Þjóðviljinn - 09.03.1990, Qupperneq 14
Rússneska kirkjan
fær aftur dýrgripi sína
Sambúð stjórnvalda og rússnesku réttrúnaðarkirkjunnar hefur farið
stórbatnandi á valdadögum Gorbatsjovs. Nýlegt dæmi um þetta er að
stjórnvöld hafa skilað kirkjunni 540 merkilegum íkonum og fornum
Valimar mítrópólíti í Rotov með
íkona af Guðsmóður frá Vladímír,
einn þeirra dýrgripa sem kirkjan
endurheimti á dögunum.
kirkjubókum
Teknir af
smyglurum
Þessi afhending á sér undar-
lega sögu. Hér er um að ræða
w
Nákvæm skoðun
alls staðar á landinu
Öryggismál eru alvörumál!
Það dylst engum að öryggismál í umferð-
inni eru alvörumál. Mál sem snerta sérhvert
heimili í landinu.
Nýir tímar krefjast þess að þessi mál séu
tekin fóstum tökum og öllum landsmönnum
tryggð betri og nákvæmari skoðun á bílaflot-
anum.
Sú staðreynd var ein af meginforsendum
þess að Bifreiðaskoðun íslands hf. var sett á
laggirnar.
Markmið fyrirtækisins liggur ljóst fyrir og til
starfsfólks okkar eru því gerðar miklar kröfur.
Nýir starfshættir, færri slys!
Þær skipulagsbreytingar, bæði til hagræð-
ingar og samræmingar, sem nýir starfshættir
hafa í fór með sér fyrir bifreiðaeigendur miða
því allar að einu marki; að stuðla að auknu
öryggi í umferðinni, alls staðar!
Ef landsmenn taka á með okkur og sýna
skilning á málinu er von til þess að fækka
megi slysum og óhöppum í umferðinni.
Þá er til mikils unnið.
VtlsiWö]
. ntmhwM.
'1 HVtfctttfc1
HWhlt '
A !
t
Meiri upplýsingar,
minna umstang!
Við höfum látið út-
búa bæklinga sem gera
ítarlega grein fyrir
þessum breytingum og
nýrri tilhögun bifreiða-
skoðunar um land allt.
Þú getur nálgast
bæklingana á bensín-
stöðvum eða hringt í
síma 673700 og fengið
þásendaheim.
Hvar er skoðað?
Aðalskrifstofa Bifreiðaskoðunar Islands hf.
og skoðun ökutækja á höfuðborgarsvæðinu er
að Hesthálsi 6-8 í Reykjavík. Auk fastra
skoðunarstöðva ferðast Bifreiðaskoðun með
færanlega skoðunarstöð um landið.
Keflavík: Iðavellir 4b, sími 15303, opiö kl. 8-16.
Akranes: Vallholt 1, sími 12480, opið kl. 8-15.30.
Borgames: BTB (Brákarey), sími 71335, opið kl. 8-15.30.
ísafjörður: Skeið, sími 3374, opið kl. 8-15.30.
Blönduós: Norðurlandsvegur, sími 24343, opið kl. 8-15.30.
Sauðárkrókur: Sauðamýri 1, sími 36720. opið kl. 8-15.30.
Akureyri: Þórunnarstræti 140, sími 23570, opið kl. 8-16.
Húsavík: Tún, sími 41370, opið kl. 8-15.30.
Fellabær: Kauptún 2, sími 11661, opið kl. 8-15.30.
Eskifjörður: Strandgata, sími 61240, opið kl. 8-15.30.
Hvolsvöllur: Hlíðarvegur 18, sími 78106, opið kl. 8-15.30.
Selfoss: Gagnheiði 20, sími 21315, opið kl. 8-15.30.
Reykjavík: Hestháls 6-8, sími 673700, opið kl. 8-16.
&
BIFREIDASKOÐUN
ÍSLANDSHF.
-örugg skoðun á réttum tíma!
helgimyndir og aðra kirkjudýr-
gripi, sem hafa verið gerðir upp-
tækir í tolli: menn sem yfirleitt
hafa komist yfir gripina með vafa-
sömum hætti hafa reynt að
smygla þeim úr landi til að selja
fyrir gjaldeyri.
Áður fyrr var það siður að setj a
gripi sem upptækir voru gerðir á
söfn. Einatt lentu þeir þar í van-
hirðu og var stolið aftur:
tollverðir segja þau tíðindi að
stundum hafi þeir gert sömu
helgimyndina upptæka hjá
smyglurum í tvígang eða þrisvar
jafnvel.
Það voru yfirmenn tollgæsl-
unnar sem stungu upp á því við
yfirvöld að drýgripirnir yrðu af-
hent kirkjunni. Mun reyndar
ekki af veita, því á árinu 1989
einu saman voru meira en þúsund
kirkjur opnaðar aftur. Auk þess
er verið að opna aftur klaustur
fræg eins og Optyna pústin, og
þarf að prýða þau húsakynni sem
best þeim helgimyndum sem eru
snar þáttur bænalífs hinnar
rússnesku kirkju.
Jákvætt afl
í þjóðfélaginu
Batnandi sambúð ríkis og
kirkju kemur fram með öðrum
hætti en þeim að dýrgripum sé
skilað, kirkjur og klaustur opnuð
á nýjan leik. Einna mestu skiptir
að nú er kirkjunni jafnan lýst sem
jákvæðu afli í þjóðfélaginu, sem
hafi miklu hlutverki að gegna í
siðferðilegri endurreisn þess.
Auk þess er tölverð áhersla lögð
á sjálfboðaliðastarfsemi, tengda
kirkjunni, til aðstoðar sjúkum og
öldruðum en áratugum saman
var kirkjunni meinað að koma
nálægt líknarmálum.
áb tók saman
Kimjungilía
Pólitískt
blóm
Fréttastofa Norður-Kóreu
skýrði frá því í febrúar að ný
blómategund með pólitískri tilvís-
un breiddist hratt út í ríkinu. Blóm-
ið, sem heitir kimjongilía, er skírt í
höfuðið á Kim Jung-il ríkiserfingja
í Norður-Kóreu en hann er sonur
Kim If-sungs núverandi leiðtoga.
Fréttastofan segir að japansk-
ur garðyrkjufræðingur, Mote-
deru Kamo, hafi eytt tveimur
áratugum í að kynbæta plöntur af
skáblaðsætt (pegoníu) til að fá
hið fullkomna blóm fyrir allar
árstíðir. Hann hafi ákveðið að
kalla það kimjungilfu vegna
djúprar virðingar sinnar fyrir
Kim Jung-il sem varð 48 ára í fe-
brúar.
Kamo kom með kimjungilíu til
Norður-Kóreu fyrir tveimur
árum. Síðan hefur hún breiðst ört
út bæði í Kóreu og erlendis að
sögn norður-kóresku fréttastof-
unnar. Hún er nú komin til yfir
þrjátíu ríkja.
Kimjungilía ber rauð blóm og
er sögð blómstra allt árið í öllum
landshlutum í Kóreu.
Reuter/rb
Diw!_____/ „X nllti ÓAiin nn >