Þjóðviljinn - 16.12.1988, Síða 20
Albin og
sjóræningjarnir
eftir Ulf Löfgren
IÐUNN hefur gefið út nýja
bók um Albin eftir sænska lista-
manninn Ulf Löfgren, sem samið
hefur og myndskreytt fjölda vin-
sælla barnabóka, og nefnist hún
Albin og sjóræningjarnir.
Allir krakkar þekkja Albin úr
sjónvarpinu og úr fyrri bókunum
um þennan hressa og skemmti-
lega strák. Að þessu sinni lendir
hann í óvæntum ævintýrum.
Hann er að grafa eftir fjársjóði í
fjörunni - og allt í einu rekur
hann skófluna í eitthvað hart! Er
þetta gulltunna? Fyrr en varir
birtist heill hópur af kátum sjó-
ræningjum með Simba síkvefaða
í broddi fylkingar. Þetta er þá al-
vöru sjóræningjaströnd og Albin
á eftir að lenda í ótrúlegustu
ævintýrum ásamt Simba, Óskari
blánef, Fredda ferlega, Antoni
ægilega og öllum hinum.
Pórgunnur Skúladóttir þýddi.
CHRIStlNE NÖSTUNGER
JOI
KIHUKJUfEIKIN
Jói og
unglingaveikin
Mál og menning hefur gefið út
bókina Jói og ungiingaveikin eftir
austurríska höfundinn Christine
Nöstlinger. Nöstlinger er einn
þekktasti unglingabókahöfundur
heims í dag og hefur hún hlotið
margvísleg verðlaun, meðal ann-
ars H. C. Andersensverðlaunin.
í bókinni segir frá strák sem
alinn er upp af eintómum konum
og óttast afleiðingar þess fyrir
sálarlífið eftir að heyra um kenn-
ingu slíku uppeldi í óhag. Þetta er
unglingasaga sem fjallar á gam-
ansaman hátt um vangaveltur og
umbrot þessa viðkvæma ævi-
skeiðs.
Bókin er þýdd af Jórunni Sig-
urðardóttur, sem þýddi Vinur
minn Lúki eftir sama höfundur í
fyrra. Sagan er gefin út í flokkn-
um MM UNG bæði innbundin og
sem kilja og er hún 158 blaðsíður.
Brian Pilkington gerði kápu-
teikningu.
BARNAKOMPAN
Umsjón:
KRISTÍN VALSDÓTTIR
ANDRÉS GUÐMUNDSSON
Litli álfurinn
Einu sinni var álfur. Hann átti heima í litlum hól
uppi í sveit. En svo komu krakkar á bæinn sem
var rétt hjá. Þeir fóru í fótbolta rétt hjá hólnum
sem álfurinn átti heima í. Álfurinn kíkti út um
gluggann á hólnum og horföi á leikinn. Honum
fannst þetta alveg rosalega spennandi svo að
hann gat einu sirini ekki fengiö sér að borða. En
allt í einu var komið kvöld og álfurinn var orðinn
mjög þreyttur og svangur, garnirnar gauluðu í
honum. Hann fékk sér að borða og fór svo að
bursta í sér tennurnar. Og svo fór hann að sofa.
Daginn eftir vaknaði álfurinn við það að það var
verið að trampa á þakinu á hólnum hans. Hann
ætlaði að fara að kalla - Hver er að trampa á
hólnum mínum? En hann greip fyrir munninn á
sér því að þá skildi hann að þetta voru krakkarnir
á bænum sem var rétt hjá. En álfurinn var svolítið
vitlaus og sagði - Var einhver að grípa fyrir
munninn á mér? Nei, það var, ég svaraði álfur-
inn. Hann fékk sér morgunmat og svo klæddi
hann sig og burstaði tennurnar. Næstu daga
kom trampið á hverjum einasta morgni. Álfurinn
var kominn með hausverk niður í axlir. Næstu
nótt ætlaði álfurinn að flytja í Álfabæ. Frændi
hans Jonni átti heima í Álfabæ. Þegar hann kom
til Álfabæjar vildu verðirnir ekki hleypa honum
inn af því að hann var ekki með merki Álfabæjar.
Þá sagði álfurinn - Ég er að fara til hans Jonna.
Þá sögðu verðirnir - Ha, já, jú, já... Þá máttu
koma inn. Svo fór álfurinn inn og átti heima þar
alla ævi.
Hrafnhildur Þórólfsdóttir 8 ára.
Á neðri myndina vantar fimm hluti. Getur
þú fundið þá?
ÞETTAERGILJA-
GAUR.HANNERSVO
GLAÐURAF ÞVÍAÐ
HANN SÉR STÓRA
STJÖRNU.
Gylfi Geirsson 7 ára
20 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 16. desember 1988