Þjóðviljinn - 09.03.1990, Síða 27
Til vinar í raun
Einari Kárasyni svarað
Fyrir skömmu skrifaði undir-
rituð greinarkorn í Nýtt Helgar-
blað í tilefni af sýningu sjónvarps-
myndarinnar „Englakroppa" eftir
Hrafn Gunnlaugsson og Friðrik
Þór Friðriksson. Dró ég enga dul
á þá skoðun mína að þar heföi
verið á ferðinni enn eitt dæmið
um lágkúru og léleg vinnubrögð
Sjónvarpsins á þessum vett-
vangi. „Ómögulegt handrit með
lélegum texta, engri persónu-
sköpun og ómarkvissri fram-
vindu, tilgerð og uppskrúfun",
svo ég vitni í eigin orð.
Auðvitað gerði ég allt eins ráð
fyrir því að einhverjir yrðu til að
andmæla svo umbúðalausri
gagnrýni, og vonaðist jafnvel til
þess að hún gæti átt þátt í að
hrinda af stað opinskárri umræðu
um metnað og frammistöðu ís-
lenska sjónvarpsins almennt á
þessu sviði. En viðbrögðum af
því tagi sem birtust í firnalangri
grein Einars Kárasonar rithöf-
undar laugardaginn 3. mars s.l.
undir yfirskriftinni „Æðahnútar á
vélindanu eða: beiskjudeildin
gegn Friðrik Þór“ hafði ég satt að
segja alls ekki búist við. Látum
vera þótt Einar finni sig knúinn til
að taka upp þykkjuna fyrir þá
Hrafn og Friðrik, þyki honum
ómaklega að höfundarverki
þeirra vegið. Ef Einar hefur
smekk fyrir svona myndefni er
honum vitaskuld frjálst að segja
það hverjum sem heyra vill. En
ofsi hans í garð okkar Þráins
Bertelssonar, félaga míns í
„beiskjudeildinni", leiðir hann í
ógöngur óvandaðs málflutnings,
sem ég fyrir mitt leyti hlýt að gera
fáeinar athugasemdir við.
Það kom mér á óvart hve sér-
stæðar hugmyndir Einar virðist
hafa um tjáningarfrelsi og opin-
ber skoðanaskipti. Þannig lætur
hann það fara í taugarnar á sér að
ég skuli „ótilkvödd“ leggja krók á
hala minn, eins og hann orðar
það, til þess að fjalla um téða
sjónvarpsmynd á prenti. Áður
hefur hann lagt blessun sína yfir
sjónvarpsrýni Ólafs H. Torfa-
sonar, þótt Ólafur hafi ekki haft
um myndina mörg lofsyrði, en
„þeir sem skrifa krítík verða að fá
að hafa sína skoðun“, segir Ein-
ar. Það eru mikil tíðindi og merk
ef formaður Rithöfundasam-
bands íslands álítur það eiga að
vera sérréttindi örfárra blaða-
manna að hafa skoðun á sjón-
varpsmyndum sem framleiddar
eru fyrir íslensku þjóðina. Öðru-
vísi er tæpast hægt að skilja orð
hans, nema hann eigi við að
bannað sé að hafa aðra skoðun en
hann hefur sjálfur.
Öfugt við formanninn álít ég
hins vegar bæði sjálfsagt og eðli-
legt að hver sem er fái að viðra
álit sitt á þessu málefni eins og
öðrum, jafnvel þótt það gangi í
Upplýsingafundur
um evrópska ef na-
hagssvæðið EES
Utanríkisráðuneytið heldur upplýsinga-
fund um viðræður Fríverslunarsamtaka
Evrópu (EFTA) og Evrópubandalagsins
(EB) um myndun Evrópskaefnahags-
svæðisins á Hótel Stykkishólmi, laugar-
daginn 10. mars nk. kl. 16.00.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra hefurframsögu og svararfyrir-
spurnum.
berhögg við það sem vinir hlutað-
eigandi listamanna telja æskilegt
hverju sinni. Þegar haft er í huga
að um er að ræða framleiðslu sem
öll þjóðin er sjálfkrafa áskrifandi
að og þar sem einn maður, dag-
skrárstjóri, getur ráðið stefnunni
svo að segja upp á sitt eindæmi og
án nokkurrar innlendrar sam-
keppni, hljóta lífleg skoðana-
skipti að vera enn brýnni. Þess er
og að gæta að sjónvarpið gegnir
mikilvægu uppeldishlutverki í
landi þar sem sjálfstæðri kvik-
myndagerð er þröngur stakkur
skorinn. Þeir sem bera hag inn-
lendrar kvikmyndalistar fyrir
brjósti geta ekki annað en látið
sig varða hvernig það hlutverk er
rækt.
Einar leggur sig í líma við að
gera tilganginn með skrifum mín-
um sem tortryggilegastan. Hann
lætur í veðri vaka að persónu-
legar tilfinningar í garð Hrafns
Gunnlaugssonar ráði ferðinni, en
ekki mat mitt á gæðum sjón-
varpsmyndarinnar. Mér er satt
að segja alveg hulið hvernig Ein-
ar kemst að þessari niðurstöðu.
Persónulegar tilfinningar í garð
Hrafns Gunnlaugssonar hef ég
hvorki góðar né slæmar, ég þekki
manninn einfaldlega ekkert og
hef aldrei átt við hann samskipti
af neinu tagi. Hið sama gildir um
Friðrik Þór. Á hinn bóginn hef ég
fjölmargt við störf Hrafns á veg-
um Sjónvarpsins að athuga, bæði
persónulega listsköpun hans
(sem óhjákvæmilega kallar á
sérstaka athygli áhorfenda þegar
svo háttar til að sami maðurinn
situr beggja megin borðsins, sem
seljandi og kaupandi eigin verka)
og ekki síður sem stjórnanda inn-
lendrar dagskrárgerðar. Ég ítr-
eka það álit mitt að stefnan sem
hann hefur fylgt þar hafi ekki
orðið fslenskri sjónvarpskvik-
myndagerð til framdráttar.
Dylgjur Einars Kárasonar um
hæfileikaskort minn í því starfi
sem við stundum bæði eru
ósmekklegar og niðrandi fyrir
hann sjálfan. Það er háttur barna
og rökþrota fólks að lítillækka
andstæðinginn, en á ekkert skylt
við málefnalega umræðu. Aðfor-
maður Rithöfundasambands ís-
lands skuli opinberlega grípa til
slíkra meðala til að varpa rýrð á
óbreytta félagsmenn er fyrir neð-
an allar hellur.
8. mars 1990
Olga Guðrún Árnadóttir
ALÞYDUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Vestmannaeyjum
Kvöldvaka
Kvöldvaka Alþýðubandalagsins í Vestmannaeyjum verður haldin
í sal Sveinafélags járniðnaðarmanna við Heiðarveg föstudaginn
9. mars klukkan 20.30.
Dagskrá: Borðhald - Skemmtiatriði - Söngur. Þátttökutilkynningar
berist til Huldu í síma 1 -16-84, Baldvins s: 1 -22-79 og Guðmundu í
síma 1-21-26.
Félagar eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti.
Félagsmálanefnd AB
Alþýðubandalagið Kópavogi
Spilakvöld
Spilakvöld verður haldið í Þinghól, Hamraborg 11, þriðju hæð,
mánudaginn 12. mars kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Stjórnin
AB Hafnarfirði, Garðabæ og Bessastaðahreppi
Kvöldskemmtun í Gaflinum
Alþýðubandalagsfélögin í Hafnarfirði, Garðabæ og
hreppi halda sameiginlega kvöldskemmtun
í Gaflinum föstudaginn 9. mars kl. 20.
Léttur kvöldverður og skemmtiatriði. Ræðustúfa flytja
Magnús Jón Árnason og Hilmar Ingólfsson.
Miðaverð kr. 1300.
Félagar og stuðningsmenn fjölmennið. Stjórnirnar
Alþýðubandalagið á Akranesi
Bæjarmálaráð
Alþýðubandalagið á Akranesi boðar til bæjarmálaráðsfundar í
Rein, mánudaginn 12. mars klukkan 20,30.
Dagskrá: 1. Bæjarstjórnarfundur.
2. Önnur mál. , .
Stjórmn
Alþýðubandalagið Vestmannaeyjum
Opið hús
Opið hús verður í Kreml sunnudaginn 11. mars kl. 14-16.
Rædd verður stefna Alþýðubandalagsins við næstu bæjarstjórn-
arkosningar. Auk þess verður fjallað um fjárhagsáætlun
Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 1990.
Mætum öll.
Stjórnin
TRESMIÐJAN STOÐ
Smíðum hurðir og glugga í
ný og gömul hús.
Önnumst breytingar og
endurbætur á gömlum
húsum úti sem inni.
Smíðum sumarbústaði og
seljum sumarbústaðalönd.
Trésmiðian Stoð Reykdalshúsinu Hafnarfirði
• Sími 50205, kvöldsími 41070.
SIEMENS
Með SIEMENS. heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
• Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
• Borgarfjöröur: Rafstofan Hvítárskála.
• Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25.
• Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
• ísafjöröur: Póllinn hf., Aðalstræti 9.
• Sauöárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1.
• Siglufjöröur: Rafbær sf., Aðalgötu 34.
• Akureyri: Sír hf„ Reynishúsinu Furuvöllum 1.
• Húsavík: Öryggi sf„ Garðarsbraut 18a.
• Neskaupstaöur: Rafalda hf„ Hafnarbraut 24.
• Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
• Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Ásvegi 13.
• Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43.
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf„ Flötum 18.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
• Selfoss: Árvirkinn hf„ Eyrarvegi 29.
• Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðabraut 2a.
• Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.