Þjóðviljinn - 07.07.1989, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 07.07.1989, Blaðsíða 6
SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 7. júlf 1989 Dýrkun oddvita Kommúnista- flokksins hefur að mestu verið lögð af frá því Míkhaíl Gorbat- sjov hófst til valda í Sovétríkjun- um. Þessa sjást ekki bara merki í skrúðgöngum alþýðu manna á tyllidögum og innveggjum opin- berra bygginga, þar sem ekki ber lengur á fegruðum jjósmyndum af leiðtogunum með háábyrgan sauðarsvip, heldur og í hanter- ingunni á þeim látnum. Það er að vísu löngu liðin tíð að þeir séu smurðir ódáinssmyrslum og lagðir á stall til sýnis öllum al- menningi, einsog 65 ára gömul múmían sem eitt sinn var hold Vladímirs Leníns, en til skamms tíma hefur líkum æðstu manna verið potað inní Kremlarmúra að baki grafhýsis Lenins. Það er til marks um að jarðbundnari við- horf hafi rutt sér til rúms í Mos- kvu að Andrej Andrejevitsj Gromyko var lagður í moldu lágt í einu horni Novodjevitsjy- kirkjugarðsins í fyrradag og létu fáir fyrrum félaga hans úr stjórnmálaráðinu svo lítið að votta honum hinstu virðingu sína. Þó bendir ekkert til þess að hann hafl fallið í ónáð i flokknum skömmu fyrir andlát sitt. Trúr og tryggur kommúnisti Því fer fjarri að ævi Gromykos hafi verið ævintýri líkust eða hann nokkur ævintýramaður. Þó spannar líf hans mestu hasartíma síðari alda og var hann sjálfur að- alpersóna í mörgu milliríkja- drama um rúmlega fjörutíu ára skeið eða allar götur frá lokum seinni heimsstyrjaldar og fram til ársins 1985 að hann var dubbaður uppí valdalaust virðingarembætti forseta Sovétríkjanna. Gromyko var maður drottin- hollur, sýndi sjaldan svipbrigði svo ekki varð séð hvort honum líkaði betur eða verr og maldaði sjaldan í móinn þegar honum var skipað fyrir, að minnsta kosti framan af ferli sínum í utanríkis- þjónustunni. Þetta stafaði án efa að hluta til af því að maðurinn var rólegur og yfirvegaður að eðlis- fari. Hitt skiptir hinsvegar ekki síður máli að á öndverðum mann- dómsárum Gromykos, fjórða ár- atugnum, var það bókstaflega lífshættulegt að vera málglaður og láta á sér bera. Þó var hann bæði metnaðargjarn og gáfaður og frami hans varð skjótur loks þegar hann var kvaddur til ábyrgðarstarfa í utanríkisþjón- ustunni. Það gerðist árið 1939 þegar á reið að skipa nýja menn í stöður alls þess mikla fjölda fyrir- manna sem Jósef Stalín hafði látið myrða. Aðeins þrítugur að aldri var Gromyko orðinn yfir- maður Bandaríkjadeildar so- véska utanríkisráðuneytisins. Það átti fyrir honum að liggja að verða utanríkisráðherra og gegna því embætti hvorki meira né minna en 28 ár. Gromyko var sonur fátæks bónda, fæddur í þorpinu Starje AÐ UTAN Andrej Gromyko og Dean Rusk, jafnaldrar og kollegar í þjónustu tveggja voldugustu hervelda jarðríkis. Andrej Gromyko: In memoriam Gromyki í Hvíta-Rússlandi árið 1909 og var tæplega áttræður er hann lést. Hann sótti skóla í höf- uðborginni Minsk og lagði stund á landbúnaðarhagfræði. Þar kynntist hann Lidíju V. Gríne- vítsj, þau felldu hugi saman og gengu í hjónaband. Þeim varð tveggja barna auðið, Jemilíju sem gift er diplómat, og Anatólíj sem stýrir Afríkudeild Vísinda- akademíunnar. Lidíja lifir mann sinn. Þau hjón voru mjög sam- rýnd og fylgdi Lidíja bónda sín- um oft í ferðum hans til erlendra ríkja. Ennfremur var eftir því höggvið að þau héldust stundum í hendur í virðulegum veislum og opinberum móttökum. Gromyko var sér þess meðvit- andi að án hinnar kommúnísku byltingar hefði hann aldrei orðið annað en stritmaður á heimaslóð- um, leiguliði eða snauður smá- bóndi. Hann taldi sig því standa í mikilli þakkarskuld við flokkinn og forystu hans og brást aldrei þeim trúnaði er honum var sýnd- ur. Sá trúnaður var gagnkvæmur því allir treystu leiðtogamir hon- um: Stalín, Khrústsjov, Brez- hnev, Tsjernenkó og Andrópov. Trú hans á sósíalismann og sigur kommúnismans var óblandin og sést td. glögglega á orðum sem hann iét falla um bandarískan kollega sem mikið lét að sér kveða um skeið, Henry Kissing- er, og sótt eru í rit rómverska spekingsins Senecu: „Það má einu gilda hvaðan vindurinn blæs ef maður veit ekki í hvaða höfn skal halda.“ Vindilstúfur Churchills Sem fyrr segir var mannekla Gromyko til framdráttar undir lok fjórða áratugarins. Þáverandi utanrfkisráðherra Sovétríkjanna, Vjatsjeslav Molotov, kom auga á þennan prúða og fróða myndar- mann sem ofan á annað hafði numið enska tungu. Sem yfir- maður Bandaríkjadeildarinnar jókst mikilvægi hans eftir því sem nær dró stríðslokum og þeir Stal- ín og Molotov þurftu að eiga fleiri fundi með Franklin Roosevelt Bandaríkjaforseta og Winston Churchill, forsætisráðherra Bret- lands. Strax þá létu gömlu menn- irnir stráknum eftir að sjá um „smáatriðin" enda stóð honum enginn á sporði í þeim efnum, alls kyns tölur hafði hann á hraðbergi og vissi ávallt hvaða orðalag hæfði nákvæmlega í þessum samningi eða hinum. Sú saga er sögð af hinum sögufræga Yalta- fundi leiðtoganna þriggja að Churchill hafi eitt sinn staðið það nærri Stalín að hann heyrði þegar hinn ungi ráðgjafi hvíslaði í eyra Kremlarbónda: „Og nú máttu hvergi hvika frá kröfunni um skil- yrðislausa uppgjöf Þjóðverja." Gamla ljóninu rann svo í skap við að heyra þetta að það reif vindil- stúfinn út úr sér og grýtti honum í mælandann. Sumar og haust 1944 lögðu Bandamenn drög að stofnun Sameinuðu þjóðanna á fundum fulltrúa þeirra í Bandaríkjunum. Gromyko var oddviti sovésku sveitarinnar og fékk því ma. framgengt eftir nokkurt þóf að hverjum hinna fimm fastafulltrúa öryggisráðsins (sem samkvæmt stofnskrá SÞ ber „aðalábyrgð á varðveislu heimsfriðar og örygg- is“) var áskilið neitunarvald, þeas. vald til þess að bregða fæti fyrir tillögur sem nutu fylgis meirihluta í ráðinu. Sjálfur varð Gromyko fyrsti sendiherra So- vétríkjanna hjá Sameinuðu þjóð- unum árið 1946 (og jafnfram að- stoðarutanríkisráðherra) og gegndi þeim starfa um tveggja ára skeið. Þá kom í ljós að það var ekki ófyrirsynju að Sovétmenn lögðu svo mikla áherslu á hindr- unarréttinn því Gromyko beitti honum 25 sinnum og ávann sér uppnefnið „herra Njet“. Grom- yko lét sig málefni SÞ miklu varða þótt hann léti af embætti sendiherra hjá samtökunum og meðan hann gegndi stöðu utan- rikisráðherra sótti hann ætíð hið árlega Allsherjarþing. Kristófer Svavarsson Árið 1949 leysti Andrei Y. Vysjinskíj Molotov af hólmi í embætti utanríkisráðherra. Gromyko varð strax „fyrsti vara- maður“ hins nýja yfirmanns síns og í raun utanríkisráðherra um lengri og skemmri tíma því Vysj- inskíj átti við mikla vanheilsu að stríða. Þetta var á viðsjárverðum tímum, kalda stríðið skollið á og Stalín kominn í sinn blóðuga böðulsham á ný. En Gromyko komst lífs af úr hverjum háska og var loks gerður sendiherra í Lundúnum. Þar var hann þegar Stalín gaf upp andann í mars 1953. Nú fór í hönd tími valdabaráttu í Kreml. Skjótlega varð Molotov utanríkisráðherra á ný og Iét verða sitt fyrsta verk að kveðja Gromyko heim. En metorða- glíman hélt áfram og þar kom að Khrústsjov stóð uppi sigurvegari. Hann kærði sig alls ekki um Mo- lotov í embætti utanríkisráð- herra, rak hann en skipaði stað- gengilinn í hans stað. Loksins var Gromyko orðinn utanríkisráð- herra, ár Krists voru orðin 1957 en Gromykos 48. Setti dreyrrauðan Gromyko leið ekki vel á valda- árum Khrústsjovs. Karlinn mót- aði stefnuna og ákvað allt sjálfur þótt hann fengi utanríkisráðherr- ann til að útfæra hugmyndir sínar og stjómmálaráðið til þess að samþykkja þær. Aðalritarinn þótti duttlungafullur og skap- bráður og tók stundum geðþótta- ákvarðanir sem félagar hans þótt- ust vita að yrðu Sovétríkjunum síður en svo til framdráttar. Kú- budeilan er eitt dæmi þessa, vin- slit Sovétmanna og Kínverja ann- að, og frægt er að endemum þeg- ar hann fór úr öðmm skónum á fundi Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna og barði honum í borð- ið til þess að varna einhverjum máls. Þá setti Gromyko dreyr- rauðan þar sem hann sat við hlið húsbónda síns. Khrústsjov var sviptur embætti í október 1964 og þá lyftist brúnin á Gromyko. Enda vænkaðist hagur hans mjög við umskiptin og er haft fyrir satt að hann hafi þá loksins farið að hafa veruleg áhrif á mótun utanríkisstefnunn- ar, ekki bara útfærslu hennar, Brezhnev, Podgorníj, Kosygin, Suslov og félagar hafi haft í öðm að snúast. Hátindur Uppúr 1970 hófst þíðuskeið í skiptum austurs og vesturs og í hönd fóm afvopnunarviðræður stórveldanna sem staðið hafa með hléum allar götur síðan. í þessari framvindu var Gromyko í fararbroddi fyrir hönd Sovét- manna og telja ýmsir að hann hafi klifið hátind ferils síns á öndverð- um áttunda áratugnum. Árið 1973 varð hann fullgildur félagi í stjórnmálaráði flokksins ásamt Júríj Andropov, yfirmanni KGB. Á ofanverðum áttunda og önd- verðum níunda áratugnum var sambúð risaveldanna slæm. Innrás sovéskra hersveita í Af- ganistan og uppsetning SS-20 kjarnorkuflauganna ollu al- þjóðaspennu og aftur varð Gromyko að „herra Njet“ í augum Vesturlandabúa. Á heimaslóðum rak hvert gam- almennið annað í leiðtogasæti uns þar kom að miðaldra maður, Míkhaíl Gorbatsjov, hreppti hnossið. Eitt fyrsta verk hans var að skipta um utanríkisráðherra, Gromyko vék úr sessi fyrir for- manni flokksdeildarinnar í Ge- orgíu, Eduard Shevardnadze. í sárabætur var hann gerður að valdalausum forseta. Þetta kann að virðast bera vott um vanþakk- læti af hálfu Gorbatsjovs því sagnir herma að atkvæði Grom- ykos hafi skipt sköpum um það að hann varð aðalritari en ekki Grigoríj Romanov, fyrrum flokksforingi í Leníngrað. En nýir siðir koma með nýjum herr- um og Gorbatsjov hugðist söðla um í utanríkismálum. Enda hafa þeir Shevardnadze óspart hamr- að sleggjum sínum á vegg þann sem Gromyko eyddi drjúgum hluta ævi sinnar í að reisa. ks Stalín, Khrústsjov, Brezhnev, Andropov og Tsjernenko gátu ekki verið án hans en Gorbatsjov hafði ekki þörf fyrir hann

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.