Þjóðviljinn - 09.03.1990, Blaðsíða 7
Castro
hvikar
hvergi
Kommúnistar á Kúbu halda
ótrauðir sínu striki jafnvel þótt
fyrrverandi skoðanbræður
þeirra hinum megin á hnettinum
og meira að segja fóstbræður
þeirra í Nicaragua hafi sagt skilið
við einsflokksalræði.
Fidel Castro leiðtogi Kúbu-
manna er ekki ginnkeyptur fyrir
lýðræðisvaðli annarra kommún-
istaleiðtoga. Á sama tíma og
hvert ríkið á fætur öðru snýr baki
við alræði kommúnista allt frá
Austur-Þýskalandi til Mongólíu
leggur hann áherslu á að efla völd
Kommúnistaflokks Kúbu.
Castro hefur lýst því yfir að
Kúbumenn séu reiðubúnir til að
berjast til síðasta manns fyrir só-
síalismann jafnvel þótt örlögin
gerðu Kúbu að síðasta vígi hans.
Fyrr myndi Kúba sökkva í sæ en
að breyta stefnu sinni.
Sósíalismi
fullkomnaöur
Fyrir nokkrum árum gerðu
Kúbumenn tilraun með að draga
úr ríkiseinokun í verslun og leyfa
frjálsu framtaki að hasla sér völl.
En þeir sneru baki við henni árið
1986 þegar Castro komst að
þeirri niðurstöðu að tilraunin
hefði leitt til verðhækkana og
spillingar.
Kúbverskir kommúnistar hafa
engar fyrirætlanir um að snúa aft-
ur til slíkra tilrauna með frjálsan
markað. Castro segir að enginn
skuli láta sig dreyma um að
Kúbumenn gangi kapítalisma á
hönd. Þvert á móti ætli þeir að
herða baráttuna fyrir sósíalískri
uppbyggingu.
Þegar fréttir bárust í síðustu
viku um að miðstjórn Kommún-
istaflokks Kúbu hefði samþykkt
áætlun um að fullkomna
stjórnkerfi ríkisins héldu sumir
erlendir fréttaskýrendur að Ca-
stro hefði ákveðið að fylgja for-
dæmi kommúnistaleiðtoga í
Austur-Evrópu og slaka á valda-
einokun flokksins.
Castro var fljótur að leiðrétta
þann misskilning. Flann lýsti því
yfir í ræðu á þjóðþinginu að ekki
kæmi til greina að draga hið
minnsta úr valdi flokksins heldur
yrði að efla hann enn frekar.
Granma málgagn Kommún-
istaflokks Kúbu lýsir þessu sem
svo að ákveðið hafi verið að
„fullkomna hinn leníníska flokk á
grundvelli lýðræðislegs mið-
stjórnarvalds".
Þetta sýnir vel afstöðu Castros
til þeirra breytinga sem eiga sér
stað á öðrum kommúnistaflokk-
um. Castro ætlar ekki að láta
breyta Kommúnistaflokki Kúbu í
sósíaldemókrataflokk eins og
kommúnistar hafa gert í flestum
ríkjum Austur-Evrópu.
Hann getur ekki einu sinni
hugsað sér að hrófla við lýðræðis-
legu miðstjórnarvaldi sem mið-
stjórn Kommúnistaflokks So-
vétríkjanna lýsti úrelt á mið-
stjórnarfundi sínum í febrúar.
Myndun andstöðuhópa innan
Kommúnistaflokks Kúbu er því
áfram óheimil. Það þarf varla að
taka fram að myndun annarra
stjórnmálaflokka sem keppi við
kommúnistaflokkinn um völd er
stranglega bönnuð.
Byltingarandi
í símakerfinu
Það hefur ekkert dregið úr
byltingarsinnaðri andagift Cast-
ros þótt 31 ár sé liðið frá því að
hann komst til valda og 29 ár frá
því að hann lýsti því að Kúbu-
menn myndu byggja upp sósíal-
ískt þjóðfélag á grundvelli marx-
lenínisma. Hann lætur ekkert
tækifæri ónotað til að blása lands-
mönnum byltingaranda í brjóst.
Til að tryggja enn frekar bylt-
ingarsinnaðan eldmóð er meira
að segja símkerfið farið að lesa
yfir þeim byltingarboðskap. Þeg-
ar borgarbúar í Havana tóku upp
símtólið og hringdu sín í milli á
mánudag svaraði þeim fyrst
kvenmannsrödd sem sagði:
„Land okkar eða dauða! Við sig-
rum!“ Síðan var þeim gefið sam-
band við númerið sem þeir
hringdu í.
Nýr tækjabúnaður gerði
stjórnvöldum kleift að símsenda
vígorðið í tilefni af því að þrjátíu
ár voru liðin frá því að Castro
setti það fyrst fram við jarðarför
áttatíu manna sem fórust í
sprengingu í höfninni í Havana.
Kúbumenn sökuðu útsendara
bandarísku leyniþjónustunnar
um að hafa komið sprengjunni
fyrir.
Fyrrverandi banda-
menn fordæmdir
Að undanförnu hefur Castro
orðið æ harðorðri í garð fyrrver-
andi bandamanna Kúbumanna í
Austur-Evrópu. í fyrradag réðst
hann harkalega á stjórnvöld í
Póllandi, Ungverjalandi, Búlgar-
íu og Tékkóslóvakíu fyrir að
styðja ályktunartillögu hjá
mannréttindarnefnd Sameinuðu
þjóðanna um mannréttindabrot á
Kúbu.
Pólverjar og Tékkar voru með-
flutningsmenn tillögunnar ásamt
Bandaríkjamönnum sem áttu
höfuðþátt í að semja hana.
Castro sagði ákvörðun Austur-
Evrópuríkjanna fjögurra um að
styðja tillöguna viðbjóðslega.
Blóð Kúbumanna myndi streyma
eins og stórfljót ef Bandaríkja-
menn gerðu innrás í Kúbu. Þessi
ríki kæmu þá til með að bera
ábyrgð á blóðbaðinu.
Þetta eru hörðustu ummæli
Castros um fyrrverandi banda-
menn Kúbumanna til þessa.
Hann fór hins vegar fögrum
orðum um Sovétmenn sem
greiddu atkvæði gegn tillögunni.
Hann sagði þá að minnsta kosti
ennþá aðhyllast sósíalíska stefnu.
Sovétríkin hefðu enn ekki sundr-
ast og ekkert innanlandsstríð
hefði enn brotist þar út. Vonandi
breyttist það ekki.
Tillagan var samþykkti með
nítján atkvæðum gegn tólf. Auk
Sovétmanna greiddu, Kínverjar,
Júgóslavar og Mexíkómenn at-
kvæði gegn henni. Tólf ríki sátu
hjá, þar á meðal nokkur ríki í
Suður-Ameríku.
Sárindi vegna
Nicaragua
Stjórnvöld á Kúbu hafa látið í
ljós sár vonbrigði vegna þróunar-
innar í Nicaragua þar sem sandin-
istar glutruðu niður völdum í
kosningum 25. febrúar.
Castro hefur verið fáorður um
úrslitin þar til í fyrradag að hann
fór nokkrum orðum um þau í lok-
aræðu á þriggja daga fundi Kven-
félagasambands Kúbu. Þá sagði
hann að fáránlegt ástand hefði
skapast í Nicaragua vegna kosn-
inganna sem gæti leitt til innan-
landsstríðs. Contraskæruliðar
komi til með að hefna sína á ands-
tæðingum sínum og krefjast herf-
angs fyrir að hafa stuðlað að falli
sandínista.
Kúbumenn veittu stjórn sand-
ínista mikla efnahags- og hernað-
araðstoð. Castro segir að þeir
hafi gefið Nicaraguamönnum 90
þúsund tonn af eldsneyti árlega,
sent þeim matvæli til að fæða 50
þúsund manns sem búi á Atlants-
hafsströnd Nicaragua og veitt
þeim ýmsa aðra aðstoð.
Castro segir að Kúbumenn sjái
sér ekki kleift að halda áfram að
veita Nicaraguamönnum jafn-
mikla aðstoð og hingað til. Allri
hernaðaraðstoð verði hætt um
leið og ný stjórn tekur við.
Reyndar var nokkuð farið að
draga úr vináttu stjórnvalda á
Kúbu við sandínista jafnvel áður
en sandínistar töpuðu í kosning-
unum. Sandínistar hafa fylgst
grannt með breytingum í lýðræð-
isátt í Austur-Evrópu og hafa
brugðist við þeim mjög á annan
hátt en Kúbumenn. Þeir beittu
sér fyrir uppbyggingu raunveru-
legs fjölflokkalýðræðis í Nicarag-
ua og gengu aldrei eins langt í
þjóðnýtingu og kúbverskir
kommúnistar vildu.
Sovésk
efnahagsaöstoð
Castro hefur fulla ástæðu til að
hafa áhyggjur af þróuninni í
Austur-Evrópu og þá sérstaklega
Sovétríkjunum.
Viðskiptabann Bandaríkja-
manna á Kúbu hefur haft það í
för með sér að um það bil 90 pró-
sent af allri utanríkisverslun
Kúbumanna er við ríki í Austur-
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 7
Evrópu. Hingað til hefur þetta
aðallega verð vöruskiptaverslun
sem hefur verið Kúbumönnum
mjög í hag. Þannig hafa Sovét-
mann til dæmis keypt af þeim
sykur fyrir fjórfalt heimsmark-
aðsverð og selt þeim ódýra olíu í
staðinn
Kúbumenn hafa meðal annars
aflað sér gjaldeyris með því að
endurselja olíu frá Sovétríkjun-
um á mun hærra verði en þeir
hafa greitt fyrir hana.
Nú hafa Austur-Evrópuríkin
hins vegar ákveðið að breyta við-
skiptaháttum innan efnahags-
bandalagsins COMECON, sem
Kúbumenn eiga líka aðild að
ásamt Víetnömum og Mongól-
um. Fljótlega verða bein pening-
aviðskipti tekin upp í stað vöru-
skipta og vöruverð kemur til með
að byggjast á heimsmarkaðs-
verði.
Bein efnahags- og hernaðarað-
stoð Sovétríkjann við Kúbu er
talin nema jafnvirði 330 miljarða
króna á ári, þ.e. hátt í einn milj-
arð króna á dag. Sovétmenn
koma örugglega til með að draga
úr þessari aðstoð á næstunni í
ljósi mikilla efnahagsörðugleika
þeirra sjálfra heima fyrir.
Sovétmenn eru líka lítt hrifnir
af því hvernig stjórnvöld á Kúbu
nota sovéska efnahagsaðstoð til
að fjármagna hernaðaraðstoð við
ríki og ýmsa hópa í Afríku og
Suður- og Mið-Ameríku á sama
tíma og Sovétmenn hafa að
mestu hætt slíku.
Enska í staö
rússnesku
Castro hefur viðurkennt að
hugsanlega hætti Kúbumenn að
fá aðstoð frá Sovétríkjunum.
Hann sagði í ræðu sem hann hélt í
janúar að Kúbumenn væru þá
reiðubúnir til að búa við „stríðs-
efnahag".
Castro lýsti því líka yfir í ræðu
fyrir tveimur dögum að Kúbu-
menn væru að búa sig undir það
sem hann kallaði „sérstakt skeið
á friðartímum“. Með því sagðist
hann eiga við neyðaráætlun sem
gengi í gildi ef Sovétmenn hættu
að senda matvæli og aðrar
lífsnauðsynjar til Kúbu.
Castro hefur líka hvatt Kúbu-
menn til að einbeita sér að ensku-
námi fremur en að eyða tíma í
rússnesku. Hann sagði á fundi
Stúdentasamtaka Kúbu um helg-
ina að yfirmenn menntamála virt-
ust hafa ruglað tungumálum sam-
an við hugmyndafræði. Þeir hafi
lagt höfuðárherslu á rússnesku-
kennslu en gengið framhjá en-
skunni.
Rússar lærðu sjálfir ensku í
skólum fremur en spænsku.
Enska sé útbreiddasta tungumál
veraldar hvort sem fólki líki það
betur eða verr. Það sé auðveldara
Föstudagur 9. mars 1990
AÐ UTAN
RAGNAR
BALDURSSON
Eftir hverju ætli Castro sé að
bíða?
að læra ensku en rússnesku og
enska sé nákvæmara tungumál
sérstaklega á tæknisviði.
Castro lagði áherslu á að
Kúbumenn yrðu að byggja upp
sósíalisma undir nýjum kringum-
stæðum. Þeir verði að bjóða vest-
rænum kapítalisma byrginn. Þeir
eigi ekki að taka upp hugmynda-
fræði hans heldur stunda við-
skipti við auðvaldstríki sem séu
báðum aðilum hagkvæm.
Ótraust framtíö
Jafnvel þótt Kúbumenn sam-
þykki neyðaráætlun, læri ensku
og hlusti á pólitísk vígorð í síman-
um, er erfitt að sjá hvernig þeir
gætu þolað að Sovétmenn skrúf-
uðu fyrir aðstoð sína og Austur-
Evrópuþjóðir hættu að kaupa af
þeim vörur.
Fyrir aðeins einu ári benti flest
til þess að Castro geti haldið völd-
um allt til dauðadags. Hann nýtur
óneitanlega mikilla vinsælda
heimafyrir og hefur ekki einangr-
ast frá almenningi eins og komm-
únistaleiðtogar í Austur-Evrópu.
En byltingareldmóðurinn einn
dugar ekki til að fylla askana.
Lítið framboð er af ýmsum
vörum þrátt fyrir þá gífurlega
miklu aðstoð sem Sovétmenn
veita Kúbumönnum. Og Kúba er
samt líklega eina hitabeltislandið
þar sem ávextir eru af skornum
skammti.
Hætt er við að Castro verði að
taka upp breytta stjórnarhætti
einhvern tíma á næstu árum til að
blása nýju lífi í efnahaginn og fá
aðgang að Bandaríkjamarkaði í
staðinn fyrir tapaðan markað í
Austur-Evrópu.
Ef hann heldur hins vegar fast
við harðlínustefnuna getur farið
svo að almenningur kjósi að lok-
um gylliboð bandarísks auð-
magns um gull og græna skóga
fremur en örbirgð og óflekkaða
hugmyndafræði.
í desember 1961 lýsti Castro
því opinberlega yfir að Kúba væri
sósíalískt ríki sem grundvallaðist
á hugmyndafræði marx-
lenínisma. Síðan hafa tengsl
Kúbumanna við Sovétmenn ver-
ið mjög náin en sambandið við
Bandaríkin vægast sagt slæm.
Yfirlit
um Kúbu
Kúba er í Karabíska hafinu um
það bil 145 km fyrir sunnan Flór-
ída. rúmlega 110 þúsund ferkfl-
ómetrar að flatarmáli. fbúar eru
rúmlega tíu miljónir. Um 700
þúsund Kúbmenn búa að auki í
útlegð í Flórída.
Kúba var spænsk nýlenda frá
því á sextándu öld til 1898 þegar
Bandaríkjamenn sigruðu Spán-
verja. Kúba varð sjálfstætt lýð-
veldi 1902 en Bandaríkjamenn
héldu herstöðvum sínum þar og
áskildu sér jafnframt rétt til að
blanda sér í málefni hennar til
ársins 1934.
Fulgencio Batista Zaldivar
liðsforingi komst til valda með
vaidaráni hersins 1933. Hann var
fyrst við völd til 1944 og rændi
þeim svo aftur með vopnavaldi
1952.
Byitingarmenn undir forystu
Castros og Che Guevara steyptu
honum í árslok 1958 og tóku
völdin í sínar hendur. Þeir hófu
fljótlega víðtækar breytingar á
efnahagskerfinu, skiptu landi
milli bænda og þjóðnýttu iðnað
og verslun. Öll fyrirtæki í eigu
Bandaríkjamanna voru gerð
upptæk 1960 en bandarísk
stjórnvöld höfðu stutt Badista.
Bandaríkjamenn slitu stjórn-
málasambandi við Kúbu og
studdu innrás kúbverskra útlaga í
apríl 1961.