Þjóðviljinn - 07.07.1989, Síða 2

Þjóðviljinn - 07.07.1989, Síða 2
SKAÐI SKRIFAR Ég vil ekki sameina banká Síöast þegar ég talaði viö ykkur var, aumingjarnir mínir, ég hress í bragði því að það var búið að heiðra Jóhannes minn Nordal að verðleikum og er góð vísa ekki of oft kveðin. En því er ekki að heilsa núna, og finnst mér þó allt í lagi með konung Spánar og það fólk. Frá Spáni kemur reyndar mín uppáhaldssetning. Hún er úr Don Kikóta, sem segir einu sinni rétt si sona við skjaldsvein sinn, Sancho Panza: „Vegurinn er alltaf betri en kráin." Það er að segja: lífið er eilíf leit, það er ekki hollt að komast á leiðarenda, þá leggjast menn í fyllirí og vitleysu auk þess sem þeir komast fljótt að því, að þeir hafa lent á röngum stað. Og af því að lífið er eilíf leit þá finnst mér að sumt megi standa í stað í sinni íhaldssemi svo að menn hafi einhverja stólpa að miða við á Ferðinni Endalausu til Sannleikans. Mér hefur til dæmis alltaf fundist að það eigi ekki að hrófla við bönkum. Bankar eiga að vera eitthvað áreiðanlegt, alveg eins og maður á að geta treyst peningum og gæti treyst ef ekki væru þessir kommar allsstaðar. Maður verður að fá að treysta því þegar maður horfir yfir miðbæinn að þarna sé til dæmis Útvegsbankinn á sínum stað og handan hans Snæfellsjökull. Báðar þessar fyrirferðarmiklu stærðir eiga að minna okkur á það að guð er stabíll og gerir ekki eitt í dag og annað á morgun. Þess vegna hefur mér ekki fundist það nógu sniðugt, hve margir af mínum flokksbræðrum í Sjálfstæðisflokknum hafa gleypt við þessum brellum Krata-Jóns Sigurðssonar, sem heldur að hann sé eitthvað úr því honum tókst að sameina banka. Ég segi nú eins og Sverrir minn Hermannsson: það þætti ekki mikið afrek að selja ríkiseign með miljarðs króna afslætti ef ég hefði gert það. En þetta heitir víst pólitískt hugrekki nú til dags. Ég fer að halda að það sé mikill og geigvænlegur skortur á þeirri dyggð fyrst menn láta svona út af litlu, meira að segja í Mogganum mínum. Við eigum samleið, segir hann á einhverju staupaþingi þar sem bankastjórar voru að skrifa undir sambræðsluna. Samleið um hvað? spurði ég frænda minn Gísla útgerðarmann og flokksbróður sem var eitthvað að redda sér í bænum. Með þessum kommabanka þeirra í ASÍ kannski? Hvernig á heiðarlegur einkabanki eins og Verslunarbankinn minn að eiga samleið með honum? Var ekki hann Halldór minn í Steypustöðunni að segja um daginn, að þessir verklýðsfjárplógar væru búnir að sjúga til sín allt fé fyrirtækjanna gegnum lífeyrissjóðina? Meðan allir athafnamenn láta leiða sig sem lömb til slátrunar. Á að flýta fyrir því að þeir gleypi allt þessir menn eins og sænskir kratar eða hvað veit ég? Engan asa, Skaði, sagði Gísli. Það er svona með þessa ASÍ-karla og aðra mafíósa: ef þú getur ekki sigrað þá, þá verðurðu að slást í lið með þeim til að hafa þá góða. Svo er hægt að stúta þeim seinna ef færi gefst. Ég skil það Gísli, sagði ég, en segðu mér annað: af hverju er það svona sniðugt að fækka bönkum? Á ekki að vera samkeppni milli allskonar banka? Og því meiri samkeppni, þeim mun betra? Betri er einn stór einkabanki en margir litlir, sagði Gísli. Þá getum við staðið uppi í hárinu á ríkisbönkum svo þeir gleypi ekki allt eins og hvalir. Nú, eiga okkar menn ekki það drasl líka? spurði ég. Erekki Sverrir Hermannsson í Landsbankanum? Sverrir eða ekki Sverrir, sagði Gísli. Allir svíkja þeir sjálfa sig þegar þeir totta ríkisspenann þessir andskotar. Og gleymdu því ekki heldur, að þá má spara og hagræða með því að fækka bönkum. Spara? Já, en ætla þeir ekki að byrja á að reisa nýja höll yfir aðalstöðvar nýja bankans? Miljarður þar eða meir. Sér er nú hver andskotans sparnaðurinn! í fyrsta lagi, Skaði, er nýi Bankinn Okkar búinn að fá þennan miljarð gefins frá ríkinu. í öðru lagi getur hann ekki verið þekkturfyrir að vera í þessum gömlu bankaskriflum. Meinfýsnir Hafskipsdraugar halda uppi trekki í Utvegsbankahúsinu. Iðnaðarbankahúsið guðlaus kumbaldi sem gæti eins verið lögreglustöðin í Paraguay. Alþýðubankinn ekki nema á við skítsæmilegt íbúðarhús fyrir bankastjóra í alminnilegum banka. Og bílastæði fyrirfinnast engin. Heldurðu að enginn megi byggja nema Davíð? Þekkirðu ekki hið fornkveðna: fjármagn fyllir fagurt hús, vegsemd vex með veggjum háum? Þú veist enn svo lítið, um sálina og aurana, Skaði minn, ég skil þetta ekki. MORGUNBLAÐIÐ STÆKKAR BÓKMENNTA- ARFINN Rannsóknir staðfesta frásögn í Breiðdælingasögum. Fyrírsögn í Morgunblaðinu HÖRMULEG HUGMYNDA- FÁTÆKT í STJÓRNARRÁÐINU Það hefur ekki hvarflað að nokkrum manni að skipa annan utanríkisráðherra. Jón Baldvin Hannibalsson í Morgunblaðinu UNDUR POPPHEIMSINS Ef satt skal frá segja finnst mér platan White Lion með hljóm- sveitinni White Lion afskaplega leiðinleg. ... En jafnharður ogég er á þeirri afstöðu minni er ég viss um að White Lion ( platan eða hljómsveitin) á eftir að verða af- skaplega vinsæl. Morgunblaðið STRÍÐ ER FRIÐUR, ÁÞJÁN ER FRELSI... Verslunarráð kannar afkomu 102 fyrirtækja i fyrra: Aukning eigin fjár gerð að miklu tapi. 1,2 miljarða aukning á eigin fé verð- ur að 1,8 miljarða rýrnun. Fyrírsagnaruna í DV EKKIÁBRAUÐI EINUSAMAN... Kínverji biður íslenskt bakarí að finna sér konu. DV í ÚTLÖNDUM ER EKKERT SKJÓL Veggir voru grútskítugir og með fótaförum upp um allt, púð- ar í sófum rifnir svo sá í svamp- inn, rúmdýnur lágu lausar ofan á spónaplötu, svo bældar að það var stór laut í þeim og á þessu átti maður að hvfla sig í þrjár vikur. Harmagrátur ferðalangs í DV LEYFIÐ NÝJU FÓLKIAÐNJÓTA PINGSVEFNS Nei, næst þegar verður kosið eigum við kjósendur að leyfa þessum mönnum að sofa heima hjá sér, þeir hafa ekkert með það að gera að komast á þing. DV ILLMEÐFERÐÁ SKEPNUM BER VOTT UM GRIMMT OG GUÐLAUST HJARTA Búið er að ala þessi 5,5 miljón seiði á dráttarvöxtum í heilt ár og á mörgum stöðum er þessi fiskur í svelti... Fiskeldisfrétt í Tímanum 2 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 7. júlí 1989

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.