Þjóðviljinn - 12.05.1989, Síða 11

Þjóðviljinn - 12.05.1989, Síða 11
DAGUR ÞORLEIFSSON Föstudagur 12. maí 1989 , NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 11 Tæplega hálfu öðru ári eftir að endir var bundinn á keisara- dóm í Rússaveldi var síðasti keisari þess, Nikulás annar af Rómanovætt, tekinn af lífi í Jek- aterínbúrg (nú Sverdlovsk), mikilvægri samgöngumiðstöð undir austurhlíðum Uralfjalla. Honum voru látin fylgja í dauðann drottning hans Alexand- ra, börn þeirra fimm og fjórar manneskjur aðrar. Þá stóð yfir í Rússaveldi borg- arastríð bolsévíka og hvítliða, ó- friður sem fremur einkenndist af fjöldamorðum og hryðjuverkum en meiriháttar orrustum. Drápin á keisarafjölskyldunni aðfaranótt 17. júlí 1918 voru ekki nema eitt af ótal hryðjuverkum sem þá voru framin, en þau hafa, af skiljanlegum ástæðum, orðið sér- lega eftirminnileg. Sókn Tékka Að öllum líkindum var keis- arafjölskyldan tekin af lífi sam- kvæmt skipun frá bolsévíka- stjórninni í Moskvu. Því fór fjarri að sú stjórn ætti þá sigur vísan. Tékkóslóvakíska legíónin, mynduð úr austurrískum stríðs- föngum tékkneskrar ættar til að berjast með bandamönnum gegn Miðveldunum, hafði gert banda- lag við hvítliðaher Koltsjaks að- míráls, sem þá var umsvifamikill í Síberíu, og var í hraðri sókn í Úral- og Volguhéruðum. Líkur voru á að Tékkarnir næðu Jekat- erínbúrg, enda gerðist það skömmu eftir aftökurnar. Tækist Koltsjak að ná Nikulási Róman- ov á sitt vald og beita honum fyrir sig í áróðursskyni, ef til vill með því að gera hann að keisara á ný, var líklegt að það hefði djúp áhrif á rússneska bændamúginn, þorra þjóðarinnar, sem frá fornu fari hafði alist upp við það að líta á keisarann sem næstum guðlegan landsföður. Ætla má að bolsé- víkaleiðtogarnir hafi hugsað sem svo, að þeir hefðu ekki efni á að hætta á svoleiðis nokkuð. Upphaflega var þó ekki ætlun þeirra að svona færi. Við fram- kvæmd sinnar byltingar höfðu þeir byltingar fyrri tíða stöðugt í huga, og þeir höfðu hugsað sér að leiða Nikulás fyrir byltingar- dómstól, hliðstætt því sem gert hafði verið við Karl fyrsta Eng- landskonung og Lúðvík sextánda Frakkakonung. Trotskíj, sem var listrænn og hafði smekk fyrir drama, hafði fyrirhugað að verða höfuðákærandi, enda telur Isaac Deutscher að hann hafi viljað freista þess að koma keisaranum og fólki hans frá Jekaterínbúrg. Blóðbað í kjallara Síðasta fangelsi keisarafjöl- skyldunnar var fyrrverandi íbúð- arhús kaupmanns nokkurs þar í staðnum. Hennar var stranglega gætt. Kringum húsið var sífellt hringur varðmanna undir forustu manns, sem Pjotr Medvedev hét. í húsinu sjálfu, með keisaranum og fólki hans, var annar hópur varðmanna undir stjórn Jakovs Júrovskíj, fyrrum úrsmiðs. Auk hans voru í varðhópnum aðeins tveir Rússar, hinir voru Lettar (sem voru einkar fjölmennir í Rauða hernum á fyrstu árum hans) og þýskir og ungverskir stríðsfangar, er gengið höfðu í lið með bolsévíkum. Það var þessi hópur, sem framdi drápin. Keisaranum sárleiddust stjórnarstörfin, sem hann réð lítt við, en hann undi sér þeim mun betur hjáfjölskyldunni. Fremsthjáforeldrum sínum sitja Aleksej ríkiserfingi og Anastasía. Fyrir aftan þau standa (t.f.v.) María, Tatjana og Olga. Aftakan fór fram í kjallaraher- bergi í kaupmannshúsinu. Júrov- skíj hófst sjálfur handa og beindi skammbyssu að hinum afsetta keisara, sem þá var fimmtugur að aldri. Hann tók til máls, hækk- andi röddu, til að segja eitthvað í mótmælaskyni, en skot Júrov- skíjs gerðu að engu þessa síðustu viðleitni manns, sem svo skömmu áður hafði verið ein- valdur allra Rússa, til að sýna myndugleika. Síðan kvað við skothríð er felldi á gólfið Alex- öndru keisaradrottningu og börn þeirra Nikulásar, Olgu, 23 ára, Tatjönu, 21 árs, Maríu, 19 ára, Anastasíu, 17 ára og Aleksej, 14 ára. Auk þeirra var slátrað lí- flækni keisarafjölskyldunnar, sem Botkin hét, Karítonov mat- sveini hennar, Trúp, einkaþjóni keisara og Demídovu, herbergis- þernu keisaradrottningarinnar. Af ótilgreindum ástæðum var hundur keisarabarnanna, Jimmy nefndur, einnig tekinn af; einn varðmannanna murkaði úr hon- um lífið með byssuskefti. Dauðastríð Aðeins andartaksstund var lið- in frá því að úrsmiðurinn lyfti skammbyssunni, og nú varð á gólfi litla kjallaraherbergisins ekki þverfótað fyrir blóðidrifnum og sundurskotnum dánum og deyjandi manneskjum. Veggirnir voru ataðir blóðslettum og göt eftir kúlur þar um allt. Þótt skot- færið væri stutt höfðu ekki allir hitt jafnvel. Demídova hafði ekki einu sinni misst meðvitund, og vein hennar, er hún helsærð neytti síðustu krafta til að reyna að skríða út úr herberginu, voru svo skerandi, að aftökusveitinni, sem mun hafa verið skipuð mönnum í hrottafengnara lagi, féllust hendurandartak. En síðan brugðust einhverjir þeirra við og lögðu herbergisþernuna í gegn með byssustingjum, þangað til hún þagnaði. í sömu svipan bærði Aleksej litli á sér og gaf frá sér langdregið, lágvært kvein. Þegar skotin nístu líkama hans hafði hann gripið utan um föður sinn og hélt þeim tökum enn. Einn varðmannanna sparkaði í höfuð drengnum og Júrovskíj lauk dauðastríði hans með skammbyssuskoti. Þá kom í ljós að yngsta dóttir- in, Anastasía, var enn lifandi. Hún hafði misst meðvitund, en nú raknaði hún við og rak upp hvert veinið af öðru. Hermenn- irnir rhargstungu hana með byssustingjum og um síðir þagn- aði hún einnig. Þar með var saga Nikulásar Rómanovs og fjöl- skyldu hans öll. Líkunum var síðan slengt á kerru og ekið með þau að gamalli námu þar skammt frá. Svo átti að ganga frá líkunum að þau yrðu óþekkjanleg, og voru andlitin því klesst með byssuskeftum og hellt á þau brennisteinssýru. En þegar hér var komið, reyndist það mikið af virðingu fyrir keisara- dómnum sitja eftir í að minnsta kosti sumum varðmannanna, að þeir komust að þeirri niðurstöðu að náman væri ekki viðunandi sem hinsti hvílustaður fjölskyld- unnar. Var því lagt af stað með líkin þaðan og er óvíst hver á- kvörðunarstaðurinn var. En áður en langt var komið festist kerran í for á veginum, og varð það til þess að líkin voru í skyndi husluð í mýri þar rétt hjá. Fundur Rjabovs Fyrrnefndur Pjotr Medvedev var viðstaddur aftökurnar (en tók að eigin sögn ekki þátt í þeim) og frá honum er frásögnin af þeim komin. Hefur kona hans sagt svo frá, að hann hafi aldrei orðið samur maður síðan. Og nú fyrir skömmu skýrði sovéskur blaða- maður, Gelíj Rjabov, svo frá í þarlendu tímariti að hann hefði þegar fyrir um tíu árum fundið jarðneskar leifar keisara- fjölskyldunnar og þjóna hennar, þótt hann hefði ekki vogað að láta það uppskátt fyrr en nú, á þessum tjáningarfrelsistímum fé- laga Gorbatsjovs. Að sögn Rja- bovs var ekki miklum erfið- leikum bundið að þekkja beinin, þar eð sýran hafði ekki unnið á þeim svo heitið gæti, vegna ein- hverra jarðefna í mýrinni. Aleksej ríkiserfingi með skóflu og Tatjana systir hans (t.h.) er þau voru í varðhaldi skammt frá Petrógrad. Ætla má að Gorbatsjov hafi ekki brugðið allskostar notalega við þessa frétt, þar eð í þann mund var hann í heimsókn í Bret- landi. Þá kom m.a. til tals að Elísabet drottning önnur heimsækti Sovétríkin. Hingað til hefur breska konungsfjölskyldan haft sérstakan óþokka á því stór- veldi vegna drápsins á keisara- fjölskyldunni, enda voru þær fjölskyldur nákomnar að frænd- semi. Alexandra drottning, fædd prinsessa af Hessen, var dóttur- dóttir Viktoríu Bretadrottningar og alin upp hjá henni og Viktoría var langalangamma Elísabetar annarrar. Veikgeöja einfeldningar Reynist nú Rjabov hafa rétt fyrir sér, bætist eitt vandamálið enn við hjá Gorbatsjov. Getur „verkamannaríkið" veitt keisar- anum, tákni kúgunarvalds þess er bolsévíkar börðust gegn, keisara- lega útför? Hætt er við að Elísa- bet drottning ætlist til þess af Gorbatsjov og einnig Thatcher vinkona hans. Spurning er hins- vegar hvort slík útför gæti æst eitthvað upp rússneska þjóðern- ishyggju af því tagi, sem gæti orð- ið stjórnvöldum þessa fjölþjóð- lega ríkis óþægileg. Hvað þeim Nikulási og Alex- öndru viðvíkur persónulega, þá verður því vart haldið fram með gildum rökum að þau hafi verð- skuldað sín óhugnanlegu örlög, svo að ekki sé minnst á börn þeirra og þjóna. Bæði voru þau hjón fremur veikgeðja einfeldn- ingar, umkringd afturhalds- sömum ráðgjöfum er litu á fyrir- bæri eins og þjóðkjörið þing og stjórnarskrá sem hrylling frá sjálfum djöflinum. Það að jafn subbulegur og ómerkur loddari og Raspútín skyldi komast inn að gafli hjá þeim sýnir best, hversu vonlaus þau voru í hlutverkum þeim, er forlögin höfðu troðið þeim í. Nikulás botnaði lítið eða ekkert í þeim viðamiklu vanda- málum, er hann fékk við að glíma, enda sárleiddust honum stjórnarstörfin. Hann kaus frem- ur að verja tíma sínum með fjöl- skyldunni og var börnum sínum ástríkur faðir, enda ber heimild- um saman um að þeim hafi þótt vænt um hann. Eins og menn muna gengu lengi fjöllunum hærra þjóðsögur um að ein keisaradætranna, og þá helst Anastasía, hefði komist lífs af og til Vesturlanda, og úr því öllu varð ásamt með öðru til kvik- mynd. En reynist Rjabov hafa rétt fyrir sér, er líklega séð fyrir enda þess ævintýris. dþ. Síðustu forvöð að panta Macintosh tölvur skv. 2. afgreiðslu ríkissamningins, er 18. maí Innkaupastofnun ríkisins, Borgartúni 7, sími 26844 AÐ UTAN Þegar Rússakeisari féll Harmsaga síðustu rússnesku keisarafjölskyldunnar hefur rifjast upp við skrif sovésks blaðamanns, er telur sig hafa fundið bein hennar

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.