Þjóðviljinn - 09.03.1990, Page 9

Þjóðviljinn - 09.03.1990, Page 9
Guðjón Bjarnason opnar sýningu á Kjarvalsstöðum á morgun. Metamorfis Metamorfis heitir sýning sem Guðjón Bjarnason opnar á málverk- um og skúlptúrum unnum í tré og striga í austursal og austurforsal Kjarvalsstaða ámorgun kl. 16-18. Við opnunina leika Slagverkshópur- inn Snerta og Infernó 5 tilbrigði við verkin auk þess sem Jón Aðal- steinn Þorgilsson klarinettuleikari og Þorsteinn Gauti Sigurðsson pí- anóleikari flytja rómantísk verk. Guðjón lauk meistaragráðu í myndlist og skúlptúr við School of Visual Art í New York 1987 og meistaragráðu í arkitektúr frá Columb- ia Háskóla síðastliðið vor. Þetta er önnur einkasýning hans og sú fyrsta hér á landi, en hann býr og starfar í New York borg. LG Sinfónían fertug Sellókonsert Jóns Leifs og Sinfónía eftir Mahler flutt á hátíðartón- leikum í kvöld Sinfóníuhljómsveit íslands er fertug um þessar mundir og held- ur af því tilefni hátíðartónleika í Háskólabíói í kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 19:30 og býður afmæl- isbarnið öllum áskrifendum að hlýða á þá endurgjaldslaust. Á efnisskránni eru tvö verk: Selló- konsert eftir Jón Leifs og Sinfónía nr. 2 eftir Gustav Mahler. Ein- leikari í Sellókonsertinum verður Erling Blöndal Bengtsson og í Sinfóníu Mahlers syngja þær Signý Sæmundsdóttir og Rannveig Fríða Bragadóttir ásamt kór íslensku óperunnar. Stjórnandi verður Petri Sakari og kórstjóri er Peter Locke. Sinfónían var stofnuð snemma árs árið 1950 með tilstyrk Ríkis- útvarpsins, sem lagði til „salon“ hljómsveit sína og fjárstuðning til þess að unnt væri að ráða erlenda hljóðfæraleikara þar sem ís- lenska vantaði. Rekstur Sinfóní- unnar var lengi vel nátengdur Ríkisútvarpinu og hefur það tví- vegis rekið hljómsveitina um ára- bil en með lögum frá Alþingi árið 1982 var Sinfónían gerð að sjálf- stæðri stofnun, sem rekin er af ríkissjóði, Ríkisútvarpinu, borg- arsjóði Reykjavíkur og bæjar- sjóði Seltjarnarness. Á afmælistónleikunum flytur Sinfónían sitt fjölmennasta verk- efni fram til þessa, en það er Sin- fónía Mahlers. Rúmlega hundrað hljóðfæraleikarar taka þátt í flutningi Sinfóníunnar auk 70 manna kórs og tveggja einsöngv- ara þeirra Signýjar Sæmunds- dóttur, sem síðast söng með Sin- fóníunni á Vínartónleikum í jan- úar og Rannveigar Fríðu Braga- dóttur, sem nú syngur í fyrsta sinn með hljómsveitinni. Rannveig Fríða og Signý lærðu Erling Blöndal Bengtsson leikur Sellókonsert Jóns Leifs með Sin- fóníunni á afmælistónleikunum í kvöld. Petri Sakari stjórnandi báðar söng í Vínarborg og hefur Rannveig starfað þar síðan og er nú fastráðin við Vínaróperuna. Dans-íslenski sellóleikarinn Erling Blöndal Bengtsson er fs- lendingum að góðu kunnur. Hann er fæddur í Kaupmanna- höfn 1932, hefur starfað við hljóðfæraleik og kennslu víða um lönd og er nú meðal virtustu og Signý Sæmundsdóttir Rannveig Fríða Bragadóttir eftirsóttustu einleikara á Norður- löndum. Erling Blöndal Bengts- son lék síðast á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit íslands í nóv- ember 1988. Þetta er í annað sinn sem hann flytur Sellókonsert Jóns Leifs með Sinfóníunni en hann frumflutti hann á tónleikum hljómsveitarinnar árið 1983. LG Föstudagur 9. mars 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SlÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.