Þjóðviljinn - 12.04.1990, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 12.04.1990, Blaðsíða 4
Þýðing Nýja testamentisins 450 ára í dag eru 450 ár liðin frá fyrstu útgáfu Nýja testamentisins í íslenskri þýðingu Odds Gottskálkssonar, en bókin var prentuð í Hróarskeldu 1540. Hið íslenska biblíufélag mun minnast atburðarins með helgistund í Hallgrímskirkju kl. 9 á skírdagsmorgni, og mun Jónas Gíslason vígslu- biskup og varaforseti Biblíufélagsins annast helgistundina ásamt prestum og organleikara kirkjunnar. í tilefni afmælisins og páskanna birtum við hluta af þýðingu Odds á fimmtánda kafla Markúsarguðspjalls um krossfestingu Krists: En stríðsþénararnir leiddu hann í fordyr þinghússins og köll- uðu saman allan hópinn og færðu hann í purpuraklæði, fléttandi þyrnikórónu og settu á hann og tóku að heilsa honum: Heill sért þú konungur Gyðinga, - og slógu hans höfuð með reyrvendi og hræktu á hann, féllu og á hné og tilbáðu hann. Og þá þeir höfðu spottað hann, færðu þeir hann úr purpuranum og færðu hann aftur í sín klæði og leiddu hann út að þeir krossfestu hann. Þeir þrengdu og þeim sem fram hjá gekk, Símoni hinum sýrneska er kominn var af akur- lendi, föður þeirra Alexandri og Ruffi, að hann bæri hans kross. Og þeir höfðu hann í þann stað er heitir Golgata, það þýðist gálga- klettur. Og þeir gáfu honum myrrat vín að drekka, og hann tók það eigi til sín. Og þá er þeir höfðu krossfest hann, skiptu þeir klæðum hans og köstuðu hlutverpi yfir þeim hvað hver tæki. En það var um þriðju stund er þeir krossfestu hann. Og titill hans sakferils var yfir honum skrifaður, það hann væri konung- ur Gyðinga. Og með honum krossfestu þeir tvo spillvirkja, einn til hægri handar, en annan til vinstri. Og sú ritning er uppfyllt sem segir: Með illvirkjum er hann reiknaður. Og þeir gengu þar fram hjá og hæddu hann, skóku höfuð sín og sögðu: Svei, hverninn niðurbrýt- ur þú musteri Guðs og byggir upp á þrim dögum aftur? Frelsa nú sjálfan þig og stíg niður af kross- inum. Líka einninn spéuðu hann höfuðprestarnir sín á meðal með- ur skriftlærðum og sögðu: Aðra frelsaði hann, sjálfan sig getur hann eigi frelsað. Sé hann Krist- ur, konungur fsraels, stígi hann nú niður af krossinum að vér sjáum og megum svo trúa. Og þeir er með honum voru kross- festir, átöldu hann einninn. Og að liðinni séttu stund urðu myrkur um allt landið, allt til ní- undu stundar. Og á hinni níundu stund kallaði Jesús upp hárri röddu og sagði: Eloy, Eloy lam- ma a sabthani, hvað er útleggst: Guð minn, Guð minn, hví for- Iéstu mig? Og þá nokkrir af þeim, er þar stóðu hjá, heyrðu það, sögðu þeir: Sjá hann kallar á Elíam. En einn hljóp að og fyllti upp njarðarvött með edik, lát- andi upp á einn reyrlegg, gaf hon- AUGLÝSING frá félagsmálaráðuneytinu Félagsmálaráðuneytið hefur að ósk hlulaðeigandi sveitarstjórna heimilað að almennar sveitar- stjórnarkosningar fari fram 9. júní 1990 í eftirtöldum sveitarfélögum: Skorradalshreppur, Lundarreykjadalsahreppur, Norðurárdalshreppur, Hvítársíðuhreppur, Stafholtstungnahreppur, Miklaholtshreppur, Skógarstrandarhreppur, Hörðudalshreppur, Haukadalshreppur, Hvammshreppur, Fellsstrandarhreppur, Skarðshreppur, Dalasýslu, Saurbæjarhreppur, Daiasýslu, Rauðasandshreppur, Mýrahreppur, Vestur-ísafjarðarsýslu, Ogur- hreppur, Reykjafjarðarhreppur, Nauteyrarhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Kirkjubóls- hreppur, Fellshreppur, Strandasýslu, Óspakseyrarhreppur, Bæjarhreppur, Strandasýslu, Staðar- hreppur, Vestur-Húnavatnssýslu, Fremri-Torfustaðahreppur, Ytri-Torfustaðahreppur, Kirkju- hvammshreppur, Þorkelshólshreppur, Sveinsstaðahreppur, Skagahreppur, Skefilsstaðahreppur, Skarðshreppur, Skagafjarðarsýslu, Lýtingsstaðahreppur, Skriðuhreppur, Öxnadalshreppur, Hálshreppur, Bárðdælahreppur, Reykdælahreppur, Öxarfjarðarhreppur, Presthólahreppur, Sval- barðshreppur, Hlíðarhreppur, Jökuldalshreppur, Fljótsdalshreppur, Tunguhreppur, Skriðudals- hreppur, Mjóafjarðarhreppur, Fáskrúðsfjarðarhreppur, Geithellnahreppur. í öðrum sveitarfélögum en ofantöldum skulu kosningar til sveitarstjórna fara fram 26. maí 1990. DAGSETNINGAR VEGNA SVEITARSTJÓRNARKOSNINGA 9. JÚNÍ1990 Kjörskráskal hafaveriðlögöframeigisíðaren....................... 8. apríl Krafa um bundnar hlutfallskosningar í sveitarfélagi með 300 íbúa eða færri berist oddvita (yfir)kjörstjórnar, bréflega, eigi síðar en . 27. apríl Sveitarstjórnarmaður, sem skorast undan endurkjöri, skal tilkynna (yfir)kjörstjórn þá ákvörðun sína eigi síðar en............ 5. maí Kjörskráskalliggjaframmitilogmeð ............................... 6.maí Framboðsfrestur rennur út...................................... 11.maí Framlengdurframboðsfrestur, ef aðeins kemurfram einn listi, rennur út 13. maí (Yfir)kjörstjórn auglýsir framboðslista þegar eftir að listar hafa verið úrskurðaðir gildir og merktir Utankjörfundaratkvæðagreiðslageturhafist...................... 14. apríl Kærufresturtilsveitarstjórnarvegnakjörskrárrennurút............ 25. maí Afrit kæru sendist þeim sem kærður er út af kjörskrá eigi síðar en. 28. maí Sveitarstjórn boðarfund til afgreiðslu á kærum fyrir........... 29. maí Sveitarstjórn úrskurðar kærur og undirritar kjörskrá eigi síðar en . 1. júní (Yfir)kjörstjórn auglýsir, hvenærkjörfundurhefstfyrir.......... 6.júní Kjörstjórn tilkynni (oddvita yfirkjörstjórnar, svo og) hreppsnefnd eða bæjarstjórn, sem mál getur varðað, um breytingar á kjörskrá strax og dómur er genginn. (Yfir)kjörstjórn auglýsir hvar og hvenær atkvæðatalning verður með nægum fyrirvara á undan kosningum. Atkvæðatalning hefst svo fljótt sem unnt er að loknum kjörfundi. (Yfir)kjörstjórn setur notaða kjörseðla undir innsigli að talningu lokinni, þegar kosning er óbundin. Kæra vegna kosninganna skal afhent hlutaðeigandi sýslumanni eða bæjarfógeta innan sjö daga frá því að lýst var úrslitum kosninga. (Yfir)kjörstjórn eyðir innsigluðum kjörseðlum að kærufresti loknum eða að fullnaðarúrskurði uppkveðnum, hafi kosning verið kærð, þegar kosning er óbundin, sbr. 19. Félagsmálaráðuneytið, 10. apríl 1990 um svo að drekka og sagði: Lát fara, sjáum hvort ef Elías kemur að taka hann ofan. En Jesús kallaði upp hárri röddu og andaðist. Og tjaldið musterisins rifnaði sundur í tvo frá ofanverðu allt niður í gegn- um. En er hundraðshöfðinginn sá það, hver þar stóð gegnt, að hann kallaði svo þá er hann lést, sagði hann: Sennilega hefir þessi mað- ur verið Guðs sonur. &efíament/3e{u Cfytifft cigmírgoio t6eu«r»0cli« þucc (jad ftulpt pic5if«0i t fc«0i/Wct (t),i, pollulac t ©uöj fpl «II»mcfi(to«iirft(pu6o. p«u cru nu bíct vilogo « r t«mu/©uoihtlop* * OyrOat/ cfl«(mug«» nú fil f«/mO«t« 0«lu þl«lp«r» Þetta er hiö nýja testament, Jesú Kristi eiginleg orö og evangeli- a...Titilblað á útgáfu Odds frá 1540 Miimisblað páskahelgarinnar Bensínsala Miðvikudagurinn 11 apríl: opið til kl 20.00. Skírdagur 12 apríl: opið frá 12.00-16.30.Föstudagurinn langi: lokað. Laugardagurinn 14 apríl: opið frá 7.30-20.00. Páska- dagur 15 apríl: lokað. Annar páskadagur 16 apríl: opið frá 12.00-16.30. Sumardaginn fyrsta 19 apríl: opið frá 12.00- 16.30. Sérleyfísferdir Daglegar áætlunarferðir eru frá umferðamiðstöð alla virka daga frá 8.00 að morgni til 23.30 á kvöldi. Á skírdag verður ekið á öllum leiðum samkvæmt áætlun. Á föstudaginn langa og páska- dag eru engar ferðir á lengri leiðum. Ekið er á styttri leiðum samkvæmt stórhátíðaráætlun. Á annan í páskum er ekið sam- kvæmt sunnudagsáætlun og aukaferðum bætt við. Allar nánari upplýsingar er að fá í síma 91-22300. Flug Millílandaf lug Allt millilandaflug Flugleiða verð- ur samkvæmt áætlun alla helg- ina. Söluskrifstofur og farskrár- deild félagsins verða lokaðar yfir helgina, fólki er því bent á flugaf- greiðsluna á Keflavíkurflugvelli ef það vill panta far. Nánari upplýs- ingar er að fá í síma 690300, milli- landafarskrá FLugleiða. Milli- landaflug Arnarflugs verður sam- kvæmt áætlun yfir~helgina.Far- skrá er í síma 84477 eða 92- 50300 á Keflavíkurflugvelli. Innanlandsflug Innanlandsflug Flugleiða verður lokað á Föstudaginn langa og Páskadag. Alla aðra daga verður flogið samkvæmt áætlunum og boðið upp á margar aukaferðir. Annan í páskum verður flogið þotuf lug f rá Kef lavík til Akureyrar. Allar nánari upplýsingar er að fá í síma 690200, innanlandsfarskrá Flugleiða. Innanlandsflug Arnarflugs verður samkvæmt áætlun nema lokað verður á Páskadag og Föstudag- inn langa. Hjá Arnarflugi verður bætt við aukaferðum eftir þörf- um, upplýsingar og farskrá er í síma 29577. Læknavakt Neyðarvakt lækna er opin allan sólarhringinn alla páskahelgina. Síminn þar er 21230. Slysadeild Borgarspítalans verð- ur með neyðarmóttöku alla helg- in. Síminn þar er 696600. Sími neyðarvaktar lækna í Hafn- arfirði, Garðabæ og Bessastaða- hreppi er 51328. í Mosfellsbæ er síminn 666201. Upplýsingar um neyðarvakt tannlækna er að fá í síma 18888. Apótek Neyðarvakt verður í Borgarapó- teki á Skírdag. Holtsapóteki Föstudaginn langa, Páskadag, annan í páskum og sumardaginn fyrsta. Nánari upplýsingar um neyuðar- vakt lyfjabúða er að fá í símum 18888 í Reykjavík og Kópavogi. 51100 í Hafnafirði, Garðabæ og Bessastaðahreppi. 666201 í Mosfellsbæ. Heyrnatækja- þjónusta Minniháttar heyrnatækjaþjón- usta verður veitt á vegum Heyrnar og talmeinastöðvar ís- lands að Háaleitisbraut 1, laugar- daginn 14 apríl og mánudaginn 16 apríl frá 10.00-12.00 báða dagana. Nánari upplýsingarfást í síma 83855. Strætisvagnar Skírdagur: Ekið eftir sunnudaga- áætlun. Föstudagurinn langi: Akstur hefst kl.1.00. Ekið eftir það samkvæmt sunnudaga tíma- töflu. Laugardagur: Ekið eftir laugardagstímatöflu. Páskadag- ur: Akstur hefst kl.1.00. Ekið eftir það samkvæmt sunnudagatíma- töflu. Annar páskadagur: Ekið samvæmt sunnudagatímatöflu. Strætisvagnar Kópavogs Skírdagur: Ekið samkvæmt sunnudagatímatöflu, akstur hefst kl. 10.00. Föstudagurinn langi: Akstur hefst kl. 14.00 og ekið eftir það samkvæmt timaáætlun sunnudaga. Laugardagurinn 14 apríl: Ekið eftir venjulegri laugar- dagsáætlun. Páskadagur: Akst- ur hefst kl.14.00 og ekið eftir það samkvæmt venjulegri sunnudag- aáætlun. Annar í páskum: Ekið samkvæmt sunnudagaáætlun. Sumardagurinn fyrsti: Ekið sam- kvæmt venjulegri sunnudagaá- ætlun Landleiðir Skírdagur: Ekið samkvæmt venjulegri sunnudaga áætlun, akstur hefst kl. 10.00. Föstudag- urinn langi: Akstur hefst kl. 14.00, ekið eftir það samkvæmt venju- legri sunnudagatímatöflu. Laugardagurinn 14 apríl: Ekið eins og venjulega á laugar- dögum. Páskadagur: Akstur hefst kl. 14.00 og ekið eftir það samkvæmt sunnudagatímatöflu. Annar í páskum: Ekið eftir venju- legri áætlun sunnudaga. Sumardagurinn fyrsti: Ekið sam- kvæmt venjulegri tímaáætíun sunnudaga. Umferð Umferðarráð hvetur alla er hyggja á ferðalög um páskana að kynna sér færð á vegum og leggja ekki upp á illa útbúnum bílum. Umferðarráð er fúst að veita upplýsingar og aðstoð í síma 27666. 4 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Fimmtudagur 12. april 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.