Þjóðviljinn - 07.07.1989, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 07.07.1989, Blaðsíða 15
GOTT FÓLK/SlAl M & -ék* % oo .nW \ss^ (fmy 3R.« Nýtt útboð spariskírteina ríkissjóðs Mánudaginn 3. júlí 1989 hófst sala á þremur tegundum verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs. Útgáfan er byggð á heimild í lánsíjárlögum fyrir yfírstandandi ár og lögum um lánsfjáröflun ríkissjóðs innanlands, nr. 79 frá 28. desember 1983. Um er að ræða eftirfarandi flokka spariskírteina: Flokkur Hámarkslánstími Gjalddagi/ fyrsta innlausn Vextir á ári Útboðsljárhæð 1989 l.fl.A 13 'h ár 10. janúar 1992 5,5% kr. 1.000.000.000,- 1989 2.Í1.D 5 ár 10. júlí 1994 6,0% Innan ramma 1989 2.Í1.D 8 ár 10. júlí 1997 6,0% lánsíjárlaga Verðtryggð spariskírteini 1989 - 1. fl. A-sem eru laus til útborgunar að vali kaupanda eftir 2 Vs ár. Kjör þessa flokks hefðbundinna verðtryggðra spariskírteina eru í meginatriðum þessi: a) Vextir eru 5,5% á ári og reiknast frá og með 10. júlí 1989. Grunnvísitala er lánskjaravísitala júlímánaðar 1989,'þ.e. 2540. b) Binditími skírteinanna er tvö og Vi ár en að þeim tíma liðnum getur eigandi fengið andvirði þeirra útborgað hvenær sem er og fylgir því enginn kostnaður. c) Lánstíminn getur lengst verið 13 V4 ár, þ.e. til 10. janúar 2003, og er þá gjalddagi einn á ári að binditíma loknum ef eigandi segir skírteininu ekki upp. d) Spariskírteini með binditíma í 2 Vi ár eru sértaklega merkt á forhlið. e) Skírteini eru nú gefm út í eftirfarandi verðgildum: 5.000, 10.000, 50.000, 100.000 og 1.000.000 krónur. Verðtryggð sparisldrteini - Söfnunarslárteini 1989 - 2. fl. D. Kjörin í þessum flokki verðtryggðra spariskírteina eru í megin- atriðum þessi: a) Kosturinn við þessi söfnunarskírteini er sá að á 5 eða 8 ára lánstíma safnar það verðbótum, vöxtum og vaxtavöxtum sem greiðast i einu lagi að lánstíma loknum. Kaupandi ræður hvort lánstíminn er 5 eða 8 ár. b) Vextir eru 6% á ári, reiknast frá 10. júlí 1989 og eru fastir allan lánstímann. c) Kaupandi ræður því hvort lánstíminn er 5 eða 8 ár. d) Frá og með 10. júli 1994 eða 10. júlí 1997 endurgreiðir rikissjóður andvirði söfnunarskírteinanna ásamt verðbótum, vöxtum og vaxtavöxtum. e) Söfnunarskírteini eru verðtryggð og er miðað við láns- kjaravísitölu júlímánaðar 1989 og er grunnvísitala 2540. f) Skírteinin eru nú gefin út í eftirfarandi verðgildum: 5.000, 10.000, 50.000, 100.000, og 1.000.000 krónur. Spariskírteini ríkissjóðs eru almennt skráð á Verðbréfaþingi íslands og gerir það eigendum þeirra kleift að selja þau fyrir gjalddaga með milligöngu aðila að Verðbréfaþinginu. Seðlabanki íslands er viðskiptabanki fyrir spariskírteini ríkissjóðs, sem eru skráð á þinginu, og tryggir hann að spariskírteini ríkissjóðs séu alltaf seljanleg á verði sem hann ákveður. Samkvæmt gildandi lögum um tekju- og eignaskatt kemur ekki til skattlagningar á vaxta- og verðbótatekjur af skírteinum hjá mönnum utan atvinnurekstrar. Séu þessar eignir ekki tengdar atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi manna, er heimilt að draga þær aftur frá eignum að því marki sem þær eru umfram skuldir. Þessi lagaákvæði gilda að sjálfsögðu um allar tegundir verð-og gengistryggðra spariskírteina ríkissjóðs. Spariskírteinin skulu skráð á nafn og eru þau framtalsskyld. RIKISSJOÐUR ISLANDS 7 wHí I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.