Þjóðviljinn - 09.03.1990, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 09.03.1990, Blaðsíða 22
Olafur Haukur Símonarson Gamalt vín á nýjum belgjum Það launakerfi, sem læknar hinna fornu keisara Kínaveld- is bjuggu við, hefur mér alltaf þótt til fyrirmyndar. í megin- atriðum var það þannig, að læknar fengu þokkaleg laun uns einhver veiktist, þá þurftu læknarnir að byrja að greiða sjúklingnum. Hélt þeim greiðslum áfram með stig- vaxandi þunga uns tekist hafði að lækna viðkomandi, eða sá kránki geispaði golunni í höndum læknanna. Stigi sjúk- lingurinn yfir móðuna miklu naut læknirinn engrar launa- tryggingar næstu tvö árin. A tímum hraðvaxandi út- gjalda ríkis, bæja og sveitar- félaga, svo ekki sé minnst á einstaklinga, væri ekki úr vegi að íhuga hvort þarna kunni að liggja í drafinu hagfræðilegur gimsteinn. Hið forna kínver- ska kerfi mundi að líkindum tryggja að við nálguðumst fremur en fjarlægðumst þau markmið sem heilbrigðis- kerfið óhjákvæmilega hlýtur að hafa, en þau eru: færri sjúklingar, færri læknar og þar af leiðandi minni útgjöld til heilbrigðismála. í dag er þró- unin öfug: sífellt fleiri sjúk- lingar, sífellt fleiri læknar og síaukin útgjöld til heilbrigðis- mála. I raun mundi þetta líta þannig út, að þú velur þér heilsugæslulækni, greiðir hon- um t.d. eitt þúsund krónur í laun á viku. Venjulegur heimilislæknir sinnir um þús- und manns, þannig að brúttó- laun læknisins, takist honum að halda heilsufari vinnuveit- enda sinna þokkalegu, mundu nema um einni miljón á viku. Hraki hinsvegar heilsufars- ástandi þessara þúsund manna verulega, má gera ráð fyrir að læknirinn þurfi að greiða talsverðan hluta launa sinna til þeirra sjúku. Varla verður talið nema eðlilegt að læknar hafi rétt á að endur- tryggja sig gagnvart drepsótt- um, sem mundu annars að lík- indum samkvæmt þessu kerfi koma þeim á vonarvöl. í gamla kerfinu hefðu þeir hins- vegar fitnað á heilsuleysi og kröm umbjóðenda sinna. Undirritaður hefur heldur aldrei sætt sig fullkomlega við þá skipan mála, að bifreiða- eigandi þurfi að greiða fyrir viðgerðir á bifreið sinni. A þeim vettvangi mætti líka áreiðanlega spara talsvert fé með því að taka upp hið forna kínverska kerfi, þótt ekki sé vitað til þess að það hafi náð til ábyrgðar á ökumönnum eða ökutækjum á sínum tíma, enda hvorki búið að finna upp bensínmótorinn né ABS bremsukerfið. En markmiðið yrði vita- skuld að draga framleiðendur bifreiða, sem eru taldar mestu manndrápstæki er Homo sap- iens hefur fundið upp, til ábyrgðar, alveg á sama hátt og foreldri ber mikla ábyrgð á ástandi og gjörðum afkvæma sinna. Fyrirkomulagið yrði að líkindum þannig, að framleið- endur væru eftirlitsskyldir með tæknilegu ástandi öku- tækis, en einnig kunnáttu, hæfni og viðhorfum öku- manns til annarra vegfarenda. Á sama hátt og hver maður færi mánaðarlega til sfns heilsugæslulæknis, sem reyndi að tryggja að skjólstæðing- urinn yrði ekki veikur með því að lesa honum pistilinn um mataræði, útivist, slökun og heilbrigði í fjár- og kynferðis- málum, þá færi skjólstæðing- urinn mánaðarlega á bifreiða- verkstæðið þar sem fjöl- kunnugir bifvélavirkjar grannskoðuðu ökutækið og tryggðu að það væri í besta husanlegu ástandi, en verk- stæðisformaðurinn héldi á meðan stuttan fund með öku- manni sem hæfist á innhverfri íhugun, en síðan yrði farið yfir öll helstu atriði er snerta ábyrga hegðan undir stýri, til- lit til annarra ökutækja og ökumanna, en þannig gæti framleiðandinn og eftirlits- verkstæði hans best reynt að firra sig hugsanlegum útgjöld- um vegna bilana á tækinu sjálfu og fíflslegrar hegðunar ökumanns á götunum. Ný viðhorf, ný framtíðar- sýn! Virgill á gott, hann á enga foreldra eða aðra ættingja, sem ævinlega eru til trafala... Ólöf Ýr Árnadóttir í hlutverki Virgils. Virgill og vinir hans VIRGILLLITLI eftir Ole Lund Kirkegaard Leikfélag Kópavogs sýnir Leikstjóri: Ásdís Skúladóttir Leikmynd og búningar: Gerla Þýðing, textar og tónlist: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson Lýsing: Egill Örn Árnason Leikfélag Kópavogs frumsýndi á laugardaginn við góðar undir- tektir gesta sinna þriðja leikritið eftir barnabókum danska rit- höfundarins Ole Lund Kirke- gaard sem lést fyrir fáeinum árum. Minningu hans er áreiðan- lega haldið eins vel á lofti á ís- landi og í heimalandi hans, og nægir að minna á hinn sívinsæla Gúmmí-Tarsan, sem öll börn elska þrátt fyrir grimmdina undir gamansömu yfirborði sögunnar (eða kannski vegna hennar?). Nýja sýningin er byggð á sam- nefndri sögu um Virgil litla sem hvorki er samfelld saga né eins rismikil og Gúmmí-Tarsan. Sýn- ingin er heldur ekki samfellt leikrit heldur safn af stuttum at- riðum, atvikum úr lífi stráksins Virgils og vina hans, Tótu Siggu og Karls Emils. Þau búa í litlu þorpi og gera ýmislegt sér til dægrastyttingar: reyna að finna maka handa öldungis aleina storkinum á þaki kaupmanns- hússins, stríða kennaranum sín- um, hleypa upp afmælisveislu heima hjá Karli Emil, leita að fjársjóði og veiða dreka. Milli at- riða var stundum nótt með rökkri á sviðinu og tungli á himni, og leikhúsgestirnir ungu sýndu full- an skilning á því að Virgill þyrfti líka stundum að sofa. Ur þessari blöndu varð þétt og hröð sýning, soðin saman með mörgum glað- værum söngvum og fram reidd með mikilli kátínu. Rós í hnapp- agat Ásdísar Skúladóttur leik- stjóra. Virgill (Ólöf Ýr Árnadóttir) er eins konar Lína langsokkur. Hann á enga foreldra eða aðra ættingja - sem ævinlega eru til trafala eins og börn vita. Þess vegna þarf hann aldrei að þvo sér eða fara út í búð, vaska upp eða vinna önnur leiðindaverk sem foreldrum er svo tamt að fela börnum eða borða hollan mat. Drekkur bara appelsín í morgun- mat og étur lakkrísrör. í stuttu máli á hann gott. Hann sefur í þægilegu hengirúmi í hænsna- kofa, í sömu fötunum og hann er í á daginn og hefur aldrei heyrt um fyrirbærið „náttföt“ sem Karl Emil þarf að klæða sig í á kvöldin. Virgli finnst náttföt reyndar veru- lega spennandi þangað til hann fréttir að til að komast í þau verði maður fyrst að fara í bað; þá blöskrar honum. Eina eftirlitið sem Virgill fær er frá hananum í hænsnakofanum sem vekur hann á morgnana til að fara í skólann. Þetta er sem sagt verk um stór- SIUA AÐALSTEINSDÓTTIR feflt félagslegt vandamál: munaðarlaust barn sem sefur umhirðulaust í hænsnakofa og virðist ekki vera neins staðar í fæði, og má nærri geta að hann fengi ekki að vera í friði annars staðar en í leikhúsinu í bænum Kópavogi þar sem félagsleg þjón- usta er betri en annars staðar ger- ist. Slíkur er máttur listarinnar. Andstæðan við Virgil er Karl Emil (Frosti Friðriksson) lilið- stæða Tomma og Önnu í Línu- bókunum. Hann á afskaplega smáborgaralega foreldra og er ákaflega þægur og prúður dreng- ur sem alltaf spyr mömmu sfna. Gegn vilja þeirra heillast hann af útigangshrossinu Virgli sem aldrei þarf að biðja neinn leyfis. Það hefur löngum verið Akkilesarhæll góðu barnanna. Sama er að segja um Tótu Siggu (Jóhönnu Pálsdóttur). Uppruni hennar og aðstæður eru alveg á huldu í leikritinu, en hún kannast heldur ekki við náttföt. í sögunni heitir hún reyndar Óskar og er tvímælalaust til bóta fyrir verkið að hann skipti um kyn. i Mér datt í hug meðan ég horfði á sýninguna með hinum börnun- um að leikstíll þöglu kvikmynd- anna lifði ennþá góðu lífi í barna- leikritum. Öll persónusköpun er ýkt, svipbrigði eru meiri, hreyf- ingar stærri og hljóð hærri en við eigumaðvenjastíleikhúsi. Þarna lifa líka stereótýpurnar þó að þær séu löngu dauðar í raunveru- leikanum: kennslukonan viðutan sem dettur ekkert í hug annað enn æpa á nemendur sína, vina- legi kaupmaðurinn á horninu sem gefur börnum lakkrís, giftingarsjúka grannkonan, mamman með svuntuna og svo framvegis. Krakkarnir þrír voru hæfilega stórkarlalegir í hlutverkum sín- um. Ólöf Ýr er ágæt leikkona sem á mörg skemmtileg svip- brigði og hreyfingar, en það var svolítið erfitt að muna eftir því að hún ætti að vera strákur. Frosti lét Karl Emil taka sjálfan sig af- skaplega hátíðlega sem fyrir- myndardreng og bjó til sann- færandi persónu. Tóta Sigga var ekki eins mótuð og strákarnir frá höfundar hendi, en Jóhanna bjó til sprækan stelpugopa. Sviðið í Félagsheimili Kópa- vogs er lítið og erfitt um vik að setja þar upp heilan bæ sem krakkar ærslast um. Þar risu þó litrík hús undan handarjaðri Gerlu, í stíl við teikningar Ole Lund, snúrustaurar, grindverk og hvaðeina, auk þess sem hús Karls Emils gat opnast og hleypt okkur inn! Og skólanum var rennt inn og út að vild. Snjallt var að láta leikinn færast fram á gólf- ið þegar krakkarnir fara út fyrir bæinn, út á villta svæðið þar sem alls konar ófreskjur geta legið í leyni fyrir forvitnum krökkum. Drekinn var gerður af miklum hagleik eins og glöggt heyrðist í salnum þegar hann rak hausana út úr gömlu myllunni. Þýðing Aðalsteins Ásbergs var á tilgerðarlausu máli og lögin hans hljómuðu vel; Fjársjóðs- lagið er einna minnisstæðast. Allt í allt: Ágæt skemmtun. Sonnettur Shakespeares og tónlist frá endur- reisnartímanum Menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar gengst fyrir bókmennta- og tónlistardagskrá í Hafnarborg næstkomandi sunnu- dagskvöld kl. 20.30. Þar verða nokkrar af sonnett- um Shakespeares lesnar bæði á frummálinu og í íslenskri þýðingu Daníels Á Daníelssonar. Flyt- jendur verða Oliver Kentish og Arnar Jónsson. Þá munu þau Camilla Söderberg blokkflautu- leikari, Ólöf SesseljaÓskarsdótt- ir víóluleikari og Snorri Örn Snorrason lútuleikari flytja tón- list frá endurreisnartímanum. Miðasala verður í Hafnarborg á laugardag og sunnudag kl 14-19. 22 SfÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 9. mars 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.