Þjóðviljinn - 09.03.1990, Page 6
Heitasti áratugur aldarinnar
En vísindamenn deila um þátt koldíoxíðmengunar
í hækkandi hitastigi
Síöasti áratugur var sá heitasti
á jörðinni á þessari öld og rösk-
unar á hefðbundnu veðurfars-
mynstri hefur gætt um allan
hnöttinn. Engu að síður greinir
vísindamenn á um hvort þessar
breytingar orsakist af koldíox-
íðmengun í andrúmsloftinu, eða
hvort orsakanna sé að leita ann-
ars staðar.
Á ráðstefnu sem bandaríska
vísindaframfarafélagið stóð ný-
lega fyrir í New Orleans í Banda-
ríkjunum kom fram að vísinda-
menn telja að það muni taka þá
10 ár að vinna upp fullnægjandi
tölvuforrit til þess að geta sagt
fyrir um veðurfarsbreytingar til
lengri tíma og skilið það flókna
orsakasamhengi sem ræður
veðurfarinu á jörðinni.
Samkvæmt þessu mun spá sú,
sem nýverið var kynnt hér á
landi, og gerði ráð fyrir að gróð-
urhúsaáhrifin myndu orsaka
kólnun hér á landi fyrst í stað,
ekki vera byggð á óyggjandi for-
sendum.
Vísindamenn greinir ekki á um
að brennsla olíu, kola og lífrænna
gastegunda með tilheyrandi kol-
tvíoxíðmengun í andrúmsloftinu
muni loka hitageislun sólarinnar
inni í lofthjúpi jarðarinnar og
skapa svokölluð „gróðurhúsa-
áhrif“ með hækkandi hitastigi.
Hins vegar segjast vísindamenn-
irnir ekki geta fullyrt um að gróð-
urhúsaáhrifanna gæti þegar eða í
hve miklum mæli þeirra gæti nú í
hitabreytingum á jörðinni.
Óvissuþættir
Veðurfar á jörðinni hefur alla
tíð tekið breytingum, og slíkar
breytingar munu halda áfram án
tillits til hvort gróðurhúsaáhrif-
anna gætir eða ekki. Pess vegna
er ágreiningur ríkjandi á meðal
vísindamanna um orsakir þeirrar
röskunar á veðurfarsmynstrinu
sem vart hefur orðið á þessum
áratug, er haft eftir einum þátt-
takenda ráðstefnunnar. Til dæm-
is hefur hitastig víðast á jörðinni
farið hækkandi frá lokum síðari
heimsstyrjaldar, en heitasti ára-
tugurinn í Bandaríkjunum var
engu að síður4. áratugurinn, þ.e.
áður en iðnvæðingin komst veru-
lega á skrið. Og þótt hitastigs-
hækkunin hafi mælst í Alaska, þá
hefur hitastig í N-Kyrrahafi farið
kólnandi.
Vísindamenn hafa smíðað
fimm flókin tölvuforrit til þess að
segja fyrir um langtímabreyting-
ar á veðurfari. Þótt þessi forrit
séu mötuð á sömu forsendum, þá
eru niðurstöður þeirra allra mis-
jafnar hvað varðar veðurspá fyrir
næstu 50 árin. Reuter-fréttastof-
an hefur það eftir Roger Revelle,
yfirmanni vísinda- og tækniáætl-
unar Kaliforníuháskóla í San Di-
ego að ástæðan sé að mikilvæg
„göt“ séu í öllum forritunum,
sem stafi af því að þekkingu vís-
indamanna á gagnverkandi áhrif-
um loftstrauma, sjávarstrauma
og annarra flókinna atriða er
ráða veðurfari sé ábótavant.
Jafnvel þótt afkastageta þeirra
risatölva sem notaðar eru við
þessar spár sé hundraðfölduð, þá
dugi það ekki til, því menn þekki
ekki nægilega vel eðlisfræði
veðurfarsbreytinga.
Aðgerðum
frestað
Hin alvarlega hlið þessa máls
er hins vegar sú, að þrátt fyrir
vissuna um að gróðurhúsaáhrifa
muni gæta, þá hefur óvissan um
tilvist þeirra og umfang nú orðið
skammsýnum stjórnmálamönn-
um tilefni til þess að fresta kostn-
aðarsömum aðgerðum til að
draga úr koltvísýringsmengun
andrúmsloftsins. Þannig hefur
Bush Bandaríkjaforseti ekki
gripið til annarra aðgerða í þess-
um tilgangi en að kalla á auknar
rannsóknir. í ávarpi til alþjóð-
legrar ráðstefnu vísindamanna
um veðurfarsbreytingar, sem
haldin var í Bandaríkjunum fyrir
skömmu, sagði hann að niður-
stöður vísindanna yrðu að vera
áreiðanlegri áður en gripið yrði
til beinna aðgerða.
Vísindamennirnir á ráðstefn-
unni í New Orleans sögðu hins
vegar að þar sem reikna þyrfti
með 10 ára vinnu til viðbótar til
þess að geta gert áreiðanlegar
spár um gróðurhúsaáhrif frá
loftmengun, þá geti orðið um
seinan að grípa til aðgerða þegar
spárnar liggi fyrir.
25% aukning
Flestum vísindamönnum ber
saman um að meðalhitastig á
jörðinni hafi hækkað um 0,6
gráður á Celsíus á síðustu 100
árum. Það er umtalsverð
breyting miðað við það að meðal-
hiti á jörðinni hefur ekki aukist
um meira en 5 gráður á þeim
18000 árum sem liðin eru frá lok-
um síðustu ísaldar.
Mönnum ber einnig saman um
að frá upphafi iðnbyltingar á
miðri síðustu öld hafi magn koldí-
oxíðs í lofthjúp jarðaraukist um
25%. Og flest forrit sýna að með
1% aukningu koldíoxíðmengun-
ar á ári muni rúmmál koldíoxíðs í
lofthjúpnum tvöfaldast á næstu
40-60 árum.
Ágreiningurinn stendur hins
vegar um hvað þá muni taka við.
Menn gera að vísu ráð fyrir hækk-
un hitastigs, en spárnar segja að
hún muni nema frá einni og upp í
fimm gráður Celsíus. Öll forritin
fimm gera hins vegar ráð fyrir því
að hækki hitastig yfir eina gráðu,
þá muni það hafa í för með sér
röskun á því loftslagsmynstri sem
nú ríkir á jörðinni: hækkun yfir-
borðs sjávar muni leiða til flóða,
úrkoma muni aukast sums staðar
og verða minni annars staðar
o.s.frv. En að sögn vísindamann-
anna er enginn með það öruggt
spáforrit að hann geti með neinni
vissu sagt fyrir um hvernig áhrifin
munu bitna á einstökum svæð-
um. Og það er þessi óvissa sem
nú freistar skammsýnna ráða-
manna til að slá kostnaðarsömum
aðgerðum til að stemma stigu
við loftmengun á frest. Þannig er
haft eftir einum bandarískum
hagfræðiprófessor að á meðan
óvissa ríki um áhrif loftmengunar
á hitastig þá ríki engin óvissa um
kostnaðinn sem af því hljótist að
taka upp hreina eða hreinni ork-
ugjafa. Og þjóðir heims geti vel
aðlagað sig að lítilsháttar hita-
aukningu.
Sérfræðingar á sviði lofts-
lagsbreytinga hafa hins vegar
bent á að slík aðlögun geti ekki
orðið sársaukalaus, einkum í
mörgum ríkjum þriðja heimsins,
þar sem náttúran er víða við-
kvæm fyrir breytingum. Til dæm-
is væri hrísgrjónaplantan mjög
viðkvæm fyrir hitastigsbreyting-
um, og víða í Asíu er hún ræktuð
við sín efri hitamörk, þannig að
frekari hækkun myndi leiða til
uppskerubrests. Því hafa vísinda-
menn lagt áherslu á að þrátt fyrir
óvissuna beri þegar í stað að grípa
til ráðstafana til þess að takmarka
koldíoxíðmengun andrúmslofts-
ins. Eða eins og einn vísinda-
mannanna komst að orði: Hér er
vissulega um óvissu að ræða, en
óvissan verður margfalt meiri ef
ekki verður gripið til aðgerða.
-úlg/reuter
SKYLDUSPARWAÐUR
ORÐSENDING TIL LAUNÞEGA
Á ALDRINUM 16 TIL 25 ÁRA
Að gefnu tilefni eru launþegar á
skyldusparnaðaraldri hvattirtil að fylgjast
gaumgæfilega með því,
að launagreiðendur geri lögboðin skil
á skyldusparnaði þeirra til veðdeildar
Landsbanka íslands, Suðurlandsbraut 24
Reykjav ík, s ími: 60651.
Bent skal á, að ábyrgð ríkissjóðs vegna
ríkisábyrgðar á skyldusparnaði, við
gjaldþrot launagreiðanda, er takmörkuð
þannig, að skyldusparnaður sem ekki
hefur verið greiddur inn á
skyldusparnaðarreikninga, getur glatast.
Launþegum skal bent á að snúa sér til
starfsmanna skyldusparnaðar hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins,
Suðurlandsbraut 24, Reykjavík,
sími: 696900.
Cpþ HÚSNÆDISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900
6 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 9. mars 1990