Þjóðviljinn - 16.12.1988, Qupperneq 29

Þjóðviljinn - 16.12.1988, Qupperneq 29
MEÐ GESTS AUGUM Bandalag nöktu keisaranna Það gerist alltaf annað veifið að mikið frægðarorð fer af ein- stökum mönnum og heyri menn söguna úr nógu mörgum áttum, hætta þeir að leggja sjálfstætt mat á sannleiksgildi hennar. Ein slík saga gengur af prúðum og greindarlegum manni, sem sagður er mesti hagsnillingur Is- lands. Svo mjög hafði sagan magnast í meðförum fólks að það þótti orðið ótækt að loka snilling- inn inni á rykugum kontórum, heldur skyldi hann settur á æðstu valdastóla með því að gera hann að stjórnmálamanni ofan á hagsnilldina. Eg ætla að geyma mér þangað til seinna að pota í goðsögnina um hagsnilld Jóns Sigurðssonar. Að sinni vil ég láta mér nægja að staðfesta að eflaust er Jón snjall á sínu sviði, en að sviðið er bara svo þröngt að það nægir ekki til að ná utan um hagstjórnarvanda ís- lenska samfélagsins. Hitt hefur svo orðið hverjum manni ljóst að hversu mikil sem snilld Jóns er á hans þrönga sviði, þá geislar ekki beinlínis af hæfileikum hans þeg- ar komið er út á víðan völl stjórn- mála. Barnið hrópaði forðum, að keisarinn væri ekki í neinumföt- um, en nú upplifa menn það að sjá ráðherraföt iðnaðar og við- skipta ganga sjálf og enginn innaní. Jón Sigurðsson sýndi það enn á ný fyrir skemmstu að hann er eícki til staðar í pólitíkinni þegar hann lét svo ummælt að Alþýðu- flokkurinn ætti að varast að taka þátt í vinstra samstarfi um fram- boð í næstu borgarstjórnarkosn- ingum í Reykjavík. Þess í stað ætti hann að sækja fram undir eigin merkjum og leggja áherslu á sérstöðu sína. Það væri kannski full þörf á því að Jón Sigurðsson upplýsti Reykvíkinga nánar um það í hverju sérstaða Alþýðuflokks í borgarstjórnarmálefnum er falin. Alla vega hefur sú sérstaða ekki komið fram í störfum flokksins á þessu kjörtímabili, því að borg- arfulltrúi krata, Bjarni P. Magnússon, hefur tekið þá vitur- legu stefnu að eiga samflot með öðrum minnihlutaflokkum í öllum veigamiklum málum borgarstjórnar. Með þessu sam- starfi hafa minnihlutaflokkarnir smám saman gert vaxandi fjölda Reykvíkinga það ljóst, að það er til félagslegur valkostur við minnisvarðapólitík og stjórn- lyndi Davíðs Oddssonar. Reykjavík er ríkasta sveitarfélag landsins, líka sé miðað við fólks- fjölda, vegna miðsækni fjár- magnsins og heimskulegra laga- ákvæða unt skiptingu skatttekna. Davíð Oddsson og hjörð hans hafa hins vegar kosið að verja þessum miklu tekjurn til að reisa montbyggingar á hverjum hólma og hæð í borgarlandinu, á kostn- að barnafjölskyldna, ellilífeyris- þega og annarra sem þurfa á skjóli borgaryfirvalda að halda. Það þarf ekki að koma neinum á óvart þótt stefna Sjálfstæðis- manna sé andfélagsleg, en það kemur hins vegar á óvart að einn helsti forystumaður krata skuli vilja leggja stein í götu þess að félagsleg öfl í borginni starfi sam- an og hnekki völdunt Sjálfstæðis- manna. Að vísu benda skoðanakann- anir enn til þess að Sjálfstæðis- menn geti haldið meirihluta sín- um í næstu borgarstjórnarkosn- ingum. Það er þó tóm til að breyta því ástandi, og þar skiptir augljóslega meginmáli að minni- hlutaflokkarnir standi saman að framboði undir merkjum þeirrar stefnu sem smám saman hefur mótast í andstöðu við meirihluta Sjálfstæðismanna. Ég hef áður sett frant þá hugmynd, að eðlilegt sé að sex efstu sæti slíks lista yrðu skipuð fulltrúum söntu flokka og nú mynda meirihlutann, með þeirri breytingu að Alþýðu- bandalagið afsali sér einunt full- trúa í hendur Kvennalista. Síðan urðu sæti 7-9 skipuð nýju fólki, helst af þeirri gerð sem hefurekki getað skipað sér í neinn ákveðinn flokk á vinstri vængnunt til þessa. Verði strax hafist lianda um undirbúning slíks samstarfs er nægur tími til að breyta meiri- hlutafylgi Sjálfstæðismanna í minnihluta. Verkefni slíks samstarfs væri meðal annars að afhjúpa aðra þjóðsögu en þá sem minnst var á hér í upphafi greinarinnar, sög- una um kappann Davíð Odds- son. í meðförum fólks hefur fjöður orðið að fimm hænum í þeirri sögu, og nú mæna Sjálf- stæðismenn almennt til Davíðs sem þess manns sem geti bjargað flokksræflinum þeirra frá áfram- haldandi göngu á eyðimörk vald- leysis og fylgistaps. Þjóðsagan um Davíð Oddsson byggist ekki síst á þeirri stað- reynd að samanburðurinn við aðra forystumenn Sjálfstæðis- flokksins verður honum alltaf hagstæður. Steini pjakkur verður aldrei annað en hálfstálpaður skátadrengur, og í hugum fólks er hann ennþá senditík vinnu- veitenda, á meðan Davíð tekst betur að bregða á sig gervi full- trúa allra stétta. Þetta er í raun hlálegt, því að þeir tveir eru að öllu leyti santmála um pólitísk grundvallaratriði, en getur í mesta lagi greint á um taktísk atr- iði. Og víst er Davíð mikill tak- tíker, og eins og Þórarinn Eldjárn segir, þá er það versta við Davíð hvað hann getur verið andskoti skemmtilegur og fyndinn. Hins vegar þurfa rnenn ekki að virða Davíð lengi fyrir sér til að sjá að kostir hans þjóna þeint einum til- gangi að auðvelda honum að fá sínu framgengt, hvað sent það kostar aðra. Davíð leggur sjálfur enga dul á það að mesta skemmtun hans er að stjórna, og aðrir hafa veitt því eftirtekt að hann hefur safnað unt sig at- kvæðalitlum jámönnum, sent sjá til þess að Bubbi kóngur fái alltaf vilja sínum framgengt, hversu hégómlegur sem hann er. Það er alltaf til stór hópur fólks sent dá- ist að stjórnlyndi, nokkurn veg- inn sama í hvaða átt það beinist, en grunur minn er sá að þessu fólki fari fækkandi og takist að gera almenningi grein fyrir því að stjórnlyndi Davíðs beinist í andfélagslega átt muni meirihluti Reykvíkinga vilja stefnu- breytingu. Helstu fórnarlömb Davíðs eru að vísu í minnihluta meðal borgarbúa og sum án kosningaréttar. Hér á ég við for- eldra barna, gantalmenni og börn, og ég trúi ekki öðru en að meirihluti Reykvíkinga beri meiri unthyggju fyrir þessum hópum en fyrir þörf sinni til að sjá stórbrotnar byggingar. Það er jafnframt skoðun mín að ef Davíð lenti í minnihluta í borgarstjórn, yrði hætt að tala unt hann sem formannsefni í Sjálfstæðisflokknum. Davíð er nefnilega þannig gerður, að hann verður ósköp lítill kall ef hann talar ekki í nafni einhvers valds. Þess vegna vill Davíð ekki yfir- gefa borgarstjórnina á nteðan Sjálfstæðisflokkurinn er utan rík- isstjórnar. Þess vegna tala Sjálf- stæðismenn nú urn að gera Davíð að þingmanni nteðfram borgar- stjórastörfum, en láta Steina halda formannsstólnum enn um hríð. Þannig væri hægt að kippa Davíð beint úr borgarstjórastóln- unt og á ráðherrastól og jafnvel til forystu í flokknum, án þess að hann þyrfti nokkurn tímann að sýna sig alþjóð strípaður öllum völdum. Það sent helst getur bjargað honum og meirihluta Sjálfstæðis- manna eru klofningstilburðir manna eins og Jóns Sigurðs- sonar. Það fer þó á vissan hátt vel á því að einn ofmetinn maður skuli rétta öðrunt hjálparhönd. Húsgögn á hagkvæmu Forstofusett kr. 18.300,- Símabekkur kr. 8.500,- HÚSGÖGN OG * INNRÉTTINGAR co CQ 00 .Suðurlandsbraut 32 VlO UJ wv/

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.