Þjóðviljinn - 09.03.1990, Side 29

Þjóðviljinn - 09.03.1990, Side 29
Hvað á að gera um helgina? Kristín Steinsdóttir rithöfundur Ég ætla að vinna að leikriti með Iðunni systur minni, en á laugardaginn fer ég á fund með sóroptimistum í Hafnarfirði. Á sunnudaginn ætla ég svo að slappa af með fjölskyldunni og halda upp á afmælið mitt. w MYNDLISTIN Art-Hún hópurinn sýnir í húsakynn- umTaflfél. Rvíkurog Skáksamb. ísl. v/ Faxafen, skúlptúrverk, grafík og myndir unnar í kol, pastel og olíu. Sýn. er í tengslum við Stórvelda- slaginn og Búnaðarbankamótið og er opin á meðan á skákmótunum stend- ur. FÍM-salurinn, Garðastræti 6, Daniel Morgenstern, Obsessions 2, opn lau kl. 14.TÍI27.3.14-18daglega. Gallerí Borg, Ásgeir Smári, olíu- og vatnslitamyndir. Til 20.3.10-18 virka daga, 14-18 helgar. Gallerí einn einn, Skólavörðustíg 4a, Jóhann Eyfells, skúlptúrlíkön og pappírssamfellur. TÍI15.3.14-18 daglega. Gallerí Graf, Logafold 28, verk Ástu Guðrúnar Eyvindardóttur. Lau 14-18 e/eftirsamkomulagi. Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 9, Guðjón Ketilsson, blýantsteikning- ar. Til 16.3. verslunartími. Gamli Lundur, Akureyri, Sigurjón Jóhannsson, Síldarævintýrið. Til 11.3.16-18 virka daga, 14-18 helgar. Hafnarborg, Hf, Nonaginta: Björn Roth, Daði Guðbjörnsson, Eiríkur Smith, Kjartan Guðjónsson og Ómar Stefánsson sýna málverk. Til 18.3. 14-19 alla daga nema lau. íslandsbanki, Skipagötu, Akureyri, myndir eftir Jón Eiríksson. Til 2.4. Kjarvalsstaðir, 11-18 daglega, vest- ursalur, formleysismálverk úr safni Riis. Vesturforsalur, verke/Svavar Guðnason. Austursalur og austur- forsalur, Metamorfis, Guðjón Bjarna- son, málverk og skúlptúrar, opn lau kl. 16-20:SlagverkshópurinnSnerta og Inferno 5 leika tilbrigði við verkin og Jón Aðalsteinn Þorgilsson og Þor- steinn Gauti Sigurðsson leika róm- antísk verk á klarinett og píanó. Sýn. stendurtil25.3. Listamannahúsið, Birgitta Jóns- dóttir, þurrpastelmyndir, olíumálverk og punktamyndir. Til 1.4. versl.tími. Listasafn ASI, Úr hugarheimi, sýn. á verkum fatlaðra, opn lau kl. 15. Til 25.3.16-20 virka daga, 14-20 helgar. Listasafn Islands, salir 1 -5 Uppþot og árekstrar, norræn list 1960-1972, farandsýning á vegum Norrænu Iist- amiðst. Til 8.4.12-18 alla daga nema mán. kaffistofa opin á sama tíma, að- gangurókeypis. Listasafn Einars Jónssonaropið helgar 13.30-16, höggmyndagarður- inn alladaga 11-17. Listasafn Sigurjóns, járnmyndir Sigurjóns og gjafir sem safninu hafa borist undanfarin ár. Lau og su 14-17, þri 20-22. Mokka, Vilhjálmur Einarsson, lands- lagsmálverk. Norræna húsið, kjallari, Aurora 3, samsýn. ungra norrænna lista- manna. Til 11.3.14-19 daglega. And- dyri: T eikningar Williams Heinesen og Ijósmyndir úr lífi hans opn lau kl. 15.TÍI1.4.12-19su 9-19aðradaga. Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Karólína Lárusdóttir, vatnslitamyndir og dúk- ristur, opn lau kl. 14-16. Til 28.3.10- 18 virka daga, 14-18 helgar. Sjóminjasafn Islands, Vesturgötu 8 Hf. Opið helgar 14-18, e/ eftir samkomulagi. SPRON, Álfabakka 14, Gunnsteinn Gíslason, múrristur. Til 27.4.9:15-16 mán-fö. Þjóðminjasafnið, opið þri, fi, lau oa su 11-16. TÓNLISTIN Sinfóníuhljómsveit (slands, 40 ára afmælistónleikar í Háskólabíói í kvöld kl. 19:30. Sellókonsert e/ Jón Leifs og Sinfónía nr. 2 e/ Mahler. Einleikari Erling Blöndal Bengtsson, einsöngv- arar Signý Sæmundsdóttir og Rannveig Fríða Bragadóttir, kór ís- lensku óperunnar, kórstjóri Peter Locke, hljómsveitarstjóri Petri Sak- ari. Uwe G. Eschner gítarleikari heldur tónleika á vegum Listvinafélags Hall- grímskirkju í kapellu kirkjunnar lau kl. 17. verk e/ Narvaes, Dowland, Giu- liani, Sor, Castelnuovo-Tedesco og Britten. Jón Aðalsteinn Þorgeirsson klari- nettleikari og Þorsteinn Gauti Sig- urðsson píanóleikari haldatónleikaá Kjarvalsstöðum su kl. 20:30. Sónata e/ Saint-Saéns, Grand Duo Consert- ant e/ Weber og Sónata nr. 2 e/ Brahms. Nína Margrét Grímsdóttir píanó- leikari heldur tónleika á vegum EPTA á Kjarvalsstöðum mán kl. 20:30. Verk e/J.S. Bach, Haydn, JónasTómas- son, Debussy og Chopin. Vinir Dóra og gleðibandið Júpíters leika á tónleikum á vegum Röskvu, samtaka félagshyggjufólks H.í. á Hótel Borg su kl. 22. Húsið opnað kl. 21, miðaverð 1000 kr. allir velkomnir. Tómas R. Einarsson og fél. leika á jasskvöldiáCafé ísland, Hótel islandi laukl. 23:30. Tónleikar til stuðnings Mordechai Vanuna, samviskufanga í ísraelsku fangelsi verða í Langholtskirkju su kl. 16. Kór Langholtskirkju, Háskólakór- inn, Jónas Ingimundarson, Halldór Vilhelmsson, Einar Kr. Einarsson, Elías Davíðsson, Gunnar Kvaran, Rannveig Fríða Bragadóttir, Guðný Guðmundsdóttir, Halldór Haralds- son, Reynir Jónasson, Einar Jóhann- esson og kirkjukórÓlafsvíkur. Sjá Hitt og þetta. Heiti potturinn, Duus-húsi, Súld leikurfrá kl. 21:30. LEIKLISTIN Leikfélag Hafnarfjarðar, Hrói Höttur, lau kl. 17, su kl. 14. Leikfélag Kópavogs, Félagsheim. Kópav. Virgill litli lau og su kl. 14 (s. 41985). Leikfélag Reykjavíkur, Ljós heimsins, litla sviðinu í kvöld og lau kl. 20. Töfrasprotinn lau og su kl. 14. Kjöt, í kvöld og lau kl. 20. Nemendaleikhúsið, Lindarbæ, Óþelló, í kvöld og su kl. 20:30, síðasta sýn. Sóngleikurinn Líf og friöur su kl. 20:30 ÍSeljakirkju. Fantasía, Skeifunni 3c, Vagnadans - í leit að hjómi (s. 679192). ísienska Óperan, Carmina Burana og Pagliacci, lau kl. 20. Leikfélag Akureyrar, Heill sé þér þorskur. HITT OG ÞETTA Janúarvinningur í almanakshapp- drætti Landssamtakanna Þroska- hjálpar kom á miða nr. 6726 og febrú- arvinn.ámiða 2830. Útivist, ævintýraferð á Heklu á fullu tungli 9.-11.3. brottför í kvöld kl. 20, miðaráskrst. Grófinni 1. Þórs- merkurgangan 5. ferð su kl. 10:30 og 13, brottförfrá Umf.miðst. bensín- sölu, stansað við Árbæjarsafn, göng- urnar sameinast við Kögunarhól. Skíðagangasu, brottförkl. 13 frá Umf. stansað við Árbæjarsafn, léttur hringur. Hana nú, lagt upp í laugardags- gönguna frá Digranesvegi 12 kl. 10 í fyrramálið. Hittumst uppúr hálftíu til að drekka molakaffi og rabba saman. Myndlist Williams Heinesens, Bárð- ur Jákupsson heldurfyrirlesturmeð litskyggnum í fundarsal Norræna hússinssu kl. 16. Félagsvist og gömlu dansarnir á hverju föstudagskvöldi i Templara- höllinni, Tíglarnir leika fyrir dansi, allir velkomnir. Kvikmyndaklúbbur íslands, Konan á ströndinni e/ Renoir (USA1946) sýnd í Regnboganum lau kl. 15. KVIKMYNDIR Ólafur H. Torfason skrifar Vandi vináttunnar Bíóborgin: Þegar Harry hitti Sally. Leikstjórn: Bob Reiner. Aðalhlutverk: Bily Crystal, Meg Ryan, Carrie Fisher, Bruno Kirby. Bandaríkin 1989. Harry er alltaf að hitta Sally, reynir við hana með ýmsum hætti, eins og annað kvenfólk, en verður lítið ágengt, árum saman, aldrei þessu vant. Hann er ímynd nautnaglaða Amríkanans, neyt- andans, sem vill smakka allt, prófa allt. Sally er hins vegar ná- kvæmnismanneskja og vill hafa eitthvað meira á bak við kynlífið en stuttaralegan kunningssicap og fá eitthvað meira út úr persónu- legum samböndum en líkamleg kynni. hans um að konur og karlar geti aldrei verið vinir, því karlar sæk- íst bara eftir þessu eina, hvort sem þeir viðurkenni það eða ekki. Handritið er sneisafullt af meitluðum bröndurum og neyðarlegum uppákomum. Það einkennilega er, að þrátt fyrir all- an ameríska blæinn og söguþráð- inn, færast Harry og Sally miklu nær manni en obbinn af drauma- verksmiðjufólkinu að vestan. Leikarar standa sig mestan part með prýði og taktur myndarinnar og með er góður. Myndatakan er vönduð jafnvel í margs konar tilvísunum, skautasvellamyndir Bru- eghels. Ýmis djarfleg tiltæki.eins og þrískipting tjaldsins, þar sem sýnt er frá þrem stöðum í einu, gengur fyllilega upp. Stuðlar og höfuðstafir þessarar myndræmu koma úr frægu verki, Casablanca, þar sem Humphrey Bogart og Ingrid Bergman kynda hugarheima hvors annars og jafnvel fleira. Harry og Sally lifa sig talsvert inn í Casablanca (hver gerir það ekki?), en málin snúast á endanum öðru vísi en þar. Þegar Harry hitti Sally er góð skemmtun, enda full hús um öll lönd að njóta þess. Engar skammbyssur, enginn bílaelting- arleikur, engar kynlífssenur, ekkert blóð eða ofbeldi. Bara þetta ljúfsára ástand óvissunnar hjá þeim sem eru að átta sig á vináttu og ást. Háskólabíó Sif Gunnarsdóttir Gerist þetta bara skrifar í Brooklyn? Myndræma þessi lýsir með skemmtilegum hætti þróun þess- ara tveggja persónuleika, sem eru sjálfsöruggir, hver á sinn hátt, kastast hver frá öðrum vegna ósamrýmanlegra þátta, en laðast um leið hvor að öðrum á margs konar forsendum. Tíminn líður og náttúrlega opnast bæði Harry og Sally annars konar víddir og verðmæti. Og loks verða þau að takast á við þá spurningu, hvort þau eigi kannski að búa saman. Þetta er margra ára törn hjá Harry og Sally. Þau hittast fyrst þegar hún skutlar honum frá Chicago til New York, 18 klst. bílferð, og hann samkjaftar varla. Margt gengur fram af Sally, meðal annars kenningar Last Exit to Brooklyn, cða Undir- heimar Brooklyn Leikstjóri: Uri Edel Handritshöfundur: Desmond Nakano Kvikmyndatökumaður: Stcphan Czapsky Tónlist: Mark Knofler Aðalleikarar: Jennifer Jason Leigh, Alexis Arquette og Stehen Lang Kvikmyndin Last Exit to Bro- oklyn er gerð eftir samnefndri bók Hubert Selby, sem fyrst kom út í Bandaríkjunum 1957. í Bret- landi kom hún út 1966 og var bönnuð með réttarhöldum og látum eftir að hafa rokselst í þrjá mánuði. Bretunum fannst bókin alveg ógeðsleg, full af ofbeldi og klámi sem gæti „sýkt lesandann og spillt honum“. Þetta er nú kannski of mikið sagt en bókin er engin skemmti- lesning og kvikmyndin er heldur ekki skemmtileg. Þetta er ekki mynd sem léttir skapið og gerir íslenskan vetur léttbærari. Og þó, öll hljótum við að vera fengin því að hafa ekki þurft að alast upp í Brooklyn á sjötta áratugnum, því nær helvíti verður vart kom- ist. Myndin gerist sem sagt í Bro- oklyn 1952, en þetta er engin rokk og ról mynd í anda Americ- an Graffiti. Öngvir sætir strákar í flottum bflum eða stelpur með tagl. f staðinn fær maður að sjá fjöldanauðgun og slagsmál og hitta alkóhólista, dópista, kyn- skiptinga og mellur. Það er verk- fall í verksmiðjunni og íbúar Bro- oklyn eru enn spenntari á taugum en venjulega. En mitt í öllu þessu vonleysi blómstra ástríður; Ge- orgette (Alexis Arquette) elskar Vincent (Peter Dobson) út af líf- inu og lætur reyndar lífið út af sama. Verkalýðsleiðtoginn Harry Black (Stephen Lang) uppgötvar skyndiiega að hann er hrifnari af hommanum Regínu en konunni sinni og hóran Tralala elskar peninga og er til í hvað sem er. Eina fólkið sem jaðrar við að vera „eðlilegt" er verkamaðurinn Joe sem er að flýta sér að gifta dóttur sína áður en hún eignast barnið. Það sem kemur manni samt mest á óvart við Last Exit to Bro- oklyn er hvað hún er fantalega áhrifamikil, og kvikmyndatakan á stóran þátt í því. Umhverfið ýtir líka undir óhugnaðinn, allt er grátt og eyðilegt, hvergi litir og aldrei sólskin. Göturnar eru full- ar af drasli og glerbrotum. Þetta samræmist næstum hugmyndum manns um hvernig umhorfs gæti verið eftir Þriðju heims- styrjöldina. Edel og Czapsky sýna örvæntinguna og orðlausa reiðina í dramatískum atriðum sem stundum minna á Orson Welles í uppbyggingu. Ofbeldið er mikið en það er ekki ofbeldi ofbeldisins vegna heldur er of- beldi eini tjáningarmátinn sem þetta fólk hefur, og eitt atriðið sem situr eftir í huganum er nær- myndin af mörðu og blóðugu andliti Tralala sem löngu er hætt að sjá eða skilja vonleysi stöðu sinnar. Velkomnir til raunveru- leikans, áhorfendur. Föstudagur 9. mars 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍBA 29

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.