Þjóðviljinn - 09.03.1990, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 09.03.1990, Blaðsíða 13
læknisskoðuninni þurfti ég að segja frá öllum atburðinum aftur, sem er mjög erfitt. Það er samt nauðsynlegt fyrir alla skýrslutöku og þess háttar. Eftir þetta allt saman átti að fara með mig upp í Auðbrekku þar sem Rannsóknarlögreglan er til húsa, til að klára skýrslutök- una. Ég gat ekki hugsað mér það og bað um að fá að fara heim. Þá var komið fram undir morgun, en nauðgunin átti sér stað um 2 leytið um nóttina. Lögreglumað- urinn fylgdi mér heim til mömmu minnar, ég gat ekki farið heim til mín því ég er þriggja barna móð- ir. Og þar hélt skýrslutakan áfram. - Fékkstu enga aðstoð eða hjálp um nóttina? - Nei, en að vísu sagðist lög- reglumaðurinn hafa spurt mig hvort ég vildi fá konu frá Kvenna- athvarfinu til að vera með mér í þessu, en ég hafi sagt nei. Ég man ekki eftir því. Maður er svo dof- inn og náttúrlega í algjöru sjokki, þannig að hugsunin er kannski ekki alveg skýr. Þetta er einmitt eitt af þeim at- riðum sem við hjá Samtökunum viljum breyta. Við viljum að lög- reglan hringi í okkur um leið og kæra um nauðgun er lögð fram. Það er gífurlega mikilvægt að fá aðstoð strax. Þá fyrst gat ég grátiö Ég var sem sagt heima hjá mömmu og seinnipartinn var ég orðin ansi illa farin. Læknirinn sem skoðaði mig hafði lagt á það ríka áherslu að ég hefði samband við Kvennaathvarfið, og skrifaði símanúmerið fyrir mig á miða. En ég hafði hvorki hugsun né uppburði í mér til að hafa sam- band. Mömmu leist hins vegar ekki á ástand mitt þama um eftir- miðdaginn, þannig að hún hringdi. Það kom síðan alveg yndisleg kona frá Samtökunum, alveg blá- ókunnug en hún settist hjá mér, tók utan um mig og sagði mér að gráta. Og þá fyrst gat ég grátið. Hún þurfti ekki að segja neitt, hún skildi alveg hvernig mér leið. Hún hjálpaði mér ofsalega mikið. Ég þurfti að fara tvisvar í viðbót til rannsóknarlögreglunn- ar og hún fór með mér. Það var gífurlegur stuðningur. Ég efast um að ég hefði komist í gegnum þetta án hennar stuðnings. Þessir óhuganlegu fordómar í garð kvenna sem hafa lent í nauðgun, eru ótrúlegir. Þessar sögur sem heyrast um skýrslu- tökur og yfirheyrslur eru alveg sannar. Ég var að vísu nokkuð heppin, því málið lá alveg ljóst fyrir. Það var komið að mannin- um og ég hafði vitni. En það sem sumar konur þurfa að ganga í gegnum er ekkert grín. Það er einmitt þessi aðstoð og ráðgjöf sem hefur vantað í þessu þjóðfé- lagi. Þessi samtök sem við erum að stofna, Samtök gegn ofbeldi, hafa það að markmiði að veita þessa aðstoð. Það er annað í þessu sambandi, sem er hvernig tekið er á móti konum sem hefur verið nauðgað. Fyrst er farið á slysadeildina, þaðan í læknisskoðun og svo framvegis. Að vera að þeytast með konur út um allan bæ er auðvitað fáránlegt. En nú stend- ur til að opna móttöku á einum stað, þar sem öll aðhlynning, skoðun, yfirheyrslur og skýrslu- taka fara fram. Allt á sama staðn- um. Og það er mjög gott mál. Eins og ég sagði áðan er mjög mikilvægt að kona sé með til að- stoðar í öllum þessum málum, allavega fannst mér það. Sérstak- lega í yfirheyrslum og skýrslu- tökum. En rannsóknarlögreglan var hálfpartinn á móti þessum samtökum okkar og treg til að vinna með okkur. Sem er mjög skrýtið og á miklum misskilningi byggt. Ég er alveg viss um að öll skýrslutaka yrði mun auðveldari og gengi betur ef slík aðstoð væri til staðar í öllum tilfellum. Réttarhöldin voru hryllileg Það er svo margt sem þarf að laga í þessu kerfi okkar. Til dæm- is í réttarhöldunum var ég bara vitni í málinu. Ég mátti ekki hafa neinn lögfræðing eða slíkt í rétt- arsalnum, nema auðvitað sak- sóknara. Mér finnst það fáránlegt vegna þess að lögmenn þessara afbrotamanna eru harðsvíraðir náungar og gera allt sem þeir geta til að gera lítið úr manni og snúa út úr. Þessi réttarhöld sem ég þurfti að ganga í gegnum voru vægast sagt hryllileg. Ég hef aldrei upp- lifað annað eins. Þar þurfti ég náttúrlega að segja frá öllu einu sinni enn, og upplifa atburðinn aftur og aftur. Mér var snúið fram og til baka, það var snúið út úr fyrir mér og lögfræðingurinn hans gerði allt sem hann gat til að gera mér þetta erfitt. Og þá kom hjálp þessara kvenna sér vel. Þær stóð við hliðina á mér allan tím- ann. Ég ákvað strax að kæra mann- inn, en það eru alveg ótrúlega margar sem kæra ekki. Leggja hreinlega ekki í það og það er líka algengt að konum sé boðin dóms- sátt eða skaðabætur. Enda er ekkert grín að ganga í gegnum þetta ferli sem fylgir kæru, svo ég tali nú ekki um fordómana. Svo ég komi að því aftur, hversu mikilvæg þessi aðstoð er, hvað þessar konur í Samtökunum eru að vinna gott og jákvætt starf. Ég held að ég væri dauð ef ég hefði ekki fengið þessa hjálp. Hvað heldurðu að séu margar konur úti í þjóðfélaginu sem hef- ur verið nauðgað, sem ganga um með hnút í maganum, vegna þess að þær hafa ekki fengið neina hjálp? Hafa ékki getað talað við nokkurn mann um þetta. Þær eru alveg ótrúlega margar. Það hafa komið til okkar hjá Samtökunum mjög margar konur, sem þannig er ástatt fyrir og leitað hjálpar. Sorg sem ég þarf að lifa með - Hvernig líður þér í dag? - Ég verð auðvitað að lifa með þessu og það tekur sinn tíma að læra það. Sem betur fer er ég það vel upplýst að þessi sjálfsásökun sem heltekur konur, var ekki lengi hjá mér. Reiðin kom tiltölu- lega fljótt. En fyrst var ég dofin, fannst ég algerlega dauð, þar til allt í einu reiddist ég heiftarlega. Síðan kom hatrið. Ég er líka orð- in það gömul, komin á fertugs- aldurinn, að ég er það þroskuð að ég gat með góðri aðstoð unnið úr þessum tilfinningum. Að ein- hverju leyti allavega. Þessi tilfinning er dálítið svip- uð sorgartilfinningu. Flestir hafa upplifað ástvinamissi og þá sorg sem honum fylgir. Þetta er dálítið líkt. Sorg sem ég þarf að læra að lifa með. Ég er talin sterk og sjálfstæð kona, en ég hefði alls ekki komist ein í gegnum þetta. Ég veit ekki hvernig ung stúlka sem er nauðgað, fer að því að komas't heil í gegnum þennan hrylling. Ég er auðvitað reið út í mann- inn fyrir að hafa gert þetta, en ég er líka reið út í kerfið. Það er svo mikið hægt að bæta og laga, ef viljinn er fyrir hendi. Það þarf aukna fræðslu um þessi mál, það þarf að efla umræðuna og það þarf meiri aðstoð við konur. Og ekki bara konur, því aðstandend- ur þurfa ekki síður hjálp og að- stoð. Þeir vita sjaldnast hvernig þeir eiga að bregðast við þegar dóttur eða eiginkonu er nauðgað. Ég get nefnt sem dæmi um hvað þetta kerfi okkar er gailað, að ef konu er nauðgað og hún verður óvinnufær í einhvern tíma, fær hún ekki sjúkrapeninga frá ríkinu. Hins vegar ef það er ráðist á þessa sömu konu og hún lamin niður og kannski fótbrotn- ar, og verður þar af leiðandi óvinnufær, þá fær hún sjúkrapen- inga. Nauðgun fellur sem sagt ekki undir skilgreiningu ríkisins um ofbeldi eða árás. Þetta er bara ein af brotalöm- um kerfisins í sambandi við nauðganir. Þær eru hins vegar ótal margar. Og það sem við í þessum ráðgjafarhóp erum að reyna að gera, er að breyta þessu. Samtökin eru til að hjálpa og að- stoða konur og ég vil hvetja allar þær sem hafa lent í nauðgun til að hringja eða koma. Það er alltaf einhver á vakt, allan sólarhring- inn og þarna fær kona alla þá að- stoð sem hún óskar eftir. Henni er ekki ýtt út í neitt, það eru ekki teknar neinar ákvarðanir fyrir hana, heldur er hún studd í því sem hún ákveður sjálf. Það er mjög mikið atriði að konan taki ákvarðanir sjálf í málinu, hvort hún vill kæra eða ekki, en við hins vegar styðjum hana í öllu. ns a aðstoð um fyrir námskeið sem hentar þeim sem afskipti hafa af fórnarl- ömbum kynferðislegs ofbeldis, stéttum eins og lögreglu, lögfræð- ingum, læknum, fóstrum osfrv. í miðstöðinni er ætlunin að sinna upplýsingasöfnun sem auðveldar fræðslustarf af þessu tagi.“ Tveggja ára málþóf - Er mikil þörf á því? „Já, það skortir verulega á að búið sé að samræma viðhorfin til kynferðislegs ofbeldis. Ég vil í því sambandi vitna til athugunar sem Áslaug Þórarinsdóttir gerði á því hvað hefði orðið um kærur sem lögreglunni bárust sl. tíu ár. Á þessum tíma voru lagðar fram 30 kærur vegna kynferðislegs of- beldis gagnvart börnum en að- eins fimm þeirra lyktaði með óskilorðsbundnum dómi. Helm- ingur málanna féll niður hjá rannsóknarlögreglu og ríkissak- sóknara og af þeim 14 málum sem komust til dómstóla lauk tveimur með dómssátt en aðeins fimm með óskilorðsbundnum dómi. Og málin eru lengi í meðferð, að meðaltali eru þau í hálft ár hjá lögreglu, hálft ár hjá saksóknara og heilt ár í sakadómi, samtals um tvö ár. Þessi tími sem með- ferðin tekur lýsir afar litlum skilningi á stöðu kvenna og barna, td. í þeim málum þar sem feður eru sakborningarnir. Yfirvöld hafa bent á að í sifj- aspellsmálum sé oft mjög erfitt að uppfylla sönnunarbyrðina. Börn eru ekki gjaldgeng vitni og sjaldnast eru nokkur vitni að því þegar þau eru beitt ofbeldi. Það er ekki nema um sé að ræða líkamlega áverka eða einhver komi að sem hægt er að sanna hvað gerðist. í þessum málum gilda að sjálfsögðu sömu reglur og í öðrum sakamálum og fram- hjá þeim er erfitt að komast því enginn vill að neinn sé dæmdur saklaus. Okkur sýnist hins vegar að það sé ekki jafnströng krafa gerð um sannanir í þjófnaðarmál- um og sifjaspellsmálum. Ég veit ekki hvað veldur en mér hefur dottið í hug að vegna þess að hér er um fjölskyldumál að ræða sé kerfið tregara til að dæma. Þetta er afskaplega slæmt því vont er að verða fyrir sifjaspell- um en verra að málið sé fellt nið- ur af dómara. Slíkt eykur veru- lega á sektarkenndina. Við viljum að almenningur hugsi um kynferðislegt ofbeldi og geri sér grein fyrir því að það er eins og hvert annað félagslegt vandamál sem þarf að vinna gegn. Það er rík tilhneiging til þess að fólk stingi höfðinu í sand- inn og segi að svonalagað komi bara fyrir aðra. En þetta getur hent okkur öll.“ Heimilið er hættulegast - Nýlega varð mikil umrœða um kynferðislegt ofbeldi í kjölfar handtöku Steingríms Njálssonar. Hvað fannst þér um þá umrœðu? „í hvert skipti sem svona um- ræður verða fjölgar þeim talsvert sem leita til okkar, oft með atvik sem gerðust fyrir mörgum árum. Ég er á því að öll umræða sem fram fer á skynsamlegum nótum sé af hinu góða því hún eykur þeim þor sem bera byrðar. Hins vegar var framlag fjöl- miðla til umræðunnar um Steingrím Njálsson ekki til fyrir- myndar. Það var reynt að gera hann að blóraböggli. Þarna var ókunnugur maður sem tældi til sín ungan dreng og þjóðin fékk útrás fyrir reiði sína. En málið er ekki svona einfalt. Það gleymdist til dæmis alveg í þessari umræðu að hættulegasti staðurinn fyrir konur og börn er heimilið, þar eru flestir ofbeldisglæpir fram- dir,“ sagði Guðrún Jónsdóttir. -ÞH Guðrún Jónsdsóttir félagsráðgjafi. Mynd: Kristinn. Föstudagur 9. mars 1990 nÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.