Þjóðviljinn - 12.04.1990, Síða 5

Þjóðviljinn - 12.04.1990, Síða 5
Umferðaröryggi Lífið er lukkuspil ÓlafurJón Ingólfsson hjá Sjóvá/Almennum: Tryggingafélögin hafa ekki sýntforvörnum nœgilegan áhuga Ungmenni á aldrinum 17-19 ára koma við sögu í 3000 árekstr- um á ári hverju. Sjóvá/Almennar hefur því sent öllum ungmennum er verða 17 ára á árinu bókina „Lífið er lukkuspil". Bókina fjall- ar um unglinga sem kynnast hörmulegum afleiðingu bílslysa af eigin raun. Ólafur Jón Ingólfsson, deildar- stjóri almannatengsla hjá Sjóvá Almennum, segir að þetta sé lið- ur í forvarnarstarfi sem félagið hefur beitt sér fyrir undanfarin ár, sem lýsi sér meðal annars í auglýsingum félagsins. Ekkert tryggingarfélaganna hafi sýnt forvörnum nægilegan áhuga en nú standi til að bæta úr hjá Sjóvá Almennum. Félagið hefur einnig tekið að sér að kosta ökukennslu í tveim fræðsluumdæmum næsta ár, á Austur- og Vesturlandi. Einn kennari mun starfa í hvoru um- dæmi. Ef tilraunin tekst vel er ætlunin að halda þessu starfi áfram. Þá gaf félagið lögreglunni í Hafnarfirði skellinöðru til að nota við kennslu og þjálfun ung- linga sem ætla að taka próf á létt bifhjól. Að mati félagsins er þetta spurning um að byrgja brunninn áður en barnið dettur ofan í. Því hefur ökukennurum einnig verið send bókin til að þeir séu líka með á nótunum. Ágústa D. Guðmundsdóttir sem sjálf er lömuð af völdum bíl- slyss tekur þátt í þessu átaki fé- lagsins. Aftast í bókinni „Lífið er lukkuspil“ er viðtal við Ágústu og aðra stúlku sem báðar eru lamað- ar af völdum umferðarslysa. Ágústa segir að sér lítist mjög vel á þetta átak. Þetta sé verðugt og vert framtak því allur áróður sé af hinu góða. Ungt fólk sé ein- faldlega of kærulaust til að gera sér grein fyrir hættunni. Það hugsi alltaf: „Það kemur ekkert fyrir mig.“ Þannig hafi hún hugs- að sjálf. Því er nauðsynlegt að hafa stöðugt í gangi umræður og áróður. -ss Borgarstjórn Göng undir slysagildm Borgarfulltrúar minnihlutans lögðu til í borgarstjórn í fyrra- kvöld að 20 miljóna króna auka- fjárveiting yrði samþykkt til byggingar ganga undir Miklu- braut við Rauðagerði. Minni- hlutinn hefur áður flutt tillögur um göng á þessum stað, enda hafa orðið fjölmörg alvarleg slys þar á undanförnum árum. Tillögunni var vísað til borgarráðs. Tillögum minnihlutans um göngin hefur til þessa verið vísað frá, meðal annars tillögu við af- greiðslu fjárhagsáætlunar fyrir nokkrum vikum. Nú í vikunni varð hins vegar enn alvarlegt slys á umræddum stað og það varð tilefni þess að tillagan var endur- flutt. Kristín Á. Ólafsdóttir mælti fyrir tillögunni og í máli hennar kom fram að sex slys hafa orðið á fótgangandi fólki á þessum stað síðan 1979. -gg Verðlagseftirlit Grafið undan samningum Leifur Guðjónsson hjá verðlagseftirliti verkalýðsfélaganna: Ákveðin öfl reyna að eyðileggja samningana. Verðum að fara út íharðari aðgerðir Við fáum tilkynningar um ei- lífar hækkanir á matvöru, hreinlætisvörum og öðru. Það er eins og ákveðnir aðilar séu að reyna að eyðileggja samningana frá í febrúar. Þetta getur ekki gengið svona lengur, sagði Leifur Guðjónsson, starfsmaður verð- lagseftirlits verkalýðsfélaganna, í samtali við Þjóðviljann i gær. Óánægðir neytendur sem hafa verið að kaupa inn fyrir páskana hringdu mikið til Leifs í gær og tilkynntu hækkanir. Hann segir algengt að vörur hækki um fimm til átta prósent, en dæmi eru um mun meiri hækkanir. Þannig hef- ur hann dæmi um 16 prósent hækkun á haframjöli í verslun á Húsavík og svipaða hækkun á sápu í verslun í Reykjavík. „Svona get ég lengi talið. Ég hef fengið hringingar frá starfs- fólki í verslunum sem segir að hver vörusending sé hærri en sú fyrri. Mér virðist hækkanirnar held- ur koma frá heildsölum en smá- söium og vil hvetja kaupmenn til þess að hætta að kaupa vörur frá Láttu vin minn vera var yfirskriftin á ráðstefnu um rasisma á íslandi sem haldin var í gær. Flutt voru ávörp og hinarýmsu hliðar kynþóttafordóma ræddar. Að ráðstefnunni stóðu skiptinemasamböndin, Rauði kross íslands og Ungmennarhreyfingar flokkanna. Ýmis önnur samtök voru með kynningu á fundinum eins og Amnesty á íslandi og Suður-Afríkusamtökin gegn Apartheid. Mynd: Kristinn. Akureyri Fuglum fér fækkandi á pollinum Fuglalíf á pollinum á Akureyri er í hættu vegna nýja veganns sem lagður var yfir fjörðinn. Sjórinn nær að brjóta ísinn norðan vegarins en sunnan hans nær ísinn ekki að fljóta burt. Þetta er bagalegt því sunnan veg- ar eru aðalvarpstaðir ótal vað- og sundfugla. Þjóðviljinn hafði samband við Kristján Lilliendahl hjá líffræð- istofnun Háskólans vegna þessa máls. Kristján taldi fugla á Akur- eyri árið 1988 en þá var vart við minnkun á öllum tegundum. „Það liggja ekki fyrir ná- kvæmar upplýsingar um þetta, sagði Kristján. Dagana sem taln- ingin var framkvæmd lá ís yfir öllu. Það er erfitt að fara ná- kvæmlega eftir dagatali í þessum málum. En við teljum okkur sjá færri fugla innan við veg en áður. Af hvaða ástæðum það er, er svo erfitt að segja. Fæðusvæðið hefur færst til frekar en að hverfa alveg. Við teljum okkur verða varir við mun meiri fugl norðan vegar en áður var. Þar hefur nú myndast ný fjara þar sem var bara hafdjúp áður. En við urðum varir við minnkun í all flestum tegundun, en líklegt er að smá- vaðfuglarnir verði verr úti en hin- ir.“ —ss þeim sem hækka þær umfram það sem eðlilegt er. í stað vörunnar gætu kaupmenn sett miða í hili- una þar sem fram kemur nafn vöru og fyrirtækis, en að ekki sé hægt að kaupa vöruna því hún sé orðin svo dýr. En það eru takmörk fyrir því hve lengi er hægt að traðka á lág- launafólki og það er ljóst að við verðum að fara að herða aðgerðir gegn þeim öflum sem virðast vera að reyna að eyðileggja samning- ana,“ sagði Leifur. -gg Sleppibúnaður Möguleiki á útflutningi Vaxandi áhersla á örygg- ismál sjómanna í ríkjum EB og víðar „Það er mjög brýnt að við fáum fjármagn til að Ijúka þeim próf- unum sem þegar eru hafnar á sjálfvirka sleppibúnaðinum til að auka enn frekar á öryggi ís- lenskra sjómanna. Að þeim lokn- um tel ég að við eigum mikla möguleika á að framleiða þennan búnað til útflutnings,“ sagði Magnús Jóhannesson siglinga- málastjóri. Efnistæknideild Iðntækni- stofnunar fékk á sínum tíma það verkefni að gera tillögur að próf- unaraðferð fyrir sjálfvirka sleppi- búnaðinn sem unnið hefur verið eftir í samvinnu við Siglingamál- astofnun. Þær prófanir sem gerð- ar hafa verið hafa aukið til muna þekkingu manna á því hvemig búnaðurinn virkar en engu að síður er talið nauðsynlegt að gera enn frekari prófanir svo vel sé. Siglingamálastjóri segir að þarna sé verið að þróa öryggis- búnað sem aðrar þjóðir muni taka í sína þjónustu. „Það er vax- andi áhersla á öryggismál sjó- manna í ríkjum Efnahagsbanda- lagsins, Noregs, Kanada og þá eru Bandaríkjamenn einnig farn- ir af stað í þessum efnurn," sagði Magnús Jóhannesson siglingam- álastjóri. -grh Virkjanir Borað á ný við Kröflu Kannað verður hvort Kröflusvœðið er búið að jafna sig eftir hamfarirnar Jarðboranir ríkisins byrja eftir páska að undirbúa borun á einni holu fyrir Kröfluvirkjun en allmörg ár eru nú liðin siðan guf- uöflun var hætt á svæðinu. Ætl- unin er að athuga hvort svæðið sem í upphafi var ætlunin að nýta til gufuöflunar er orðið vinnslu- hæft á ný eftir umbrotin í undir- djúpunum. Að sögn Knúts Otterstedts svæðisstjóra Landsvirkjunar er hugmyndin að bora eina holu niður á allt að 2.000 metra dýpi í sumar. Borað verður beint norður af stöðvarhúsinu, norðan við veginn upp í Víti (sem innvígðir kalla Sjálfskaparvíti). Verður byrjað að undirbúa sjálfa borunina strax eftir páska en eiginleg borun hefst hins vegar ekki fyrr en í júní. Knútur sagði að það tæki svona 30-50 daga að bora niður á 2.000 metra dýpi, eftir því hvernig aðstæður eru. Þegar virkjunin var gerð vom boraðar einar 25 holur á Kröflu- svæðinu en þegar eldgos og landris fóru að gera vart við sig með reglulegu milhbili hafði það þau áhrif að margar holumar eyðilögðust. Var borunum því hætt. Nú eru nýttar ellefu holur og framleiðir virkjunin 30 mega- vött. Upphaflega var ætlunin að hún framleiddi 60 megavött og vom keyptar til hennar tvær véla- samstæður. Svo fór þó að einung- is önnur samstæðan var sett upp, hin bíður enn í kössum. Knútur sagði að ekki væri búið að tímasetja hvenær byrjað yrði að setja seinni samstæðuna upp. „Við höfum verið önnum kafnir í öðmm verkefnum að undan- fömu og emm enn. Við höfum staðið í vemlegum endurbótum og svo yfirtók Landsvirkjun ork- uveituna í Bjarnarflagi sem hefur verið endumýjuð að miklu leyti. Þegar við sjáum fyrir endann á þessum framkvæmdum verður farið að huga að stækkun Kröflu- virkjunar," sagði Knútur. Hann bætti því við að ekki yrði ráðist í uppsetningu seinni sam- stæðunnar fyrr en séð væri hvort svæðið væri orðið vinnsluhæft á ný. Til þess væri ráðist í að bora í sumar. Ætlunin er að verja fimmtíu miljónum til fram- kvæmda í sumar en Knútur kvaðst vonast til þess að þær faem ekki allar í þessa einu holu. Ríkisstjórnin Afmælisboð Vigdísar Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, verður sextug á páskadag, 15. apríl. Af því tilefni verður afmælishóf sem vinir hennar halda í Borgarleikhúsinu á laugardag en kl. 16-17.30 held- ur ríkisstjórnin forsetanum síð- degisboð að Hótel Sögu. Er það opið öllum meðan húsrúm leyfir. Þjóðviljinn óskar frú Vigdísi til hamingju með afmælið. Fimmtudagur 12. apríl 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.