Þjóðviljinn - 07.07.1989, Síða 26

Þjóðviljinn - 07.07.1989, Síða 26
Alþýðubankinn, Akureyri, Jónas Viðar Sveinsson sýnir málverk, opið á afgreiðslutíma. Árnagarður v/ Suðurgötu, hand- ritasýning þri. fimm. lau. 14-16 til 1.9. Byggða- og listasafn Árnesinga, Selfossi, sumarsýning á málverk- um e/ Gísla Jónsson og Matthías Sigfússon í Halldórssal. 14-17 virka daga, 14-16 helgar, til ágústloka. FÍM-salurinn, sumarsýning FÍM á verkum eftir félagsmenn. Til 15.8, 13-18 virka daga, 14-18 helgar. Ferstikla, Hvalfirði, Rúna Gísla- dóttirsýnir. Gallerí Madeira, Evrópuferöum Klapparstíg 25. Pétur P. Johnson sýnir Ijósmyndir. 8-18 virka daga til 16.7. Hafnarborg, Strandg. 34 hf, Á tólf- æringi, 14-19 alla daga nema þrið. tíl 7.8. Heimahvammur, Elliðaárdal, Sig- ríður Elfa Sigurðardóttir sýnir mál- verk. Til 9.7,20-22 í kvöld, 14-20 helgina. Kjarvalsstaðir, opið daglega 11 - 18. Sumarsýning á verkum Kjar- vals, daglega 11 -18, til 20.8. Haukur Dór og Preben Boye sýna málverk, teikn. grafík og granit- skúlptúra. Til 9.7. Sýning á verkum Yousuf Karsh,til30.7. Mokka, sumarsýn. á smámyndum TryggvaÓlafssonar. Norræna húsið anddyri: Jörð úr ægi, myndun Surtseyjar og hamfar- irnar í Heimaey. 9-19 nema su. 12- 19, til 24.8. Kjallari: Sumarsýning á verkum Jóhanns Briem, daglega 14-19 til 24.8. Nýhöfn, Kristján Davíðsson sýnir olíumálverk, 10-18virkadaga, 14- 18 helgar til 12.7. Tvær sýningar verða á Virginíu Woolf um helgina. Hvað á að gera um helgiría? Vigdís Grímsdóttir rithöfundur „Ég er alveg nýlent, var að koma frá Kaupmannahöfn þar sem ég var að skrifa bók. Ég hugsa að ég haldi áfram að lenda um helgina." LEIKLIST Magnús Tómasson sýnir í útibúi SPRON Álfabakka 14. Opið á af- greiöslutímatil l.sept. Ljósmyndasafn Reykjavíkur sýnir Ijósmyndir af Jóhannesi Páli 11 páfa eftir Adam Bujak. Opið alla daga 11-19. Listasaf n Einars Jónssonar opið alla daga nema mán. 13.30-16. Listasafn Sigurjóns, opið ld.,sd. 14-17. Mán, miðv.fim. 20-22. Tón- leikar þrið. 20.30. Fd:lokað. Kaffi- stofan opin á sama tíma. Tekið á móti hópum eftir samkomul. Safn Ásgríms Jónssonar, lands- lagsmyndir, 13:30-16 alladaga nema mán. Til septemberloka. Slunkarfki, ísafirði, Halldór Ás- geirsson opnar myndlistarsýningu á morgun. 16-18, fi-sunnud. til 20.7. Sjóminjasafn Islands, Vesturgötu 8 Hf. Fundur Ameríku, i sumar alla daganemamán. 14-18. Þjóðminjasafn opið alla daga nemamán. 11-16. Fjaðraskúfarog fiskiklær, sýning um menningu inúíta og indíána, farandsýn. í tilefni að 10áraafm. heimastjórnará Grænlandi. Til ágústloka. Opnum sýningu á listaverkum jarðargróðans með vorinu. Að- gangur ókeypis sé góðri umgengni heitið, annars er goldið með himin- háum upphæöum vanvirðingar. Folda. Þrastalundur v/Sog, olíumálverk eftir Þórhall Filipusson. Til 16.7. TÓNLIST Djúpið, sumardjass kl. 21:30-24, 10.-14.7. og 17.-21.7. Sigurður Flosason saxófónl. Hilmar Jensson gítarl. Tómas R. Einarsson bassal. trommuleikurfi. og föstud. Djasshátíö Egilsstaöa, Valaskjálfi, 7.-9.7. T ríó Guðmundar Inaólfs- sonar, RúnarGeorgsson, Arni Elfar, Tómas R. Einarsson og fleiri. Auk tónleika djassballett og dans. Sumartónleikar í Skálholti, Robyn Koh semballeikari, Hilmar Orn Agn- arsson orgelleikari, ErnaGuð- mundsdóttirsópran. Lau. kl. 15 söng- og orgelverk, kl. 17 einleikur á sembal. Su. kl. 15 úrval úr efnis- skrám laugard. Þættirúrtónleika- skrám við messu kl. 17. Hljómsveitin Október spilar á Hressó í kvöld og laug. Hefst kl. 22. Gesturátónl. Hljómsv.Te. Fantasía, Ég býð þér von sem lifir, Skeifunnl 3c. Litla leikhúsið, Gerðubergi, Regn- bogastrákurinn, barnaleikrit. Light nights, Tjarnarbíói, fimm. fö. Iau.su. kl. 21, til 3.9. Hver er hræddur við Virginíu Wo- olf?, Iðnó, í kvöld og sunnud. kl. 20:30. Sýningumferfækkandi. HITT OG ÞETTA Smekkleysa i Casablanca i kvöld kl. 22. Bless, Bootlegs, Ham, Jón Gnarr, Risaeðlan. Sumarkarnival Hótel íslandi, í kvöld og lau. Norræna húsið, Borgþór Kjærn- ested heldurfyrirlestra um íslenskt samfélag á laugardögum í sumar. Á sænsku kl. 17, finnsku kl. 18. Til 26.8. Félag eldri borgara Rvík og ná- grenni, Göngu-Hrólfur, gönguferð laugardagafrá Nóatúni 17 kl. 10. Ferð um Borgarfjörð á morgun, uþþlýs. á skrifst. Opið hús í Goð- heimum, Sigtúni 3, su. kl. 14 frjáls spilamennska, 19:30félagsvist, 20 dansað. Ferðafélagið, dagsferðir: lau kl. 8, Þórsmörk. Kl. 13, Armannsfell. Eyðibýlin á Þingvöllum. Laugaveg- urinngenginn 7.-12.7. Hana nú, vikuleg laugar- dagsganga frá Digranesvegi 12 kl. 10. Útivist, dagsferðirsunnudag: Kl. 8, Þórsmörk, kl. 10:30, Orrustuhóll- Hengill. kl. 13, Nesjavallavegur- Skeggjadalur- Marardalur. Sumarleyfi í Þórsmörk, brottförfö.- kvöld, sunnu- og mvd.morgna. ÍÞRÓTTIR Fótbolti. 1 .d.ka. Valur-KA, ÍBK- Fylkir, FH-Víkingursun. kl. 20.00, Fram-ÍA, Þór-KR mán. kl. 20.00. 2.d.ka. Leiftur-Völsungurföd. kl. 20.00, (R-Tindastóll sun. kl. 20.00, UBK-Selfoss, ÍBV-Stjarnan, Víðir- Einherji mán. kl. 20.00. Pollamót KSÍ þám. á Framvelli þarsem hald- inn verður Framdagur á sunnudag. Skokk. Bláskógaskokk HSK lau. kl. 14.00. FJÖLMIÐLAR GUNNAR GUNNARSSON Að vera á réttum kili Fjölmiðlun fyrir fjölmiðlana. Þessa dagana og misserin þeg- ar rætt er um bága fjárhagsstöðu Þjóðviljans og reyndar annarra fjölmiðla einnig, leikhúsa og út- varpsstöðva, reynist mörgum sem leggja orð í belg eða skipta sér af rekstri fyrirtækja í menn- ingargeiranum, svokallaða, eða fjölmiðlun -auðveldast að syngja um óheyrilegan kostnað, nauð- syn á niðurskurði: rétt eins og landið sé skyndilega orðið yfir- fullt af brúklegum fjármálaráð- herrum sem geti komið viti fyrir allar eyðsluklær landsins og með samhaldssemi komið hvaða rekstri sem er á réttan kjöl. Þegar fyrirtæki velta á hlið liggur hins- vegar fyrst fyrir að menn spyrji hvort rétt sé að yfirgefa sökkv- andi skip, láta það rúlla vegna þess að markaðslögmálið hafi fært mö'nnum heim sanninn um að ekki sé þörf fyrir það - ellegar menn spyrji hvort þeir ætli áfram að halda úti sínu blaði vegna þess að þeir séu fullvissir um að sá pappír sé nauðsynlegur og að enn hafi sjóaðir starfsmenn þess brennandi löngun til að setja saman gott blað. Nú virðist það býsna flókið mál að ákveða hvort „þörf sé fyrir“ eða hvort „rekstrargrundvöllur- inn“ sé nægilega traustur; og eigi markaðslögmálið að stýra út- komu íslenskra dagblaða þýðir heldur ekki að rökræða eða greina vandann rækilega því það sama lögmál gerir ráð fyrir að all- ar hugdettur manna eigi að reyna og takist mönnum að hjara eigi þeir óvefengjanlegan tilverurétt. Fjölmiðlun okkar tíma er að verulegu leyti einhvers konar tískufyrirbæri, della tíðarinnar sem getur hrifið margan manninn á skeiðsprett og látið hann þeysast á bábiljum og froðu- snakki á meðan gjólan endist. Mjög stór hiuti útsendingartíma sjónvarps á íslandi og útvarps er tímaeyðsla, partur af einhvers konar alþjóðlegu suði upp úr engu sem kemur venjulegri blaðamennsku lítið við og eigin- lega skítt að þurfa að nefna þenn- an vind menningu. Blaðaútgáfa, útvarp, sjónvarp, leikhús - öll starfsemi af þessum toga kostar peninga hvaðan sem þeir koma og ekki um annað að ræða en borga nótuna og vonast til þess að markaðstekjur skili á endanum því sem til þarf. Reyndar leggjast auglýsinga- miðlarnir núorðið svo þungt á neytendur á íslandi að hvergi í heiminum er vöruverð eins ruddalegahátt. En vilji menn óð- fúsir borga fyrir allar auglýsinga- síður Moggans og dagskrá popp- stöðva í máli og myndum þýðir ekki að fárast yfir beikonprísum eða verði á innfluttum jarðepl- um. Á að gefa út blað - eða á ekki að gefa út blað? Á að halda úti íslensku sjónvarpi eða á að kapp- kosta að við hér úti verðum ein- ungis menningarlegur útkjálki á spena hins alþjóðlega afþreying- ariðnaðar sem góðir menn vilja verja ævistarfi sínu og ættarauði í að verði? Ég held að umræðan um tilverugrundvöll eins lítils dagblaðs hljóti að skila sér inn í stöndugri fyrirtæki: menningar- póll sjónvarps og reyndar allra fjölmiðla á íslandi hlýtur að eiga að vera íslenskur að uppruna og fá að kosta það sem hann kostar. Eins og er finnst mér erfitt að koma auga á íslenskt sjónvarp - því brá fyrir annað veifið fyrr á árum en nú er það horfið. Og ef við ekki skerum upp herör í þágu íslensks leikhúss munum við innan skamms sitja uppi ráðvillt í engilsaxneskri fótaflækju. Þegar svo er komið verður ekki um ann- að að ræða en grípa til lurksins þeirra Bakkabræðra. 26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 7. júlí 1989

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.