Þjóðviljinn - 12.04.1990, Blaðsíða 28

Þjóðviljinn - 12.04.1990, Blaðsíða 28
Pólitískt réttarmorð Kate Kaku: Mark Curtis ólst upp í indíánabyggð og kynntist kynþátta- misrétti frá barnæsku... Ljósm. Kristinn. Kate Kaku, eiginkona bandaríska kjötiðnaðarmannsins Mark Curtis, segir mann sinn hafa verið dæmdan í 25 ára fangelsi á upplognum sökum vegna stuðnings hans við innflytjendur og kúgaða minnihlutahópa Ég er hér á (slandi til þess að kynna málstað eiginmanns míns, Mark Curtis, en hann var dæmd- ur af undirrétti í lowa í Bandaríkj- unum fyrir upplognar sakir 1988 til 25 ára fangelsisvistar. Hann var dæmdur fyrir nauðgun á 15 ára blökkustúlku og innbrot, á vitnisburði tveggja lögregluþjóna í borginni Des Moines, lowa. Hin raunverulega ástæða fyrir dóm- inum er hins vegar pólitísk: Curt- is, sem vann í sláturhúsi, hafði beitt sér fyrir réttindum innflytj- enda meðal verkamanna, auk þess sem hann hafði starfað í El Salvador-samstöðunefndinni og tekið virkan þátt í baráttu gegn kynþáttamisrétti... teknir á vinnustað sem „ólög- legir“ innflytjendur. Kate Kaku sagði að unnið væri að því að taka mál Curtis fyrir á ný í bandaríska dómskerfinu. Jafnframt væri unnið að því að taka málið fyrir í alþjóðlegu mannréttindanefndinni í Genf og hjá Amnesty International. Hún sagðist undir það búin að barátt- an gæti orðið löng, en hún sagðist jafn sannfærð um að sigur myndi vinnast og mannorð eiginmanns hennar hreinsað. Kate Kaku hélt héðan til Svíþjóðar, þar sem hún mun kynna málstað manns síns eins og hún hefur gert í fjölmörg- um löndum. _5ig Þetta sagði Kate Kaku, eigin- kona bandaríska kjötiðnaðar- mannsins Mark Curtis, sem nú er stödd hér á landi. Með ötulli bar- áttu fyrir málstað manns síns hef- ur henni og félögum Curtis tekist að fá fjölmargar virtar alþjóð- legar mannréttindastofnanir og einstaklinga og fulltrúa verka- lýðssamtaka og mannréttinda- samtaka til þess að veita máli þessu stuðning. Meðal stuðnings- manna samstöðunefndarinnar er Geir Gunnarsson alþingismaður, Tony Benn, þingmaður á breska þinginu, Annika Ahnberg á sæn- ska þinginu, Mannréttindanefnd Frakklands, Suðuramerísku mannréttindasamtökin í Iowa, formaður Sambands verkalýðsfé- laga í matvælaiðnaði í Bandaríkj- unum, formaður bandarísku samtakanna um rétt innflytjenda o.s.frv. Kate Kaku sagði að mál þetta varðaði ekki einungis það rétt- armisferli sem Mark Curtis hefði orðið fyrir, heldur væri um að ræða réttindabaráttu innflytj- enda sem ættu nú undir högg að sækja, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Kate Kaku kynnti mál Mark Curtis á ráðstefnu skiptinema- samtaka um kynþáttamisrétti nú í vikunni, auk þess sem hún hefur átt samtöl við verkalýðsfélög og stjórnmálamenn og gengist fyrir opinberum fundi. Kate sagði að málinu hefði alls staðar verið vel tekið, einnig af Amnesty á ís- landi, en umsókn hefur nú verið lögð fyrir Amnesty International um að Mark Curtis verði viður- kenndur sem pólitískur fangi. Nýlega birtist hér í blaðinu frétt, þar sem sagt var frá bók sem gefin er út af samtökunum Workers League, þar sem því er haldið fram að Curtis sé sekur. Kate sagði samtök þessi vera dul- búin fasistasamtök, sem starfi í Bandaríkjunum undir yfirskini sósíalisma í því skyni að spilla fyrir réttindabaráttu verkafólks. Samtökin hefðu beitt sér gegn verkfallsaðgerðum víða í Banda- ríkjunum en þó einkum beitt sér gegn Sósíalíska verkamanna- flokknum, sem Mark Curtist starfaði í. Kate sagði að Mark Curtis hefði alist upp í indíánabyggð í Nýja Mexíkó, og kynnst kynþátt- amisrétti frá barnæsku. Hann hafi því ákveðið að helga líf sitt baráttunni gegn kynþáttamis- rétti, en kynþáttahatur sé meðal annars útbreitt innan lögreglunn- ar í Iowa. Þannig var Mark Curtis misþyrmt og hann kinnbeinsbrot- inn eftir handtökuna um leið og lögregluþjónarnir ásökuðu hann um að „elska mexíkana og litað fólk“. Mark Curtis hafði dagana fyrir handtökuna unnið að því að skipuleggja fund og vinnustöðv- un í mótmælaskyni gegn því að 17 samverkamenn hans frá Mexíkó og E1 Salvador höfðu verið hand- Öiyggi í viðskiptum -heiðarlegskattskil! Réttir viðskiptahættir ttyggja heiðarleg skattskil. Þau eru undirstaðaþeirra sameiginlegu verkefha í landinu sem við njótum öll góðs af. Útgáfudagur. Reikningur tölusettur íyrirfram. Fjöldi vinnustunda, einingarverð og heildarverð. Tegund sölu, þ.e. lýsing á því sem selt er. Fjárhæð virðisaukaskatts. / HafðuÞin viðsHipt' á hreinu! FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ Nótuviðskipti eru allra hagur. Með rétt útfyllta nótu (sölureikning) í höndunum hefur viðskiptavinurinn tryggingu fyrir því að skatturinn sem hann greiðir í verðinu kemst til skila. Viðskiptavinurinn hefur þá líka réttinn sín megin ef eitthvað kemur upp á. Fyrirtældð hefur öll bókhaldsgögn á hreinu og báðir aðilar standa skil á sínu í sameiginlegan sjóð okkar allra. Það er því mikilvægt að vita hvemig löglegir reikningar eiga að vera. Nafri kaupanda (og auk þess kennitala ef kaupandi er virðisaukaskattsskyldur). Nafrí, kennitala og vsk.-númer seljanda.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.