Þjóðviljinn - 14.07.1989, Blaðsíða 13
Stefán Benediktsson: íslensk náttúra gerir allt aðrar kröfur til þeirra sem að byggingaframkvæmdum standa en þekkist annars staöar.
Mynd - Jim Smart
förnum 50 árum. Þörfin fyrir lög-
vernd var allt önnur þá en hún er í
dag, og þó viö höldum enn fast
við þá kröfu að menn kalli sig
ekki arkitekta nema hafa há-
skólapróf, leggjumst við ekki
gegn því að menn noti viðskeytið
arkitekt í starfsgreinum sem
beinlínis eru hluti af byggingar-
list, eins og til dæmis innanhúss-
og landslagsarkitektar. Félög
þessara starfsgreina starfa enn
aðskilin, en ég held að arkitekta-
skólinn eigi eftir að auka mjög
samstarf þessara aðila, ef ekki
sameina þá alveg í einhverjum
samtökum sem kenna sig við ark-
itektúr,-
Hvernig var ástandið í þessum
málum fyrir 50 árum?
- Þá störfuðu mjög margir
byggingameistarar að húsa-
hönnun. Eftir tveggja áratuga
þóf komust menn síðan að þeirri
niðurstöðu að einungis arkitektar
ættu að teikna hús, og að til þess
að mega kalla sig það, yrðu þeir
að hafa gengið í gegnum háskóla-
nám. Það láðist bara að finna
þessu samkomulagi þann stað í
lögum sem þurfti, svo enn þann
dag í dag mega ýmsir aðilar aðrir
teikna hús. Það gilda um það
ákveðnar reglur, en þó er enn til-
tölulega stór hópur annarra
tæknimamia sem hefur þetta
leyfi.
Ekki hvort
heldur hvenær
Hvenær heldurðu að arkitekta-
skólinn verði að veruleika?
- Ég vil litlu spá um það. Verð
bara að vona að hann geti tekið til
starfa sem fyrst, og vildi óska að
það gæti gerst innan næstu þrig-
gja ára. Undanfarið hefur verið
meðbyr frá stjórnvöldum. Birgir
ísleifur Gunnarsson stofnaði
nefnd um þetta mál þegar hann
var menntamálaráðherra, og sú
nefnd skilaði niðurstöðu nú í
haust, eftir að Svavar tók við. Sú
niðurstaða var á þann veg að
stofna ætti arkitektaskóla á ís-
landi. Svavar afhenti þá niður-
stöðu annarri nefnd, sem starfar
að gerð frumvarps um listahá-
skóla, og hefur hún gert tillögu að
heimildarákvæði í lögum um
stofnun arkitektaskóla í tengslum
við Háskóla íslands og Mynd-
lista- og handíðaskólann.
- Það er líka beinlínis hægt að
mæla eða finna að áhugi fólks á
góðri hönnun fer vaxandi, og ég
tel þessi jákvæðu viðbrögð
stjórnvalda endurspegla það. Eg
held að það sé ekki lengur spurn-
ing um hvort stofna eigi skólann,
heldur hvenær það verði. Frá
sjónarmiði vísindanna er það í
raun og veru út í hött að skegg-
ræða um hvort gera eigi tilraun
eða ekki. Umræðan snýst fyrst og
femst um hvernig hún verði gerð
og hvenær, og því tel ég góðar
líkur á að hér verði kominn arki-
tektaskóli fyrir aldamót. LG
Föstudagur 14. júlí 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 13