Þjóðviljinn - 16.12.1988, Side 5

Þjóðviljinn - 16.12.1988, Side 5
KVIKMYNDIR ÞORFINNUR ÓMARSSON Jólin eru hátíð ævintýranna Imyndjólamyndanna hefur breyst nokkuð síðustu ár. Afþreyingarmyndir eru í fyrirrúmi NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5 Þaö hefur tíökast hér á landi sem annars staðar aö kvik- myndahúsin bjóöi upp á sérstakar myndir í kringum stórhátíðir og er því farið aö líða aö jólamyndum ársins 1988. Eftirvænting- in hefur þó minnkað eitthvaö nú síöustu árin og er ekki lengur neitt garantí fyrir því aö betri myndir bjóöist um jól og áramót en á öörum árstímum. Fyrir vikið hafa forkólfar bíóhúsa þjófstartað og byrja sýning- ar á svokölluðum jólamyndum fyrr en áður, þannig að líkt og greiðslukortatímabil stórmarkaða færast jólamyndirnar fyrr í desembermánuð með hverju árinu. Engu að síður skulum við athuga hvort bíóin fari ekki í sparifötin um þessi jól og bjóði upp á einhvern glaðning. Það kemur víst fáum á óvart að nær allar myndirnar koma frá draumasmiðjunni vestur við Kyrrahaf. Fleiri ævintýri Og aftur í ævintýramyndirnar. Bíóborgin sýnir nýjustu tækni- HVAR SEM ER - HVENÆR SEM ER! Gaskrullujárnið írá BRAUN er kjörin jólagjöí. Orkan kemur frá gashylki og því er gaskrullujárnið tilbúið til notkunar hvar sem er, hvenær sem er. BRAUN er leiðandi i öllum hársnyrtitækjum. Verslunin Kringlunni og Borgartúni 20 og betri raftækjasalar Nirfill og kanína Jólamynd Háskólabíós er soð- in upp úr kunnri sögu eftir Char- les Dickens um nirfilinn Ebenez- er Scrooge, en teiknimynd sög- unnar hefur marg oft verið sýnd í sjónvarpinu á aðfangadag jóla. Kvikmyndin heitir einfaldlega „Scrooged" og fjallar um viðlíka nirfil og Dickens skapaði, en hann heitir Frank Cross og er for- stjóri sjónvarpsstöðvar í New York. Hannerleikinnafháðfugl- inum Bill Murray sem ekki hefur leikið í gamanmynd síðan Ghost- busters sló í gegn þar vestra. Ef að líkum lætur er „Scroog- ed“ afþreyingarmynd fram í fing- urgóma og lík'"gt að hún hljóti nokkra aðsókn. Leikstjóri henn- ar er Richard Donner, en af myndum hans má nefna „The Omen“, „Superman", „The Go- onies" og nú síðast „Lethal We- apon“. Leikaravalið er ekki af verri endanum en ásamt Murray eru Karen Allen, John Forsyth, John Glover, Bob Goldthwait, Carol Kane og Robert Mitchum í helstu hlutverkum. Bíóhöllin hampar einni vinsæl- ustu og jafnframt dýrustu mynd Bandaríkjanna á þessu ári, ævin- týramyndinni „Who framed Ro- ger Rabbit“. Myndin kostaði litl- ar 50 miljónir dollara en hefur staðið vel undir þeim kostnaði, enda vanir vinsældamenn þar að baki. Steven Spielberg er þar fremstur í flokki en eins og svo oft áður fær hann annan fagmann til að leikstýra herlegheitunum. Sá heitir Robert Zemeckis og hefur átt gott samstarf með þeim fyrr- nefnda í um 10 ár og stýrði m.a. „Romancing the Stone“ og „Back to the Future". „Kalli kanína“, eins og hann kallast á íslensku er þekkt teiknimyndapersóna og er hon- um skotið inn í leikna bíómynd með nýjustu tækni þeirra í Hollí- vúdd. I helstu holdlegum hlut- verkum eru Bretinn góðkunni Bob Hoskins, Christopher Lloyd og Joanna Cassidy. Væntanlega ævintýramynd fyrir alla fjölskyld- una. f Laugarásbíói kveður við dá- lítið annan tón, en þar fáum við að sjá Robert de Niro í sínu fyrsta aðaíhlutverki í nokkurn tíma. Hann leikur fyrrum lögreglu- mann sem leitar uppi horfna glæpamenn. Hann lendir síðan í því að ferðast um þver og endi- löng Bandaríkin með einn slíkan, leikinn af Charles Grodin, veí þekktum gamanleikara. Yaphet Kotto kemur einnig nokkuð við sögu en leikstjóri myndarinnar er Martin Brest. Hann þótti mjög efnilegur á sínum tíma þegar hann gerði hina lunknu gaman- mynd, „Going in Style“, þar sem gömlu brýnin George Burns og Art Carney fóru á kostum, en hans vinsælasta mynd er án efa „Beverly Hills Cop“. Scrooge í jólamynd Háskólabíós en Carol Kane er meðal þekktra Bill Murray fetar í fótspor nirfilsins aukaleikara í myndinni. ekki, þannig að óvíst er hvort við- tökurnar verða eins góðar. Al- gjört spurningarmerki! Regnboginn sýnir nýjustu Ag- ötu Christie-myndina, og kallast hún „Appointment with Death“. Peter Ustinov er sem fyrr í hlut- verki belgíska snilingsins Hercule Poirot en eins og venja þykir er fjöldi þekktra stjarna í aukahlut- verkum. Myndir þessar eiga sér traustan aðdáendahóp en hafa því miður farið versnandi með hverri mynd. Viðskulum þó vona að hér verði eitthvað annað en meðalmennskan því skáldsög- urnar bjóða vissulega upp á ágæt- is kvikmyndaefni. Að auki sýnir Regnboginn jap- anska barnamynd er katlast Hatchi-ko og verður gaman að bera saman japanskt barnaefni við það bandaríska. -þóm brelluafurð George Lucas er kall- ast „Willow". Hann leikstýrir þó ekki frekar en Spielberg kollegi, heldur fær Ron Howard til verks- ins. Hingað til hefur Howard að- allega fengist við misgóðar gam- anmyndir á borð við „Night Shift“, „Splash“ og „Gung Ho“ en hellir sér nú út í ævintýri eftir sögu Lucas. í aðalhlutverkum eru Val Kilmer og Joanna Whall- ey. Eitt ævintýrið enn, þó aðeins jarðbundnara, er að finna í Stjörnubíói en þar fáum við að berja eina framhaldsmyndina énn augum. Ef mynd halar inn nógu mikla doltara í kassann er umsvifalaust gert framhald, sem í þessu tilviki er myndin „Short Circuit 2“, eða Ráðagóði róbót- inn, annar hluti. Fyrri myndin státaði af stjörnum í aðalhiu- tverkum, ásamt viðurkenndum leikstjóra, en það gerir sú seinni

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.