Þjóðviljinn - 07.07.1989, Side 25

Þjóðviljinn - 07.07.1989, Side 25
KVIKMYNDIR ÞORFINNUR ÓMARSSON Að gera réttu hlutina Er nýjasta kvikmynd Spike Lee hnitmiðuð ádeila á rasisma eða bara létt og ábyrgðarlaus þvæla? Hver er annars þessi Spike Lee? Spike Lee og Danny Aiello talast hér við á flatbökustað þess fyrmefnda. í hinu mikia flóði af banda- rískum bíómyndum sem streyma yfir klakann eru þó alltaf ákveðnar kvikmyndir, sem aldrei eru sýndar hér á landi og gildir þá einu hvort myndin er bandarísk eður ei. Ef þær eru ekki gerðar eftir vinsældarformúlunni er allt eins víst að eigendur ís- lenskra kvikmyndahúsa vilji ekkert með þær hafa. Það er oft eins og það þurfi Kvik- myndahátíð með stóru K-i til að „öðruvísi myndir" verði sýndar hérlendis og höfum við mörg dæmi um slíkt. Þessar kvikmyndir, sem gjarnan eru flokkaðar með evr- ópskum og öðrum „annars flokks“, eiga það líka til að koma ekki hingað fyrr en eftir dúk og disk. Það er tam. ekki ýkja langt síðan kvikmyndir Woodys Allens voru á bannlista kvikmyndahús- anna um nokkura ár skeið enda þótt Allen hlyti hvað eftir annað hástemmt lof erlendra gagnrýn- enda. Allt í einu voru síðan þess- ar kvikmyndir sýndar hver á eftir annariri, og viti menn, áhorfend- ur kunnu vel að meta þessa til- breytingu og fjölmenntu á Allen. Einn er sá kvikmyndagerðar- maður vestan hafs sem settur hef- ur verið í flokk með þeim sem gera óæskilegar kvikmyndir að mati kvikmyndahúsaeigenda. Honum hefur verið líkt við téðan Allen (þá kallaður svarti-Allen) og gerir það sem menn kalla litlar og óamerískar kvikmyndir. Hann heitir Spike Lee og til frekari upprifjunar má minna á hann átti verk á síðustu kvikmyndahátíð sem kallaðist Hún verður að fá‘ða (She‘s Gotta Have It). Nú hefur hans nýjasta verk verið frumsýnt vestan hafs sem austan við góðar viðtökur. Þessi nýja kvikmynd kallast Do the Right Thing og er Lee bæði leikstjóri og handritshöf- undur, auk þess að leika minni- háttar hlutverk í myndinni. Hún var álitin líkleg til afreka á nýaf- staðinni Cannes-hátíð en féll fyrir samlanda sínum, Sex, Lies and Videotapes í leikstjórn nýliðans Steven Soderbergh. Það er at- hyglisvert að þeir Bandaríkja- menn sem þóttu eiga hvað mesta möguleika á verðlaunum í Cann- es eru allir dæmi um kvikmynd- agerðarmenn sem getið var í upp- hafi og eru ekki í náðinni hér- lendis. Auk Lees og Soderberghs var Jim Jarmush (Stranger than Paradise) á meðal þeirra líkleg- ustu í keppninni um gullpálmann og eiga þessir þrír vissulega nokk- uð sameiginlegt. En það sem skilur Spike Lee frá hinum tveimur er að hann er dökkur á hörund og bera kvik- myndir hans þess vel merki. Hann hefur lýst því yfir að svartir leikarar í Bandaríkjunum fái yfir- leitt ekkert annað að gera en að leika þennan tilbúna Harlem-búa með þar tii gerðum ýkjum og stælum. Allir reyni þeir að líkja eftir Eddie Murphy rétt eins og hans persónusköpun sé sú eina rétta í þessum efnum. Do the Right Thing gerist að mestu á pizza-veitingastað í Bro- oklyn. Lee leikur sendilinn á staðnum en ítalsk-ameríski eigandinn er leikinn af Danny Ai- ello (ógleymanlegur sem vonbið- illinn í Moonstruck). Vissir at- burðir, sem ekki er rétt að fara út í hér, hafa það í för með sér að til átaka kemur á milli hvítra manna og svartra og hefur það alvarlegar afleiðingar í för með sér. Með þessum atburðum varpar Lee harkarlegri gagnrýni á kynþátt- amisrétti í Bandaríkjunum og má segja að á endanum sturti hann ameríska drauminum niður í kló- settið. En það eru ekki allir á eitt sáttir um ágæti þessarar myndar. Dómnefndin í Cannes, að Sally Field undanskilinni, sagði mynd- ina léttvæga og ábyrgðarlausa og því bregðast hlutverki sínu sem ádeilumynd. Spike Lee sagði dómnefndarmenn hins vegar uppfulla af rasískum hugsunar- hætti og því skildu þeir alls ekki ádeilu sem þessa. Hvað sem því líður er hér ör- ugglega um eftirtektarverða kvikmynd að ræða. Spike Lee hefur einstakt lag á að gera ein- faldar kvikmyndir sem þó segja allt sem þarf (samanber Woody Allen). Hún verður að fá‘ða kost- aði tam. minna en meðal kvik- mynd á íslandi en hlaut samt mikla athygli og jákvæða umfjöll- un. Á eftir henni gerði hann myndina School Daze sem hefur mér vitanlega ekki enn verið sýnd hérlendis. Kvikmyndir Lees eru fyndnar ádeilumyndir sem eiga að sjálfsögðu að vera sýndar hér á landi frekar en margt af því rusli sem okkur er boðið upp á. Við skulum bara vona að einhver kvikmyndahúsaeigandinn sjái sóma sinn í að tryggja sér eintak af myndinni þvf annars verðum við að treysta á kvikmyndahátíð sem endranær. Klippiborðið Ungverjinn Klaus Maria Brandauer. sem þekkturer fyrir gott samstarf sitt við samlanda sinn Istvan Szabo frekar en leik sinn i Out of Afr- ica. stendur i ströngu þessa dagana. Hann lekfyrir skommu i kvikmyndunum Burning Secret og Hanussen og er Szabo einmitt við stjornvölinn i þeirri siðar- nefndu. Siðan for Brandauer ut að leikstyra sjalfur og kall- ast afsprengið The Artisan. Brandauer leikureinnigaðal- hlutverkið asamt Brian Denn- ehy en þess ma geta að kvikmyndatokumaður mynd- arinnar. Lajos Koltaj. hefur unnið við flestar myndir Sza- bos. Þa er Brandauer nu að leika i tveimur öðrum kvik- myndum! ÖnnurkallastThe children. i leikstjorn Tony Palmers með Vanessa Re- dgrave og Joan Collins. Þa leikur hann a moti Scott Glenn. Sam Neill og James Earl Jones i The Hunt for Red October sem John McTierm- an leikstyrir. Gamla brynið Jack Lemmon leikur nu i nyrri mynd sem kallast einfaldlega Dad. Leikstjori. framleiðandi og handritshofundurerGary Da- vis Goldberg en Steven Spiel- berg er þo innan handar með framleiðsluna. Goldberg þessi hefur hingað til gert sjonvarpsþættina Family Ties en annar sjonvarpsþattafröm- uður leikur a moti Lemmon i Dad. Það er Ted Danson ur Staupasteini en auk þess leikurOlympia Dukakiseitt aðalhlutverk anna. Hun virðist vera buin að jafna sig eftir osigurfrænda i fyrra og hefur einnig leikið i annarri kvik- mynd sem kallast Steel Magnolias. Marrled to the Mob ★★ (Glft mafíunnl) Johnathan Demme hefur oftast hitt bet- ur í mark þótt einvalaleikaralið sé nú með f för. Oft góðar útfœrslur en líður að lokum út f furðulegt sambland af frásagnarmáta teiknimynda og leikinna. Tónlist David Byme er smellin og skemmtileg. Platoon Leader 0 (Sveltarforinglnn) Gerilsneydd stríðsmynd sem hverfur úr huga manns skömmu eftir sýningu. Nafnið segir f raun allt sem þarf. Dancers ★ (Dansmelstarlnn) Mynd fyrir fanatlska ballettaðdáendur en ekki marga aðra. Herbert Ross tekst alls ekki að endurtaka The Tuming Point en góðar ballettsenur halda myndinni á floti. Baryshnikov verður seint tallnn til betri leikara en hann kann að dansa. The Presidlo ★★ (Presldlo-herstöðin) Buddy-hasar-ástar-mynd með vel film- uðum eltingarleikjum á götum San Franc- isco borgar. Connery og Harmon eru hörkutól af ólíkum uppruna en standa sam- an f „týpísku" og leiðinlegu lokaatriði. The Naked Gun ★★ (Beint á ská) Stanslaus brandaraskothríð í tæpar tvær klukkustundir. Hittnin er þó misjöfn, oft er hitt f mark en líka er skotið bæði vfirog framhjá. Jafnast kannski ekki á við Air- planel en það má hlæja að vitleysunni. Babette's gæstebud ★★★★ (Gestaboð Babettu) Þessi gómsæta mynd Gabriels Aksels er uppgjör bókstafstrúarmanna við freistinguna og syndina. Stórgóð persónu- sköpun og veislan f lokin er ógleymanleg. Skugginn hennar Emmu ★★★ Besta barnamyndin f bænum er ekki sfður fyrir hina fullorðnu. Skemmtileg og vel gerð mynd á mörkum fantasfu og raun- veruleika. Laugarásbíó Torch Song Trllogy ★★★ (Arnold) Snjöll og einlæg mynd sem segir frá heimi hómósexúals fólks. Vel skrifuð og leikin og tekst að slá bæði á létta og hrff- andi strengi án þess að falla f gryfju væmninnar. Sagan af hommanum Amold er eitt það vitsmunalegasta og besta sem bfóin bjóða upp á um þessar mundir. Spllt Declslons ★ (Hörkukarlar) Hvað höfum við eiginlega séð þessa mynd oft áður og hver hefur áhuga á að sjá þetta einu sinni enn? Þessi boxaramynd gæti allt eins heitið Rocky V eða X og Gene Hackman mætti gjaman vera vandlátari á hlutverk. Fletch Llves ★★ (Fletch liflr) Mynd fyrir aðdáendur Chevy Chase en þeim sem ekki Ifkar kappinn er ráðlagt að sitja heima. Fletch er á köflum mjög fynd- inn en sum atriðin eru gjörsamlega mis- lukkuð. Fyrri myndin var betri. Bíóhöllin Her Alibl ★★ (Með allt í lagl) Hreint ágætis skemmtun þarsem klaufinn Tom Selleck líkir eftir Cary Grant hér á árum áður. Vel er fléttað á milli hinnar raunverulegu sögu og skáldskapar rithöf- undarins en atriðin með Rúmenum og þar með talið lokaatriðið heldur hugmynda- snauð. Police Academy 6 0 (Lögregluskóllnn 6) Hvemig er hægt aö ætlast til þess að fólk hlæi aö sömu fúlu bröndurunum ár ettir ár? Þessi sjötta mynd f röðinni um lögreglu- skólann er slakari en þær síðustu þar á undan og er þá mikið sagt. Cocoon, the Return ★ (Undrastelnnlnn 2) Afskaplega ómerkilegt og misheppnað framhald sem gerir ekkert nema að skemma fyrir fyrri myndinni. Reynir að vera enn fjörugri og enn tilfinningarfkari en sú fyrri en er bara tilgerðarieg og væmin. Frá- sagnaraðferðin fer öll út um þúfur og fyrir vikið eru sömu leikarar og f frummyndinni ekki með á nótunum. Three Fugltlves ★★ (Þrjú á flótta) Ágætis gamanmynd á meðan plottið virkar en dettur niður þess á milli. Martin Short er aðal aðhlátursefnið sem mis- heppnaðasti bankaræningi kvikmyndanna f allt of stórum frakka. Young Guns ★★★ (Ungu byssubófarnlr) Vestrar eru komnir úr tísku en þessi gæti aukið hróður slfkra mynda. Hér höfum við allt sem þarf, átök og tragedíu, hetjudáð og kómedfu, fólsku og jafnvel rómantík. Estevez skemmtilegur sem Billi bamungi. A Flsh Called Wanda ★★★ (Flskurlnn Wanda) Nánast fullkomin gamanmynd. Hárffnn húmor í skotheldu handriti og gamlinginn Crichton stýrir af mikilli fimi. Erfitt að gera upp á milli aöalleikaranna sem eru hver öðrum betri. Betri skemmtun er vandfund- in. Bíóborgin Crosslng Delancey ★★ (f karlalelt) Þama rekast á menntasnobb og fordóm- ar, karíremba og heiðarieiki f snoturri lýs- ingu á Iffi ólfkra gyðinga f New York. Heiðarleg og einlæg mynd, en þó engar stórfréttir. The Big Blue ★★★★ (Hlö bláa volduga) Undurfagurt listaverk Bessons er óður til hafsins bláa og allra þeirra sem þvf unna. Ástarsaga og uppgjör persóna, sem stund- um eru á mörkum þess mannlega, við sjálfa sig og fortfðina. Giæsilegar viðlinsu- tökur á breið^aldi, bláminn yfir myndinni er stórkostlegur og tónlistin fellur vel að. Hið bláa volduga er upplifun. Þér Ifður vel á henni. Dangerous Llalsons ★★★ (Hættuleg sambönd) Þrungin, en jafnframt hrffandi tragi- kómedfa þar sem allir eru táldregnir. Frá- bær leikur ber myndina uppi, sérstaklega Malkovich og Close sem hástéttarpakkið sjálfselska. Mynd fyrir rómantíkera en endirinn er (hróplegu ósamræmi við þjóð- félagsástandið á þessum tíma. Rain Man ★★★ (Regnmaðurinn) Regnmannsins verður minnst fyrir ein- stakan leik Hoffmans f hlutverki einhverfa ofvitans fremur en sem góðrar kvikmynd- ar. Óskar fyrir handrit og leikstjóm fremur vafasamur og Barry Levinson hefur áður stýrt betur. Háskólabíó Dlrty Rotten Scoundrels ★★ (Svlkahrappar) Bráðsmellin og fyndin mynd um tvo for- herta svikahrappa og samskipti þeirra við kvenkynið. Dulftið gamaldags húmor sem byggir talsvert á góðri frammistöðu aðal- leikaranna. Hverjum öðrum en Steve Mart- in myndi ieyfast að ofleika svona Ifka rosa- lega án þess að það komi að sök. Stjömubíó My Stepmother Is an Alien ★★ (Stjúpa mln gelmveran) Enn ein útfærslan af E.T. þarsem geimvera f kvenmannsmynd kemur til jarð- ar f ákveðnum tilgangi. Slær á létta strengi með mörgum smellnum atriðum en verður að lokum mjög hugmyndasnauð, eins og þvf miður flestar vfsindaskáldsögur nútfm- ans. Ágætlega leikin og Aykroyd og Ba- singer myrtda skondið par. Who's Harry Chumb? ★ (Harry...hvað?) Billeg gamanmynd með nokknjm aula- bröndumm. John Candy bjargar því sem bjargað verður en hann er enginn Peter Sellers þótt hann skipti ört um gervi sem spæjarinn Harry. Krlstnlhald undlr Jökli ★★★ Góð, og athyglisverð mynd á íslenskan mælikvarða sem unnin er af fagmennsku. Kristnihaldið er skemmtileg og fersk á að horfa en ber full mikla virðingu fyrir texta inóbelskáldsins. ‘v Föstudagur 7. júll 1989 ,NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.