Þjóðviljinn - 09.03.1990, Page 15
Mordechai Vanunu:
píslarvottur
sannleikans
Vanunu-nefndin á Islandi gengst fyrir fundi og tónleikum til
stuðnings ísraelska tæknifræðingnum Mordechai Vanunu
sem sagði sannleikann um kjarnorkuvopn Israelsmanna
samning, samning við ísrael um
sölu á 20 tonnum af þungu vatni,
sem nota átti til þess að knýja
kjarnakljúfinn í Dimona. ísrael
gekkst þá undir skuldbindingu
um að þetta þunga vatn yrði ein-
ungis notað í friðsamlegum til-
gangi og að Norðmenn hefðu rétt
til að ganga úr skugga um að svo
myndi verða.
Eftir að málið varð opinbert í
Noregi og grunur féll á ísraels-
stjórn um að hún hefði staðið
fyrir framleiðslu kjarnorkuvopna
úr þessu þunga vatni, hefur
norska stjórnin ítrekað óskað
eftir að fá að kanna hvernig
þunga vatnið væri notað eins og
samningurinn kveður á um. ísra-
elsk yfirvöld hafa jafn ákveðið
neitað norskum stjórnvöldum
um slíkt eftirlit. En þunga vatnið
mátti nota til þess að framleiða
plútóníum, sem notað er í kjarn-
orkusprengjur.
Samsæri
þagnarinnar
Það er ekki einleikið hversu
hljótt hefur verið um þetta mál.
Þannig segir Leonard S. Spector,
einn yfirmanna Alþjóðlegu
Carnegie-friðarstofnunarinnar í
grein um málið í The New York
Times í mars 1988 að það sé ekki
einleikið, hvernig Yitzhak Sham-
ir, forsætisráðherra ísraels hafi
verið hlíft við spurningum um
mál þetta í heimsóknum hans til
Bandaríkjanna. Ekki síst í ljósi
þess að vitað sé að ísrael hafi nú
þegar komið sér upp meðaldræg-
um eldflaugum sem geta borið
kjarnorkuvopn alla leið til So-
vétríkjanna. Spector segir að svo
virðist sem kjarnorkuvígvæðing
ísraels sé gerð með vitorði
Bandaríkjastjórnar eða að
minnsta kosti án nokkurra at-
hugasemda frá hennar hendi.
Anver Cohen, heimspeki-
kennari við háskólann í Tel Aviv
skrifar grein í sama blað í sam-
vinnu við ísraelskan blaðamann í
apríl 1988, þar sem þeir segja
kjarnorkuvopnaeign ísraels-
stjórnar hafa verið opinbert
leyndarmál í meira en áratug.
Vanunu hafi því ekki uppljóstrað
neinu því, sem ekki var áður vit-
að nema ef vera kynni einhverj-
um tæknilegum smáatriðum.
Hins vegar hafi vitnisburður hans
brotið veigamikla reglu ísra-
elskra stjórnmála og samskipta
stjórnvalda og almennings: hann
hafi rofið það þögla samkomulag
sem verið hafi í gildi á milli
stjórnvalda og almennings um að
ræða ekki kjarnorkuvopnin á op-
inberum vettvangi. Glæpur Van-
unus sé fólginn í því að rjúfa þá
bannhelgi, sem hvílt hafi yfir
þessu máli, því leyndarmálið hafi
löngu verið opinbert. „Kannski
er þjóð sem fæddist úr helförinni
gegn gyðingum illmögulegt að
horfast í augu við það að tilvera
hennar skuli tryggð með ger-
eyðingarvopnum..." en þau
óþægindi sem kjarnorkuvopnin
vekja í ísrael leiða ekki til
beinnar andstöðu við vopnin,
heldur til þess sem sálfræðingar
mundu kalla afneitun. Afneitun
er varnarviðbrögð sem hjálpa
manni til þess að lifa við óþægi-
legar eða óbærilegar aðstæður.
Glæpur Vanunus var því ekki
hvað hann sagði, heldur sú stað-
reynd að hann skyldi segja sann-
leikann. Með því að efna til opin-
berrar umræðu um málið var
þessum varnarviðbrögðum af-
neitunarinnár ógnað., sem gert
hafa . jafnt IsTaelum. banda-
mönnum og andsfæðingum
mögulegt að lifa við aðstæður
sem annars væru óbærilegar."
Alþjóðleg stuðningsherferð
fyrir Mordechai hefur verið í
gangi frá því að hann var dæmd-
ur. Sérstök alþjóðleg stuðnings-
nefnd hefur aðsetur í London.
Auk þess hafa stofnanir eins og
Bertrand Russell-stofnunin,
Friðarhreyfingar í Evrópu, Amn-
esty International og ótal ein-
staklingar ljáð málinu lið. Meðal
kunnra einstaklinga sem hafa
krafist frelsunar Vanunu eru rit-
höfundarnir Graham Greene,
Harold Pinter, Gore Vidal og Er-
ich Fried, vísindamennirnir Lin-
us Pauling, Noam Chomsky, Ru-
dolf Bahro og Johan Galtung. Sá
sem virkastan þátt hefur tekið í
þessu starfi er þó bróðir Vanun-
us, Meir Vanunu, sem nú býr
landflótta í Lundúnum og á yfir
höfði sér fangelsisdóm í ísrael
fyrir afskipti sín af málinu. Hann
kemur einmitt til íslands í dag til
þess að tala á fundi til stuðnings
bróður sínum á laugardag kl.
15.00. Fundurinn er haldinn í
nafnu Vanunu-nefndarinnar á ís-
landi.
Á sunnudag gengst Vanunu-
nefndin á íslandi síðan fyrir
myndarlegum tónleikum í Lang-
holtskirkju til stuðnings Vanunu.
Þar mun fjöldi tónlistarfólks
koma fram. Meðal þeirra eru:
kór Langholtskirkju, Einar Kr.
Einarsson gítarleikari, Halldór
Vilhelmsson baritónsöngvari,
Jónas Ingimundarson píanó-
leikari, Einar Jóhannesson klar-
inettuleikari, Kirkjukór Ólafs-
víkur, Halldór Haraldsson píanó-
leikari, Guðný Guðmundsdóttir
fiðluleikari, Gunnar Kvaran
sellóleikari, Reynir Jónasson
harmónikuleikari, Rannveig
Fríða Bragadóttir mezzósópran,
Háskólakórinn og Elías Davíðs-
son tónskáld, sem leika mun
steinaspil. Eru stuðningsmenn
Vanunus á íslandi hvattir til að
mæta á fundinn og tónleikana.
Tónleikarnir hefjast kl. 16.00 á
sunnudag.
-ólg
Mordechai Vanunu: Glæpur gegn samsæri þagnarinnar um sann-
leikann
Haustiö 1986 hvarf ísraelski tæknifræöingurinn Mordechai
Vanunu sporlaust í London. Fáeinum dögum síðar birtir dag-
blaðiö The Sunday Times upplýsingar með Ijósmyndum frá
Vanunu, sem staðfesta þann grun sem lengi hafði legið á
ísraelsstjórn, að hún stæði fyrir framleiðslu kjarnorkuvopna í
Dimona-kjarnorkuverinu í Negev-eyðimörkinni í ísrael. Upplýs-
ingarnar bentu til þess að þar væri að finna 100-200 kjarnorku-
sprengjur.
Fimm vikum eftir hvarf Van-
unus eða 9. nóvember 1986, til-
kynna ísraelsk yfirvöld að hann
sé í haldi í ísraelsku fangelsi.
Smám saman kemur í ljós,
hvað gerst hafði: kona nokkur,
sem var í þjónustu ísraelsku
leyniþjónustunnar, hafði tælt
hann með sér til Rómaborgar.
Þar biðu hans fleiri starfsmenn
ísraelsku leyniþjónustunnar sem
rota hann, dæla í hann lyfjum og
smygla honum rænulausum í
böndum frá Ítalíu til ísraels.
Fööurlands-
svik og njósnir
í ísrael var Vanunu ákærður
fyrir föðurlandssvik, njósnir og
upplýsingaöflun um ríkis-
leyndarmál í því skyni að skaða
öryggi ríkisins. Engu að síður
neituðu ísraelsk yfirvöld staðfast-
lega að upplýsingar þær sem Van-
unu hafði komið á framfæri ættu
við rök að styðjast. í yfirlýsingum
ísraelskra stjórnvalda var jafnan
talað um að ísrael myndi „aldrei
verða fyrst til að innleiða kjarn-
orkuvopn íMið-Austurlöndum“.
Réttarhöldin hófust í ágúst
1987, en þá hafði Vanunu verið í
algjörri einangrun frá því í nó-
vemberbyrjun 1986. Eina sam-
band hans við umheiminn hafði
verið í gegnum bílrúðu á lögregl-
ubíl þegar hann var fluttur í fang-
elsið, þar sem hann sýndi lófann
með áletruninni „Róm“. Þannig
varð upplýst að honum hafði ver-
ið smyglað frá Róm.
Réttarhöldin yfir Vanunu fóru
fram með þeim hætti, að engum
blaðamönnum, ættingjum eða
fulltrúum mannréttindasamtaka
var leyft að vera viðstöddum.
Vanunu var fluttur í lokuðum bíl
til réttarsalarins, hann var með
mótorhjólahjálm á höfði og gekk
í salinn undir sírenuvæli þannig
að hann gæti ekki sagt neitt til
óviðkomandi, og réttarhöldin
fóru fram í lokuðum, glugga-
lausum og hljóðeinangruðum sal.
Dómsmálaráðherra ísraels,
sem var ákærandinn, sagði að
engin viðurkenning á réttmæti
uppljóstrana Vanunus fælist í
ákærunni, en viðurkennt var að
Vanunu hefði unnið í átta ár í
Dimona kjarnorkurannsókna-
miðstöðinni í Negev-
eyðimörkinni, þar sem leynilegar
rannsóknir fara fram.
Réttarhöldunum yfir Vanunu
lauk 27. mars 1988, og var hann
dæmdur til 18 ára fangelsisvistar
fyrir njósnir og lapdráð.
Honum hefur verið haldið í
einangrunarklefa alla tíð síðan,
þar sem hans er gætt 24 tíma sól-
arhringsins með hjálp vídeó-
myndavéla. Ljós logar í klefa
hans allan sólarhringinn og nán-
ustu ættingjar hafa aðeins fengið
að heimsækja hann einu sinni á
mánuði í 60 mínútur í senn í
viðurvist fangelsisyfirvalda.
Vanunu, sem er fæddur gyð-
ingur, snérist til kristinnar trúar
þegar hann hætti störfum í ísrael
og fluttist til Ástralíu. í fangels-
inu hefur hann einnig fengið
heimsóknir prests, án þess að fá
að tjá sig við hann. Allt lesefni
sem hann fær er ritskoðað af
fangelsisyfirvöldum, og honum
hefur verið meinað að hafa sam-
neyti við aðra fanga á þeim for-
sendum að samfangar hans
kynnu að ráðast á hann vegna
„alvöru þess glæps, sem hann
hefur framið".
Norsku
samböndin
Til er alþjóðlegur samningur
um bann við frekari útbreiðslu
kjarnorkuvopna. Hann er undir-
ritaður af risaveldunum og flest-
um öðrum ríkjum heims. Meðal
þeirra ríkja sem neitað hafa að
undirrita þennan alþjóðasamn-
ing eru Kína, Indland, Pakistan
og ísrael.
Árið 1959 gerðu Norðmenn,
sem undirritað hafa þennan
AUKIN BÍLAÞJÓNUSTA ESS0
, SJÁLFVIRKAR
BIIAÞVOTTASTOÐVAR
í REYKJAVÍK, HAFNARFIRÐI,
KEFLAVÍK, AKRANESI 0G AKUREYRI
Við bjóðum nú fullkominn bílaþvott og bón í sjálfvirku
bílaþvottastöðvum á fimm stöðum á landinu:
Skógarseli, Breiðholti
Lækjargötu, Hafnarfirði Aðalstöðinni, Keflavík
Þjóðbraut 9, Akranesi Veganesti, Akureyri
Olíufélagið hf
NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 15