Þjóðviljinn - 28.07.1989, Qupperneq 15
Til móts
við
Kim II
Sung
„Okkar mikli elskaði og virti leiðtogi Kim II Sung" vísar alþýðunni
leiðina fram um veg. Líkneskið af leiðtoganum var reist á torgi í
höfuðborginni í tilefni sjötugsafmælis hans. Styttan er roðagyllt og
einir 20 metrar á hæð. Minna má nú gagn gera..
'■ yw.vwiyó'.'• ■• "
Rösklega tekið til matar síns í veislu með Norður-Kóreumönnum.
Sveinþór innbyrðir vænan bita af hundakjöti með tilheyrandi meðlæti.
Ekki er annað að sjá en rétturinn bragðist hið besta. Kannski er þarna
komin lausnin á vanda landbúnaðarins, - ný aukabúgrein sem gæti
gefist betur en loðdýraræktin. Myndir: Jóhann Björnsson
Fyrr í mánuðinum sneru sex
ungir íslendingar heim úr víking
alla leið austur í Asíu, nánar til-
tekið til Pyongyang höfuðborgar
Norður Kórcu. Tilefni fararinnar
í austurveg var að sækja 13.
Heimsmót æskunnar en mótið
var haldið í fyrsta sinni í Asíuríki.
Þjóðviljinn rákti á dögunum
garnirnar úr tveimur þessara víð-
förulu ferðalanga, þeim Jóhönnu
Eyfjörð og Sveinþóri Þórar-
inssyni, um mótshaldið og hvern-
ig þeim kom norður-kóreanskt
samfélag fyrir sjónir.
Að þessu sinni sótti mótið ungt
fólk frá 179 löndum, auk þess sem
35 alþjóðasamtök áttu fulltrúa á
mótinu. Þátttakendur munu hafa
veríð á milli 20 og 25 þúsund. Eins
og fyrr var mótið haldið undir
formerkjunum: „Gegn heims-
valdastefnu - fyrir friði, sam-
stöðu og vináttu“.
Samfélag þjóöanna
í smækkaðri mynd
En hver er tilgangurinn með
því að smala saman ungu fólki frá
öllum heimshornum á slíka uppá-
komu?
- Eins og þú nefnir réttilega
hittist fólk þarna frá öllum
heimshornum. Það eitt væri í
sjálfu sér nægjanleg réttlæting
rir því að mótið er haldið.
neitanlega víkkar það mjög
sjóndeildarhring manna að fá
tækifæri til að kynnast fólki frá
fjarlægum löndum, löndum sem
maður hefur dags daglega litlar
sem engar fregnir frá, sagði Jó-
hanna Eyfjörð.
Sveinþór tók fram að miklu
skipti að fá að heyra önnur og ný
sjónarmið og um leið að eiga þess
kost að fá að Ieiðrétta ýmsar
ranghugmyndir. - Þarna voru til
að mynda tvær sendinefndir frá
Kúvæt, önnur frá stjórnararmin-
um og hin frá stjórnarandstöð-
unni. Af því má sjá að þetta var
engin halelúja samkoma. Menn
skiptust á skoðunum, þótt allt
færi fram í sátt og samlyndi.
- Slík samskipti skipta ekki
síður máli fyrir íslendinga en
aðra. Þarna gefst kærkomið tæki-
færi til að koma á samskiptum við
ýmis samtök sem ella er ekki
auðvelt um vik að nálgast. Til
dæmis áttu Afríska þjóðarráðið
og PLO sendinefndir á mótinu.
Þetta er ekki síðri landkynning en
útflutningur á fegurðardísum,
sagði Jóhanna.
Meðan á mótinu stendur fara
fram umræður milli þátttakenda
um „þjóðþrifamál“ sem brenna á
ungu fólki um víða veröld. Á
meðal þeirra málefna sem skipu-
lagðar umræður fóru fram um má
nefna jafnrétti kynjanna,
mannréttindamál, friðarmál,
baráttu gegn heimsvaldastefnu
og málefni barna og ungmenna.
- Þessum umræðum var síður
en svo stýrt af Norður-
Kóreumönnum og umræður urðu
mjög heitar á köflum, sagði
Sveinþór.
Jóhanna sagði að það hefði
vakið athygli manna hve kóre-
önsku túlkarnir lögðu sig alla
fram við að túlka allar umræður
kórréttogm.a. hefðuþeirþýttöll
blótsyrði sem hrutu af vörum
ræðumanna í hita leiksins.
- Þarna var ekki sama að heilsa
og þegar mótið var haldið í
Moskvu fyrir nokkrum árum. Þá
voru sovésku túlkarnir sakaðir
um að þýða einungis það sem þeir
töldu að aðrir hefðu gott af að
heyra - annað ekki.
Kim — hinn ástsæli
leiðtogi
Oft á tíðum hefur viljað ein-
kenna undirbúning Heimsmót-
anna að stjórnvöld þar sem mótið
er haldið hafa keppst við að gera
umgjörð mótsins sem glæstasta.
Ráðist er í ýmsar stórfram-
kvæmdir sem síðar er ætlað að
standa sem bautasteinar um
mótið og ekki síður til að minna á
drift stjórnvalda.
Ráða má af skrifum erlendra
blaða um mótið að óhemjumikið
hafi borið á þessari hlið mála hjá
Norður-Kóreumönnum. Að
sögn enska stórblaðsins Obser-
vers eyddu Kóreumenn um 4,7
miljörðum Bandaríkjadala í upp-
byggingu fyrir mótið.
Sveinþór og Jóhanna sögðu að
sjálfsagt mætti gagnrýna
stjórnvöld fyrir að leggja ríka
áherslu á ytri umgjörð mótsins.
Það mætti þó ekki líta fram hjá
þeirri staðreynd að flest ef ekki
öll þau mannvirki sem drifið var í
að reisa fyrir mótið nýttust í fram-
tíðinni.
- Um tuttugu þúsund íbúðir
voru byggðar fyrir mótið. Þær
munu auðvitað nýtast íbúunum.
Það má geta þess að fæstir móts-
gestir bjuggu á hótelum. Skýring-
anna fyrir hluta af þessari gífur-
legu uppbyggingu, eins og upp-
byggingu íþóttamannvirkja, er
að rekja til ólympíuleikanna.
Eins og flestum ætti að vera í
fersku minni lögðu Norður-
Kóreumenn kapp á að síðustu
leikar yrðu haldnir í báðum
hlutum landsins, ekki bara í
Suður-Kóreu, sögðu þau
Sveinþór og Jóhanna.
Samkvæmt frásögum þátttak-
enda á mótinu sem birst hafa í
erlendum blöðum, virðist sam-
dóma álit að helst hafi stungið í
augu allur sá ótölulegi fjöldi
minnismerkja sem reist hafa ver-
ið til dýrðar þjóðarleiðtoganum
Kim II Sung. Meðal síðustu stór-
virkja í þessa átt má nefna
minnismerki í tilefni 70 ára af-
mælis Kims. Þar af er eitt sem er
170 metra hátt og alsett 25.550
aðalsteinum - einum fyrir hvern
þann dag sem Kim 11 hafði lifað er
hann komst á áttræðisaldurinn.
14 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. júlí 1989
Jóhann Björnsson, einn Norður-Kóreufaranna, hvílirlúin bein undireinu
af ótalmörgum minnismerkjum um þjóðarleiötogann.
Allsstaðarerubörninsömviðsig, forvitin og athugul. Einbeitnin sem skín úr augum leynir sér ekki.
- Víst kemur það manni dálítið
á óvart að sjá hve mikil rækt er
lögð við að halda nafni Kim II
Sungs á lofti, sem og reyndar
sonar hans Kim Jong II, sem
fullvíst þykir að taki við stjórnar-
taumunum eftir föður sinn.
Leiðtogadýrkunin á þó sínar
eðlilegu skýringar. Foringjadýrk-
un hefur löngum loðað við
austur-asísk ríki og nægir þar að
nefna dýrkun Japana á keisaran-
um. Reyndar þarf ekki að fara til
Asíu til að finna hliðstæður þótt
ekki séu eins stórkarlalegar.
Hvernig láta ekki Bretar með
konungsfjölskylduna?
Til marks um það hve þjóðar-
leiðtoginn er áberandi í kóre-
önsku þjóðlífi má nefna að við
heimsóttum einn daginn 500
barna dagheimili, sem var til
mikillar fyrirmyndar hvað að-
búnað snerti. Þarna voru fjög-
urra og fimm ára börn. Á veggj-
um voru myndir af leiðtoganum.
Sama gilti reyndar á þeim heimil-
um sem okkur var boðið inn á.
Öðrum þræði virðist þessi
dýrkun þjóna þeim tilgangi að
minna menn á sögu lands og
þjóðar. Á barnaheimilinu sem
við minntumst á sáum við hvar
börn fóru með frásagnir af ýms- .
um merkum áföngum úr þjóðar-
sögunni, í leik og þuluformi. Sér-
stök áhersla virðist vera á því að
halda frammi sögu strfðsins gegn
Japönum og síðar Kóreustríðinu
sem leiddi til skiptingar landsins.
Við verðum að gera okkur
grein fyrir því að lengst af þessari
öld er saga Kóreumanna ein ó-
slitin barátta gegn erlendum yfir-
ráðum og íhlutunum. Því er ekki
að undra að sögudýrkunin sé
áberandi og hægasti leikurinn er
að persónugera söguna til að hún
verði sem eftirminnilegust. í
þeim efnum erum við fslendingar
engir eftirbátar annarra eins og
við öll þekkjum, sögðu þau
Sveinþór og Jóhanna.
Þar brást Kóreu-
mönnum bogalistin
Þrátt fyrir að Jóhanna og
Sveinþór séu sammála um að
skipulag mótsins hafi verið til fyr-
irmyndar, varð þeim Kóreu-
mönnum þó hált á svellinu í tví-
gang.
- Þannig var að Amnesty-
samtökin ætluðu að senda sendi-
nefnd á mótið. Sendinefnin
komst þó aldrei á leiðarenda.
Skýringar Kóreumanna á þessu
voru þær að allar flugvélar hefðu
verið yfirbókaðar og því hafi
Amnesty-menn orðið að bíta í
það súra epli að verða stranda-
glópar.
Þetta er ekki alveg
sannleikanum samkvæmt. Amn-
esty hefur undanfarin ár ásakað
stjórnvöld í Norður-Kóreu fyrir
að flytja aldraða, sjúka og geð-
sjúklinga út til sveita og sjálfsagt
hafa þessar ásakanir verið til þess
að stjórnvöld fýsti lítt að fá sendi-
nefnd frá samtökunum til lands-
ins, allra síst ef þær eiga við rök
að styðjast.
Gátuð þið merkt á einhvern
hátt að svo væri?
- Nei, enda höfðum við ekki á
neinn hátt tækifæri til að ganga úr
skugga um það. Fyrstu dagana
sem við dvöldumst f höfuðborg-
inni veittum við því eftirtekt að
hvergi var að sjá gamalt fólk. En
þegar kólnaði í veðri einn daginn
og það tók að rigna flykktist ga-
malt fólk út á göturnar. Þegar hit-
inn var meiri virðast aldraðir
hreinlega hafa haldið sig innan
dyra eða í húsagörðum í skuggan-
um.
Aftur á móti urðum við aldrei
vör við fatlaða. Mér er minnis-
stætt að í samtali við einn Kóreu-
manninn kom fram að hann sagð-
ist aldrei hafa séð fatlaðan mann,
sagði Jóhanna.
Jóhanna Eyfjörð og Sveinþór Þórarinsson eru nýkomin úr víking [ austurveg. Mynd Kristinn.
- f Norður-Kóreu tíðkast enn
að safna fötluðum saman á
meðferðar- og umönnunarstofn-
anir út til sveita, eins og tíðkaðist
hér á landi til skamms tíma. En
hvort ásakanir Amnesty eiga við
rök að styðjast getum við ekki
lagt dóm á, sagði Sveinþór.
Hitt tilfellið sem Jóhanna og
Sveinþór nefndu um „mistök“
mótshaldaranna var þegar sendi-
nefndirnar frá Norðurlöndunum
boðuðu til fundar um ástandið í
Peking og öðrum borgum Kína-
veldis, vegna blóðbaðsins sem
þar varð er stjórnvöld gengu milli
bols og höfuðs á frelsishreyfingu
stúdenta og verkamanna.
- Þegar til fundarins átti að
halda brá svo einkennilega við að
aliar rútur, leigubflar og túlkar
voru hvergi nærri. Til fundarstað-
arins var löng og ströng ganga
fyrir flesta og því var úr vöndu að
ráða. Þrátt fýrir þessa óvæntu
uppákomu tókst 400 manns að
komast til fundarins um síðir þar
sem samþykkt var ályktun til
stuðnings baráttu stúdenta og
verkamanna og kínversk stjórn-
völd fordæmd fyrir óhæfuverkin.
- Af hálfu opinberra aðila
fengum við síðar þá kúnstugu
skýringu að óþægindin sem við
urðum fyrir hefðu stafað af
óvæntri iðrakveísu sem blossað
hefði upp og getur hver lagt sinn
skilning í það, sögðu þau Jó-
hanna og Sveinþór.
Sjálft fyrirmyndarríkiA
eða...?
En hvernig skyldi tveimur ís-
lendingum koma norður-
kóreanskt samfélag fyrir sjónir?
Norður-Kóreumenn hafa
löngum haldið því stíft fram að
þeim hafi tekist að byggja upp
sjálft fyrirmyndarríkið og smjör
drjúpi þar af hverju strái. Varla
er það sannleikanum samkvæmt?
- Við erum reynslunni ríkari
eftir að hafa farið þessa ferð. Sú
mynd sem við gerðum okkur af
Norður-Kóreu var ærið brota-
kennd. Jafnvel þótt við höfum
ekki fengið rétt nema smjörþef-
inn af kóreönsku samfélagi, telj-
um við að sjón sé sögu ríkari. Við
fengum fyllri mynd af landi og
þjóð en áður.
Jóhanna og Sveinþór sögðu að
greinilegt væri að allir hefðu nóg
að bíta og brenna, alla vega í höf-
uðborginni. Það opinbera sæi
íbúunum fyrir fjölþættri opin-
berri þjónustu þeim að kostnað-
arlausu. fbúunum væri úthlutað
endurgjaldslaust íbúðarhúsnæði.
í verslunum virtist nægt framboð
matvöru, klæða og annars
nauðsy n j avarn ings.
- Munaður er eðlilega ekki
eins mikill og við eigum að venj-
ast í neyslusamfélögum Vestur-
landa, enda er Norður-Kórea fá-
tækt og lokað samfélag, sagði
Sveinþór.
- Það vakti athygli okkar hve
fréttaflutningur erlendis frá er
greiður inn í landið. Hins vegar er
sjáifsagt rétt að fréttaflutningur
frá Kóreu er takmarkaðri. Til
Föstudagur 28. júlí 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 15
marks um það hve erlendir
menningarstraumar eiga greiðan
aðgang að landinu virðist ungt
fólk mjög vel að sér um vestræna
rokktónlist. Ég man eftir einum
ungum Kóreubúa sem var með
allt á hreinu í þeim efnum þannig
að ég varð að gjalti þegar ég við-
raði mína þekkingu á dægurmál-
unum, sagði Jóhanna.
Jóhanna og Sveinþór sögðu að
skipting Kóreu væri mjög ofar-
lega í huga íbúanna. Suður-kó-
reönsk stjórnvöld fengju bága
einkunn hjá norðurbúum, en við-
mælendur þeirra, allir sem einn,
hafðu lagt á það ríka áherslu að
Kórea væri eitt land og kórean-
ska þjóðin ein þjóð, hvað sem
stjórnmálaágreiningi og ólíku
stjórnarfari landshlutanna liði.
Einn góðan veðurdag kæmi að
því að hiutarnir sameinuðust.
-rk