Þjóðviljinn - 16.12.1988, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 16.12.1988, Qupperneq 16
Lóðréttir ¥ym6-l. 1 meðalstórt Imbalæri 2 msk matarolía 3 sellerístilkar ¥2 hlaðlaukur (púrrulaukur) 1 tsk græn eða hvít piparkom 1 tskrósmarín (sléttMl) 2 dl Kahlua-kaffilíkjör 2 msk Kikkoman sojasósa safi úr 1 sítrónu salt 2 dl Ijóst kjötsoð dökkur sósujafnari Lambalæri með Kahlua-sósu MARKAE6NEFND -þegarþu á ,ill háO&arnia*- sjóða í 3-5 mín. Kælið blönduna og hellið henni síðan í sterkan plastpoka. Setjið lambalærið í pokann og bindið vandlega fyrir. Látið sem minnst loft vera í pokanum. Takið utan um legginn á lærinu og sláið pokanum með lærinu í nokkrum sinnum þétt niður á borð. Snúið lærinu í hvert sinn. Þetta er gert til þess að fá safann í pokanum vel inn í holumar á kjötinu. Geymið pokann með lærinu á köldum stað í um einn sólarhring og snúið honum öðm hvom og nuddið safanum vel inn í lærið um leið. Hitið ofninn í 220°C. Takið lærið úr pokanum og skafíð kryddblönduna utan af með bakkanum á borðhníf. Geymið blönduna. Kryddið lærið með salti (og meiri pipar ef þurfa þykir). Höggvið mjaðmabeinið í 4 eða 5 bita og skerið hækilkjötið í bita. Leggið þetta í hæfilega stóra steikarskál eða skúffu og leggið lambalærið ofan á. Steikið kjötið í ofninum þar til það er búið að fá á sig faliegan lit. Minnkið þá hitann á ofninum niður í 180°C. Eftir um einnar klst. steikingu er kryddleginum sem eftir var ásamt kjötsoðinu hellt yfir kjötið og það síðan steikt í um 15-30 mín. í viðbót. Færið lærið yfir á fatið sem þið ætlið að bera það fram á og geymið í heitum og hálfopnum ofninum á meðan sósan er löguð. Sigtið soðið úr steikarskálinni yfir í pott og bragðbætið með salti og pipar eftir smekk. Látið suðuna koma upp á soðinu og þykkið það hæfilega með sósujafnara. Berið kjötið fram með nýju, soðnu grænmeti og einhverju ljúffengu til þess að skola því niður. Ajólunum veljum við gjaman það sem okkur þykir best á jólaborðið og auðvitað helst sem þjóðlegast. íslenska lambakjötið er hráefni sem á fáa sína líka, svo meyrt og safaríkt ef það er meðhöndlað rétt. Spennandi lambastórsteik er tromp á jólaborðið. Hér er uppskrift af einni ómótstæðilegri. Hilmar B. Jónsson valdi þessa gimilegu jólasteik handa okkur með óskum um gleðilega hátíð. Látið lambalærið þiðna í kæliskáp í 3-5 daga, helst í loftþéttum umbúðum. Skerið mjaðmabeinið frá og hreinsið leggbeinið. Skerið einnig mest af fitunni frá ef Iærið er of feitt. Stingið um 2 sm djúp göt í lærið með 3-4 sm millibili. Geymið beinin og kjötið utan af leggbeininu. Skerið sellerístilkana og blaðlaukinn í bita. Hitið olíuna á pönnu, setjið grænmetið á pönnuna og kraumið þar til það fer aðeins að taka lit. Bætið þá pipamum, rósmarínkryddinu, sojasósunni, sítrónusafanum og líkjömum útí og látið og beinstífir Bryndís Schram hefur verið á faraldsfæti um víða veröld síðustu daga og vikur í fylgd með bónda sínum Jóni Bald- vin utanríkisráðherra. Þjóðin hefur fengið að fylgjast með helstu og áhugaverðustu uppákomum og viðburðum þessarar heimsreisu í pistlum Bryndísar í Sunnudagsmogg- anum. Um síðustu helgi sagði hún frá heimsókn í herstöðina í Norfolk í Bandaríkjunum. Þar var henni tíðrætt um stutt pils og beinstífa dáta. Einum þing- manni varð að orði eftir að hafa lesið grein Bryndísar: Sá ég flotans stæltu steggi, stabílir og hreinlífir þeir stara á mína löngu leggi lóðréttir og beinstífir M Fávísar konur Á fjölmennum baráttufundi iðnverkafólks í Bíóborginni í gær þar sem mótmælt var fyrirhugaðri hækkun vöru- gjalds á sælgæti, kex og gos- drykki úr 14 í 25% lenti Lýður Á. Friðjónsson fjármála- og skrifstofustjóri Vífilfells hf. í þeirri óskemmtilegri aðstöðu að meirihluti fundarmanna púaði á hann. Ástæðan var að hann var að ræða um verk misviturra stjórnmálamanna og líkti þeim við fávísar konur. Samlíkingin gat ekki komið á verri stund og stað því lang- mestur meirihluti fundar- manna var kvenfólk. Tóku konurnar líkingunni afar illa og neyddist Lýður til aö biðjast afsökunar á ummælum sín- um. Óvíst er hvað þessi um- mæli Lýðs kunna aö hafa áhrif á sölu Coca Cola fyrir jólin en hætta er á að framleiðslu- vörur fyrirtækisins verði ekki efst á óskalista margra kvenna þegar gos verður keypt inn fyrir jólin.H Klúður í sportinu í ár (þróttafréttamenn eru nú að velja íþróttamann ársins eins og venja er um þessar mundir og stendur valið milli margra manna. Ekki vegna þess hve margir stóðu sig vel á árinu, heldur vegna þess gagn- stæða, enginn þótti skara fram úr meðalmennskunni í ár. Margir vilja að Haukur Gunnarsson eigi skilið náð fyrir augum fréttamanna en sportspekúlantar eru á öðru máli. Enda þykir keppni með- al fatlaðra ekki jafnast á við keppni fullfrískra. Aðrir íþróttamenn virðast allir hafa klúðrað sínum bestu tækifær- um á einn eða annan hátt. Einar Vilhjálmsson er einn af bestu spjótkösturum í heiminum í ár en hann komst ekki einu sinni í úrslit í Seoul. Sömu sögu er að segja af Bjarna Friðrikssyni og allir þekkja sögu handboltalands- liðsins. Úlfar Jónsson, golf- ari, stóð sig mjög vel á árinu, nema í íslandsmótinu en þá varð hann þriðji. Okkar bestu fótboltamenn úti í heimi hafa verið meiddir öðru hvoru allt árið og eins og landinn veit skaraði enginn sérstaklega framúr í boltanum í sumar. íþróttafréttamenn eru í svo miklum vandræðum þessa dagana að heyrst hefur að þeir ætli að snúa verðlaunun- um upp í skammarverðlaun og setja Eggert Bogason í fyrsta sæti eftir frammistöðu hans í kringlukastinu í Seoul, en þá var sem himinn og jörð væru að farast hjá þessum ágæta íþróttamanni! ■ 16 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.