vegar langar
mig að vitna í ummæli Olafs Sig-
urðssonar sjónvarpsfréttamanns
sem sagði eitthvað á þá leið að
ekki væri endilega mikilvægast
fyrir blaðamann að skrifa fallegt
mál. Mestu skipti að hann beitti
málinu af nákvæmni, skrifaði svo
ljóst að enginn vafi léki á merk-
ingunni.
Hvað þýðir til dæmis að rekstr-
argrundvöllur útflutningsgrein-
anna sé brostinn? Vita allir blað-
amenn sem nota þennan frasa
hvað hann merkir? Hvenær
brestur grundvöllurinn? .Hvað
þarf til að hann bresti og hvernig
má lagfæra hann? Þessu kastaði
Ólafur fram og urðu margir til að
taka undir með honum.
Eitt er að nota málið af óná-
kvæmni, annað að nota það
beinlínis rangt. Skúli Gautason
var að stjórna landsbyggðarþætti
í Stykkishólmi á sunnudags-
kvöldið og þegar ungur piltur
hafði ráðið í teiknigátu mynd-
menntakennarans hrósaði Skúli
honum í tvígang fyrir „glám-
skyggnina". Samkvæmt orðabók
þýðir það að vera sjóndapur, sjá
ofsjónir eða missýnast.
En þrátt fyrir þennan tungu-
brjót vil ég taka það fram að þessi
þáttur Skúla var miklu betri en sá
síðasti frá Selfossi. Ekki veit ég
hvort það er vegna þess að þeir
séu svona miklu menningarlegri á
Snæfellsnesi en Suðurlandi, held
þó ekki. En þarna var allt sem
prýðir landsbyggðina: lúðrasveit,
góður kór, sagnaþulir og hagyrð-
ingar, húmoristar, dansfólk og
svo menningarstofnunin Árni
Helgason. Góður þáttur.
En það var reyndar ætlun mín
að fjalla um Morgunblaðið sem
átti 75 ára afmæli á dögunum og
hélt upp á það með því að um-
bylta sunnudagsblaðinu. Við
fjölmiðlafríkin höfðum beðið
eftir þessu blaði með nokkurri
eftirvæntingu því fæðingarhríðir
þess höfðu staðið lengi, með-
göngutíminn var ámóta langur og
hjá konu því nú eru tæpir níu
mánuðir síðan Árni Þórarinsson
var ráðinn til að móta og stjórna
blaðinu.
í annan stað vekur það athygli
þegar Morgunblaðið breytir sér
eitthvað að ráði. Vissulega hefur
blaðið breyst verulega á undan-
fömum árum og áratugum. Það
sést ef maður ber saman blaðið
eins og það er núna og það var
fyrir 15 árum. En allar breytingar
hafa gerst hægt og rólega þannig
að fáir hafa gefið þeim gaum. Ég
hef oft dáðst að þessari yfirvegun
sem moggamenn hafa sýnt. Þeim
hefur tekist að fylgjast með öllum
tískustraumum og framþróun í
útliti blaða en vera samt íhalds-
semin og fastheldnin uppmáluð.
Mogginn hefur fyrir löngu tekið
sér þá stöðu að vera þjóðarstofn-
RUKKARINH MEÐ
RISAPENNANN
V&tÖIV.'MADVARMNN 30
MNUDAGUR
________________________
S>»Ur MarU SMaLiIium
(llAlWnr. M.r(rln.dAi;ir/
un sem aldrei bregst, hvað sem á
dynur.
Nú var aldrei þessu vant blásið
í lúðra og boðaðar breytingar á
helgarútgáfunni. Og vissulega
hefur sunnudagsblaðið breyst.
En af einhverjum ástæðum finnst
mér breytingin ekki vera nærri
því jafn vel hugsuð og fyrri
breytingar. Um fjörutíu dálkar
og fastaþættir eru einum of mikið
fyrir minn smekk og svo er útlitið
ekki nógu heildstætt.
Þar á ég við að mér finnst
skipulag blaðsins ómarkvisst en á
því sviði hefur Mogginn yfirleitt
kunnað sitt fag. Ég kem ekki
auga á hugsunina í niðurröðun
efnisins og auk þess bregður
manni óneitanlega við að detta
niður á „gamlar" síður hér og
þar, síður sem hafa ekkert breyst
eins og mmningargreinarnar og
sumar frétta- og auglýsingasíður.
Þar er allt óbreytt, leturnotkun,
umgjörð síðna og annað ?em er
verulega breytt á hinum síðun-
um.
Þótt ég sé dálítið sammála
þeim sem segja að betra væri að
hafa dálkahöfundana færri en
þeim mun djúphugulli, þá get ég
ekki neitað því að margt er vel
gert í blaðinu. Auglýsingakálf-
arnir tveir eru mikil framför, ým-
islegt í útliti blaðsins er smekk-
lega leyst og þrátt fyrir göt er yfir-
bragð blaðsins fallegra og
heildstæðara en það var. Samt er
eins og eitthvað vanti.
Varla getur maður búist við að
þetta blað þróist neitt að ráði. Ef
svo væri, til hvers var þá allur
meðgöngutíminn?
30 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 11. nóvember 1988