Þjóðviljinn - 28.07.1989, Blaðsíða 9
Útvarpshlustun
EFF EMM
á toppnum
Útvarpsstöðin EFF EMM nv-
tur mestrar hylli hjá hlustendum
á aldrinum 14-29 ára samanborið
við hlustun hjá öðrum stöðvum á
höfuðborgarsvæðinu og hið sama
gildir hvað varðar hlustun þeirra
sem eru á aldrinum 14-49 ára.
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar sem SKÁÍS gerði
fyrir EFF EMM föstudaginn 21.
júlí á tímabilinu frá klukkan 17-
22 hlustuðu 62% þeirra hlust-
enda á aldrinum 14-29 ára sem
hlustuðu á útvarp þennan fyrr-
nefnda dag á EFF EMM.
FRETTIR
Seltjarnarnes
Róið á
sálnamiðin
Viljum snúa vörn ísókn. Samvinna með ungu
fólki með hlutverk ogsóknarpresti
Seltjarnarneskirkju
Við erum í þann veginn að
leggja í hann og ekki vanþörf
á þar sem kristindómurinn á í vök
að verjast og sótt að honum úr
ýmsum áttum. I þessum málum
sem öðrum sannast hið forn-
kveðna að það fískar enginn
nema hann rói, sagði Þorvaldur
Halldórsson.
Kristni félagsskapurinn Ungt
fólk með hlutverk hefur í sam-
vinnu við Sólveigu Láru sóknar-
prest á Seltjarnarnesi ákveðið að
efna til kvöldmessu á sunnudags-
kvöld í kirkjunni til að efla guðs-
orð meðal safnaðarins og annarra
sem áhuga hafa. Ákveðið hefur
verið að þetta boðunarstarf fari
fram næstu þrjár vikurnar í kir-
kjunni, á Eiðistorgi, miðbæ
Reykjavíkur, vinnustöðum og á
stofnunum eftir því sem verkast
vill.
Að sögn Forvaldar hefur orðið
mikil breyting á andlegum mál-
efnum hérlendis sem erlendis á
undanförnum árum. Austurlensk
trúaráhrif hafa eflst ma. á kostn-
að kristindómsins sem hefur átt í
vök að verjast fyrir þeim sem og
öðrum andlegum tískustraum-
um. En það er ekki aðeins að
kristin trú eigi í vök að verjast
heldur og einnig hin vestræna
menning. Þessu þurfi að breyta
hið fyrsta og snúa vörn í sókn.
Þorvaldur sagði það engum
vafa undirorpið að meira von-
leysis gætti nú meðal ungs fólks
en oft áður sem birtist meðal ann-
ars því að æ fleiri flýja land og í
sjálfsvígum sem Þorvaldur sagði
að hefðu stóraukist á liðnum
misserum.
- Boðunarstarf íslensku kirkj-
unnar þarf að efla og við viljum
leggja okkar af mörkum til þess
og í því skyni leggjum við úr höfn
á sálnamiðin á sunnudag í von um
góðan afla“, sagði Þorvaldur
Halldórsson. -grh
Fjallvegir
Flestir orðnir færir
Vegagerðin mun Ijúka við að opna allafjallvegi seinnipartinn ínæstu
viku, þremur tilfjórum vikum seinna en ímeðalári
Fjallvegir landsins opnast einn
af öðrum um þessar mundir,
þremur til ijórum vikum seinna
en í meðalári. Starfsmenn vega-
gerðarinnar stefna að því að opna
alla fjallvegi landsins fyrir jeppa-
umferð í lok næstu viku.
Sprengisandur er fær jeppum
en að norðanverðu verður að fara
um Bárðardal því bæði
Eyjafjarðar- og Skagafjarðarleið
eru lokaðar ennþá. Mikil aurb-
leyta er enn á veginum yfir
Sprengisand og menn því hvattir
til að leggja ekki í ferð þangað
nema á vel búnum bílum. Gæsa-
vatnaleið er opin en talsverður
snjór er þar enn.
Fyrir norðan voru Flateyjar-
daldsheiði og Reykjarheiði opn-
aðar í síðustu viku og í gær var
vegurinn frá Borgarfirði eystri
yfir í Loðmundafjörð opnaður.
Línuvegur undir Langjökli er
lokaður og sömuleiðis leiðin upp
að Hlöðuvöllum. Opið er í Land
mannalaugar og þaðan í Sigöldu
Frá skaftártungum í Eldgjá ei
opið og fært er í Lakagíga. Á
vestfjörðum var Tröllatungu
heiði og Steinadalsheiði opnuð
vikunni.
Búast má við því að fjallvegii
landsins verði fram í lok sept
ember en ef verðið verður skap
legt verða sumir þeirra færir frarr
undir áramót.
to/)kv\v
Föstudagur 28. júli 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 9