Þjóðviljinn - 09.03.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 09.03.1990, Blaðsíða 2
0 hjálpa framtakinu GARÐINUM ÞEIR ÆTLA AÐ LYFTA KJÖRUNUM Aðilar vinnumarkaðarins leggj- ast í líkamsrækt. Fyrírsögn í Tímanum ENNERUTIL KJARKMIKLIR MENN Ég heyrði nýlega einhvern ske- leggan mann spvrja hvað væri kennt í Háskóla Islands. Tíminn Ég, Skaði, skil stundum hvorki upp né nið- ur og sannast enn hið fornkveðna: þeim skýst þótt skýrir séu. Til dæmis finnst mér það út í hött þegar hver félagi minn í Sjálfstæðisflokknum af öðr- um og jafnvel Morgunblaðið líka fer að ausa af sínu hjartablóði út yfir vaxandi stéttaskipt- ingu í landinu. Ég á ekki orð. Hvað eru menn að kássast upp á annarra manna jússur og tala um stéttir og ranglæti og svona þrugl, núna þegar jafnvel Rússar slá striki yfir alls- konar kommúnistakjafthátt og segja mönnum að flýta sér að verða ríkir út á sína útsjónarsemi og dugnað? Þeir eru meira að segja farnir að skamma sjálfa sig hástöfum í blöðunum fyrir að ala á leti og ómennsku með öryggishjali, atvinnutryggingu og öðru jafnaðarbauki. Og svo ætla þeir Eykon og Moggastrák- arnir að fara að hífa upp þetta fólk sem ekki hefur dug í sér til að safna aurum og leggja í fyrirtæki og gera það gott. Ja svei því, ég segi nú ekki meir. Það er auðvitað vitað mál að ekki gengur öllum jafn vel að komast upp og áfram og á þann tind þar sem við öll munum standa, en það er bara um eitt að ræða og það er að gefast ekki upp því aldrei mun okkur hugvitið skorta. Ég var til dæmis að tala við Ólaf Bjarna frænda minn (hann heitir bæði eftir Ólafi Thors og Bjarna Ben), og hann var eitthvað svo daufur í dálkinn, strákgreyið. Ég spurði hann að því hvers vegna hann væri ekki að reka fyrirtæki eins og venjulega. Ég er ekkert að slíta mér út á því, sagði hann. Það er sama hvað maður leggur sig fram, aldrei er skapað það rétta rekstrarum- hverfi svo að athafnaskáld eins og ég geti ort mína firmadrápu í annála efnahagslífsins. Jamikasskoti, sagði ég. Hvað áttu við? Sjáðu til Skaði frændi, sagði Ólafur Bjarni. Fyrst fór ég í rækjuvinnslu,. En þessir and- skotar vildu ekki láta mig frá nógu stóran kvóta til að standa undir fjárfestingum og ég fór á hausinn. Þá fór ég í loðdýrabúskap, en það var einmitt um það leyti sem grænu fas- istarnir fengu ofurást á minkum og refum og eyðilögðu allan móral og verðlag í þeim bisn- ess svo aftur fór ég á hausinn. Þessu næst fór ég í hótelrekstur vegna þess að það lá í augum uppi að allir vildu koma til (slands að halda fund eins og Reagan og Gorbatsjov, en þeir fóru að funda annarsstaðar svo að kúnnarnir hættu að koma um leið og ég var búinn að festa upp gardínurnar og aftur fór ég á hausinn. Þú hefur vonandi ekkert meitt þig við það? spurði ég. Nei, Skaði, það er minnsta mál á íslandi að fara á hausinn. Það er ekki það. Það er bara þessi skepnuskapur að alltaf er það einhver sem spillir rekstrarandrúmsloftinu fyrir mér, skilurðu. Ég fór til dæmis næst í fiskeldið og þá gerist það allt í einu að einhverjir asnar út í heimi eru líka að framleiða lax og þessi auma kommaríkisstjórn hér vill ekki ábyrgjast mitt sjálfstæða og djarfa framtak eins og ætlast var til. AumingjaJþú, sagði ég. Já, sagði Ólafur Bjarni. Og þegar fiskeldið mitt var farið á hausinn þá prófaði ég svolítið að selja bláar myndir og svoleiðis og ekki er ég fyrr byrjaður á því en þessar fasistakerl- ingar koma og loka fyrir allt með frekju og banni eins og kommúnistar. Ég segi það satt Skaði, það er ekkert frelsi í þessu landi. En Ólafur Bjarni minn, sagði ég, þú mátt ekki gera sjálfum þér, ættinni og einkafram- takinu þann andskota að fara að gefast upp strax. Sjö sinnum falla réttlátir og standa upp aftur. Öfund knýr og eltir mig til ókunnugra þjóða, sagði Ólafur Bjarni. Hvað viltu að ég geri? Eitt svið er óreynt og gulltryggt í fram- kvæmdinni, sagði ég. Og hvað er það? spurði frændi minn. Það er framleiðsla á þeirri vöru sem aldrei verður nóg af, sagði ég. Fyrir þá vöru er markaðurinn ótæmandi eins og himingeim- urinn. Þessi vara heitir æðruleysi og hugarró. Nú skaltu slá næsta lán og stofna Ró- semdarmiðlunina fyrir alla þá sem vantar rekstraraðstæður og þú munt verða langlífur í landinu. YFIRÞYRMANDI SKORTUR Á AURA- LEYSI Efnahagssérfræðingar hafa áhyggjur af þeim miklu fúlgum lausafjár sem safnast hafa í bank- akerfinu. Tíminn JA ÞÓTT VIÐ TÖPUM í HAND- BOLTA... íslensk námsmey (í New York) leigir íbúð með þekktum kvik- myndaleikara. Fynrsögn í Morgunblaóinu LIFI SAKLEYSIÐ! Ég útskýrði hægt og skilmerki- lega fyrir henni að ef ekki fædd- ust kálfar þá kæmi heldur engin mjólk. Nú rann upp ljós fyrir dömunni og hún roðnaði. Morgunbiaöió HIN LÚMSKU ÁHRIF KLÁMIÐNAÐARINS Bónda einn, rakinn Framsóknar- mann, dreymdi þann draum að hann væri liggjandi í rúmi sínu. Fannst bónda þá að inn í herberg- ið kæmi óboðinn gestur... sjálfur Jósep Stalín. Er ekki að orðalengja það að Stalín bregður sér strax upp í til bóndans og tekur þegar að leita á SIÐASTA VIRKI SJÁLFSAFNEITUN- ARINNAR Stúlkurnar sem tóku þátt í ungfrú Hollywood keppni tímaritsins Samúels, komu saman í Hard Rock Café síðastliðið fimmtu- dagskvöld til að gæða sér á steikum og rjómaís í fyrsta skipti í marga mánuði. D V ÍSLENSK FYNDNI Vegna tilmæla kvennanna um að þingmönnum okkar verði sýndar einhverjar svona (klám)myndir legg ég til að alþingismennirnir okkar fari og horfi á það sem þeir gera með sínum konum - og hlæi að. DV SKYLDI EKKI MEGA SKERAHANA SUNDUR.. Ástæðan fyrir því að Liz Taylor ætlar bara að láta frysta sitt fagra höfuð (þegar hún er dauð) mun vera sú að hún er ósátt við líkama sinn og vill gjarna fá nýjan. DV 2 SlÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 9. mars 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.