Þjóðviljinn - 07.07.1989, Side 17
Fyrir skömmu voru vestur-
þýskar mæðgur, Ute Loh og dótt-
ir hennar Melanie, dæmdar af
kýpurtyrkneskum dómstól til
nokkurra ára fangelsisvistar fyrir
að hafa orðið þarlendum manni
að bana. Hann hafði áður mis-
þyrmt þeim báðum og að sögn
þeirra nauðgað dótturinni. Mál
þetta hefur vakið talsverða at-
hygli í Þýskalandi og víðar.
Allt þetta hófst með því að þær
mæðgur lögðu leið sína til Kýpur
sem túristar, eins og svo fjölmarg-
ir aðrir Evrópumenn gera. 21.
mars s.l. kom Ute, 48 ára gömul
kennslukona frá Vestur-Berlín,
til kýpurtyrkneska þorpsins Yeni
Erenköy með dóttur sinni, sem er
tvítug að aldri og háskólanemi i
rómönskum málum. Þær höfðu
með sér tjald og reistu það í nokk-
ur hundruð metra fjarlægð frá
þorpinu. Þær kynntust fljótt
mæðgum, sem bjuggu í því húsi
þorpsins er næst var tjaldstaðn-
um, Nedime Tulga og þremur
dætrum hennar. Hjá Tulgafjöl-
skyldunni þvoðu þær á sér hárið,
föt og drukku te.
Illa Ieiknar
Tveimur dögum síðar,
fimmtudaginn 23. mars, tóku þær
upp tjaldið og reistu það á ný fjær
þorpinu, við litla vík. Staðurinn
er afskekktur og þorpsbúar furð-
uðu sig á, að tvær konur skyldu
þora að dveljast þar einar. En
staðurinn er fallegur, lækur er
þar með ómenguðu vatni og
skuggsæl fíkjutré og upplagt er að
baða sig í víkinni.
Klukkan var fjögur síðdegis, er
mæðgurnar fluttu sig á þennan
stað, en klukkan níu um kvöldið
kvöddu þær aftur dyra hjá fjöl-
skyldunni Tulga. Ur Ute Loh
voru þá fjórar framtennur, það
blæddi úr munni hennar og úr sári
á höfði og á annarri öxlinni var
stór marblettur. Fáklædd var
hún, í vesti og hafði sveipað sig
dúk að neðan. Melanie var í hvít-
um kjól, en berfætt. Hún var með
áverka á efri vör, marbletti milli
herðablaða, auma flekki innan á
lærum og meiðsli á kynfærum. Er
þetta samkvæmt skýrslu lækna,
sem skoðuðu mæðgurnar.
Lík í tjaldi
Þegar þær bar að garði, sátu
Nedime Tulga og Gulusar, 23 ára
dóttir hennar, og horfðu á sjón-
varp. Þær segjast hafa verið að
bíða eftir syni í fjölskyldunni, tví-
tugum pilti sem Ozmen hét.
Hann hafði komið heim þann dag
eftir að hafa gegnt herþjónustu,
en ekki sést heimavið síðari hluta
dags. Skýringin á fjarvist hans
kom fljótlega í ljós.
Hann lá sem sé í tjaldi mæðgn-
anna við víkina með belti af bað-
slopp um hálsinn. Klæðlaus var
hann að neðanverðu, með
tveggja sentimetra langan skurð
yfir hægra auga og áverka eftir
klór og bit um allan líkamann,
þar á meðal á læri innanfótar og á
kynlimnum. Pungur piltsins var
rifinn opinn, sennilega eftir bit,
svo að annað eistað lá úti. Einnig
þetta er samkvæmt skýrslu
lækna. Özmen var iátinn.
Ute Loh-fjórarframtennurvoru brotnar úr henni og hún særð á höfði. Melanie Loh - „hrædd um að hann dræpi mig ..."
Fómarlömb nauðgara
eða ólmar bakkynjur?
Orlofsferð tveggja þýskra mæðgna varð að martröð. Á Tyrkja-Kýpur trúa menn varlega
frásögn þeirra um nauðgun eða teljajafnvel að þær hafi verið árásaraðilinn
því að fremja nauðgun meðan
Það vissu þær Nedime og Gúl-
úsar ekki enn og mæðgurnar frá
Berlín vissu ekki heldur að þær
voru að leita hælis hjá móður og
systur þess látna. Nedime sótti
hjálp, lögregluna og nágranna
sinn sem talar ensku. Að sögn
nágrannans sagði^Ute: „Við höf-
um drepið mann, en kannski er
hann ekki dauður. Farið og
bjargið honum.“ Eftir að lögregl-
an hafði athugað verksummerki
við víkina, flutti hún mæðgurnar í
fangelsi í Famagusta. Fyrst eftir
það var Tulgafjölskyldunni til-
kynnt, hver sá drepni var.
Misþyrmingar
og nauðgun
Þýsku mæðgumar sögðu lög-
reglunni, að Ozmen hefði mðst
inn í tjaldið til þeirra, þegar þær
vom lagstar fyrir í svefnpokum.
Hann hefði fyrst barið á Ute með
lurk, sem og hnúum og hnefum
og afklætt hana að neðan. Síðan
hefði hann afklætt Melanie og
nauðgað henni þrisvar. „Ég var
hrædd um að hann dræpi mig.
Þessvegna þorði ég ekki að verja
mig,“ sagði hún. „Mamma grét
og hljóðaði. Hann barði hana, til
þess að hún horfði ekki á okkur.
Það tók langan tíma. Loks stóð
hann upp, nakinn fyrir neðan
mitti. Eg sló hann í punginn,
hann réðist á okkur og við á
hann.“ Ute sagði: „Meðan á á-
flogunum stóð, togaði ég í pung-
inn á honum og beit hann í kyn -
liminn.Þá barði hann mig í and-
litið. Þá varð fyrir okkur belti.
Við komum því um hálsinn á
honum og toguðum báðar í.“
Hvorug mæðgnanna segist hafa
séð Özmen Tulga fyrr en hann
réðist á þær og móðir hans og
systur telja ekki heldur að þær og
hann hafi hist fyrr.
Þær höfðu ekki
66
stjórn á sér
í þorpinu Yeni Erenköy eru
sögusagnimar um það, hvað
raunverulega hafi gerst við vík-
ina, næstum jafnmargar íbúun-
um. Eigandi kaffihússins þar tel-
ur t.d. víst, að Özmen hafi hitt
þýsku mæðgurnar áður en þær
fóru út að víkinni. Hann hafi
meira að segja sagt vini sínum, að
hann hygði gott til glóðarinnar,
þar eð þær hafi daðrað við hann.
Annar þorpsbúi telur að systur
Özmens hafi sagt honum frá út-
lendu mæðgunum og ber kunn-
ingja hins látna fyrir þeirri sögu.
Eigandi bensínstöðvar þorpsins
segir að mæðgurnar geti sjálfum
sér um kennt, þar eð þær hafi
báðað sig ailsnaktar í víkinni.
Enn einn þorpsbúi telur að Öz-
men hafi ekki einungis nauðgað
dótturinni, heldur og þvingað
móðurina til að hafa við sig „ór-
alsex“. Aðrir segja að Özmen
hafi verið feiminn og varla þorað
að líta á kvenfólk, enda aldrei
■ neitt haft með það að gera. Sumir
eru ekki sannfærðir um það,
halda því fram að sá látni hafi
verið til alls vís og sýnt það með
hann gegndi herþjónustu.
Þorpslæknirinn, Emirzade
Balcioglu, hafði fyrstur lækna
skoðað mæðgurnar og líkið eftir
umrædda atburði. Hans álit er
svohljóðandi: „Özmen hefði alls
ekki getað nauðgað Melanie.
Hann var nýkominn úr herþjón-
ustu og hafði ekki séð kvenmann
svo mánuðum skipti. Honum
hefði orðið sáðlát áður en hann
hefði getað hafið samfarir. Og í
stúlkunni fannst ekki vottur af
sæði. Sannleikurinn er sá, að
konurnar voru undir áhrifum
kynörvandi lyfs og höfðu ekki
stjórn á sér. Þær náðu Özmen til
sín, réðust á hann, en hann varð
svo hræddur að 'honum reis ekki
hoid. Þá hafa þær sogið á honum
liminn og orðið við það svo æstar,
að þær hafa bitið í hann. Svo hef-
ur eitt af öðru leitt."
„Hefði brytjað af
þeim handleggina
Hjá lækninum og fleiri þorps-
búum kemur fram álit á norður-
evrópskum konum sem almennt
er víða um lönd, þess efnis að
þessar manneskjur séu lauslátar
og hegði sér eftir því ósiðlega,
glenni sig framan í karlmenn,
baði sig á ströndum allsnaktar og
reyki hass. Því sé ekki nema von
að svona nokkuð komi fyrir öðru
hvoru.
„Konurnar komu til mín og
leituðu hjálpar hjá mér,“ sagði
Nedime Tulga. „Ég þurrkaði
svitann framan úr þeim og hélt
um hendur þeim til huggunar.
Hefði ég vitað að þær höfðu kyrkt
son minn með þessum sömu
handleggjum, hefði ég höggvið
þá af þeim smátt og smátt, stykki
fýrir stykki, og fleygt fyrir
hunda.“
Ute Loh er fremur hávaxin og
dökkhærð, dóttir hennar lágvax-
in og ljóshærð. Hvorug er krafta-
lega vaxin.
Þær voru ákærðar fyrir mann-
dráp og sekar fundnar. Að vísu
taldi rétturinn líklegt, að þær
segðu satt til um árásina og
nauðgunina, en á hinn bóginn
hefðu þær á eftir leikið Özmen
svo illa, að þeim hefði ekki verið
nein nauðsyn að drepa hann al-
veg til að tryggja eigið öryggi.
Stern/-dþ.
özmen Tulga - bitinn, klóraöur og kyrktur.
Balcioglu læknir telur mæðgurnar hafa átt frumkvæðið.
Föstudagur 7. júlí 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 17