Þjóðviljinn - 09.03.1990, Qupperneq 8
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson
Ritstjórar: Árni Bergmann, Ólafur H. Torfason _
UmsjónarmaðurHelgarblaðs:ÓlafurGíslason ” ""...
Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson
Útlit: Þröstur Haraldsson
Auglýsingastjóri: Olga Clausen
Afgreiðsla^eð 13 33
Auglýsingadeild:@68 13 10-68 13 31
Símfax:68 19 35
Verð: í lausasölu 150 krónur
Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Síðumúla 37,108 Reykjavík________________________
Fiskútflutningur
Nú í vikulokin tekur gildi reglugerö sem sjávarútvegs-
ráðherra hefur beitt sér fyrir og kveöur á um bann viö
útflutningi á flöttum fiski. Yfingar hafa skapast um þessa
ákvöröun, og andstæðingarnir kalla hana gamaldags
frelsisskerðingu til aö vernda einokunarhagsmuni. Meira
aö segja sjávarútvegsráðherra sjálfur hefur lýst því yfir í
viötölum aö hann telji aö í framtíöinni muni ríkja meira
frjálsræöi í viðskiptum af þessu tagi, straumurinn liggi í þá
átt.
Sölusamtök íslenskra fiskframleiðenda hafa reynst
okkur vel í markaðssetningu á undanförnum áratugum.
Menn sem kalla á samkeppni og afnám „einokunar"
freistast oft til aö gleyma smæð íslensku fyrirtækjanna.
Það sem er aö gerast í Evrópu þessi misserin er einmitt
samruni fyrirtækja svo þau eigi einhverja möguleika á
tækniþróun og hafi bolmagn til þeirra aögeröa sem þarf í
síharðnandi samkeppni. Félag Sambandsfrystihúsa og
Sölumiðstöð hraöfyrstihúsanna eru aö nokkru leyti
mynduö á sömu forsendum á sínum tíma.
Talsmenn SÍF og Sambandsfrystihúsa hafa varað viö
breytingum á skipulagi því á sölu saltfisks sem veriö hefur
viö lýöi. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra tekur
undir þetta sjónarmið og leggur áherslu á, aö vörö þurfi
aö standa um gæöamál íslensks fisks. Þessir aöilar segj-
ast óttast, aö útflutningur sá sem stundaður hefur verið á
ferskum og léttsöltuöum flökum geti skaðað gæöaímynd
vörunnar, og sé því öllum veiöum og vinnslu í óhag.
Erfitt er aö leggja mat á þessar fullyrðingar, því beinar
rannsóknaniöurstöður vantar. Óneitanlega vekur það at-
hygli, að tæplega 30 sjálfstæðir fiskútflytjendur hafa oft á
tíöum fengiö langtum hærra verö erlendis fyrir vöru sína
en SÍF. Ollum leiöum til að auka útflutningsverðmæti
verður að gefa gaum. Ef það er rétt, sem Magnús Gunn-
arsson, forstjóri SÍF, segir, að samtökin hafi árum saman
haft áhyggjur af þróuninni í þessum efnum hvað varöar
gæöamál hjá sjálfstæöu útflytjendunum, má ætla aö hert
eftirlit og gæöastaðlar væru leiðin, en ekki útflutnings-
bann.
Sannleikurinn er sá, að hér fléttast margvíslegir hags-
munir inn í. Mönnurn svíður þaö, aö flutt sé út hráefni til
vinnslu í Danmörku, Þýskalandi og á Bretlandi, sem
keppir þar við útflutning okkar. SÍF telur að meö tolla-
stefnu sinni reyni Evrópubandalagiö aö draga til sín hrá-
efni til að efla atvinnulíf í löndum sínum. Af þeim sökum
séu lægri tollar á ferska fiskinum til innflutnings heldur en
þeim saltaða og þess vegna fái sjálfstæöu útflytjendurnir
hærra verð.
Meö reglugerðinni sem nú tekur gildi er bannað að
flaka, fietja eöa hausa fisk nema hann sé þegar tekinn til
frekari verkunar sem lengi geymsluþoliö. Þetta þýöir aö
ekki má sigla með flattan ísfisk til söltunar eða vinnslu
erlendis. Þó er áfram heimilt að flytja ferskan fisk flug-
leiöis til útlanda.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins segist þurfa nokkra
mánuöi til aö gera þær tilraunir sem veröi grunnur töl-
fræðilegs mats á rýrnun og skemmdum á ferskum fiski í
geymslu viö flutninga af því tagi sem nú er verið að
banna. Sjávarútvegsráöuneytiö hefur óskað eftir því aö
svo verði gert. Meirihluti Fiskmatsráðs hefur tekið undir
málflutning Rannsóknastofnunarinnarog Ríkismats sjáv-
arafurða og því mælt meö setningu reglugerðarinnar.
Hún verður síöan endurskoðuö þegar rannsóknaniður-
stöður liggja fyrir.
Skynsamlegt er aö fara með fullri gát, ef minnsti vafi er
á ferðinni, eins og nú viröist raunin. Telja þó sumir næsta
einkennilegt, aö Islendingarskuli ekki löngu hafa eignast
áreiöanlegar upplýsingar um þvílíkt grundvallaratriði og
hér um ræöir.
Fréttir um aö Norðmenn séu hættir aö selja gegnum
fiskmarkaðina í Þýskalandi, vegna aukakostnaðar og af
öörum orsökum, vekja líka upp spurningar hvers vegna
íslendingar kjósa aö fara aðra leið. Er þaö hugsanlegt, að
við séum full seinir á okkur aö feta nýjar slóðir, halda
þekkingunni viö? ÓHT
Miklar breytingar í sovéskum skólum
Marxisminn ekki lengur skyldufag
Glasnost Gorbatsjovs haföi
m.a. þá afleiðingu að kennslu-
bækur í sovéskri sögu og sögu
Kommúnistaflokksins (sem hefur
verið skyldufag í öllum há-
skólum) féllu um sjálfar sig. Um
nokkurt skeið hefur ekki verið
hægt að halda próf ( samtíma-
sögu í sovéskum skólum og í há-
skólum hefur verið reynt að
breyta sem mest inntaki þeirra
námsgreina sem fallið hafa undir
„marxisma-leninisma".
Nú hefur verið ákveðið að af-
nema sögu Kommúnistaflokksins
sem skyldufag. Hin pólitísku eða
félagsfræðilegu fög í háskólanum
verða valgreinar um leið og inn-
taki þeirra verður breytt. Boðið
verður upp á nám í pólitískri sögu
tuttugustu aldar og í stað „vís-
indalegs kommúnisma“ verður
stúdentum gefinn kostur á að
skoða hinar ýmsu samtímakenn-
ingar um sósíalisma. Þá er og
boðið upp á heimspeki og pólit-
íska hagfræði eins og verið hefur,
en allt í anda „kredduleysis".
Margar hugmyndir eru uppi
um endurbætur á hinum almenna
tíu ára (sumstaðar ellefu ára)
skóla. Ekki síst með það fyrir
augum að auka valfrelsi. Þá eru
uppi hugmyndir um að stofna
gamaldags rússneskan mennta-
skóla í Moskvu, sem ætlað er að
höfða m.a. til afkomenda rússne-
skra útlaga og er ætlast til að þeir
greiði skólagjöld. Þar verður
m.a. boðið upp á kennslu í
grísku, kirkjuslavnesku, rússn-
eskri listasögu og fleiri virðu-
legum og ekkert skelfilega
hagnýtum fögum.
Teikningarnar með þessum
texta fylgdu frétt um skólamál
þessi í blaðinu Soviet Weekly ný-
lega.
Helgarveðrið
8 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 9. mars 1990
Horfur á laugardag Fremur hæg breytileg átt og sums staðar dálítil él við N- og V-ströndina en
bjart veður annars staðar. Frost 10-17 stig í innsveitum en yfirleitt mildara við ströndina.
Horfur á sunnudag A og NA átt, líklega hvasst við SA-ströndina en mun hægari vindur annars
staðar. Snjókoma víða um A-vert landið, él með N-ströndinni, en þurrt SV lands. Dregur heldur úr
frosti.