Þjóðviljinn - 14.07.1989, Page 23
DÆGURMÁL
HEIMIR
PÉTURSSON
Andstæðir pólar
Roberts Smith
Það eru alltaf nokkur tíðindi í
rokkheimum þegar The Cure
gefur út plötu. Cure á að baki
litríkan feril sem endurspeglast í
10 hljómplötum, eða 11 með
þeirri nýjustu, „Disintegration“.
Á vissan hátt kemur Cure manni
ekki á óvart, en samt eru plötur
Cure aldrei alveg það sem maður
átti von á.
Plötur Cure eru jafn ólíkar og
þær eru margar. Pær eru kannski
jafn ólíkar og Robert Smith er frá
einu augnabliki til annars. Hann
er niðurdreginn aðra mínútuna,
fullur lífsþrótti aðra; alvarlegur
trúður. Á bak við málað andlitið,
varalitinn, tætt hárið, grímuna,
er maður þjáningarfullrar gleði.
Ef eithvað eitt öðru fremur
gerir Cure að því sem hún er, er
það söngur Roberts Smith og gít-
arleikur. Þessi sterku einkenni
eru til staðar á „Disintegration“,
sett fram á þann einstaka súr-
sæta hátt sem gerir Cure sér-
staka. í Robert Smith takast
stöðugt á neikvæðir og jákvæðir
pólar, tónlistarlega og í persónu-
lega lífinu. Hánn segir gjarnan
eftir hverja plötu, að hún sé síð-
asta plata Cure, gersamlega út-
taugaður að verki loknu. En
Cure rís samt alltaf upp á aftur-
lappirnar, og Robert Smith kem-
ur fram með enn eina víddina úr
hyldjúpum Cure.
„Disintegration" er enn einn
vitnisburðurinn um þennan
eiginleika. Og enn og aftur segir
Robert Smith að Cure hafi loks
sungið sinn svanasöng. Að þessu
sinni trúa honum fáir.
Hver og ein plata Cure er nýr
kafli í þroskasögu Roberts Smith.
Eftirminnilegur áfangi á þeirri
braut, að mínu mati, er „Faith“.
Plata sem þráaðist við að fara af
fóninum mánuðum saman. Fyrir
margar sakir auðtekin plata, sem
náði að koma manni á óvart við
hverja hlustun. Á „Faith“ kom sá
kristaltæri gítarleikur, sem
eyrnamerkti Cure öðru fremur,
fram í sinni hreinustu og fáguð-
ustu mynd. Gítarleikur sem hefur
haft áhrif víða í rokkheimum,
m.a. á hinn ágæta gítarleikara
Grafíkur, Rúnar Þórisson.
„Pornography“ var síðan plata
þar sem Robert Smith kannaði
nánar ýmsa afkima „Faith“. Fyrir
bragðið var „Pornography" ekki
eins heilsteypt plata og „Faith".
„Kiss me, Kiss me, Kiss me“
var að mörgu leyti ágæt, en kald-
ari og óyfirvegaðri en maður átti
að venjast hjá Cure. „Kossinn"
var þó sú plata sem jók veg og
virðingu Cure í Kanalandi. Ég
entist illa yfir „Kiss me... “, og hef
eiginlega beðið í voninni eftir ein-
hverju bitastæðu frá Cure síðan.
„Disintegration" var þess virði
að bíða. Hún hefur strax við
fyrstu hlustun sterk áhrif. En hjá
mér er það merki um góðan grip,
ef fyrstu hlustun fylgir seiðmögn-
un, án þess endilega að hægt sé að
skilgreina af hvaða rótum hún er
sprottin. Það er orðið svo þreytt
að segja að plata vinni á. Þannig
er það nú samt með plötur, þær
annað hvort vinna á, eða hníga í
áliti með endurteknum hlustun-
um. Maður ákveður ekki meðvit-
að að setja aftur á fóninn góða
plötu, hún fer þangað sjálf, hún
bankar upp á. Vondar plötur
vitja manns hins vegar ekki nema
einu sinni.
Meltingu „Disintegration" er
ekki lokið í mínum húsum og ég
hugsa hún endist eitthvað fram á
næsta ár.
„í þetta skipti vildi ég gera
eitthvað sem næði fullkomnum
tökum á mér og ég gæti orðið
stoltur af. Fyrst fannst mér að ég
Róbert Smith, hótar enn að hætta.
ætti að gera þetta einn. En að
hafa hina með gaf verkinu aðra
vídd,“ segir Robert Smith. Það er
með Cure, eins og margar aðrar
breskar hljómsveitir, hún stend-
ur og fellur með einum manni.
Upprunalega Cure voru þrír
menn: Robert Smith, söngvari og
gítarleikari, Michael Dempsy
bassaleikari og Lawrence Lol
Tollhurst á trommur. Dempsy
yfirgaf skútuna fyrir nokkrum
árum og eftir upptökur „Desinte-
gration" ákvað Robert Smith að
láta æskuvin sinn, Tollhurst, fá
reisupassann. Ástæðan? Léleg
frammistaða.
Þá er Robert Smith einn eftir
úr kjarnanum. Þannig að e.t.v.
ættu menn að taka hótun hans um
„síðustu plötu Cure“ alvarlega í
þetta sinn. Næsta plata verður
kannski sólóplata Roberts
Smith? Slíkar pælingar skipta
ekki öllu máli. Mörkin á milli Ro-
berts Smith og Cure eru ekki og
hafa ekki verið það skýr.
-hmp
„Guð er Barry Manilow“
Public Image LTD, hljómsveit
John Lydon, hefur sent frá sér
sína níundu plötu og heitir skífan
„9“. Fyrsta plata PIL kom út 1978
og sýndi ásamt næstu plötu þar á
eftir, að fleiri þræðir lágu í John
Lydon (áður Rotten), en hann
þræddi með Sex Pistols.
Þessi samnefnari pönksins er
einn sárafárra sem náði að lifa af,
tónlistarlega og bókstaflega. Þó
andúð hans á kerfinu, fylgifiskum
þess og gervitunglum, lifi góðu
lífi í textum Lyndons og yfirlýs-
ingum, hræðast fáir þennan stór-
kjaft sem hrækti yfir allt og alla,
skreyttur öryggisnælum og öðr-
um skartgripum. Meira að segja í
aðalstöðvum heimslögreglunnar,
Bandaríkjunum, fá menn ekki
lengur í „lange baner“ hland fyrir
hjartað þegar Jón rotni stígur fæti
á bandaríska grund. Honum og
hljómsveit hans er nú tekið fagn-
andi fyrir vestan oss, ásamt
hljómsveitunum New Order og
Sugarcubes. Hamborgaraæturn-
ar hópast á tónleika þríeykisins
um þessar mundir.
John Lydon segist lifa í nútíð-
inni og bíða eftir framtíðinni.
Fortfðin hefur ekkert að segja, að
hans sögn. Hann hlær að Rolling
Stone tímaritinu, sem nú hefur
Sex Pistols upp til skýjanna. En
sama blað náði ekki upp í nefið á
sér af hneykslan þegar hljóm-
sveitin var og hét. Þó Lydon bíði
spenntur eftir framtíðinni og voni
að hann drepist aldrei, segir hann
öll vísindaleg rök benda til þess,
að jörðin verði orðin dauður
drullupollur eftir 25 ár, verði
ekkert að gert. Þess vegna leggur
hann Grænfriðungum lið.
Allt þar til veröldin og, eða
hann farast, ætlar Lydon að
semja tónlist. Hann segist gera
miklar kröfur til gæða. Markmið-
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 23
ið með „9“ hafi verið að skila frá
sér góðri tónlist. Allt of margir
tónlistarmenn noti tölvur til að
semja og fremja tónlist, einfald-
lega vegna þess að þeir séu hæfi-
leikasnauðir, geti hvorki samið
tónlist né spilað. Sjálfur kjósi
hann lifandi hljóðfæraleikara en
ekki tölvur.
„9“ er vönduð, vel unnin plata.
Lydon og félagar standa vel undir
stóryrtum yfirlýsingum Lydons.
Platan er jöfn í gegn og hvergi
kemur áberandi hnykkur á línuna
sem er sett strax í upphafi með
fyrstu tveimur lögunum á plöt-
unni.: „Happy?“ og „Disappo-
inted“. Mjög góð byrjun. Aðals-
merki „9“, eins og á fyrri plötum
PIL, er söngur Lydons. Hann er
með alskemmtilegustu röddum
rokksins og hefur farið mikið
fram síðan á „æluárunum" með
Sex Pistols. Það sama má segja
um tónlistina og sönginn, hvort
tveggja hefur fágast og slípast í
áranna rás; meiru er kostað til
tónlistarlega séð og meira pælt.
Ég kunni aldrei sérstaklega vel
við óstjórnlegt, óheflað og lítt-
pælt „öskur“ Sex Pistols. Pil hef-
ur hins vegar vaxið í áliti með
hverri plötu. „9“ er enn ein ör-
yggisnælan í nef Lydons.
Að lokum, Lydon er að skrifa
bók, þar sem „sannleikurinn" um
Sex Pistols á að koma fram. Hann
er svekktur út í meðferð Alex
Cox á fyrrum félaga sínum í
myndinni „Sid and Nancy", telur
Cox jafnvel hafa göfgað heróín-
neyslu með tiltæki sínu. Lydon
segist ekki hafa gaman af því að
sjá fólk fara í hundana með þeim
hætti sem Sid gerði. „Það eina
sem við eigum er lífið. Bíðið eins
lengi og hægt er eftir því sem
tekur við að lokum. Ég hef ekki
séð neina sönnun fyrir tilvist
guðs, hvergi. Hafið þið gert
það?... Guð er að öllum líkindum
Barry Manilow." -hmp
John Lydon, ferskur en ekki rotinn.
Undir berum himni
Laugardaginn 19. ágúst verður haldin rokkveisla í Breiðholti. Fellahellir verður 15 ára í ár og þótti
Benóný Ægissyni og öðrum velunurum rokksins tilvalið að rokka undir berum hintni í tilefni afmælisins.
Rikkrokk heitir hátíðin, og verður þetta í þriðja skipti sem hún er haldin. Þekkt nöfn úr rokkheimum
iklakans troða upp og óþekkt nöfn eru skoruð á svið.
Þegar er fastákveðið að Sykurmolarnir, Langi Seli og skuggarnir og Júpiter komi fram. Þá munu þrjár
hljómsveitir úr síðustu Músíktilraunum fremja rokkverk sín; Laglausir, Bróðir Darwins og Bootlegs.
Benóný sagði í samtali við Dægurmálasíðuna, að það væri skemmtilegt að Sykurmolarnir kæmu fram á
Rikkrokki, þar sem molarnir hefðu fyrst komið fram opinberlega á Rikkrokki fyrir tveimur árum.
Benóný auglýsir einnig eftir rokkkröftum. Meiningin er að bæta við 10 hljómsveitum öðrum og eiga þeir
sem áhuga hafa, að melda sig inn í Fellahelli, helst fyrir lok næstu viku. Hlustað verður á allar hljóm-
sveitirnar áður en ákvörðun um þátttöku er tekin. Að sögn Benónýs er æskilegast að hljómsveitir séu með
frumsamið efni og texta á íslensku. Það er þó ekki skilyröi. Hljómsveitir sem flytja númer annarra
sómasamlega eiga von.
Rikkrokk hefst um miðjan dag og stendur fram til miðnættis.
-hmp